Morgunblaðið - 06.12.2007, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVERNIG VISSUÐ ÞIÐ AÐ
MIG LANGAÐI Í ÞETTA?
ÉG VAR AÐ FÁ BESTU
AFMÆLISGJÖF Í HEIMI...
ÉG ER EKKI
LENGUR Í
MEGRUN!
ÞARNA ER
HIMINN-
INN!
ER EKKI
FRÁBÆRT
HVAÐ HANN
VEIT MIKIÐ?
Á HIMNINUM ERU SKÝ, OG
STJÖRNUR, OG VINDUR OG
REGN... HANN ER LÍKA BLÁR
ÞETTA HÉRNA ER GRAS...
ÞAÐ ER VENJULEGA GRÆNT
ÉG SAGÐI MÖMMU OG
PABBA AÐ HOBBES
HEFÐI ORÐIÐ EFTIR...
ÉG REYNDI AÐ SEGJA
ÞEIM AÐ SNÚA VIÐ...
OG HOBBES VAR EINN
HEIMA ÞEGAR ÞAÐ VAR
BROTIST INN
MAMMA SAGÐI AÐ HOBBES
HEFÐI EKKI VERIÐ RÆNT
ÞVÍ HANN ER EKKI
VERÐMÆTUR...
EN MÉR FINNST HANN
VERA VERÐMÆTUR
HOBBES? HOBBES?
HVAR ERTU?
HVAÐ KALLAR
ÞÚ ÞETTA
EIGINLEGA?
ÁHÖFNIN ER MEÐ NAFN YFIR
ÞETTA EN MAMMA KENNDI MÉR
AÐ NOTA EKKI ÞANNIG ORÐ...
ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ EKKI VITLAUST
AÐ HENDA ÞVÍ BARA FYRIR BORÐ
VERTU ALVEG
KYRR... VIÐ VILJUM
EKKI SETJA
HREYIFSKYNJARANN
AF STAÐ
ÞETTA
ER
KALLI
SÆL, ÉG ER
STEBBI OG ÉG SÉ
UM ÞESSAR
SUMARBÚÐIR
ÞÚ ÁTT
AÐ GISTA Í
SKÁLA
ÞRJÚ
HAFÐU
ÞAÐ GOTT,
ELSKAN!
VIÐ LEYFUM ENGA GESTI
EN VIÐ SETJUM MYNDIR AF
KRÖKKUNUM Á VEFSÍÐUNA
OKKAR Á HVERJUM DEGI,
ÞANNIG AÐ ÞIÐ GETIÐ
FYLGST MEÐ ÞEIM
LALLI, KOMSTU MEÐ
FARTÖLVUNA?
FYRSTU
MYNDIRNAR KOMA
Á MORGUN
ÞAÐ LÍTUR ÚR FYRIR AÐ M.J.
HAFI EIGNAST ÓVIN...
OG ÉG ER VISS UM AÐ ÉG
FINN ÞANN ÓVIN HÉR!
OG ÞAÐ ERU GÓÐAR LÍKUR Á ÞVÍ...
AÐ HANN SÉ NARNA LEMARR
dagbók|velvakandi
Vandræði fjármálamanna?
Margur ágirnist meir en þarf
maður fór að veiða skarf
hafði fengið fjóra.
Ætlaði sér hinn fimmta
en í því hvarf hann
ofan fyrir bjargið stóra.
Björn.
Húfa kom upp í fangið á mér
SVÖRT GuSt-design-húfa fauk í
fangið á mér á bílastæði Kringlunn-
ar, föstudaginn 30. nóvember.
Upplýsingar í síma 869 1970.
Rut.
