Morgunblaðið - 09.12.2007, Side 42
hvað varð um bandarísku leikkonuna og kyntáknið Tawny Kitaen?
42 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Á
rið 1987 var ár þunga-
rokkshljómsveitarinnar
Whitesnake. Breiðskífa
hennar, sem bar nafn
hljómsveitarinnar,
naut fádæma vinsælda beggja
vegna Atlantsála, ekki síst ofur-
smellurinn Here I Go Again sem
kom sér makindalega fyrir á toppi
bandaríska smáskífulistans. Bæði
var laglínan grípandi og ekki spillti
eggjandi myndbandið fyrir. Þar
steig ung rauðhærð þokkadís mun-
úðarfullan dans á vélarhlífum
tveggja glæsibifreiða íklædd hvít-
um náttkjól. Þeir karlmenn sem þá
voru á aldrinum 13 til 33 ára og
kveikja ekki á perunni eru ann-
aðhvort samkynhneigðir eða hafa
legið meðvitundarlausir á spítala á
þessum tíma.
Þokkadís þessi heitir Tawny
Kitaen og var þarna heitbundin
söngvara Whitesnake, David
Coverdale. Gengu þau síðar í heil-
agt hjónaband. Enda þótt þáttur
Kitaen í myndbandinu við Here I
Go Again sé minnisstæðastur tróð
hún upp í mörgum fleiri mynd-
böndum hljómsveitarinnar á þess-
um tíma, svo sem Is This Love og
Still Of the Night, og dró karlpen-
inginn einatt fram á sætisbrúnina –
löðursveittan.
Julie Kitaen fæddist í San Diego
í Kaliforníu 5. ágúst 1961. Tólf ára
gömul tók hún sér að eigin frum-
kvæði nafnið Tawny og hefur hald-
ið sig við það síðan. Hún bar
snemma af öðrum stúlkum og vann
um tíma fyrir sér sem fyrirsæta.
Lék á móti Tom Hanks
Kvikmyndirnar heilluðu og Kita-
en þreytti frumraun sína á þeim
vettvangi í litlu hlutverki í sjón-
varpsmyndinni Malibu árið 1983.
Það reyndist ágætis stökkpallur og
árið eftir lék hún aðalhlutverkið í
tveimur myndum, erótísku æv-
intýramyndinni Perils of Gwendol-
ine og gamanmyndinni Bachelor
Party. Mótleikari hennar þar var
ungur og efnilegur maður, Tom
Hanks að nafni. Árið 1985 lék Kita-
en aðalhlutverkið í gamanmyndinni
California Girls og ári síðar í hryll-
ingsmyndinni Witchboard. En þar
með eru afrek hennar á kvik-
myndasviðinu nánast upptalin enda
þótt hún hafi skotið upp kollinum í
nokkrum myndum og sjónvarps-
þáttum síðan, s.s. Seinfeld og Mar-
ried With Children. Líkurnar á því
að hún leiki aftur á móti Tom
Hanks hljóta að vera hverfandi.
Kitaen dróst snemma að rokk-
urum en æskuástin hennar var
Robbin Crosby gítarleikari glys-
sveitarinnar Ratt. Það var því eng-
in tilviljun að hún sat fyrir á um-
slögum tveggja fyrstu platna
sveitarinnar snemma á níunda ára-
tugnum. Crosby lést fyrir fimm ár-
um vegna ofneyslu heróíns.
Ást í faðmlögum
Hraustlega var djammað í rokk-
heimum á þessum tíma – sem
endranær. Um skeið var Kitaen í
tygjum við umboðsmann Van Ha-
len og lýsti því síðar í viðtali að
David Lee Roth söngvari hefði haft
það fyrir sið að smeygja fíkniefnum
sínum í skjóður hennar áður en
flogið var milli staða. Roth var víst
líka reglulega keyrður niður Sunset
Boulevard þar sem hann smalaði
saman fáeinum portkonum áður en
haldið var heim til Kitaen og um-
boðsmannsins. „Þá grét ég mig í
svefn. Trúði því ekki að það væri
skækja í mínum húsum.“
Kitaen og Coverdale tóku saman
árið 1987 og fékk heimurinn að
fylgjast með ást þeirra blómstra í
téðum myndböndum. Þar tala þau
enga tæpitungu í svefnherberginu,
á göngum, í bílnum – hvar sem er.
Tveimur árum síðar gifti parið sig.
