Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 37
1. Meiri virkni.
2. Mun meiri andoxunarefni.
3. Minni líkur á aukaverkunum.
4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár
samanborið við 3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs.
!
" #
$ # $
%
# &
% ' ( ) www.ginseng.is
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, jóga kl. 9,
botsía kl. 10, matur kl. 12, útskurður kl. 13, myndlist og
vídeóstund kl. 13.30, kaffi kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 | Samverustund með sr. Hans Markúsi
kl. 13.30. Hárgreiðsla, böðun, jóga, handavinna, mynd-
list, fótaaðgerð, bókband, kaffi. Jólahlaðborð 7. des. kl.
17, söngur, gamanmál, jólasaga, hátíðarkór. Miðaverð kr.
3.500, skráning og greiðsla á skrifstofunni s. 535-
2760.
Dalbraut 18-20 | Lýður mætir með harmonikkuna kl.
14. Guðsþjónusta annan hvern fimmtudag kl. 15.10.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55.
Rammavefnaður kl. 9.15. Málm- og silfursmíði kl. 9.30.
Róleg leikfimi kl. 13. Bókband kl. 13, bingó kl. 13.45.
Myndlistarhópur kl. 16.30. Á morgun kl. 14, verður að-
ventukaffi, hátíðakaffihlaðborð o.fl.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl. 9, ganga
kl. 10, hádegisverður kl. 11.40, handavinna og brids kl.
13, jóga 8.15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Bókband kl. 10,
vatnsleikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14,
gler- og leirlist, handavinnuhorn, námskeið í bútasaumi
og handavinnu kl. 13, gönguhópur frá Jónshúsi kl. 11.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30, umsj.
Ragnhildur Ásgeirsd. djákni. Frá hádegi eru vinnustofur
opnar, m.a. myndlist og perlusaumur. Á morgun kl. 10 er
prjónakaffi/bragakaffi, lagt upp í göngu um nágrennið
kl. 10.30. Miðvikud. 12. des. er heimsókn í Reykjanesbæ,
leiðsögn, veitingar o.fl. s. 575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Salurinn er lokaður eftir há-
degi. Alm. handavinna kl. 9-16. Aðventuskemmtunin
byrjar kl. 20, söngur, gamanmál, hugvekja.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, botsía kl. 10, leikfimi
kl. 11, hádegismatur kl. 12, félagsvist kl. 14, kaffi kl. 15.
Hárgreiðslustofan Blær opin alla daga, sími 894-6856.
Hraunsel | Morgunrabb og samvera kl. 9, bíó og myndir
kl. 10.30, leikfimi kl. 11.20, tréskurður kl. 13, bingó kl.
13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Þorbjörgu kl. 9-16,
botsía kl. 10. Böðun fyrir hádegi, hádegisverður kl. 11.30,
félagsvist kl. 13.30, 1. og 2. verðlaun, kaffi í hléi. Fótaað-
gerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega. Jóla-
fundur bókmenntahóps 11. des. kl. 20. Jólahlaðborð 14.
des. kl. 17, verð kr. 3.800. Jólaheimsókn leikskólans
Jörva 20. des. Skapandi skrif á mánud. kl. 16.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug kl. 9.30. Listasmiðjan á Korpúlfs-
stöðum opin kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og spjall kl.
9.45, botsía karlaklúbbur kl. 10.30, handverks- og bóka-
stofa opin kl. 13, námskeið í postulínsmálun kl. 13, botsía
kvenna kl. kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-16, vinnustofa í
handmennt opin leiðb/Halldóra kl. 9-12, leirlistar-
námskeið leiðb/Hafdís kl. 9-12, botsía kl. 10. Hafdísi og
Halldóra skreyta ásamt íbúum hússins kl. 13-16.
Sjálfsbjörg | Skák kl. 19, í félagsheimili Sjálfbjargar á
höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík | Jólafundur á
Grand Hótel við Sigtún kl. 20. Kaffihlaðborð, leiksýning,
o.fl., munið jólapakkana. Verð 2.000 kr
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9, botsía
kl. 9.15, aðstoð v/böðun, kl. 9.15-15.30, handavinna kl.
10, spænska framh. kl. 11.45, hádegisverður kl. 13, kór-
æfing kl. 13, leikfimi kl. 14.30, kaffiveitingar.
