Morgunblaðið - 30.10.2007, Page 41

Morgunblaðið - 30.10.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2007 41 THE INVASION kl. 6D - 8:20D - 10:30D B.i. 16 ára DIGITAL DARK IS RISING kl. 6 - 8 B.i. 7 ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ IN THE LAND OF WOMEN kl. 8 - 10:10 LEYFÐ THE KINGDOM kl. 10:10 B.i. 16 ára / KRINGLUNNI SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS / AKUREYRI THE INVASION kl. 8 - 10 B.i. 16 ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ STARDUST kl. 8 B.i. 10 ára THE TRANSFORMERS kl. 10.20 B.i. 10 ára / KEFLAVÍK HALLOWEEN kl. 10:20 B.i. 16 ára HEARTBREAK KID kl. 8 LEYFÐ THE BRAVE ONE kl. 8 B.i. 16 ára 3:10 TO YUMA kl. 10:20 B.i. 16 ára GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10:10 LEYFÐ HALLOWEEN kl. 10:20 B.i. 16 ára SUPERBAD kl. 8 B.i. 12 ára / SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI ER RÉTTLÆTANLEGT AÐ TAKA LÖGIN Í SÍNAR HENDUR ÞEGAR LÖGREGLAN STENDUR RÁÐÞROTA? - S.F.S., FILM.IS SÝND Í KRINGLUNNI AKKA SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI Stórkostleg ævintýramynd í anda Eragon. ÞEGAR Á BJÁTAR MÁ TREYSTA Á ÞAÐ AÐ SANNAR HETJUR GEFAST EKKI UPP! 600 kr. Miðaverð SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK HJARTAKNÚSARINN ADAM BRODY ÚR THE O.C OG MEG RYAN FARA Á KOSTUM Í MYND SEM ENGIN ÆTTI AÐ MISSA AF. SÝND Í ÁLFABAKKA 27.10.2007 11 14 16 26 35 3 5 9 8 1 8 6 3 4 9 15 24.10.2007 6 7 17 26 36 43 3314 34 TÓNLIST Broadway George Michael í 25 ár  Söngvarar: Jógvan Hanson, Friðrik Ómar. Tónlistarstjóri: Þórir Úlfarsson. ÞAÐ þekkja flestir til George Mich- aels. Hann skapaði sér nafn með dú- ettinum Wham! á níunda áratugnum en eftir að því samstarfi lauk hóf hann farsælan sóló-feril sem náði hámarki á tíunda áratugnum. Nú hefur verið sett upp sýning á Broadway í tilefni 25 ára starfsafmælis hans þar sem flutt eru mörg af hans vinsælustu lög- un Sýningin hófst með miklum látum og var strax byrjað á smellum á borð við „Faith“ og „The Edge of Hea- ven“. Jógvan Hansen og Friðrik Óm- ar standa sig prýðilega í hlutverki George Michaels – og er það stór- sniðug hugmynd að láta tvo söngvara sjá um raddsvið söngvarans og bera sýninguna saman. Jógvan söng þau lög sem henta hans raddsviði, sem er lægra, og bar þar af leiðandi ekki jafnmikið á honum – engu að síður fórst honum verkið vel úr hendi. Hann er með skemmtilega afslapp- aða sviðsframkomu og virðist ekki taka sjálfan sig of alvarlega. Friðriki Ómari var hins vegar úthlutað kraft- meiri línum og fékk hann þar af leið- andi veigameiri lög til söngs. Flutn- ingur hans á Queen-slagaranum „Somebody to Love“ var frábær, hann fann sig vel í hlutverki sínu og söng prýðilega. Útsetningar laganna eru alveg ótrúlega góðar. Ég þekki vel til ferils George Michaels og bjóst ekki við því að flutningurinn yrði jafngóður og raun bar vitni. Þetta skilaði sér í sér- staklega góðri stemningu. Sýning- argestir dönsuðu og sungu hástöfum með – enda kunna flestir textana, hvort sem þeir gera sér grein fyrir því eða ekki. Dansararnir studdu vel við sýninguna, þau hlupu um salinn og áttu mikilvægan þátt í að hvetja áhorfendur til gleði og söngs. Lagavalið er mjög gott. Ekki er of mikið um ballöður og hressari lög frekar valin. Ég saknaði þess þó að heyra „FastLove“ og kannski „Last Christmas“ – en það gæti verið að