Morgunblaðið - 02.12.2007, Qupperneq 46
46 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÍMYNDUM okkur að 21 ein-
staklingur hafi látið
lífið hér á landi á
fimm árum vegna
þess að sprengjur
sem áttu að vera til
leiks, sprungu
„óvart“. Allar þessar
sprengjur voru smíð-
aðar mönnum til
skemmtunar – ekki
til að drepa. Sumar
þeirra voru smíðaðar
til að fullnægja ein-
hverri fíkn viðkom-
andi í það að sjá
sprengjur springa –
ekki til að drepa.
Ímyndum okkur að á fimm árum
hefðu 205 slys orðið með
meiðslum af sömu völdum. Hvern-
ig hefðum við brugðist við þessu?
Hvaða kröfur hefðum við gert til
opinberra aðila, lögreglu, dóm-
stóla, sjálfra okkar og ekki hvað
síst þeirra sem höndluðu með
sprengiefnin? Myndum við ekki
innræta börnum okkar það að
koma ekki nálægt þessum dráp-
stólum? Myndum við ekki láta vita
af því ef við sæjum til tilræð-
ismannanna? Eða hvað? Myndum
við kannski hafa sömu afstöðu til
þessa og mörg okkar
virðast hafa gagnvart
ölvunarakstri?
Á fimm árum dó 21
einstaklingur á Ís-
landi af völdum ölv-
unaraksturs. 205 slys
urðu á fólki af sömu
völdum. Í mörgum til-
fella var ekki um
mikla neyslu áfengis
að ræða. Hún var þó
nægjanlega mikil til
þess að skerða við-
bragðsflýti og dóm-
greind ökumannsins
þannig að slys hlaust
af. Þessar tölur hefðu án efa verið
hærri ef ekki hefði verið rekinn
mikill áróður gegn ölvunarakstri
svo ekki sé talað um öflugt eftirlit
lögreglu sem án efa hefur bjargað
mörgum mannslífum. En það dug-
ar ekki til. Við verðum að líta okk-
ur nær.
Þrátt fyrir þessar blóðfórnir
virðist almennt ríkja undarlegt
umburðarlyndi gagnvart ölvunar-
akstri. Mörg okkar veita mikinn
siðferðislegan afslátt af þessari
hegðun. Samkvæmt viðhorfs-
könnun sem gerð var í fyrra, fyrir
samgönguráðuneytið og Umferð-
arstofu, kemur fram að u.þ.b. 24%
aðspurðra finnst í lagi að aka eftir
einn áfengan drykk. Hinsvegar
höfðu u.þ.b. 76% aðspurðra dóm-
greind til að átta sig á því að það
er ekki í lagi að aka eftir einn.
Þessi hópur veit það líklega að
strax við fyrsta sopa áfengis
skerðist viðbragðsflýtir og dóm-
greind ökumanns.
Jólin eru framundan. Hluti af
gleðinni við undirbúning jólanna
er að fara eftir vinnu með starfs-
félögum og neyta jólaglöggs og
tilheyrandi. Þá getur verið freist-
andi að aka heim. Og sú freisting
getur orðið sannfæring ef hún
nær yfirtökum á skynseminni. Að
maður sé ekki svo fullur. „Ég
drakk ekki svo mikið,“ hugsa
margir. Áður en þessi rang-
hugmynd nær yfirtökum skaltu
hafa í huga að þeir ökumenn sem
urðu valdir að fyrrnefndum bana-
slysum og örkumli fjölda fólks
höfðu einmitt huggað sig við það
að þeir væru fullfærir um að aka
áður en þeir lögðu af stað. Það
hefði mátt bjarga 21 mannslífi og
örkumli enn fleiri, með því að taka
leigubíl eða fá far með einhverjum
allsgáðum. Sú fyrirhöfn og kostn-
aður er vel þess virði í sam-
anburði við þungar og sárar byrð-
ar samviskunnar.
Við hefðum getað bjargað þess-
um mannslífum með breyttu við-
horfi og harðari afstöðu til þess að
áfengi og akstur er ekki undir
neinum kringumstæðum réttlæt-
anlegt. Við ein getum breytt hug-
arfari hópsins með því að taka
ábyrga afstöðu. Við getum talað
um fyrir félögum okkar. Komið í
veg fyrir að þeir aki undir áhrif-
um. Komið í veg fyrir að þeir
lendi í hópi þeirra sem réttilega
má kalla tilræðismenn líkt og við
köllum þá sem sprengja sprengjur
innan um saklaust fólk.