Þórðarsveigur 3 | Jólabingó kl. 14.30, kaffi og kökur á
300 kr.
Kirkjustarf
Áskirkja | Samverustund foreldramorgna, Klúbbs 8 og
9 ára, TTT-starfsins, leikskólanna í sókninni og 1. til 5.
bekkjar í Langholtsskóla kl. 10 í dag. Flutt verður leik-
ritið „Jólin hennar Jóru“. Opið hús, söngstund með
organista kl. 14. Samkirkjuleg bænasund á ensku er kl.
16.30.
Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12. Leikfimi ÍAK
kl. 11, bænastund kl. 12. 6-9 ára starf kl. 16-17. Myndin
MEME, Lífsins lengsta nótt, frumsýnd kl. 19.30.
www.digraneskirkja.is
Dómkirkjan | Opið hús í safnaðarheimilinu kl. 14-16.
Kaffi á könnunni. Kvöldkirkjan er opin kl. 20-22. Bæna-
stundir kl. 20.30 og 21.30. Prestur á staðnum og hægt
er að kveikja á bænarkerti.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12. Fræðandi
samverustundir, ýmis konar fyrirlestrar. Kaffi, djús og
brauð fyrir börnin. TTT fyrir 10-12 ára kl. 15-16 í Víkur-
skóla.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl. 18.15, tónlist Þor-
valdur Halldórsson, prestur sr. Ólafur Jóhannsson.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhug-
un. Málsverður í safnaðarheimili eftir stundina.
Hjallakirkja | Opið hús fyrir eldri borgara kl. 12-14. Létt-
ur hádegisverður og samverustund.
KFUM og KFUK | Holtavegi 28. Fundur í AD KFUM kl.
20. Fallnir stofnar – sr. Bjarni Jónsson. Þórarinn Björns-
son sér um efnið. Sr. Frank M. Halldórsson hefur hug-
leiðingu. Kaffi eftir fundinn. Allir karlmenn velkomnir.
Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Málsverður í
safnaðarheimilinu á eftir. Jólasamvera eldri borgara kl.
14, Edda Andrésdóttir kynnir nýju bókina og nemendur
úr Tónskóla Sigursveins leika. Kaffiveitingar. Gegnið inn
um aðaldyr. Nýtt fólk velkomið. Adrenalín gegn rasisma
kl. 17, (9. og 10. b.)
Neskirkja | Foreldrarmorgunn kl. 10. Fræðsla um að-
ventuna og aðventustund í kirkjunni. Kaffi á könnunni.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbænastund
kl. 21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna.
Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar.
60ára afmæli. 10. desem-ber næstkomandi
verður Valgerður Jóhannes-
dóttir sextug. Af því tilefni
ætlar hún að gleðjast með ætt-
ingjum og vinum og býður til
kaffisamsætis í Ráðhúskaffi,
Þorlákshöfn, sunnudaginn 9.
desember kl. 15-18.
Gullbrúðkaup | Hjónin Ást-
ríður Jóhannsdóttir og Helgi
Ó. Björnsson eiga gullbrúð-
kaup í dag, fimmtudaginn 6.
desember. Þau verða að heim-
an.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 6. desember, 340. dagur ársins 2007
Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I. Kor. 8, 3.)
Ráðstefnan Þjóðarspegill –rannsóknir í félagsvísindumVIII verður haldin við Há-skóla Íslands á föstudag.
Framlag Alþjóðamálastofnunar HÍ til
ráðstefnunnar er málstofa um örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna og verkefni
þess: Ísland í öryggisráðið – og hvað svo?
Ragnar G. Kristjánsson sendiráðu-
nautur við fastanefnd Íslands í Genf er
meðal fjögurra fyrirlesara á málstofunni:
„Í erindi mínu geri ég grein fyrir um-
ræðum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
um endurbætur á öryggisráði SÞ. Ég
fjalla um þau ríki sem hafa farið fremst í
flokki við að krefjast fjölgunar ríkja í ör-
yggisráðinu og geri sérstaklega grein
fyrir þeim ríkjum, sem krefjast þess að fá
þar fastasæti, og röksemdum þeirra,“
segir Ragnar.
