Morgunblaðið - 02.11.2007, Page 8

Morgunblaðið - 02.11.2007, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Soffíu Haraldsdóttur soffia@mbl.is BANKASTJÓRN Seðlabanka Íslands tilkynnti í gær 0,45 prósentstiga hækkun á stýrivöxtum bankans og eru þeir þá orðnir 13,75%. Þetta kemur nokkuð á óvart í ljósi fyrri yfirlýsinga bankans og almennt gerðu greining- ardeildir viðskiptabankanna ráð fyrir að stýrivextir yrðu óbreyttir. Hækk- unin er fyrst og fremst til að stemma stigu við verðbólgu, sem hefur aukist á nýjan leik og horfur eru á að hún verði meiri en spár gerðu ráð fyrir. Ólafur Darri Andrason, hagfræð- ingur Alþýðusambands Íslands, segir stýrivaxtahækkunina koma á óvart og varla geta talist góð tíðindi. Áhrifa á gengi krónunnar hafi enda gætt strax. Hann segir ASÍ löngum hafa gagnrýnt það að berjast gegn verð- bólgu með mjög háum vöxtum. Það veiki útflutnings- og samkeppnis- greinarnar. Því sé betra að berjast gegn verðbólgu með aðhaldi í ríkis- fjármálum. „Þessi ákvörðun er í raun áfall fyrir þær atvinnugreinar og þau lands- svæði sem hafa staðið höllum fæti undanfarið. Sjávarútvegurinn er að ganga í gegnum mjög erfiðan sam- drátt. Hann hefur búið við sterkt gengi í langan tíma. Þetta hljóta því að vera mjög vond tíðindi fyrir þá sem starfa í útflutningsgreinum. Það má líka gera ráð fyrir að þetta hitti heimilin í landinu illa fyrir, sem og mörg smærri fyrirtæki. Við sjáum að margir hafa sótt sér lán út fyrir landsteinana og nú má búast við að sú þróun haldi áfram.“ Í trúverðugleikakreppu Ólafur Darri reiknar ekki með að hækkunin auðveldi gerð kjarasamn- inga um áramótin. „Hagkerfið stendur að meðaltali ágætlega og hagspár flestra hafa ver- ið til þess að gera jákvæðar. En með þessari stýrivaxtaákvörðun verður enn meira bil á milli þeirra atvinnu- greina sem standa vel og hinna sem standa illa og einnig á milli þeirra landsvæða sem standa vel og hinna.“ Um þau orð seðlabankastjóra að stýrivextir muni fara að lækka um mitt næsta ár og verða komnir undir 4% árið 2009 segir Ólafur Darri: „Seðlabankinn er í ákveðinni trú- verðugleikakreppu. Bankinn hefur búið við verðbólgumarkmið frá því í mars 2001. Það blasir þó við að þrátt fyrir að við höfum búið við mjög háa stýrivexti í mjög langan tíma þá er Seðlabankinn enn langt frá því að ná markmiðum sínum. Ég verð því að játa að ég er ekki mjög trúaður á að bankinn sé eitthvað nær því núna en áður að ná markmiðum sínum.“ Fóður í nýja verðbólgu „Ef það er heldur að hægja á í hag- kerfinu, eins og við mörg hver höfum verið að spá, þá stendur bankinn frammi fyrir þeirri óþægilegu stöðu að þegar hann ætlar að slaka á vax- taklónni þá mun vaxtamunur við út- lönd fara minnkandi og þá dregur úr aðstreymi svokallaðra krónubréfa og krónan mun veikjast. Það er því ekk- ert ólíklegt að þegar bankinn fer að feta sig út úr þeim gríðarlega háu vöxtum sem við búum við í dag, þá gefi gengið eftir og það er fóður í nýja verðbólgu,“ segir Ólafur Darri. Hægara vaxtalækkunarferli Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, er ekki sér- lega trúaður á að lækkun stýrivaxta muni fara niður undir 4% á árinu 2009, líkt og segir í stefnulýsingu bankastjórnar Seðlabankans. „Svo brött lækkun stýrivaxta hér á landi kallar á verulega lækkun á gengi krónunnar. Það hefur neikvæðar af- leiðingar, ekki síst í formi þess að verðbólgan mun aukast en ekki minnka. Og það er úr takti við stefnu Seðlabankans.“ Hann telur að í spá Seðlabankans sé ekki tekið nægilegt tillit til þess nána sam- bands sem sé á milli gengis krón- unnar annars veg- ar og munar á inn- lendum og erlendum skamm- tímavöxtum hins vegar. En vegna þessa sambands segir hann óraun- hæft að gera ráð fyrir svo hraðri lækkun stýrivaxta. „Við teljum að vaxtarlækkunarferlið verði mun hægara þegar það hefst.