Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Um þessar mundir er BjörkGuðmundsdóttir í heims-reisu að kynna nýju plöt-
una sína og núna liggur leiðin um
Mexíkó og Bandaríkin. Við vorum
síðast í Suður-Ameríku, byrjuðum í
Brasilíu en svo var haldið til Arg-
entínu, Chile, Perú og Kólumbíu.
Síðustu tónleikarnir okkar fyrir jól
verða í Las Vegas. Eftir áramót
förum við m.a. til Ástralíu og Asíu.
Túrinn hefur staðið yfir síðan íapríl. Ég hætti að telja hótelin
þegar ég var kominn í þrjátíu og
fimm, en sennilega höfum við verið
á um fimmtíu hótelum síðan reisan
byrjaði. Stundum vakna ég á nótt-
unni og veit ekkert hvar ég er. Það
hefur meira að segja komið fyrir
mig hér heima, en þá finnst mér ég
vera einhver staðar í útlöndum.
Ekki er laust við að ég fyllist feg-
inleika þegar ég átta mig á því
hvar ég er. Auðvitað er gaman að
vera úti um allar trissur en það
getur verið lýjandi til lengdar.
Björk er ótrúlega fræg. Það ermikið látið með hana í erlend-
um fjölmiðlum og ég hef séð alls-
konar fólk biðja hana um eig-
inhandaráritun úti á götu. Ég hef
reyndar aldrei skilið af hverju fólk
vill eiga rithandarsýnishorn fræga
fólksins.
Frægð í listageiranum er samt
nauðsynleg. Fólk þarf að þekkja
Björk til að vilja kaupa það sem
hún skapar. En það er samt óþarfi
að snobba fyrir frægu fólki. Það
er enginn betri eða merkilegri,
bara vegna þess að hann er fræg-
ur.
Tónlistin er það sem gerir Björkmerkilega. Hún er svo hug-
myndarík og tekur endalaust
áhættu en þar sem hún ber óvana-
lega næmt skynbragð á hvað það
er sem virkar í tónlistinni gengur
flest upp hjá henni.
Eins og kunnugt er þá er Björk
með galdrastafinn Vegvísi tattó-
veraðan á handlegginn á sér og
stundum finnst mér eins og hann
hjálpi henni! En sennilega er það
bara innsæið sem er vegvísirinn í
lífi hennar.
Stór hópur af fólki vinnur fyrirBjörk. Við erum um þrjátíu og
fimm manns sem ferðumst með
henni. Svo eru margir aðrir sem
starfa fyrir hana víðsvegar um
heiminn. Þegar ég byrjaði að vinna
fyrir hana leið mér stundum eins
og hún hefði yfirnáttúrlega krafta
á snærum sínum. „Þarftu ekki al-
mennilegt orgel til að æfa þig á?“
spurði hún mig þegar undirbún-
ingsvinnan fyrir túrinn var að hefj-
ast. „Jú,“ sagði ég. „Ég læt senda
þér það. Það er í New York, en
verður komið til þín fyrir helgi.“
Ég bjóst við því eftir mánuð en það
var komið heim til mín á föstudegi.
Svona hefur þetta verið allan tím-
ann. Skipulagið er aðdáunarvert.
Ég kem úr veröld klassískrartónlistar og það er sérstætt
að kynnast þessari hlið á tónlistinni
sem ég hef hingað til ekki haft
mikið vit á. Allar hliðarnar hafa
sína kosti og galla en ég kann að
meta frelsi okkar hljóðfæraleik-
aranna í hljómsveit Bjarkar til að
gera tilraunir og að hluta til skapa
sjálf okkar eigin raddir innan
heildarinnar. Það þekkist varla í
heimi klassískrar tónlistar.
