Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 27
Aðferðin áhrifavaldur á smekk
Íslensku fjölskyldurnar, sem þátt
tóku í könnuninni, fengu mismunandi
upplýsingar með fiskinum í hvert
sinn. Í niðurstöðum kom ekki fram
munur á þeim sem framleiddur var
með hefðbundinni aðferð og þeim
sem framleiddur var með tilliti til vel-
ferðar dýra, ef engar upplýsingar um
framleiðsluaðferðina voru veittar.
Upplýsingar um framleiðsluað-
ferðina höfðu hinsvegar ótvíræð áhrif
á smekk þátttakenda. Þegar fjöl-
skyldurnar fengu upplýsingar um að
þorskurinn hefði verið framleiddur
með tilliti til velferðar dýra fannst
þeim hann af meiri gæðum en hinn.
Þessar upplýsingar skiptu hinsvegar
mismiklu máli fyrir fólk. Fram komu
þrenns konar mismunandi hópar
neytenda á Íslandi, en fólkinu var
skipt í hópa eftir mismunandi við-
horfum til fiskeldis og velferðar dýra.
Einn stærsti hópurinn eða 37% þátt-
takenda var dýravelferðarsinnar, en
jákvæðar upplýsingar um fiskeldið
höfðu hvað mest jákvæð áhrif á upp-
lifun þessa hóps af afurðinni. Í öðrum
hópi eða um 35% var fólk, sem var
nokkuð sama um velferð dýra í fisk-
eldi, en í þessum hópi voru fleiri karl-
ar. Upplýsingar um fiskeldi, hvort
sem þær voru jákvæðar eða neikvæð-
ar, höfðu ekki áhrif á hvernig þessi
hópur upplifði gæði afurðanna. Í
þriðja hópnum var 28% þátttakenda,
en það var fólk, sem líkaði betur villti
fiskurinn og fannst veiði á villtum
fiski að öllu leyti eðlilegri en fiskeldið.
Í þessum hópi voru fleiri konur og
neikvæðar upplýsingar um velferð
fiska í fiskeldi höfðu hvað mest nei-
kvæð áhrif á þennan hóp.
Að mati Emilíu sýnir rannsóknin
ótvírætt fram á að matvælamerk-
ingar og umbúðaupplýsingar skipta
miklu máli fyrir neytendur. Jákvæð
ímynd fiskeldis skiptir líka máli og sú
stefna, sem umræðan tekur í nánustu
framtíð, mun hafa áhrif á hvernig
neytendur taka á móti þessari vöru.
join@mbl.is
helgartilboðin
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 27
Bónus
Gildir 6.-9. des. verð nú verð
áður
mælie. verð
Sambands úrb. hangilæri ........... 1.574 2.024 1.574 kr. kg
Sambands úrb. hangiframpartur . 1.329 1.709 1.329 kr. kg
Bónus ferskir krydd. kjúklingabit-
ar .............................................
349 449 349 kr. kg
KF einiberja kryddað lambalæri ... 1.399 1.799 1.399 kr. kg
NF sjófryst ýsuflök ...................... 808 899 808 kr. kg
MY heimilisbrauð, 375 g ............ 69 89 184 kr. kg
Bónus piparkökur, 500 g............ 198 396 kr. kg
Bónus malt, 500 ml................... 59 69 118 kr. ltr
Macintosh, 900 g ...................... 998 1.198 1.108 kr. kg
Ferskar döðlur, 650 g, ný uppsk. . 299 460 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 6.-8. des. verð nú verð
áður
mælie. verð
Fjallalambs úrb. hangilæri .......... 2.087 2.609 2.087 kr. kg
Ali partý skinka.......................... 1.422 1.896 1.422 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri.......... 974 1.298 974 kr. kg
Matfugl ferskur kjúklingur 1/1..... 479 799 479 kr. kg
Matfugl læri/leggur.................... 454 699 454 kr. kg
Frechetta special pizza, 400 g .... 298 398 298 kr. stk
VSV súpu humar, 450 g ............. 667 834 1.480 kr. kg
Kjörís lúxus íspinnar................... 337 374 337 kr. pk
Perur ........................................ 98 179 98 kr. kg
Vatnsmelónur ............................ 98 149 98 kr. kg
Hagkaup
Gildir 6.-12. des. verð nú verð
áður
mælie. verð
Holta kjúklingapaté.................... 1.469 2.099 1.469 kg
Holta wok réttur ......................... 1.259 1.799 1.259 kg
Holta partý skinka ...................... 1.511 2.159 1.511 kg
Frosinn hátíðarkjúklingur ............ 687 859 687 kg
Frosin reyktur hátíðarkjúklingur ... 719 899 719 kg
Krónan
Gildir 6.-9. des. verð nú verð
áður
mælie. verð
Móa kjúklingur ferskur, 1/1 ........ 479 799 479 kr. kg