21 fórnarlamb
tilræða á Íslandi
Strax við fyrsta sopa áfengis
skerðist viðbragðsflýtir og
dómgreind ökumanns, segir
Einar Magnús Magnússon
» Við getum talað umfyrir félögum okkar.
Komið í veg fyrir að þeir
lendi í hópi þeirra sem
réttilega má kalla til-
ræðismenn.
Einar Magnús
Magnússon
Höfundur er upplýsingafulltrúi Um-
ferðarstofu.
Fréttir
í tölvupósti
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
EINBÝLI - SELVOGSGATA 18 - HF.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14.00 TIL 16.00
Sérlega snyrtilegt 90,1 fm einbýli á 2 hæðum ásamt útigeymslu. Hús og geymsla ca 112
fm. Húsið stendur á góðum stað við Selvogsgötuna. 2-3 svefnh, ágætis baðh. Rúmgott
eldhús. Stofa með útg í garð. Hús með mikla möguleika. Verð 32,5 millj
Garðar og Jóhanna bjóða ykkur velkomin. S. 861 1671
FASTEIGNAMI‹STÖ‹IN
Stofnsett 1958
jardir.is 550 3000
Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali
Birkiás 20, Garðabæ
Raðhús á útsýnisstað
Opið hús í dag frá kl. 13-15
Vandað 215 fm raðhús á tveimur hæðum með 31 fm, innbyggðum bíl-
skúr á frábærum stað með útsýni til sjávar og að Snæfellsjökli. Rúm-
góðar stofur, sjónvarpshol, stórt eldhús með sérsmíðuðum innrétting-
um, 4 herbergi auk fataherbergis og 2 flísalögð baðherbergi. Mikil loft-
hæð er á efri hæð. Auðvelt er að útbúa séríbúð á neðri hæð.
Hús klætt marmarasalla að utan. Verð 63,0 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 13-15.
Verið velkomin.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Kaplaskjólsvegur 91
Glæsileg 4ra herb. íbúð
Opið hús í dag frá kl. 15-17
Mikið endurnýjuð 93 fm, 4ra herb. íbúð á 1. hæð ÍBÚÐ MERKT 0201 í
þessu eftirsótta fjölbýlishúsi í vesturbænum. Sérsmíðuð innrétting og
vönduð tæki í eldhúsi, sjónvarpshol, stofa og borðstofa við enda eld-
húss, 3 herbergi og flísalagt baðherbergi. Tvennar svalir til suðurs og
vesturs. Hiti er í gólfum, allt parket úr eik og granít í sólbekkjum. Sér-
geymsla í kj. og sameiginl. þvottaherb. á hæðinni. Verð 33,5 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 15-17.
Verið velkomin.
Haðarstígur 18
Parhús í Þingholtunum
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Mikið endurnýjað, 140 fm parhús í Þingholtunum. Á aðalhæð er for-
stofa, gesta wc., eldhús með ljósri viðarinnréttingu, björt stofa með út-
gengi á lóð. Uppi er sjónvarpshol, 2 herbergi og nýlega endurnýjað
baðherbergi og í kjallara er 1 herbergi og baðherbergi auk þvotta-
húss/geymslu. Eign sem hefur nánast öll verið endurnýjuð að innan
sem utan síðustu 10 árin. Fallegur bakgarður með timburverönd,
skjólveggjum og lýsingu. Laust til afhendingar við kaupsamning.
Verð 44,5 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16
Verið velkomin.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
m
bl
.9
43
45
4
Atvinnuhús ehf • Atli Vagnsson hdl., lögg. fasteignasali
Skúlagata 30 • 101 Reykjavík • Sími: 561 4433 / 698 4611
atli@atvinnuhus.is • www.atvinnuhus.is
Mi›hraun 462 fm.
Til sölu er hluti húseignarinnar nr. 16 vi› Mi›hraun. U.fl.b. 350 fm.
á götuhæ› me› gó›ri lofthæ›. Frystigeymslur í hluta húsnæ›is.
U.fl.b. 112 fm. skrifstofuhúsnæ›i á 2. hæ›. Bur›arvirki húss er úr
límtré. Vel me› farin og vöndu› húseign. Ver›: 75.0 millj.