“ Ingólfur fagnar vaxtahækkunar- ákvörðun Seðlabankans nú og segir hana eðlilega í ljósi stöðunnar þó svo að honum þyki gagnrýnisvert að bankinn hafi ekki verið búinn að gefa frá sér neina vísbendingu um að hækkun væri væntanleg. „En verðbólgan er há og full ástæða fyrir Seðlabankann að hafa mikið aðhald í peningamálum,“ segir Ingólfur og þykir Seðlabankinn alls ekki hafa verið nógu grimmur í fortíð- inni. Hann bendir á að frá því að verð- bólgumarkmið bankans voru sett í mars 2001 hafi verðbólgan verið að meðaltali 4,7%. Þetta sé nær tvöfalt verðbólgumarkmiðið. „Það segir bara eitt, að bankinn hefur ekki verið nægilega harður á þessu tímabili,“ segir Ingólfur. Berjast með bitlausu vopni Samtök iðnaðarins gagnrýna bankastjórn Seðlabanka Íslands harðlega fyrir vaxtahækkunina og segja hana misráðna. Enda auki hún til lengri tíma litið hættu á snörpu gengisfalli með verðbólguskoti og kaupmáttarsamdrætti. Að auki ýti hækkunin undir flótta fyrirtækja frá háum vöxtum, og sterku og óstöðugu gengi. Samtökin segja Seðlabankann berjast við fasteignaverðbólgu með bitlausu vopni og raunar hafi hækkun stýrivaxta þau áhrif til skamms tíma að auka einkaneyslu, þvert á mark- mið bankans, enda sé gjaldeyrir á út- sölu. Gengissveiflurnar óviðunandi Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, er ekki á sama máli og segir at- vinnulífið ekki geta unað við þær gengissveiflur sem peningastefnan hafi haft í för með sér. Breyting á verðbólgumarkmiðinu og peninga- stefnunni sé ein af meginforsendun- um fyrir því að atvinnulífið geti axlað áfram þá byrði að bera hæsta launa- kostnað í Evrópu. Hann bendir einnig á, að hvorki seðlabankar Bandaríkjanna né Evr- ópu taki tillit til fasteignamarkaðar með sama hætti og sá íslenski við mörkun peningamálstefnu. Áhrif á útgáfu Íbúðalánasjóðs Verðbólgan í landinu er að stórum hluta til drifin af verðhækkunum á fasteignamarkaði og Íbúðalánasjóður hefur þótt draga lappirnar við að stemma stigu við því með breytingum á vöxtum. Árni Mathiesen fjármála- ráðherra bendir á að lánshlutfallið hafi þó verið lækkað í sumar. Vextir sjóðsins ráðist hins vegar af markaði og í ljósi mikillar hreyfingar á skulda- bréfamarkaði í gær megi gera ráð fyrir að hækkunin hafi áhrif á vexti í næstu útgáfu hjá Íbúðalánasjóði. Hærri vextir gegn verðbólgu                         Ingólfur Bender Ólafur Darri Andrason Vilhjálmur Egilsson Seðlabankinn kemur til með að búa til verðbólgu ef stýrivextir lækka svo hratt að þeir verði komnir í 4% árið 2009 Í HNOTSKURN »Stýrivextir Seðlabankansvoru í gær hækkaðir um 0,45 prósentustig og eru orðn- ir 13,75%. »Hagfræðingur ASÍ segirútli fyrir að hækkunin hitti heimilin í landinu illa fyrir. »Framkvæmdastjóri Sam-taka atvinnulífsins segir ekki hægt að una við geng- issveiflur sem peningastefnan hafi haft í för með sér BJARKI Gíslason, blaðberi Morgunblaðsins og 24 stunda, varð hlutskarpastur í blaðberakapphlaupi Árvakurs í september og hlýtur hann því 25 þús- und króna ferðaúttekt hjá ferðaskrifstofunni Heimsferðum. Bjarki ber út 60 eintök af 24 stundum og 30 af Morgunblaðinu í Reykjabyggð í Mosfellsbæ og nýtur aðstoðar eldri systur sinnar, Hörpu Gísla- dóttur. Bjarki er 17 ára og stundar framhaldsnám í Borgarholtsskóla í Grafarvogi. Hefur hann stund- að blaðburð síðustu 2 árin og sér ekki annað í spil- unum í augnablikinu en að hann muni halda því áfram. Morgnarnir eru teknir heldur snemma að hætti blaðbera, vaknað kl. 6.30 og skotist út með blöðin. Bjarki og Harpa bera eingöngu út blöð í einbýlis- hús og því er skrefafjöldi á hvert blað kannski ívið meiri en hjá blaðberum sem bera út í stórar blokk- ir og geta tæmt hálfan blaðapokann á sama stað. „Það fer eftir veðri hvað við erum lengi að bera út, oftast erum við 20-30 mínútur,“ segir Bjarki. Segir hann koma sér vel að geta þénað aukapening með blaðburðinum. Snöggur Bjarki Gíslason blaðberi og Þorkell G. Sigurbjörnsson frá dreifingardeild Árvakurs. Vann úttekt ÁSTÆÐAN fyrir því að ég sló til er að það er svo mikið um æskudýrkun, allt á að yngja upp, og mér finnst þetta því gott fordæmi,“ segir Sigurður Líndal, prófessor emeritus í lögfræði við Háskóla Íslands, en hann hefur nú tekið við prófessorsstöðu við Háskólann á Bifröst, 76 ára gamall. „Auðvitað þarf æskan að komast að en hvorir tveggja þurfa að vera til staðar, ungir og gamlir. Þetta var tilboð sem alls ekki var hægt að hafna.