Morgunblaðið - 30.10.2007, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 30.10.2007, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ver ð aðeins 600 kr. SÍ ÐU ST U SÝ N. Ver ð aðeins 300 kr. - Kauptu bíómiðann á netinu - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Dark is Rising kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Resident Evil kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára Superbad kl. 5:30 B.i. 12 ára Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (300 kr.) Eastern Promises kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára Resident Evil kl. 10:10 B.i. 16 ára Heartbreak Kid kl. 6 - 8 B.i. 12 ára Good Luck Chuck kl. 6 B.i. 14 ára Sími 564 0000Sími 462 3500 Dark is Rising kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára 4 Months Enskur texti kl. 5:40 - 8 B.i. 12 ára The Edge of Heaven Enskur texti kl. 5:40 B.i. 12 ára Halloween kl. 10:20 B.i. 16 ára Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Good Luck Chuck kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * Sími 551 9000 Brjálæðislega fyndin mynd!! Frá gaurnum sem færði okkur The 40 Year Old Virgin og Knocked Up - J.I.S., FILM.IS- LIB, Topp5.is DÓMSDAGURDJÖFULSINS! FRÁ MEISTARA ROB ZOMBIE KEMUR EIN SVAKALEGASTA MYND ÁRSINS! eee Dóri DNA - DV STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU... VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM "THERE´S SOMETHING ABOUT MARY" Þriðji hlutinn í fram- tíðartryllinum með Millu Jovovich í toppformi! Las Vegas er HORFIN... Jörðin er næst! FRÁ LEIKSTJÓRANUM DAVID CRONEBERG ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST eeeee - Sæbjörn Valdimarsson, Mbl. eeeee - Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið Hann þarf að finna sex falda töfragripi á aðeins fimm dögum... til að bjarga heiminum frá tortímingu! Stórkostleg ævintýramynd í anda Eragon. TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ í Berlín hefur í leikhússtjóratíð Frank Castorfs haft þann sið að taka fyr- ir þjóðfélagsleg viðfangsefni frá ýmsum hliðum í verkefnaskrá sinni. Þessi sýning, leikgerðin á Sporvagninum Girnd, Endastöðin Ameríka, féll undir þemað: Kapítalismi og kreppa. Í fljótu bragði má ætla að langt sé á milli sálfræðilegra leikverka ameríska stórskáldsins og tilraunamannsins Castorfs sem gjarnan er sakaður um virðingarleysi við texta og ætíð fær kalt vatn til að renna milli skinns og hörunds þeirra sem í eitt skipti fyrir öll hafa ákveðið hvernig leikhús á að vera. Svo það fyrsta sem kemur á óvart er að sjá hversu mildum höndum Castorf hefur farið um þetta verk. Textinn skilar sér að mestu leyti, er einungis fluttur beint inn í okkar tíma með smávið- bótum og snúningum. Þó með þeirri nálgun Castorfs sem pop- gúrú þýskur hefur á gáskafullan hátt kallað „twostep“: „samtals- brot- sprell – samtalsbrot- leikfimi – samtalsbrot-söngur – samtals- brot-hlaup – samtalsbrot-tónlist“. Andstæðu pólarnir í verki Ten- nessee eru Stanley Kowalski, inn- flytjandi og verkamaður, sem er að reyna að vinna sig upp í banda- rísku iðnsamfélagi eftirstríðsár- anna og Suðurríkjakonan Blanche Debois sem kippt verið undan fót- unum í kreppunni miklu. Í sýningu Castorfs eru andstæður ekki eins skýrar. Stanley (Henry Hübchen) er áfram pólskur innflytjandi sem nú hreykir sér af því að hafa verið fyrrum félagi í Solidarnos og tekið þátt í verkföllunum í Gdansk við hlið Lech Walesa. Hann er kominn á miðjan aldur, farinn að láta á sjá, býr með ofurmagra barninu og ljóskunni Stellu (Kathrin Ange- rer) ekki í fátækrahverfi í New Orleans heldur í húsvagni einhvers staðar í Bandaríkjunum og vinnur fyrir sér með því að auglýsa Wrig- hleys-tyggjó í apabúningi. Og í húsvagninn