Þjónusta strætisvagna
ÉG BÝ í Kópavogi og hér eins og
annars staðar er fólk hvatt til að nota
strætó. Meira að segja er kominn
sérstakur tómstundavagn fyrir börn
sem fer á milli helstu íþróttamann-
virkja bæjarins. Ennþá hafa börnin
mín ekki notað þá þjónustu, en ég
var svona farin að huga að því að
hvetja þann eldri sem er 10 ára til
þess að prufa. Eftir daginn í dag
kemur það ekki til greina. Í dag var
nefnilega sonur minn að taka strætó
í fyrsta skipti. Hann ætlaði heim með
vini sínum sem lánaði honum strætó-
miða. Þegar strætisvagninn kom var
strákurinn minn orðinn loppinn á
fingrunum og var með vettlinga.
Hann fann ekki miðann í vasanum og
fékk ekki að fara inn í vagninn með-
an hann var að leita. Heldur var lok-
að á nefið á honum og keyrt í burtu
með vininn innanborðs. Vinurinn bað
bílstjórann um að bíða aðeins því
hinn væri með miða, en bílstjórinn
kvaðst ekki geta eytt tíma í það.
Strákurinn minn kom hágrátandi
heim með miðann í hendinni, sem
hann fann í þann mund sem strætó
brunaði af stað. Ég þakka bara guði
fyrir að hann var hér í hverfinu en
ekki á leiðinni til baka, kannski á
ókunnugum slóðum. Mér finnst ekki
líklegt að hann verði spenntur fyrir
frekari strætóferðum. Einnig vil ég
taka það fram að ég reyndi að bera
upp kvörtun við fyrirtækið sjálft en
þar varð fátt um svör.
Hildur Ómarsdóttir.
Bónus hundsar skjólstæðinga
Fjölskylduhjálpar Íslands
ÉG ER öryrki og viðskiptavinur
Bónuss þar sem ódýrast er að versla
en þarf oft á tíðum að leita á náðir
Fjölskylduhjálpar Íslands því endar
ná ekki saman hjá mér og fjölskyldu
minni. Ég er afar þakklátur að geta
leitað á náðir Fjölskylduhjálparinnar
því á stundum hefur hún haldið í
okkur fjölskyldunni lífinu og því er
ég mjög hryggur og hissa á að Bónus
sniðgengur það mikla starf sem unn-
ið er þar. Ég hringdi í Fjölskyldu-
hjálpina og spurðist fyrir um það
hvers vegna ekkert kom í hlut henn-
ar af þeim 25 milljónum sem Jóhann-
es í Bónus úthlutaði en svarið var að
þær hefðu enga skýringu á því. Ég
og margir fleiri munum hugsa okkur
tvisvar um áður enn við verslum aft-
ur í Bónus.
Öryrki á höfuðborgarsvæðinu.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÓVÍÐA í heiminum er birtan jafn sérstök og falleg og á Íslandi, jafnt sumar
sem vetur. Þessi fagra mynd er gott dæmi um samspil ljóss og skugga. En
kaldranalegt hlýtur að vera á sjónum núna, en fegurðin léttir lundina.
Morgunblaðið/Frikki
Siglt undir Akrafjalli
FRÉTTIR
Í TILEFNI af 16 daga átaki gegn
kynbundnu ofbeldi dreifir karlahóp-
ur Femínistafélags Íslands póst-
kortum til að minna á mikilvægi
ábyrgra aðgerða gegn kynbundnu
ofbeldi.
Í þeim tilgangi hefur karlahópur-
inn sent öllum alþingismönnum,
hæstaréttardómurum og héraðs-
dómurum póstkort með eftirfarandi
skilaboðum: „Í tilefni af 16 daga
átaki gegn kynbundnu ofbeldi viljum
við minna á mikilvægi ábyrgra að-
gerða gegn kynbundnu ofbeldi.“
Einnig mun karlahópurinn dreifa
póstkortunum á kaffihús og félags-
miðstöðvar, ásamt því að dreifa þeim
um netið og í tölvupósti
Póstkortin eru unnin að fyrir-
mynd bresku samtakanna Truth
about rape og í samstarfi við sam-
tökin.
Tilgangurinn með kortunum er að
afmynda goðsagnir og ranghug-
myndir um nauðganir og minna um
leið á alvöru nauðgana.
Póstkortaátak karlahóps femínista