Hóla Londonlamb ...................... 1.399 1.769 1.399 kr. kg
Grillborgarar með brauði, 4 stk.... 398 499 398 kr. pk
Ungnautahakk........................... 829 1.389 829 kr. kg
Salatbar Krónan ........................ 299 399 299 kr. stk
Kjúklingur hangikjöt
og jólaíspinnar
Super baguette með hvítlauk ...... 199 249 199 kr. pk
Krónubrauð, stórt og gróft, 770 g 109 139 142 kr. kg
Pepsi Max, 4x2 ltr ...................... 399 650 100 kr. stk
Krónu lakkrískonfekt, 475 g........ 349 399 735 kr. kg
Nóatún
Gildir 6.-9. des. verð nú verð
áður
mælie. verð
Chester fried kjúklingabitar ......... 99 179 99 kr. stk
Laxasteik með papriku/lauk ....... 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Ýsa með broccol/kjúklingabaun.. 998 1.298 998 kr. kg
Nóatúns hakkbollur í súrsætri ..... 798 1.218 798 kr. kg
Grísahnakki úrbeinaður, sneiðar.. 998 1.598 998 kr. kg
Lamba rib eye villikryddað .......... 2.498 3.198 2.498 kr. kg
SS vínarpylsur, 10 stk., 560 g..... 424 530 757 kr. kg
Nóatúns jólabrauð ..................... 299 319 299 kr. stk
KM Stollenbrauð, 750 g ............. 499 598 665 kr. kg
Cadburys kakó, 250 g................ 263 309 1.052 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 6.-9. des. verð nú verð
áður
mælie. verð
Kjötb. nautahamborgarar, 90 g ... 109 141 109 kr. stk
Gourmet lambalæri, rauðvínsl..... 1.408 1.898 1.408 kr. kg
Borg. bayonneskinka.................. 1.088 1.451 1.088 kr. kg
Borg. londonlamb, framp. .......... 1.225 1.634 1.225 kr. kg
Matf. kjúklingalæri, magnk. ........ 457 609 457 kr. kg
Ísfugl kjúklingabr., skinnlausar .... 1.696 2.261 1.696 kr. kg
Egils pepsi, 2 ltr......................... 99 167 49 kr. ltr
Myllu möndlukaka ..................... 289 366 289 kr. stk
Nabisco Chips Ahoy 128 g ......... 89 154 89 kr. pk
Epli jónagold ............................. 129 199 129 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 6.-12. des. verð nú verð
áður
mælie. verð
Kjúlli úrb. bringur án skinns ........ 1.769 2.527 1.769 kr. kg
Borgarnes hamborgarhr. m/beini 1.439 1.799 1.439 kr. kg
Emmess jólaíspinnar, heimilisp... 379 475 43 kr. stk.
Emmess skafís, þrjár teg. ........... 365 469 365 kr. ltr
Freyju lakkrískonfekt, 400 g........ 299 378 748 kr. kg
Egils pilsner, 0,5 ltr .................... 69 93 138 kr. ltr
Wesson matarolía 1,42 ltr .......... 289 385 204 kr. ltr
Tilda Long Grain ........................ 169 219 169 kr. kg
Gevalia rauður, 500 g ................ 345 398 690 kr. kg
Guðni Kolbeinsson skrifarVísnahorninu: „Mig hefur
langað til að þakka þér fyrir
vísnahornið þitt í Mogga. Það er
upplífgandi og skemmtilegt að sjá
það staðfest nánast á degi hverjum
að vísnagerð stendur enn föstum
fótum meðal þjóðarinnar.“ Og
Guðni veit að „þakkarkvaki“ fylgir
vísa. Hann „hnoðaði saman“ að
gefnu tilefni:
Um Egil Helga hefur neistað,
hann er pungsvín, karlinn sá.
Svo fékk hann spark í femíneistað,
fór í keng – og næstum lá.
Auðunn Bragi Sveinsson vekur
máls á glæpasögum sem „seljast
eins og heitar lummur“:
Menn gefa helst út glæpasögur,
og græða á þeim býsna vel.
En lakar seljast ljóðin fögur;
þar lepja flestir dauða úr skel.
Séra Hjálmar Jónsson var vestur
á Grund um daginn á fundi um
málefni aldraðra og um
uppbyggingu elliheimila. Nú
þyrftu stjórnvöld að láta verkin
tala, láta góð verk koma í
framhaldi af góðum orðum. Svo
hann sendi Guðlaugi Þór
Þórðarsyni heilbrigðisráðherra
þessa vísu:
Stöðvaðu allt þetta orðagjálfur
og opnaðu greiða vegi
áður en þú ert orðinn sjálfur
ellilífeyrisþegi.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af Agli
og
lummum
(í sama húsi og Bílaapótek og NC Næs Connection)
Hæðasmára 4 · Kópavogur · 555 7355
Síðumúla 3 · Reykjavík · 553 7355
Ný ver
slun
Nægbílastæði
Gleðileg jól
Glæsilegar jólagjafir
Ný sending af velúrsloppum
Frábært úrval
M
b
l 9
25
96
5
Nýtt kortatímabil
Opið alla daga til jóla