Frá stofnun SÞ árið 1945 hafa fimm
ríki átt fast sæti í öryggisráðinu: Banda-
ríkin, Bretland, Frakkland, Kína og
Rússland, en að auki eru tíu sæti sem
kosið er um til tveggja ára í senn: „Þær
raddir verða æ háværari að samsetning
ráðsins endurspegli hvorki pólitískan né
efnahagslegan styrkleika ríkja á al-
þjóðavettvangi, í ljósi þeirra breytinga
sem orðið hafa í heiminum frá stofnun
SÞ. Af þeim sökum vilja sumir draga
lögmæti ákvarðana ráðsins í efa og
halda því jafnframt fram að örygg-
isráðið sé ekki eins vel í stakk búið að
takast á við verkefni sín. Aðrir halda því
fram að stækkun ráðsins gæti þvert á
móti flækt ákvarðanatöku,“ segir Ragn-
ar. „Einnig er rætt um endurbætur á
starfsháttum ráðsins, sem að margra
mati telst með íhaldssamari stofnunum.
Þó hafa framfarir átt sér stað hægt og
bítandi, t.d. með fjölgun opinna funda
öryggisráðsins og bættu upplýs-
ingaflæði.“
Ragnar segir Ísland hafa verið nokk-
uð áberandi í umræðum á allsherj-
arþingi SÞ um endurbætur á örygg-
isráðinu, þar sem Ísland hefur stutt
bæði fjölgun kjörinna ríkja og fasta-
ríkja: „Nái Ísland kjöri í öryggisráðið
má sjá fram á margþætt verkefni, en
álag á aðildarríki ráðsins hefur aukist til
muna undanfarinn áratug, m.a. vegna
mikillar fjölgunar friðargæsluverkefna á
vegum SÞ og heildrænna uppbygging-
arstarfs.“
Málstofa Alþjóðamálastofnunar verð-
ur haldin í stofu 101 í Odda kl. 9 til 11.
Sjá nánar á thjodarspegillinn.hi.is
Utanríkismál | Málstofa Alþjóðamálastofnunar um SÞ á föstudag
Í öryggisráðið – og hvað svo?
Ragnar G. Krist-
jánsson fæddist á
Höfn í Hornafirði
1968. Hann lauk
BA-prófi í stjórn-
málafræði frá HÍ
1991 og MA frá
stjórnmálafrdeild
Hásk. í Hull 1994.
Ragnar hóf störf í
utanríkisþjónustunni 1998. Hann
starfaði frá 2001 hjá fastanefnd Ís-
lands hjá SÞ í New York, og hefur frá
ársbyrjun 2007 verið varafastafulltrúi
fastanefndar Íslands gagnvart EFTA
og stofnunum SÞ í Genf. Ragnar er
kvæntur Þórunni Scheving Elíasdótur
svæfhjfræð. og eiga þau einn son.
Tónlist
Akureyrarkirkja | Orgeltónleikar Tónlistar-
skólans á Akureyri kl. 20.
Græni hatturinn | Í tilefni af útgáfu plöt-
unnar Vestur með Sniglabandinu, verða út-
gáfutónleikar kl. 21. Sniglabandið ásamt 7
manna stoðsveit leikur og syngur lög af
plötunni ásamt eldra og nýrra efni.
Hallgrímskirkja | Jólatónleikar Drengja-
kórs Reykjavíkur eru kl. 20. Með kórnum
syngja félagar úr Karlakór Reykjavíkur,
ásamt Gunnari Guðbjörnssyni óperu-
söngvara. Orgelleikari Lenka Máteova,
stjórnandi Friðrik S. Kristinsson. Miðaverð
1.500 kr. Nánar á listvinafelag.is.
Norræna húsið | Daglega kl. 12.34, er opn-
aður einn gluggi í jóladagatali Norræna
hússins. Hver gluggi hefur lifandi uppá-
komu að geyma.
Organ | Tímaritið Monitor heldur áfram
með Uppsveiflukvöld sín. Kynntar verða
hljómsveitirnar I Adapt og Sign sem báðar
gáfu út plötu nýverið. Ókeypis aðgangur.
Myndlist
Ketilhúsið Listagili | Imagine Peace-sýning
á friðarteikningum japanskra og akur-
eyrskra barna.