flýr Blanche (Silvia Rieger)systir Stellu ekki lengur frá gjaldþroti í Suðurríkjunum heldur er hún atvinnulaus mennta- kona er kennir pólskar bók- menntir (hefur sennilega ekki dottið í hug að fara í fiskvinnslu á Þórshöfn). Og minnir einhvern veginn, þó að hún sé ekki gerð lík henni, á Marlene Dietrich í banda- ískri bíómynd: Gamla Evrópa, fjarlæg, í hálfgerðu losti í fram- andi menningarheimi! Sýningin byrjar á því að ná- grannakonan Eunice (Birgitte Cuvilier) og Stella standa við eld- húsbekkinn, brjóta egg í takt við gítarleik Steve (Milan Peschel) á lagi Lou Reeds „Perfect day“ og syngja um leið dásamlega kómísk- ar bakraddir. Öll tónlist er flutt af leikurum á sviðinu, lög Britney Spears blandast þar saman við Lou Reed og þýsk lög. Líkt og franska, enska og þýska blandast saman á sviðinu og íslenska þýð- ingin ásamt tilvitnunum í Tennes- see, birtist í auglýsingaborða úti fyrir húsvagninum. Við erum sem sagt stödd í fjölmenningunni, hnattvæðingunni miðri. Á nýju stigi þess kapítalíska frumskógar sem Tennessee lýsir þar sem ein- staklingurinn á að bjarga sér einn og sjálfur sem best hann getur. Og í þeim veruleika reynist hvergi hald að finna, ekkert öryggi, ein- ungis einsemd. Auðmýktir karl- menn eins og Stanley berja því óhamingjusamir frá sér heima með hnefunum ef þeir geta ekki flúið í póker og keiluspil. Konur eins og Blanche á flótta líka í lyga og draumaheima eða ríghalda sér eins og Stella, í fullkominni afneit- un, í óhamingjusamt samband og samsömun við sýndarveruleika. Og það er engin tilviljun að nú er Stanley ekki lengur verkamaður í verksmiðju heldur sjálfstæður frjáls verktaki í apabúningi; eða að Blanche er atvinnulaus mennta- kona sem finnst hún af og til heyra lag úr horfinni útópíu um samstöðu; eða að nú fæðist barn Stellu andvana. Þetta er nákvæm greining á breyttri stöðu þess samfélagshóps sem Tennessee lýs- ir í verki sínu. Munaðarlausir, án vonar, láta einstaklingar flækja sér um heiminn fullkomlega van- máttugir gagnvart aðstæðum í ný- kapítalismanum. Eins og væri hann örlögin! Gott var að sjá og heyra allar þær snilldarhugdettur og flóknu vísanir sem Castorf notar til að heimfæra verkið upp á nútímann; einnig leikmynd og búninga Bert Neumanns sem dáður er fyrir eftirlíkingar sínar á veruleikanum og frumlega notkun vídéóa eins og hér þar sem hann lætur okkur fylgjast með því sem gerist í bað- herberginu gegnum sjónvarp; og þessa leikara sem eru lausir við alla tilfinningasemi og skopstæla af svo miklu öryggi en aldrei á kostnað andartaksins eða manneskjunnar. Svona frábært getur leikhús verið sem telur sig hafa mikilvægu hlutverki að gegna í samfélaginu og eru skapaðar að- stæður og öryggi til að vinna og gera tilraunir. Vonandi hafa ekki allir ráða- menn þjóðar og borgar verið í út- löndum heldur einhver þeirra villst á þessa sýningu. Þeir hafa þá kannski séð hvernig þýska sam- félagið býr enn að leikhúsum. Takk fyrir, Borgarleikhús! Sjálfstæður og frjáls í apabúningi Frumskógur „Við erum sem sagt stödd í fjölmenningunni, hnattvæðingunni miðri. Á nýju stigi þess kapitaliska frumskógar sem Tennessee lýsir þar sem einstaklingurinná að bjarga sér einn og sjálfur sem best hann getur.“ María Kristjánsdóttir LEIKLIST Volksbühne - gestaleikur hjá Leikfélagi Reykjavíkur Eftir Tennessee Williams. Leikgerð á verki hans Sporvagninn Girnd eftir Frank Castorf. Leikstjóri: Frank Castorf. Leik- mynd og búningar: Bert Neumann. Dramatúrg: Carl Hegemann. Lýsing: Lot- har Baumgarte. Leikarar: Kathrin Ange- rer, Brigitte Cuvelier, Henry Hübchen, Milan Peschel, Silvia Rieger, Bernhard Schütz. Borgarleikhúsið, Stóra svið, 26. október kl. 20. Endastöð Ameríka

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.