Morgunblaðið - 06.12.2007, Síða 48
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 340. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Verðmæti Exista fellur
Verðmæti fjárfestingafélagsins
Exista hefur lækkað um 33 milljarða
á markaði í vikunni en lækk-
unarhrinan hefur verið nær samfelld
frá í sumar. Nær 200 milljarðar
króna hafa þar farið forgörðum.
» Forsíða
Örbirgð fer ört vaxandi
Mikið var um að vera í Fjöl-
skylduhjálp Íslands við Eskihlíð í
gær, þegar Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra, leit þar inn til
að kynna sér starfsemina og ræða
við fólk sem beið afgreiðslu. Að mati
Guðrúnar Magnúsdóttur, einnar af
stofnendum FÍ, er greinilegt að vel-
ferð samfélagsins fylgir mikil ör-
birgð, sem fer ört vaxandi. » 2
Mesta mengunarslys
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar, telur nýlegt
klórmengunarslys hið mesta sem
orðið hafi í Varmá. Starfsmenn
áhaldahúss Hveragerðisbæjar fóru
með Varmá á þriðjudag og fundu
talsvert af dauðum fiskum. Frá út-
rennslinu þar sem klórinn fór í ána
og niður undir fiskeldisstöðina á
Öxnalæk fundust aðeins tvö lifandi
urriðaseiði. » Forsíða, 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Af litum … og nöfnum
Forystugreinar: Staða íslenskra
skóla | „Akkeri miðborgarinnar“
Ljósvaki: Igglepiggle er …
UMRÆÐAN»
Þróunarskýrsla Sameinuðu þjóðanna
Þjóð án verðskyns er auðlind
Kvennaathvarf í 25 ár
Til varnar lýðræðinu
Kjarnakona á Berlingske
Næsta skref stigið í Afríku
Okkur ber að eiga ekki neitt
Miklir möguleikar á aukinni þjónustu
VIÐSKIPTI »
3%
3%%
3 3 3 3 %3 3%
4
5 '
. +
6 $
!$ "
.
3
3%
3 3 3 %3 3 - 7 &1 '
3%
3 3%
3 3 3
89::;<=
'>?<:=@6'AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@'7 7<D@;
@9<'7 7<D@;
'E@'7 7<D@;
'2=''@" F<;@7=
G;A;@'7> G?@
'8<
?2<;
6?@6='2+'=>;:;
Heitast 2°C | Kaldast -3°C
Breytileg átt, víða
3-8 m/s, og dálítil él,
en norðaustan 5-10
m/s og snjókoma norð-
an- og austanlands. » 10
Björk er með
galdrastafshúðflúr
sem gæti mögulega
komið sér vel, þó
innsæi skipti líklega
mestu. » 42
LISTAPISTILL»
Galdrar
Bjarkar
FÓLK»
Jude Law gæti verið á
leið til landsins. » 43
Pia Haraldsen grín-
fréttakona ræddi við
Árna Mathiesen, tvo
þingmenn og banka-
stjóra sem tóku
gríninu vel. » 45
FÓLK»
Hin norska
Silvía Nótt
TÓN- OG LAGALISTAR»
Palli og Sprengjuhöllin á
góðri siglingu. » 44
TÓNLIST»
Hljómsveit sem átti ekki
bót fyrir rassinn. » 41
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Huldi númerið og ók of hratt
2. „Týndi ræðarinn handtekinn“
3. Gilzenegger tók út … fyrir mömmu
4. Eva fékk allt ókeypis
ENN trónir
matreiðslubókin
Ítalskir réttir
Hagkaupa á
toppi bóksölu-
listans sem Fé-
lagsvís-
indastofnun
vinnur fyrir
Morgunblaðið.
Þetta er þriðja vikan í röð sem
matarbókin vermir toppinn, en í
öðru sæti, aðra vikuna í röð, er
Harðskafi Arnaldar Indriðasonar.
Harry Potter sem var í þriðja sæti
í síðustu viku, og í öðru sæti vik-
una þar á undan hefur nú vikið nið-
ur í fjórða sæti, en upp í þriðja
sætið spretta þeir Guðni Ágústs-
son og Sigmundur Ernir Rún-
arsson með bókina Guðni: Af lífi og
sál. Hún komst ekki á almenna
listann í síðustu viku, þótt hún
væri þá í efsta sæti ævisagna-
flokksins.