Bækur
Populus Tremula | Bókmenntadagskrá
með ljóðum eftir Helga Þórsson í Kristnesi.
Populus tremula gefur út ljóðakverið Tveir
skuggar ástarljóð eftir Helga. Hefst kl. 21 í
Populus tremula í Listagilinu.
Skemmtanir
Aflagrandi 40 | Jólafagnaður 7. desember.
Húsið opnað kl. 18. Fordrykkur og jólahlað-
borð. Senjórítukórinn flytur jólalög og Guð-
rún Stephensen flytur jólasögu. Ræðumað-
ur kvöldsins er Helgi Hjörvar. Miðaverð kr.
3.300.
Mannfagnaður
Heimilisiðnaðarfélag Íslands | Heimilisiðn-
aðarfélag Íslands býður áhugasömum að
koma í prjónakaffi í Iðu í Lækjargötu kl. 20-
22. Upplestrarkvöld í umsjón bókaversl-
unarinnar Iðu. Kynntar verða nýjar bækur.
KR-heimilið | Aðventukvöld KR-kvenna
verður í Félagsheimili KR í kvöld. húsið opn-
að kl. 19.30, aðgangur ókeypis. Léttar veit-
ingar. Sr. Anna Pálsdóttir kemur fólki í jóla-
skap, happdrætti og kosta 4 miðar 1.000 kr.
Fyrirlestrar og fundir
Geðhjálp | Túngötu 7. Geðhvarfahópur Geð-
hjálpar kemur saman kl. 21-22.30. Allir sem
eiga eða hafa átt við geðhvörf að stríða eru
velkomnir.
Ráðhús Reykjavíkur | Ljósmyndasýningin
Kraftakonur – 16 daga átak. Í tilefni af 25
ára afmæli Kvennaathvarfsins 6. desember
verður haldin sigurhátíð til heiðurs kon-
unum sem dvalið hafa í athvarfinu frá upp-
hafi. Samhliða er ljósmyndasýning, þar sem
sýndar verða u.þ.b. 2.900 myndir af kon-
um.
Sögufélag, Fischersundi 3 | Rannsóknar-
kvöld á vegum Félags ísl. fræða, kl. 20.
Benedikt Hjartarson, bókmenntafræðingur
flytur erindi sem hann nefnir: Úr foraði evr-
ópskrar nútímamenningar – Viðhorf til
framúrstefnu í íslenskri menningarumræðu
3. áratugarins. Fyrirlesturinn er öllum op-
inn og aðgangur er ókeypis.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-samtak-
anna er 895-1050.
Nokkurra daga
tígrisungi fær
mjólk úr pela.
Hann er af teg-
und tígra frá S-
Kína sem eru í
útrýmingar-
hættu. Vernd-
arsamtök hugsa
um þann stutta.
Barist fyrir því að viðhalda Suður-Kína-tígrinum
Mjólk
er góð
Reuters
FRÉTTIR
Í BRYNJUDAL og á Fossá í Hval-
firði er stunduð öflug framleiðsla
jólatrjáa á vegum Skógræktarfélags
Íslands og skógræktarfélaga í
Kjósarsýslu. Næstu helgar fram að
jólum mun fara fram sala trjáa víðs-
vegar um land, úr ræktunarsvæðum
skógræktarfélaga.
Kjósarhreppur verður með jóla-
markað í Félagsgarði helgina 8. og
9. desember í tengslum við söluna í
Hvalfirði þar sem gestum og gang-
andi gefst kostur á að kaupa ýmsar
vörur úr sveitinni auk þess sem boð-
ið verður upp á heitt kakó og með-
læti.
Nánari upplýsingar má sjá á
www.kjos.is og www.skog.is.
Jólamarkaður
í Félagsgarði
STJÓRN Félagsráðgjafafélags Ís-
lands skorar á alþingismenn að
greiða atkvæði gegn frumvarpi til
laga um breytingar ýmissa laga-
ákvæða sem varða sölu áfengis og
tóbaks. „Mikilvægt er að íslensk
stjórnvöld styðji við forvarnar-
stefnu í áfengismálum með því að
koma í veg fyrir sölu áfengis í mat-
vöruverslunum,“ segir í ályktun-
inni.
Gegn áfengis-
frumvarpi