Morgunblaðið - 06.12.2007, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Frikki
Skín við sólu … Álftagerðisbræður syngja í hljóðveri fyrr á þessu ári.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
TUTTUGU ár eru liðin síðan Álfta-
gerðisbræður úr Skagafirði hófu að
syngja opinberlega saman. Fjór-
menningarnir halda nú upp á söng-
afmælið með útgáfu á geisladiskin-
um Skála og syngja, svo og
mynddiski þar sem sjá má upptökur
frá tónleikum og ýmsum öðrum
samkomum á ferli þeirra, viðtöl við
þá og meira að segja upptökur frá
því þeir voru pjakkar heima í Álfta-
gerði.
Óskar Pétursson, sem er yngstur
þeirra bræðra (og fallegastur, að
eigin sögn), er búsettur á Akureyri
en hinir þrír í Skagafirði. Óskar er
því á töluvert á ferðinni og þeir
reyndar allir um þessar mundir;
syngja víða til að kynna diskinn.
Bræðurnir eru t.d. með tónleika í
Ólafsvík í kvöld og á föstudags-
kvöldið verða þeir í Langholtskirkju
í Reykjavík.
Diskurinn, sem nýlega kom út, er
sá fjórði sem bræðurnir senda frá
sér. „Þetta eru þrettán gömul og
góð lög; lög sem koma fram á var-
irnar á mönnum þegar þeir eru
orðnir kenndir í Miðgarði – enda
heitir diskurinn Skála og syngja.
Skagfirðingar eru þekktir fyrir
það,“ sagði Óskar í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Það hefur oft
komið til tals að gera svona disk en
ekki orðið af því fyrr en nú, en það
er alltaf gaman að syngja þessi lög,
róleg og rómantísk, sem detta upp á
kjaftinn á mönnum við góð tæki-
færi.“ Hljómsveit undir stjórn
Gunnars Þórðarsonar leikur með
bræðrunum á diskinum og kemur
með þeim fram á tónleikunum. Stef-
án Gíslason, stjórnandi karlakórsins
Heimis, útsetur öll lögin en hann
hefur starfað með bræðrunum alla
tíð.
Á mynddiskinum kennir margra
grasa, eins og áður kom fram, m.a.
eru upptökur frá upptökum nýja
disksins. Óskar segir ótrúlegt að sjá
hvað þeir bræður voru einu sinni
ungir og fallegir … „Það er til dæm-
is myndbútur frá árinu 1966 þar
sem Pétur bróðir er að snúa heyi,
búinn að setja upp lakkrísbindið –
örugglega alveg að fara í Húna-
ver …“
Bræðurnir hafa alla tíð verið
miklir söngmenn eins og margir
Skagfirðingar. Óskar er sá eini fjór-
menninganna sem hefur sönginn að
atvinnu en bræður hans „eru í öllum
kórum fyrir vestan“, segir hann.
„Þeir eru galandi út í eitt, í karla-
kórnum Heimi, kirkjukórum og ég
veit ekki hverju.“
Sigfús og Gísli stunda búskap í
Álftagerði en „Pétur er atvinnu-
framsóknarmaður á Króknum“, eins
og Óskar orðaði það í samtali við
Morgunblaðið. Allir syngja við ýmis
tækifæri, oft saman, og þá ekki síst
fyrir gamalt fólk og við jarðarfarir
að sögn Óskars. Enda sendi einn
vinur bræðranna þeim þessa vísu,
sem Óskar hefur gaman af:
Enginn veit hvort fólki finnst,
að fagrir tónar renni.
En líklega kvarta langtum minnst,
lík og gamalmenni.
„Lög sem koma fram á
varir manna í Miðgarði“
Í HNOTSKURN
» Bræðurnir úr Álftagerðisungu fyrst opinberlega
saman við jarðarför föður
þeirra, 3. október árið 1987.
» Álftagerðisbræður komafram á tónleikum í Ólafs-
vík í kvöld og í Langholts-
kirkju í Reykjavík annað
kvöld. Hljómsveit undir stjórn
Gunnars Þórðarsonar leikur
með þeim á báðum stöðum.
» Útgáfutónleikar verða íSamkomuhúsinu á Ak-
ureyri miðvikudagskvöldið 12.
desember.
