Morgunblaðið - 06.12.2007, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
BRESKI myndlistarmaðurinn Mark
Wallinger hlaut Turner-verðlaunin í
ár. Wallinger var tilnefndur til verð-
launanna fyrir 12 árum en hlaut þau
ekki þá. Hann hlaut 25.000 pund að
launum úr hendi leikarans, leikstjór-
ans og listaverkasafnarans banda-
ríska Dennis Hopper við afhendingu
verðlaunanna í fyrradag í Tate-
safninu í Liverpool.
Verðlaunaverk Wallinger heitir
Sleeper og er myndband, á því sést
maður ganga um Listasafnið í Berlín
í bjarndýrsbúningi á þeim tíma sem
safnið er lokað og enginn í því. Þá var
hann einnig tilnefndur fyrir verkið
State Britain, nákvæma eftirlíkingu
af mótmælatjaldi, -spjöldum o.fl. sem
Bretinn Brian Shaw kom upp fyrir
utan breska þinghúsið árið 2001, mót-
mælti þar Íraksstríðinu. Í texta frá
Tate-safninu segir að samhljóm megi
finna með Wallinger og Berlínarsafn-
inu og Michelangelo og Sixtusarkap-
ellunni. Báðir hafi viljað breyta rými.
Björn í
listasafni
Wallinger hlaut
Turner-verðlaunin
Hressir Hopper og Wallinger.
SÉR grefur gröf,
glæpasaga Yrsu
Sigurðardóttur,
fór beint í 39. sæti
þýska kiljulistans
sem birtur verður
næstkomandi
mánudag í þýska
tímaritinu Der
Spiegel. Bókin
kom út í Þýska-
landi í þessari
viku en Yrsa hefur ekki áður verið á
metsölulista þar. Um 20 þúsund
skáldverk eru gefin út í Þýskalandi á
ári hverju og 80 þúsund bækur al-
mennt, þannig að samkeppnin er
hörð. Bókin heitir á þýsku Das
gefrorene Licht. Kiljulistann er
hægt að skoða á bókavefnum
Buchreport, undir heitinu Die
Taschenbuch Belletristik Bestseller.
Sér grefur gröf kom út á Íslandi í
fyrra og er væntanleg á fjórtán
tungumálum en Þriðja táknið eftir
Yrsu er væntanleg á 31 tungumáli.
Samið hefur verið um útgáfu nýj-
ustu bókar Yrsu, Ösku, í á þriðja tug
landa.
Í 39. sæti
kiljulistans
Bókarkápa Das
gefrorene Licht.
BENEDIKT Hjartarson bók-
menntafræðingur flytur í kvöld
erindi á rannsóknarkvöldi Fé-
lags íslenskra fræða sem hann
nefnir „Úr foraði evrópskrar
nútímamenningar: Viðhorf til
framúrstefnu í íslenskri menn-
ingarumræðu þriðja áratug-
arins“. Erindið flytur hann í
húsi Sögufélagsins, Fischer-
sundi 3, kl. 20.
Í erindinu verður fjallað um
viðtökur á evrópskri framúrstefnulist á Íslandi á
þriðja áratugnum og sjónum beint að tengslum
þeirra við umræðuna um framtíð íslenskrar
menningar. Aðgangur að rannsóknarkvöldum Fé-
lags íslenskra fræða er ókeypis og öllum heimill.
Fyrirlestur
Úr foraði
nútímamenningar
Benedikt
Hjartarson
JÓLATÓNLEIKAR Drengja-
kórs Reykjavíkur í Hallgríms-
kirkju verða haldnir í kvöld kl.
20. Með kórnum syngja félagar
úr Karlakór Reykjavíkur
ásamt Gunnari Guðbjörnssyni
óperusöngvara. Lenka Má-
teova sér um orgelleik en
stjórnandi er Friðrik S. Krist-
insson. Drengjakórinn kemur
nú í fyrsta sinn fram á Jóla-
tónlistarhátíð Hallgrímskirkju.
Kórinn starfar af miklum krafti, kemur m.a. fram
í helgihaldi Hallgrímskirkju á hverjum sunnudegi
og gaf nýverið út disk. Fjölbreytt jólatónlist er á
dagskrá í kvöld. Miðaverð er kr. 1500 og fer miða-
sala fram í kirkjunni.
Tónleikar
Drengir og karlar
syngja saman
Nokkrir drengj-
anna í kórnum.