það væri of jólalegt að spila það í október. Á heildina litið er sýningin besta skemmtun og ég mæli hiklaust með henni fyrir þá sem vilja taka gott „eighties“-tjútt. Helga Þórey Jónsdóttir Frábær skemmtun! Morgunblaðið/Jón Svavarsson Frábær Friðrik Ómar var hins vegar úthlutað kraftmeiri línum [...], Flutn- ingur hans á Queen-slagaranum ,,Somebody to Love“ var frábær, Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA gekk afskaplega vel og við erum mjög þakk- lát,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameins- félagsins, um hátíðarkvöldverð sem haldinn var til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini á laug- ardagskvöldið. Um 160 manns mættu til viðburðarins sem stundum er kallaður Bleika boðið en hann var að þessu sinni haldinn í Eldborg, húsakynnum Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi. „Við hefðum aldrei getað þetta ef ekki hefði verið fyrir velvilja Matarklúbbsins Freist- ingar sem í eru bæði matreiðslumenn, bakarar, þjónar og nemar. Það er meira en að segja það að búa til átta lystilega rétti fyrir 160 manns,“ segir Guðrún, en skemmtikraftar og aðrir sem komu fram gáfu einnig vinnu sína. Gestirnir, sem margir hverjir voru úr viðskipta- og fjármálalífinu, keyptu sæti sín auk þess sem uppboð á listaverkum var haldið, en alls söfnuðust 17,5 milljónir. Hinir ýmsu listamenn og Gallerí i8 gáfu verk til uppboðs- ins, en verk Hrafnkels Sigurðssonar sem málað var á staðnum seldist dýrustu verði, á 2,5 milljónir. Að sögn Guðrúnar kemur féð að góðum notum. „Við erum í mikilli tæknibyltingu á leitarstöðinni, við erum að fara yfir í stafræna tækni. Það er nú þegar búið að gefa okkur myndarlega fyrir þeim fimm röntgentækjum sem við þurfum. En okkur vantar bæði nauðsynlegan hug- búnað, og tvö ómtæki. Með sölu bleiku slaufunnar og þessum viðburði held ég að okkur hafi tekist að safna fyrir ómtækjunum.“ Sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson var sér- legur uppboðshaldari á laugardagskvöldið, en svo fór að lokum að hann sjálfur var boðinn upp, ef svo mætti að orði komast. „Þetta var mjög fyndið,“ segir Logi. „Það var þarna hópur frá FL Group á einu borðinu, og ég var búinn að gera mikið grín að þeim allt kvöldið því þetta voru bara strákar. Þeir svöruðu gríninu, og þegar maður gerir grín verður maður víst að geta tekið því sjálfur. En þeir buðu sem sagt 500.000 krónur ef ég færi úr að ofan,“ segir Logi sem var ekkert að tvínóna við hlutina, heldur vippaði sér úr að ofan við mikla kátínu viðstaddra og hnyklaði vöðvana. Hann segir það ekki hafa verið neitt mál, þrátt fyrir gestina 160. „Maður hefur nú gert annað eins,“ segir hann og bætir við að auðvitað hafi málstað- urinn verið góður. „Það var líka góð stemning þarna, og það var ákveðinn húmor í þessu. Maður verður nú að geta tekið svona gríni.“ 17,5 milljónir söfnuðust í Bleika boðinu Glæsileg Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit Moussaieff, Guðrún Agnarsdóttir, Rakel Valdimarsdóttir og Sigurður Björnsson. Logi Bergmann Fór úr að ofan fyrir 500 þúsund. Ljósmynd/Ruth Ásgeirsdóttir Logi Bergmann safnaði hálfri milljón með því að fara úr að ofan Flott Sigríður Þórisdóttir, Sigurjón Sighvatsson, Ing- ólfur Helgason og Hanna Birna Björnsdóttir. Morgunblaðið/Frikki Ljósmynd/Ruth Ásgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.