KEA úthlutaði í vikunni 4,4 millj-
ónum úr Menningar- og viðurkenn-
ingasjóði félagsins. Nú hlutu 26 ein-
staklingar og félagasamtök styrki.
Annars vegar voru afhentir al-
mennir styrkir og hins vegar í flokki
þátttökuverkefna. Í þeim fyrrnefnda
hlutu styrki: Safnasafnið á Sval-
barðsströnd, Magnús Aðalbjörnsson,
vegna ritunar sögu Gagnfræðaskól-
ans á Akureyri, Bílaklúbbur Ak-
ureyrar, til að gera upp elsta vörubíl
á Eyjafjarðarsvæðinu, Kammerkór
Norðurlands, Guðmundur Ingi Jón-
atansson, til þess að vinna ljós-
myndafilmur á rafrænt form, mynd-
ir frá Dalvík og nágrenni,
Menningar- og listasmiðjan á Húsa-
bakka, Kvennakór Akureyrar, Fé-
lag eldri borgara í Dalvíkurbyggð
og Hrísey, Karlakór Siglufjarðar,
Íþróttafélagið Þór, til öflunar gagna
um sögu Þórs í tilefni af 100 ára af-
mæli félagsins, Herhúsfélagið, til
reksturs hússins, þar sem listamönn-
um er boðin vinnuaðstaða og gist-
ing, Skákfélagið Goðinn, til kaupa á
útbúnaði til skákiðkunar, Birna
Björnsdóttir, vegna námskeiða fyrir
börn og unglinga í listsköpun, Kór
félags eldri borgara á Akureyri, Ro-
ar Kvam, til tónleikahalds með
Kvennakórnum Emblu, GalleriBOX,
Hólmgeir Sigurgeirsson, vegna
heimildarmyndar um sögustaði í
Eyjafirði, George Hollanders, til að
setja upp sýningu úti á víðavangi
víðs vegar um Eyjafjarðarsveit, Þór-
arinn Stefánsson, til að gefa út
geisladisk, útsetningar fyrir píanó á
ísl. þjóðlögum, Guðmundur Þ. Júl-
íusson og Árni Geir Helgason, til að
endurgera og breyta gömlum eik-
arbáti sem smíðaður var í Slippstöð-
inni 1971, Mývatn – töfraland
jólanna og Aflið, samtök gegn kyn-
ferðis- og heimilisofbeldi, til rekst-
urs starfseminnar.
Í flokki þátttökuverkefna fengu
styrki: Kammerkórinn Hymnodia,
Þórir Ó. Tryggvason, Snæuglan
ehf., og Sumarbúðir KFUM og
KFUK að Hólavatni.
Á myndinni eru styrkþegar eða
fulltrúar þeirra ásamt Halldóri Jó-
hannssyni, framkvæmdastjóra KEA
og Hannesi Karlssyni, stjórnarfor-
manni.
KEA úthlutar 4,4
milljónum króna
AKUREYRI
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
Háaleiti | Íbúasamtök Háaleitis
norður afhentu borgarstjóranum í
Reykjavík, Degi B. Eggertssyni,
undirskriftalista vegna úrbóta um-
ferðarmála við Fellsmúla.
Íbúarnir krefjast þess að Fells-
múli verði botngata og henni lokað
ofan gatnamóta Síðumúla og Fells-
múla. Einnig að hámarkshraði í göt-
unni verði 30 km, að hraðahindranir
og gangbraut verði settar upp og
umhverfið fegrað. Með breytingun-
um vilja íbúarnir að umferð sem
tengist íbúunum verði aðgreind frá
gegnumstreymisumferð vegna ná-
lægra verslunar- og þjónustugatna.
Samtökin benda á að um götuna fari
um 13.000 bílar á sólarhring og af því
hljótist mikil mengun og skerðing
lífsgæða íbúa hverfisins. Slysahætta
við Fellsmúla sé einnig töluverð og
að ítrekað hafi verið ekið á börn og
unglinga á mótum Háaleitisbrautar
og Fellsmúla.