SUNNA Emanúelsdóttir opn-
ar í kvöld sýningu á jóla-
brúðum í Kaffi Bergi, Gerðu-
bergi, kl. 21. Hljómsveitin
Tepokinn mun leika fyrir fyrir
gesti af þessu tilefni og er lofað
jólastemningu.
Sunna hefur skapað íslenska
jólasveina og Grýlu í nokkrum
stærðum og gerðum, unga
Grýlu, gamla Grýlu, íturvaxna
o.s.frv. og hefur fyrir vikið
fengið viðurnefnið „Grýlumamma“.
Sunna byrjaði á að búa til jólasveina árið 1993
og hefur síðan gert fjölmarga jólasveina og grýlur
en mikil nákvæmnisvinna liggur að baki, sauma-
skapur o.fl. Aðgangur er ókeypis.
Handverk
Grýla og jólasvein-
arnir í brúðulíki
Grýla og jólasvein-
ar eftir Sunnu.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA hefur bara þróast svona
því ég hef mikið verið að vinna með
röddina. En ég hef reyndar alltaf
verið þarna á mörkunum,“ segir
Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzó-
sópran, sem stígur sín fyrstu form-
legu skref sem sópransöngkona á
hádegistónleikum í Hafnarborg í
dag. Ingveldur hefur verið mezzó-
sópransöngkona í 18 ár og því ljóst
að um nokkur viðbrigði er að ræða.
„Þegar ég var í námi var ég alltaf
að rokka þarna á milli, það fór bara
eftir kennurum og aðstæðum. En
svo endaði ég í mezzó-faginu.“
En í hverju felst breytingin í að-
alatriðum? „Breytingin felst fyrst
og fremst í verkefnavali. Þótt sópr-
an syngi í sjálfu sér oft sömu nótur
og mezzósópran er sópran að
syngja hærri nótur lengur,“ segir
Ingveldur og bætir því við að þetta
sé vissulega svolítið erfitt. „Þetta
gerist ekki af sjálfu sér og þetta er
mikil vinna. Þetta er fyrst og
fremst hugarfarsleg breyting, en
auðvitað þarf ég líka að æfa mig
meira en áður þar sem ég er að
læra mikið af nýjum aríum. Það
sem kemur hins vegar mest á óvart
er hvað tónlistin er ólíkt skrifuð fyr-
ir röddina, það sem er skrifað fyrir
sópran er miklu meiri prímadonnu-
tónlist,“ segir söngkonan og hlær.
Fær meiri tíma
Ingveldur segir að mezzósópr-
ansöngkonur séu sjaldnast í aðal-
hlutverkum í óperum, fyrir utan
Carmen, Dalílu og óperur eftir
Rossini. Sópransöngkonan sé hins
vegar meira í sviðsljósinu, og fái
meiri tíma í það sem hún er að
gera. „Ég hef mikið verið að vinna
með þjálfurum og söngkennurum,
og þeir eru alltaf að slá á puttana á
mér því ég er svo vön að þurfa að
drífa mig í mezzó-faginu. Þeir segja
mér hins vegar að í þessu fagi hafi
ég nógan tíma.“
Aðspurð segir Ingveldur trúlega
algengara að söngvarar lækki sig
frekar en hækki, bæði hjá kven- og
karlsöngvurum. Hún leggur hins
vegar áherslu á að hún sé ekki búin
að segja skilið við mezzó-fagið fyrir
fullt og allt.
„Þess eru mörg dæmi að söng-
konur syngi bæði hlutverkin, og ég
mun gera það alveg hiklaust áfram.
Þannig að það eru mörg hlutverk
sem munu áfram koma til greina,
en önnur mun ég segja skilið við.
Ég hef til dæmis sungið svona
söng- og leikhlutverk eins og í
Sweeney Todd og í Flagara í fram-
sókn, þannig hlutverk mun ég
syngja áfram af því mér finnst
svona karakterhlutverk svo
skemmtileg, þar sem jafnvel meiri
áhersla er lögð á leikinn en söng-
inn.“
Á tónleikunum í hádeginu í dag
mun Ingveldur einmitt syngja hvort
tveggja, tvær aríur úr Carmen eftir
Bizet, sem samdar voru fyrir
mezzósópran, og svo aríur úr Brúð-
kaupi Figarós eftir Mozart, Otello
eftir Verdi og úr Toscu eftir Puccini
– sem allar voru samdar fyrir sópr-
ansöngkonu.