Coverdale var á hátindi frægðar
sinnar á þessum tíma og skipti
engu máli þótt hann ræki og réði
hljómsveitarmeðlimi á víxl. White-
snake hélt velli. Hingað kom sveitin
haustið 1990 og hélt tvenna tón-
leika í Reiðhöllinni í Víðidal. Raun-
ar missti Coverdale af þeim síðari
vegna veikinda og tók Pétur heit-
inn Kristjánsson stöðu hans á svið-
inu. Ekki rekur greinarhöfund
minni til þess að Kitaen hafi verið
með í för.
Enda þótt samband Coverdale
og Kitaen hafi verið ástríkt var það
líka stormasamt og árið 1991 var
ballið búið. Parinu varð ekki barna
auðið og hörmuðu gárungarnir það.
Voru sannfærðir um að þau hefðu
orðið fjallmyndarleg – og loðin.
Í samtali við tímaritið Blender í
fyrra kveðst Kitaen hafa farið vel
út úr skilnaðnum. „Við vorum sam-
an á Here I Go Again-árum White-
snake, þannig að ég átti hlutdeild í
útgáfunni. Svo lék ég auðvitað í
myndbandinu og gaurinn seldi
fimmtán milljónir platna. Nú ætla
ég ekki að setja mig á háan hest en
það er eigi að síður staðreynd að
ég lét mig hverfa og gaurinn getur
ekki einu sinni selt hálfa aðra millj-
ón. En mér var svo sem sama,
sagði honum að hann mætti eiga
ágóðann af plötusölunni gegn því
að ég fengi tvær milljónir dollara
aukalega. Hann lét það eftir mér.
Síðan fékk ég húsið og fram-
færslueyri í kaupbæti. Það er ynd-
isleg hugmynd, framfærslueyrir.“
O.J., Seinfeld og Tommy Lee
Whitesnake-myndböndin skutu
Kitaen aftur tímabundið upp á
stjörnuhimininn. Hún fékk hlutverk
í sjónvarpsþáttum og tók að sér
kynningar í sjónvarpi í framhald-
inu.
Eftir skilnaðinn við Coverdale
sló hún sér upp með ýmsum mönn-
um, s.s. O.J. Simpson (af öllum
mönnum), Jerry Seinfeld, Jon
Stewart, John Taylor úr Duran
Duran og Tommy karlinum Lee –
en hvaða B-myndaleikkona í Holly-
wood hefur svo sem ekki verið með
honum?
Þeysireið þokkagyðju
Kyntákn Tawny Kitaen á hátindi ferils síns þegar hún var gift David
Coverdale og sló í gegn í myndböndum Whitesnake. Fram að því hafði hún
helst unnið sér til frægðar að leika á móti Tom Hanks í Bachelor Party.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
73
5
Heimsferðir bjóða þér nú til glæsilegrar vetrarveislu á Kanaríeyj-
unni vinsælu Tenerife í lok janúar og byrjun febrúar. Tenerife,
sem er stærst Kanaríeyjanna, býður frábærar aðstæður fyrir
ferðamanninn; fallegar strendur, glæsilega gististaði, fjölbreytta
afþreyingu og stórbrotna náttúru. Við bjóðum glæsilegar ferðir
á ótrúlegum kjörum og vinsæla gististaði.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta og íbúða í boði
á þessu verði!
39.995 kr.
verð frá aðeins
- Ótrúleg sértilboð ásíðustu sætunum29. janúar og 5. febrúar
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
73
6
Vetrarveisla á
Tenerife
*
Ótrúlegt verð
El Cortijo – íbúðir
Kr. 39.995
*) Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í viku, 29. janúar.
Brottför 5. feb. kr. 4.000 aukalega.
Kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð í viku,
29. janúar. Brottför 5. feb. kr. 4.000
aukalega.
Aguamarina Golf - íbúðir
Kr. 43.895
Netverð á mannm.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára, í viku 29. janúar. Brottför 5. feb.
kr. 4.000 aukalega.
Kr. 55.490
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð í viku, 29.
janúar. Brottför 5. feb. kr. 4.000 aukalega.
Hotel Jacaranda
með hálfu fæði
Kr. 69.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með
hálfu fæði, 29. janúar, vikuferð. Brottför
5. feb. kr. 4.000 aukalega.
Hotel Bahia Principe
með allt innifalið
Kr. 89.190
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með
öllu inniföldu, vikuferð, 29. janúar. Brottför
5. feb. kr. 4.000 aukalega.
Sértilboð!