Borgarstjóri sagði við afhendingu
undirskriftalistans að nú þegar væri
hafin vinna við skipulagningu Háa-
leitisbrautar og að koma yrði á verk-
fundi með íbúasamtökunum og sér-
fræðingum borgarinnar, til að ræða
útfærslu hugmynda. Hann þakkaði
samtökunum fyrir frumkvæðið, íbú-
arnir þekktu best hvar úrbóta væri
þörf.
Birgir Björnsson, formaður íbúa-
samtakanna, segist ánægður með
fundinn. „Það er óskastaða fyrir
okkur að fá að taka þátt í vinnuferl-
inu með þeim sem hafa völdin í borg-
inni. En auðvitað taka slíkar aðgerð-
ir langan tíma og við viljum fá vissar
bráðabirgðaúrbætur strax, eins og
t.d. hraðahindrun inn í Fellsmúlann.
Við viljum ekki sjá fleiri alvarleg slys
og þau geta orðið hvenær sem er.“
Morgunblaðið/Frikki
Íbúasamtök krefjast meira
öryggis við Fellsmúla
Afhending Valgerður Pálsdóttir og Heiða Sævarsdóttir afhenda Degi B. Eggertssyni borgarstjóra undir-
skriftalistann. Á milli þeirra er Emma Hjartardóttir sem ekið var á við Fellsmúla í síðasta mánuði.
Kjalarnes | Hátíðardag-
skrá verður í Fólkvangi á
Kjalarnesi sunnudaginn
9. des. kl. 14 í tilefni af
hundrað og fimmtíu ára
afmæli Brautarholts-
kirkju.
Dagskráin hefst með
helgistund í umsjón sókn-
arprests, sr. Gunnars
Kristjánssonar prófasts
og héraðspresta Kjalar-
nessprófastsdæmis, sr.
Kristínar Þórunnar Tóm-
asdóttur og sr. Kjartans
Jónssonar. Lúðrasveit
leikur á undan athöfn-
inni, barnakór Klébergs-
skóla undir stjórn Ás-
rúnar Kondrup syngur
við helgistundina.
Ásgeir Harðarson,
formaður sóknarnefndar, flytur
ávarp. Karlakór Kjalarness flytur
lög við texta eftir séra Matthías
Jochumsson, stjórnandi kórsins er
Páll Helgason organisti kirkjunnar.
Erindi um sögu kirkjustaðarins í
Brautarholti eftir Jón Þ. Þór sagn-
fræðing, lesari: Ásthildur Skjald-
ardóttir. Sögusýning um kirkjuna
og kirkjustaði á Kjalarnesi í um-
sjón Ólafs J. Engilbertssonar sagn-
fræðings. Egill Ólafsson, Jónas
Þórir og Hjörleifur Valsson flytja
sálmalög, Sigríður Hrefna Bjart-
marsdóttir umsjónarkennari átt-
unda bekkjar kynnir verkefni sem
nemendur hennar hafa unnið í til-
efni af afmæli kirkjunnar.
Á eftir verður boðið til afmæl-
isveislu.
Í fréttatilkynningu segir að
Brautarholtskirkja á Kjalarnesi
megi teljast afkomandi fyrstu
kirkju sem reist var á Íslandi,
þeirrar kirkju sem suðureyski
landnámsmaðurinn Örlygur
Hrappsson reisti á Esjubergi
skömmu fyrir árið 900 og frá segir
í Landnámu.
Brautarholtskirkja var reist árið
1857 af Eyjólfi Þorvarðarsyni frá
Bakka á Kjalarnesi. Hann reisti
fleiri kirkjur, m.a. Þingvallakirkju
ári síðar. Áratug eftir vígslu kirkj-
unnar kom þjóðskáldið séra Matth-
ías Jochumsson til þjónustu í
Brautarholtssókn (1867-73).
Nýlega var kirkjan endurbyggð
frá grunni. Hún tekur um 50
manns í sæti. Formaður sókn-
arnefndar er Ásgeir Harðarson,
kirkjuhaldari er Björn Jónsson í
Brautarholti og organisti er Páll
Helgason.
Hátíð á 150 ára afmæli
Brautarholtskirkju
Morgunblaðið/Sverrir
Brautarholtskirkja Kirkjan var reist árið 1857
af Eyjólfi Þorvarðarsyni frá Bakka á Kjalarnesi.