Morgunblaðið - 14.11.2007, Síða 46

Morgunblaðið - 14.11.2007, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ - Kauptu bíómiðann á netinu - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Lions for Lambs kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Lions for Lambs kl. 5:45 - 8 - 10:15 LÚXUS Balls of Fury kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Dark is Rising kl. 3:45 - 5:50 B.i. 7 ára Heartbreak Kid kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 4 - 6 Good Luck Chuck kl. 8 B.i. 14 ára Resident Evil kl. 10:10 B.i. 16 ára Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 4 Mr. Woodcock kl. 6 - 8 - 10 Balls of Fury kl. 8 - 10 B.i. 7 ára Ævintýraeyja IBBA kl. 6 m/ísl. tali Sími 564 0000Sími 462 3500 Lions for Lambs kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára This is England kl. 6 - 8 - 10 Rouge Assassin kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára Superbad kl. 5:30 - 10:40 B.i. 12 ára Good Luck Chuck kl. 5:40 B.i. 14 ára * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * Sími 551 9000 Ver ð aðeins 600 kr. Ve rð a ðeins 600 kr . Með íslensku tali Gríðarstór gamanmynd með litlum kúlum! „...prýðileg skemmtun sem ætti að gleðja gáskafull bíógesti...!“ Dóri DNA - DV Stórkostleg ævintýra- mynd í anda Eragon. eeee - H.J. Mbl. eeee - T.S.K., 24 Stundir BÚÐU ÞIG UNDIR STRÍÐ SVAKALEG SPENNA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA Hættulega fyndin grínmynd! Sannkölluð stórmynd með mögnuðum leikurum. KATE Thompson vann til verðlauna og fékk mikið lof fyrir fyrstu bók sína, The New Policeman, sem segir einkar skemmti- lega frá því hvaða máli tónlist skiptir í írskri þjóðarsál og fléttar sam- an við frásögnina þáttum úr írskum ævintýrum, meðal annars um landið týnda, Tir na n’Og. The Last of the High Kings er einskonar framhald af þeirri ágætu bók, einskonar, segi ég, þar sem atburðarásin er ekki tengd, en ýmsar persónur í bókinni, og reyndar grunnstef hennar líka, er sameiginlegt. JJ er tónlistarmaður sem snúið hefur sér alfarið að tónlist til þess að geta verið meira heima hjá fjölskyldunni. Honum gengur aftur á móti það vel að hann er eiginlega aldrei heima; hann er á sífelldu flandri um heiminn að spila á tónleikum og fyrir vikið finnst eiginkonu hans sem hún sé komin í ómögulega stöðu; þarf að leggja sitt líf á hilluna til að hindra ekki frama hans. Verst af öllu er þó eitt barnanna, sérlundað og eiginlega alveg ómögulegt, en á bak við til- vist er fjölskylduleyndarmál. Líkt og í The New Policeman skiptir tón- list miklu í sögunni, en að þessu sinni eru þó írskar þjóðsögur í aðalhlutverki og írskt huldufólk, sem ekki síður óútreiknanlegt en íslenskt. Það er kostur við The Last of the High Kings, líkt og The New Policeman, að þó hún sé upp full af tilfinningum er ekkert væl í henni, ekkert tilfinningaklám, og þó örlögin séu grimm mæta menn þeim með bros á vör (og fiðlu við kinn). Thompson sýnir líka skemmtilega að lífið getur verið erfitt í ævintýrum, ekki síst ef menn taka rangar ákvarðanir. Ekkert væl The Last of the High Kings, barnasaga eftir Kate Thompson. Bodley Head gefur út. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Protect and Defend –Vince Flynn 2. Book of the Dead – Patricia Cornwell 3. Home to Holly Springs – Jan Karon 4. Playing for Pizza – John Gris- ham 5. Amazing Grace – Danielle Steel 6. World Without End – Ken Follett 7. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 8. The Choice – Nicholas Sparks. 