Morgunblaðið - 06.12.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 45
RÖDD þjóðarinnar eða Rikets Røst
eins og þátturinn heitir í Noregi er
gríðarlega vinsæll grínfréttaþáttur
sem er sýndur einu sinni í viku á
TV2. Að sögn Vegard Thomassen,
framleiðanda þáttanna, horfir um
hálf milljón Norðmanna á Rikets
Røst í viku hverri og hefur hann
verið á dagskrá stöðvarinnar í rúm
þrjú ár. Fréttamaðurinn sem hing-
að kom heitir Pia Haraldsen og sér
um fréttaflutning af erlendum vett-
vangi fyrir þáttinn. Frægt er viðtal
hennar við borgarráðsmanninn
James Oddo frá New York sem
nánast fleygði Piu og upptökuliði út
af skrifstofu sinni þegar fíflaspurn-
ingar Piu náðu hámarki. Mynd-
skeiðið hefur notið mikilla vinsælda
á YouTube og atvikið komst meðal
annars í fréttir Fox-fréttastöðv-
arinnar. Ólíkt mörgum skop-
spyrlum af hennar sauðahúsi kemur
Pia furðu vel fyrir og það er ekki
fyrr en hún byrjar sjálft viðtalið að
það renna tvær grímur á viðmæl-
endur hennar.
Besta land í heimi
Tilefni viðtalanna hér á landi er
nýbirtur lífskjaralisti Sameinuðu
þjóðanna en eins og kunnugt er
skaust Íslandi upp fyrir Noreg á
listanum. Vegard Thomassen, fram-
leiðandi þáttanna, staðfesti við
Morgunblaðið að Pia hefði tekið við-
töl við að minnsta kosti tvo þing-
menn og einn bankastjóra Lands-
bankans en vildi þó ekki nefna nein
nöfn. Morgunblaðið hefur þá einnig
heimildir fyrir því að Pia hafi rætt
við Árna M. Mathiesen fjár-
málaráðherra og að ætlunin hafi
verið að ræða við Geir H. Haarde
forsætisráðherra. Hann mun þó
hafa boðað forföll á síðustu stundu
sökum veikinda. Að sögn Vegards
gengu viðtölin mjög vel og þó að
menn hafi kveikt misjafnlega fljótt
á perunni varð enginn sárreiður
vegna fíflalátanna. „Þið eruð af-
skaplega kurteis þjóð. Viðmælendur
voru heldur undrandi á sumum
spurningunum en þegar öll kurl
komu til grafar, tóku menn þessu
með jafnaðargeði. Við fengum í
raun staðfestingu á því að Ísland
væri besta land heimi.“
Hvaða Silvía?
Segja má að ákveðin sprenging
hafi átt sér stað í skopfrétta-
mennsku í kjölfar Ali G.-þáttanna á
BBC sem síðar leiddu til kvikmynd-
arinnar um Borat. Hér á landi steig
Johnny National fyrstur fram með
svipuð viðtöl en í kjölfar hans fylgdi
svo Silvía Nótt. Aðspurður hvort
hann þekkti ekki til starfssystur
Piu hér á Íslandi, kom Vegard
Thomassen af fjöllum og spurði
undrandi: „ Hvaða Silvíu?“ Lýs-
ingar af þátttöku Silvíu í Evróvisjón
í hittiðfyrra komu honum heldur
ekki að gagni og því síður að þættir
hennar væru sýndir í Svíþjóð á
sjónvarpsstöðinni TV 400.
Þeir Íslendingar sem hafa að-
gang að TV2 geta átt von á að sjá
úttekt Piu á Íslandi í þættinum Ri-
kets Røst í næstu eða þarnæstu
viku.
Norsk Silvía
Nótt á Íslandi
Flagð undir fögru skinni Pia Haraldsen fréttamaður Rikets Røst var stödd
hér á landi í vikunni og tók marga málsmetandi menn skoptali.
