Morgunblaðið - 30.10.2007, Síða 34

Morgunblaðið - 30.10.2007, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Laugavegi 170, 2. hæð • Opið virka daga kl. 8-17 Sími 552 1400 • Fax 552 1405 www.fold.is • fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401 Sjafnargata 101 Reykjavík Fallegt einbýli á stórri hornlóð. Húsið er tvær hæðir og kjallari ásamt bílskúr. Viðbygging er teiknuð af Sigvalda Thordarson. Fallegur gróinn garður og er lóðin 741 fm. Einstakt tækifæri til að eignast einbýlishús við þessa fallegu götu. Verð 99.0 millj Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand JÓN ER AÐ ELDA KVÖLDMAT RÓLEGUR... HANN ER HANDA LÍSU ÞEIR PRENTUÐU HANA! HÚN ER Í BLAÐINU! ÞEIR SETTU PÓLITÍSKU MYNDASÖGUNA MÍNA Í DAGBLAÐIÐ! ÞESSI SAGA Á EFTIR AÐ GERA SVO MIKIÐ GOTT! FINNUR ÞÚ EKKI HVERNIG HEIMURINN ER AÐ VERÐA BETRI Í KRINGUM ÞIG? HVERNIG FESTIR ÞÚ PÖDDURNAR ÞÍNAR? ÉG FESTI ÞÆR Í KASSA MEÐ PINNUM ÉG Á HVORKI KASSA NÉ PINNA... ÉG HELD AÐ ÉG FESTI BARA PÖDDURNAR MÍNAR VIÐ ÞETTA BLAÐ LÍMBANDIÐ ER EKKI EINS GOTT OG ÉG HÉLT... ÉG VONA BARA AÐ ÉG NÁI AÐ FESTA MAÐKINN AFTUR SAMAN MÁ ÉG FÁ LÍM STIFTIÐ ÞITT? FYRST ÞÚ ERT SVONA LAGINN VIÐ ÞETTA ÆTTIR ÞÚ AÐ NOTA HEFTARA EINA ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ VIÐ ERUM ENNÞÁ GIFT ERU BÖRNIN OKKAR EN ERU ÞAU EKKI FLUTT AÐ HEIMAN OG KOMIN MEÐ EIGIN FJÖLSKYLDU? ÞAÐ ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ VIÐ ERUM ENNÞÁ SAMAN... ÞAU VILJA EKKI AÐ ANNAÐ OKKAR ÞURFI AÐ FLYTJA INN TIL SÍN ALLT Í LAGI... ÉG HELD AÐ POKAROTTAN HAFI DREPIÐ HANN, Á ÞJÓÐVEGI NÚMER EITT MEÐ JEPPANUM ERTU ENNÞÁ AÐ TALA VIÐ ÞJÓNUSTU- FULLTRÚANN ?? JÁ, ÞEIR ERU AÐ LAGA ÞAÐ SEM VAR AÐ TENGINGUNNI OKKAR HJÁ ÞEIM HVERNIG FÉKKSTU ÞÁ TIL AÐ JÁTA AÐ VANDA- MÁLIÐ VÆRI HJÁ ÞEIM? STUNDUM VERÐUR MAÐUR AÐ ÁTTA SIG Á ÞVÍ AÐ MAÐUR ER AÐ TALA VIÐ MANNESKJU AF HVERJU ERTU ENNÞÁ Í SÍMANUM? HANN ER AÐ LÁTA MIG FÁ UPPSKRIFT AF FRÁBÆRUM KJÚKLINGARÉTT ERT ÞÚ EKKI PETER PARKER? JÚ, OG... ÞÚ LÍTUR KUNNUG- LEGA ÚT... ÉG ÆTTI AÐ GERA ÞAÐ... NEMA ÞÚ HAFIR ALDREI FARIÐ Í BÍÓ VÁ! ÞÚ ERT NARNA LEMARR... KVIKMYNDASTJARNAN FALLEGT AF ÞÉR AÐ TAKA EFTIR ÞVÍ dagbók|velvakandi Í tilefni af leiðara blaðsins 24 stundir þriðjudaginn 23. okt. sl. Í FYRRNEFNDUM leiðara geyst- ist fram á ritvöllinn enn einn áfeng- ispostulinn. Hann mærir heilbrigð- isráðherra fyrir þann kjark að styðja frumvarp um aukið aðgengi áfengis. Heilbrigðisráðherra styður aukið aðgengi áfengis, þrátt fyrir reynslu annarra þjóða og rannsóknir sem sýna fram á að aukið aðgengi áfengis orsakar aukna drykkju. Mér finnst að mörg önnur orð um framgöngu ráðherrans eigi betur við en orðið kjarkur. Leiðarhöfundur telur sér- kennilegt að alþingismenn hafi vit fyrir þjóðinni með boðum og bönn- um. Kjósum við ekki alþingismenn til að setja lög? Í leiðaranum stend- ur; áfengisbölið er vandi fárra. Hefur leiðarahöfundur ekki hlust- að á morgunfréttir ríkisútvarpsins á laugardögum og sunnudögum? Oft- ast eru þær eitthvað á þessa leið: Mikil erill hjá lögreglunni, drykkju- læti úti um alla borg, nokkrar lík- amsárásir, menn hálfdrepnir. Þeir sem ekkert sjá athugavert við að aukning verði á þessu framferði hljóta að loka augunum fyrir ástandi mála eða horfa þeir e.t.v. á það í gegnum rauðvínsflösku? Sigríður Jónsdóttir. Hvað er löglegt? ÉG ER að velta vöngum yfir greiðslum frá TR vegna bóta ársins 2006. Vangreiðsla þeirra til mín var 59 þúsund kr. en þeir taka fullan skatt af þessu. Peningana hefði mað- ur nú getað notað á ýmsan hátt, e.t.v. lagt eitthvað fyrir á inneign- arreikning. Ég skil ekki hvernig er hægt að taka skatt af því sem ein- hver skuldar manni, engir inneign- arvextir greiddir. Virðingarfyllst, Skattgreiðaandi. Ruslahaugur í íbúðarhverfi ÉG, undirritaður, hef þurft að þola að búa við hliðina á ruslahaug. Íbúi í næsta húsi hefur smám saman verið að bæta í ruslahaug í innkeyrslunni hjá sér, eins og sjá má á meðfylgj- andi mynd. Af þessu er mikill sóða- skapur, fyrir utan hve leiðinlegt er að horfa upp á svona haug inni í íbúðarhverfi. Ég hef rætt þetta bæði við borgaryfirvöld og heilbrigðiseft- irlitið og þar er mér lofað að eitthvað verði gert í málinu en engar efndir hafa verið. Nú langar mig að spyrja hver réttur minn í þessu máli sé? Þorleifur Vagnsson. Fyrirspurn til borgaryfirvalda HVERNIG verða vistvænir bílar ennþá vistvænir ef sett eru undir þá nagladekk? Maður á dekkjaverk- stæði sagði mér að það væru ein- göngu þrír til fjórir dagar á ári sem það væri öruggara að vera á nagla- dekkjum, alla hina dagana væri það óþarfi. Því langar mig að spyrja hvort ekki sé rétt að skattleggja nagladekkin. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Þessi skrautlega kónguló hefur gert sig heimakomna á útidyraljósi á Grettisgötunni og hafa húsráðendur ekki viljað amast við henni – heldur hafa hana í liði með sér. Hér hefur borið vel í veiði hjá kóngulónni. Ljósmynd/Birkir Jónsson. Kónguló á útidyraljósi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.