9. Lick of Frost – Laurell K. Hamil- ton 10. The Almost Moon – Alice Sebold. New York Times 1. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 2. The Ghost – Robert Harris 3. Sepulchre – Kate Mosse 4. World without End – Ken Fol- lett 5. Crossfire – Andy McNab 6. The Kite Runner – Khaled Hos- seini 7. The Gathering – Anne Enright 8. Blind Faith – Ben Elton 9. A Spot of Bother – Mark Had- don 10. One Good Turn – Kate Atkinson Waterstone’s 1. Sword of God – Chris Kuzneski 2. Cross – James Patterson 3. Anybody Out There? – Marian Keyes 4. Treasure of Khan – Clive Cuss- ler 5. Wintersmith – Terry Pratchett 6. Making Money – Terry Pratc- hett 7. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 8. Kite Runner – Khaled Hosseini 9. The Moomin Book 1 – Tove Jansson 10. The Woods – Harlan Coben Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Í SPJALLI við indverska rithöf- undinn Vikram Chandra, höfund Sacred Games sagði hann mér frá því hve algengt væri orðið að menn teldu hann vera að skrifa fyrir út- lendinga. Þannig tiltók hann að sumir frammámenn í indverskri menningu fettu fingur útí að hann notaði indversk heiti á þættina í smásagnasafninu Love and Long- ing in Bombay, Dharma, Shakti, Kama, Artha og Shanti (trú eða skylda, afl, kynlíf, fjársýsla og frið- ur), héldu því að fram að það væri gert til að gera sögurnar fram- andlegri fyrir vestræna lesendur. Greinasafn eftir Pamuk Þetta rifjast upp við lestur Ot- her Colours, sem er greinasafn eft- ir Orhan Pamuk og einni smásögu betur. Eftir því sem hróður Pa- muks hefur orðið meiri víða um heim hafa æ fleiri landar hans hnýtt í hann og þær raddir orðið háværari að hann sé ekki nógu tyrkneskur höfundur, hann sé í raun að skrifa fyrir útlendinga, ekki landa sína. Í Tyrklandi er togstreita á milli vestrænna lifnaðarhátta og vest- rænnar menninar og íslamsks upp- runa. Kemal Ataturk ákvað á sín- um tíma að gera Tyrkland að hluta Evrópu. Slík breyting tekur þó langan tíma og eftir því sem mjak- ast í áttina eykst andstaðan og um leið þversagnirnar. Í Snjó, Kar, skrifar hann einmitt um togstreit- una og ekki síst það að þjóð sem ekki gerir upp fortíð sína getur ekki mætt framtíðinni. Segja má að hápunkti andúðar áhrifamikilla manna meðal tyrk- neskra mennta- og listamanna hafi verið náð með því er Pamuk var kærður fyrir að móðga tyrkneska þjóðarvitund á sínum tíma. Myndin af Mehmed Ein besta greinin í bókinni segir frá því er ítalski listamaðurinn Gentile Bellini hélt til Miklagarðs 1479 og málaði fræga mynd af Mehmed II, eða Mehmed Sig- urvegara, eins og hann er nefndur þar fyrir austan. Vegna þess að forboðið var í íslam að mála mynd- ir, ekki síst andlitsmyndir, og gekk svo langt að samtímamenn veigr- uðu sér við að lýsa nákvæmlega út- liti manna, er þessi mynd af þess- um merka soldáni sú eina sem til er – Tyrkir geta aðeins séð fyrir sér útlit hans í gegnum vestræn augu. Í Other Colours er pistill þar sem Pamuk veltir því fyrir sér hvar Evrópu sé að finna og því hvernig Tyrkir hafi þráð það að vera hluti af henni en á sama tíma talið hana svo framandlega að það geti eiginlega aldrei orðið. Sam- tímis missa þeir þó sjónar á fortíð- inni sem birtist meðal annars í því að þeir geta ekki lengur lesið sín fornu rit; í landi þar sem latínu- letur hefur verið allsráðandi í ára- tugi kann enginn að lesa arabískt letur lengur. Forvitnilegar bækur: Safn greina Nóbelsskálds Hvar er Evrópa? Greinasafn Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk er ekki nógu tyrkneskur að mati margra landa hans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.