Um píanóleik sér Antonía Hevesi,
en hún er jafnframt listrænn stjórn-
andi hádegistónleikaraðar Hafn-
arborgar. Tónleikarnir standa yfir í
um hálfa klukkustund og eru hugs-
aðir sem tækifæri fyrir fólk í Hafn-
arfirði til að njóta góðrar tónlistar í
hádegishléi. Tónleikarnir eru í boði
Hafnarborgar, aðgangseyrir er eng-
inn og allir eru velkomnir á meðan
húsrúm leyfir.
Sópran út úr skápnum
Ingveldur Ýr Jónsdóttir breytist í sópransöngkonu á hádegistónleikum í dag
Morgunblaðið/Golli
Ingveldur og Antonía Flytja verk eftir Bizet, Verdi, Mozart og Puccini.
Í HNOTSKURN
» Ingveldur er fædd og uppal-in í Reykjavík. Hún hóf ung
ballettnám í Listdansskóla Þjóð-
leikhússins og síðar söngnám í
Söngskólanum í Reykjavík.
» Þaðan lá leiðin í framhalds-nám við Tónlistarskóla Vín-
arborgar, þar sem hún stundaði
einnig leiklistar- og söngleikja-
nám. Hún lauk hún síðan mast-
ersgráðu frá Manhattan School
of Music í New York.
Tóneikarnir hefjast kl. 12.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„Í TILEFNI af 50 ára afmæli kirkj-
unnar ákváðum við að gera eitthvað
grand og svolítið öðruvísi, og þetta
verk varð því fyrir valinu,“ segir
Steingrímur Þórhallsson, listrænn
stjórnandi tónlistarhátíðar Nes-
kirkju, Tónað inn í aðventu, en síð-
ustu tónleikar hátíðarinnar fara fram
í kvöld. Á tónleikunum verður flutt
óratórían L’Allegro, il Penseroso ed il
Moderato eftir Georg Friedrich
Händel.
„Þetta er ekki mjög þekkt verk eft-
ir Händel,“ segir Steingrímur sem
telur að um frumflutning á Íslandi sé
að ræða. „Við gerum ráð fyrir því, við
vitum allavega ekki betur. En ég held
að þetta hafi að minnsta kosti ekki
verið flutt í heild sinni, og ekki með
svona stórri barrokksveit.“
Steingrímur, sem einnig verður
stjórnandi á tónleikunum, segir að
meira að segja hafi verið nokkuð erf-
itt að komast yfir nótur að verkinu.
„Menn hafa fyrst og fremst verið að
flytja Messías eftir Händel, og stóru
og frægu verkin hans. En þessi
minna þekktu verk eru ekki flutt
mjög mikið þannig að við höfum misst
af svolítið miklu hjá Händel.“
Aðspurður segist Steingrímur telja
að um sé að ræða síðasta verkið sem
Händel samdi fyrir Messías. „Hann
samdi Messías árið 1741 og þetta er
samið 1740, þannig að maður heyrir
stílinn í Messíasi í þessu verki.“
Rúmlega 60 manns koma fram á
tónleikunum í kvöld, 40 manna Kór
Neskirkju, 19 manna barrokksveit og
fjórir einsöngvarar, þau Hallveig
Rúnarsdóttir, sópran, Marta Hall-
dórsdóttir, sópran, Eyjólfur Eyjólfs-
son, tenór, og Hrólfur Sæmundsson,
barítón. „Þetta er það stærsta sem ég
hef staðið í, og það stærsta sem sett
hefur verið upp í Neskirkju í langan
tíma,“ segir stjórnandinn sem er þess
fullviss að allir komist fyrir. „Við þurf-
um reyndar að taka fremsta kirkju-
bekkinn, en það er allt í lagi,“ segir
hann og hlær.
Händel er ekki bara Messías
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Händel „Þetta er það stærsta sem ég hef staðið í, og það stærsta sem sett
hefur verið upp í Neskirkju í langan tíma,“ segir Steingrímur.
Rúmlega 60 manns flytja óratoríu í Neskirkju í kvöld
Tónleikarnir hefjast kl. 20, miða-
verð er 2.000 krónur í forsölu, en
2.500 krónur við inngang. Forsala
fer fram í verslun 12 Tóna.
♦♦♦