Tók skopviðtöl við þingmenn, fjármála-
ráðherra og bankastjóra Landsbankans
en Geir H. Haarde boðaði forföll
/ AKUREYRI/ KRINGLUNNI
BEOWULF kl. 8 B.i. 12 ára
AMERICAN GANGSTER kl. 8 B.i. 16 ára
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
BEOWULF kl. 8 B.i. 12 ára
IN THE LAND OF WOMEN kl. 8 Síðustu sýningar LEYFÐ
BEOWULF kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára 3D-DIGITAL
SYDNEY WHITE kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
AMERICAN GANGSTER kl. 9D B.i. 16 ára DIGITAL
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
„RIDLEY SCOTT LEIKSTÝRIR RUSSELL CROWE OG
DENZEL WASHINGTON Í BESTU MYND ÞESSA ÁRS!“
Ó.E.
eeee
„American gangster er
vönduð og tilþrifamikil“
- S.V., MBL
eeee
,,Virkilega vönduð glæpamynd
í anda þeirra sígildu.”
- LIB, TOPP5.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA
BEOWULF kl. 8 B.i. 12 ára
30 DAYS OF NIGHT kl. 10:20 B.i. 16 ára
WEDDING DAZE kl. 8 LEYFÐ
EASTERN PROMISES kl. 10 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUSER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
„Óskarsakademían mun standa á
öndinni... toppmynd í alla staði.“
Dóri DNA - DV
Leiðinlegu
skóla stelpurnar
- sæta stelpan
og 7 lúðar!
Amanda Bynes úr She‘s The Man er
komin aftur í bráðskemmtilegri mynd
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Á AKUREYRI
eeee
HJ. - MBL
600 kr.
Miðaverð
SÝND Í KRINGLUNNI
FORELDRAR
6 EDDU-
VERÐLAUN SÝND Í SELFOSSI
SÍÐUSTU SÝNINGAR
SÍÐUSTU SÝNINGAR
www.forlagid.is
ÞAÐ kom mér skemmtilega á óvart
hve góð lögin úr „Undarlegu húsi“
Stundarinnar okkar eru. Lögin eru
sérlega vönduð og óskaplega vel
leikin af sveitinni Börn síns tíma.
Sprenghlægilegir textar segja frá
ævintýrum Snæfríðar og Stígs þar
sem þau gæta íbúðar Ingimundar
nokkurs. Hjá honum lenda þau með-
al annars í tímaspennitreyju og
drekka töfragos. Einnig er fjallað
um gildi þess að segja sannleikann
ásamt því sem reynt er að svara
nokkrum af lífsins spurningum. Mér
hefur alltaf þótt það mikill gæða-
stimpill á barnaefni ef það getur
einnig höfðað til fullorðinna. Það
hefur þessum umsjónarmönnum og
þeirra hjálparhellum svo sannarlega
tekist.
Mynddiskurinn sem fylgir með
sýnir myndbönd við lögin sem á
diskinum eru. Diskurinn er í sjálfu
sér ágætur, hann sýnir brot úr þátt-
unum þar sem lögin voru flutt og
voru þau mörg hver mjög skemmti-
leg. Fyrir lítið fé hafa sniðugar
lausnir verið fundnar í leik-
myndagerð og ímyndunarafl þeirra
sem koma að verkinu fær svo sann-
arlega að njóta sín. Hins vegar þótti
mér afskaplega leiðinlegt að reka
mig á hve lítil gæði disksins eru;
mikið er um stafræna ferhyrninga
og oft eru myndgæðin sjálf eins og á
gamalli vídeóspólu. Þrátt fyrir að
börn geri kannski ekki miklar kröfur
til myndgæða þykir mér óhæft að
senda svona lélega afurð frá sér.
Þetta er sérstaklega leiðinlegt í ljósi
þess hve mikinn metnað aðstand-
endur Stundarinnar okkar hafa lagt
í vinnu sína.
Stundin okkar stendur sig
Geisladiskur + mynddiskur
Undarlegt hús: Tónlistin úr
Stundinni okkar 2006-2007
Geisladiskur: Mynddiskur: Helga Þórey Jónsdóttir
Fréttir á SMS