“ Sigurður segist vera við prýðilega heilsu en hann stundar mikið skokk og heldur sér í góðu formi. Hann mun kenna réttarsögu og þætti í stjórnskipunarrétti, réttarheimspeki og lagahugsun auk almennrar lögfræði, einnig mun hann stunda rannsóknir. Ekki hyggst hann setjast að uppi í Borgarfirði heldur aka á milli, oftast nær, enda er rann- sóknastöðin „heima á Bergstaðastrætinu“. Sigurður varð stundakennari við HÍ 1967 og prófessor 1972. Hann segist ekki vita hve mörgum lögfræðingum hann hafi kennt á ferlinum en ljóst er að þeir skipta þúsund- um. Hann hætti við HÍ 2001 fyrir aldurs sak- ir en hefur þó áfram verið stundakennari við skólann og einnig við háskólana á Akur- eyri og Bifröst. Sigurður náði meira að segja að kenna fyrir hádegi í Reykjavík og eftir hádegi á Akureyri, þetta eru rök fyrir því að flytja ekki flugvöllinn úr Vatnsmýr- inni, bætir hann við hlæjandi. „Gallinn við réttarsöguna og réttar- heimspekina, öll þessi „gagnslausu fög“ eins og ég hef kallað þau, er að þau eiga dálítið undir högg að sækja,“ segir Sigurður. „Þau eru náttúrlega kennd smávegis sem skyldu- grein en það er þetta eilífa peningaleysi sem veldur því að ekki má kenna valgrein nema tiltekinn lágmarksfjöldi sæki námskeiðið. Yfirleitt eru þeir fáir sem fara í fög sem ekki eru beinlínis hagnýt í viðskiptalífi nú- tímans. Ég hef nokkrar áhyggjur af þessu vegna menningararfleifðar okkar. Það er þessi hóflausa nytjahyggja nútímans sem ræður, nú eru allir í útrásinni, peningunum og bönkunum. Því fylgir svo lögtæknin, ég hef alltaf sagt að hún sé vissulega nauðsyn- leg en á bak við hana verði að vera sjálfar ræturnar og heimspekin. Það er ekkert sniðugt að vera bara ein- hver frumstæður lögtæknir, auk þess er alltaf verið að breyta lögunum og lögtæknin úreldist fljótt. Ný lög um verðbréfaviðskipti sem taka gildi í dag fella burt önnur um sama efni sem mig minnir að séu frá 2003, svo hröð er þróunin. En við kennum samt að eitt einkenni laganna sé að þau þurfi að vera stöðug. Ef þau eru það ekki er erfitt að gera áætlanir, þær byggjast á því að lögin séu stöðug.“ Á móti „skrumvæðingu“ háskólanna – Eru sett of mörg lög og ætti að gera meira af því að nema gömul lög úr gildi? „Ég held að það séu nú aðallega Evrópu- sambandið og Evrópska efnahagssvæðið sem framleiða of mikið af lögum fyrir okk- ur. Þau enda svo hjá okkur. Lög eru oft felld úr gildi en ég er nú svo íhaldssamur að ég vil halda í gömlu lögin.“ – Sumir sögðu að þú hefðir á sínum tíma verið á móti því að lögfræði væri kennd ann- ars staðar en við HÍ. Skiptirðu um skoðun? „Ég held að ég hafi aldrei sagt þetta! Hitt er annað mál að það sem mér hefur þótt leiðinlegt er það sem ég hef kallað skrum- væðingu háskólanna. Fullyrðingar eins og við erum mestir, bestir o.s.frv. Þetta hefur svolítið farið fyrir brjóstið á mér. Ég er ekk- ert að lasta störf manna í þessum skólum en bara á móti því að kynna þetta svona, kynna þetta með auglýsingatækni nútímans. Ég vil láta verkin tala,“ segir prófessor Sigurður Líndal. „Þetta var tilboð sem alls ekki var hægt að hafna“ Sigurður Líndal tekur við prófessorsstöðu á Bifröst á 77. aldursári Morgunblaðið/Ómar Nýtt líf Sigurður Líndal, prófessor í lögum við Háskólann á Bifröst. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.