Hreyfing er komin á flokk ís-
lenskra og þýddra skáldverka, þótt
fátt virðist geta storkað bók Arn-
aldar í efsta sætinu. Hnífur Abra-
hams eftir Óttar M. Norðfjörð sem
var í fjórða sæti fyrir viku er nú í
öðru sæti og Kristín Marja Bald-
ursdóttir, með Óreiðu á striga er
komin í þriðja sætið.
Á barna- og unglingabókalist-
anum eru Harry Potter og kenja-
krakkar Eldjárnssystkina í efstu
sætunum, Kafteinn ofurbrók stelur
því þriðja af Gælum, fælum og
þvælum Þórarins Eldjárns.
Sígilda kverið Jólin koma, eftir
Jóhannes úr Kötlum, er enn efst á
ljóðalistanum, en í öðru og þriðja
sæti eru ljóðabækur Þórarins Eld-
járns og Ara Jóhannessonar. | 18
Guðni tek-
ur stökk
upp á við
„ÉG er afskaplega stolt af því skrefi sem hér er stigið
í þá veru að bæta kjör aldraðra og öryrkja,“ sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra á
blaðamannafundi í gær þar sem kynntar voru aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar til að bæta stöðu fyrrgreindra
hópa.
Meðal þess sem felst í aðgerðunum er að skerðing
tryggingabóta vegna tekna maka verður afnumin frá
og með 1. apríl nk. Frá sama tíma verður gripið til
sérstakra aðgerða til að draga úr of- og vangreiðslum
tryggingabóta. Frítekjumark vegna atvinnutekna elli-
lífeyrisþega á aldrinum 67-70 ára verður hækkað í
allt að 100 þúsund krónur á mánuði frá 1. júlí 2008.
Einnig verður skerðing lífeyrisgreiðslna vegna inn-
lausnar séreignasparnaðar afnumin frá 1. janúar
2009.
Geir H. Haarde forsætisráðherra lagði á fundinum
áherslu á að hér væri aðeins um að ræða eitt skref í
þá átt að útfæra málefnasamning ríkisstjórnarinnar í
þessum málaflokki. „Við erum alls ekki hætt. Þetta er
það sem við ráðum við að gera núna í augnablikinu.“
Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalags
Íslands, segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar mikið fram-
faraspor. „Heilt yfir er verið að draga úr tekjuteng-
ingum og skerðingum bóta í almannatryggingakerf-
inu, auk þess sem verið er að stíga ákveðin skref til
að efla hvatann til atvinnuþátttöku, sem er allt mjög
jákvætt,“ segir Sigursteinn. | 4
Skref stigið fram á við
Aðgerðir til að bæta stöðu aldraðra og öryrkja kynntar
Morgunblaðið/Ómar
GANGA stuðlar meira að hlýnun
jarðar en bílakstur, að sögn Chris
Goodalls, þekkts umhverfisvernd-
arsinna í Bretlandi. Ástæðan er sú
að matvælaframleiðslan er mjög
orkufrek og það er því betra fyrir
umhverfið að fólk hreyfi sig sem
minnst og borði minna.
Goodall er höfundur bókar um
hvernig fólk getur stuðlað að minni
losun gróðurhúsalofttegunda með
því að breyta lífsháttum sínum.
Hann byggði útreikninga sína á los-
un gróðurhúsalofttegunda við
framleiðslu nautakjöts.
„Þegar venjulegum bíl er ekið
þrjár mílur [4,8 kílómetra] fara um
0,9 kílógrömm af koltvísýringi út í
andrúmsloftið,“ segir Goodall. „Ef
menn ganga sömu vegalengd nota
þeir um 180 kaloríur. Við þurfum
um 100 grömm af nautakjöti til að
fá þessar kaloríur og koltvísýrings-
losunin vegna kjötsins nemur 3,6
kílóum – er fjórum sinnum meiri en
af völdum bíls.“
Ganga skaðlegri en akstur?
Ganga veldur meiri losun koltvísýrings en bílakstur sömu
vegalengd Ástæðan er orkufrek matvælaframleiðsla
AP
Vandlifað Á að ganga eða aka?