Fyrstu tónleikarnir okkar voru íLaugardalshöllinni í apríl, ef
frá er talin örstutt uppákoma á
Nasa nokkrum dögum áður. Síðan
þá höfum við komið fram á rúm-
lega fjörutíu tónleikum og einnig í
sjónvarpi í Bandaríkjunum og Bret-
landi. Sem betur fer erum við ekki
alltaf að flytja sömu lögin, við erum
með á milli fjörutíu og fimmtíu lög
í sarpinum. Um klukkustund fyrir
tónleika ákveður Björk hver þeirra
verði á dagskránni í það skiptið.
Við höfum samt flutt sömu lögin
býsna oft á þessum mörgu tón-
leikum og þau hafa slípast mikið
hjá okkur. Auk þess er ýmislegt
orðið öðruvísi, við erum með fána á
sviðinu, leysigeisla, eld og fleira
sem ekki var í Laugardalshöllinni.
Það væri því gaman ef Björk kæmi
hingað aftur með alla hersinguna
og leyfði Íslendingum að upplifa
tónlist sína eins og hún er orðin
núna. Ég hef auðvitað enga hug-
mynd um hvort af því verður en
maður getur alltaf vonað.
Höfundur spilar á píanó, orgel,
sembal og önnur hljómborðs-
hljóðfæri í hljómsveit Bjarkar Guð-
mundsdóttur.
Hvar er ég?
Í HEIMSREISU MEÐ BJÖRK
Jónas Sen
»Eins og kunnugt erþá er Björk með
galdrastafinn Vegvísi
tattóveraðan á hand-
legginn á sér og stund-
um finnst mér eins og að
hann hjálpi henni!
Morgunblaðið/Frikki
Sjónarspil Á tónleikum með Björk í Brasilíu í október síðastliðnum.
senjonas@gmail.com
Hitman 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Hitman 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Dan in Real Life kl. 5:45 - 8 - 10:15
Wedding Daze kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
Balls of Fury kl. 4 - 6 B.i. 7 ára
Heartbreak Kid kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 4
Sími 564 0000Sími 462 3500
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
DAN Í RAUN OG VERU
Frábær
rómant
ísk
gamanm
ynd efti
r
handrit
höfund
About a
Boy
Steve Carell úr 40 year Old Virgin
og Evan Almighty leikur ekkill sem
verður ástfanginn af kærastu bróður síns!
S T E V E
C A R E L L
Hvað ef sá sem þú elskar...
Hverfur sporlaust? ÁSTARSORG
Stórskemmtileg rómantísk gaman-
mynd um ungan mann sem er
sannfærður um að hann muni aldrei
verða ástfanginn aftur!
Gríðarstór
gamanmynd
með litlum
kúlum!
eee
„...Raunsæ, hugljúf
og angurvær í senn“
-T.S.K., 24 Stundir
„Gamandrama sem
kemur á óvart“
-T.S.K., 24 Stundir
eeee
- V.J.V., Topp5.is
eeee
- Empire
Ve
rð a
ðeins
600 kr
.
Leigumorðinginn Njósnari 47
er hundeltur bæði af Interpol
og rússnesku leyniþjónust-
unni og þarf að komast að
því hver sveik hann!
Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum frábæru tölvu-
leikjum með Timothy Olyphant úr Die Hard 4.0 í fantaformi.
Með íslensku tali
FYRIR LÖMB
LJÓN
eee
- Ó.H.T., Rás 2
“Grípandi!”
Hitman kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Dan in Real Life kl. 6 - 8 Síðustu sýningar
Rendition kl. 10 Síðasta sýning B.i. 16 ára
Hitman kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Dan in Real Life kl. 5:45 - 8 - 10:15
La Vie en Rose kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
Lions For Lambs kl. 10 B.i. 12 ára
BORÐTENNISBULL
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
- Kauptu bíómiðann á netinu -
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
LÍF RÓSARINNAR: SAGA EDITH PIAF
eee
- H.J., MBL
“Töfrandi”
eee
- Ó.H.T., Rás 2
“Grípandi!”
Vönduð frönsk stórmynd,
sem er að fara sigurför um heiminn,
um litskrúðuga ævi Edith Piaf.
ÍTÖLSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í REGNBOGANUM 6.-12. DESEMBER
CINEMA ITALIANO