Morgunblaðið - 09.12.2007, Side 62

Morgunblaðið - 09.12.2007, Side 62
Fáðu úrslitin send í símann þinn 62 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Atvinnuhúsnæði Skrifstofur - vinnustofur Þrjú 20m² herbergi til leigu í snyrti- legu húsnæði í Hafnarfirði. Laus strax. S. 588 7050. Hestar Hör, undirlag undir hesta Vorum að fá hör. Heildsölu afgreiðsla á góðu verði. Ryklaust, hentugar pakkningar. IM ehf. Fiskislóð 18, Reykjavík. Sími 899 4456. Bókhald Vantar þig aðstoð við reksturinn! Tek að mér bókhaldsverkefni, aðstoð við skattamálin og reksturinn. Mikil reynsla, er rekstrarhagfræðingur og sanngjarnt verð. Ráðpúsl, sími 865 9868. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Smáauglýsingar 5691100 Tómstundir Plastmódel, pússluspil og ýmist föndur-úrval. Opið í dag sunnudag frá kl. 13-17:00. Tómstundahúsið. Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is Til sölu, fallegur Tekk skápur frá Míru kr. 20.000.- Svefnstóll kr. 7.000.- Tekk skrifborð kr. 3.000.- Upplýsingar í síma 669 1195 Til sölu. Fagor þvottavél kr. 8.000.- og Miele þurrkari með barka. kr. 8.000.-Ágætis tæki í góðu standi. Upplýsingar í síma 669 1195. Húsgögn Heimilistæki Í dag er: English service at 12:30 pm. Entrance: main door. Everyone welcome. Almenn samkoma. kl. 16:30 Ræðum. Jón Þór Eyjólfsson. Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Aldursskipt barnakirkja, öll börn 1-13 ára velkomin. Bein útsending á Lindinni eða á www.gospel.is Á sunnudagskvöldum kl. 20 á Omega er sýnd samkoma frá Fíladelfíu Vegurinn, Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Aðventustund verður kl. 14:00. Börnin sýna helgileik. Kakó, kökur og samfélag á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Morgun- og kvöldsamkomur falla niður. www.vegurinn.is Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur Síðumúla 31, s. 588 6060 Miðlarnir, spámiðlarnir og huglæknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen talnaspekingur og spámiðill, Ragnhildur Filippusdóttir, Símon Bacon og Guðríður Hannesdóttir kristalsheilari auk annarra, starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, starfsemi þess, rann- sóknir og útgáfur, einkatíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13-18. auk þess oft á kvöldin og um helgar. SRFR Sunnudagaskóli kl. 11. Fjölskyldusamkoma kl. 14 sem barnastarfsmenn sjá um. Leikrit, lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og samvera að samkomu lokinni. Allir velkomnir! Fríkirkjan Kefas, Fagraþingi 2a v/ Vatnsendaveg, www.kefas.is Samkomur Föstudaga kl. 19.30. Laugardaga unglingastarf kl. 20.00. Sunnudaga kl. 11.00. Allir hjartanlega velkomnir. Samkoma í dag kl.16.30. Gunnar Þorsteinsson predikar. Þriðjud. Samkoma kl. 20.00. Miðvikud. Bænastund kl. 20.00. Fimmtudag. Ungl. kl. 20.00. Laugard. samkoma kl. 20.30. SALT Kristið samfélag Háaleitisbraut 58-60, 3 hæð. Samkoma í dag kl. 17.00. ,,Hver á jólin” Ræðumaður Margrét Jóhannesdóttir. Mikil lofgjörð og fyrirbæn. Barnastarf. Allir velkomnir. I.O.O.F. 3  18812108  Jv. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. Gleðilega páskahátíð! Aðventustund í dag kl. 20. Trond Are Schelander talar. Umsjón: Harold Reinholdtsen. Heimilasamband fyrir konur mánudag kl. 15 - jólafundur. Engin samkoma fimmtudag. Opið hús kl. 16-17.30 daglega nema mánudaga. Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7 og fatabúð í Garðastræti 6, opið alla virka daga kl. 13-18. Félagslíf Íslenska Kristskirkjan, Fossaleyni 14. Fjölbreytt barnastarfið kl.11 Einnig er fræðsla fyrir fullorðna. Unnar Erlingsson kennir. Samkoma kl. 20 með mikilli lofgjörð og fyrirbænum. Unnar Erlingsson predikar, nýkominn úr boðunarferð til Indlands. Miðvikudagur: Bænastund kl.19.30. Fimmtudagur: Bænastund kl.16 fyrir innsend- um bænaefnum. Föstudagur: Samkoma fyrir ungt fólk kl. 20. www.kristur.is MORGUNBLAÐIBU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Sigur- borgu Matthíasdóttur, rektor MH: „Í Menntaskólanum við Hamra- hlíð starfa rúmlega 1.300 nemend- ur í dagskóla og öldungadeild. Langstærsti hluti þessara nemenda eru duglegir, skemmtilegir og skapandi einstaklingar sem eru okkur til sóma hvar sem þeir koma. Í skólanum er öflugt starf nemenda og kennara, stúdentar okkar standa sig vel í framhaldsnámi og skólinn hefur getið sér gott orð á ýmsum sviðum svo sem fyrir kór- starf, skák og leiklist. Miðvikudaginn 5. desember var í áberandi fyrirsögn greinar fullyrt að fíkniefnaneysla hefði aukist mik- ið milli ára í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þessi fullyrðing var byggð á mjög hæpnum forsendum og án þess að vitnað væri í annað en netkönnun sem ritstjórn skóla- blaðsins stóð fyrir að eigin sögn nemendum til skemmtunar og dægrastyttingar. Það hefur verið reynsla okkar hér í MH að kann- anir á vegum skólablaða sýna ýkta mynd af neysluvenjum nemenda þegar þær eru bornar saman við rannsóknir á vegum viðurkenndra aðila. Því tek ég niðurstöðum úr þessari netkönnun nemenda með fyrirvara eins og reyndar þeir gera sjálfir samkvæmt þeirra eigin inn- gangsorðum í skólablaðinu. Komið hefur fram í rannsóknum að mikil breyting verður á vímu- efnaneyslu ungs fólks þegar grunn- skóla sleppir og það á við um nem- endur MH eins og nemendur annarra skóla. Rannsóknir hafa hins vegar ekki sýnt að nemendur MH skeri sig úr öðrum framhalds- skólanemendum varðandi slíka neyslu. Í glímu við þann þjóð- félagsvanda sem vímuefnin eru er þörf á yfirvegaðri umfjöllun fjöl- miðla, samvinnu heimilis og skóla og viðhorfsbreytingar í þjóðfélag- inu.“ Aths. ritstj. Í málgagni Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð, Beneventum, er þess ekki getið að umrædd könnun sé til dægrastytt- ingar og skemmtunar líkt og segir í bréfi til nemenda. Hins vegar stendur orðrétt: „Ritstjórn Bene- venti kynnir stolt viðamestu skoð- anakönnun gerða á nemendum Menntaskólans við Hamrahlíð til þessa. Þetta er fyrsta rafræna könnunin gerð á vegum NFMH og er úrtakið að þessu sinni 555 stór- fenglegir nemendur, sem er rúmur helmingur allra nemenda skólans.“ Enginn fyrirvari gerður. Jafnframt var rætt við ritstjóra Beneventum fyrir birtingu fréttar- innar og óskað eftir frekari upplýs- ingum. Hvorki í samtali við blaða- mann né í tölvubréfi sem innihélt umbeðnar upplýsingar var þess getið að niðurstöðurnar væru ekki marktækar. Athuga- semd frá rektor MH Nova opnuð í Smáralind NOVA hefur opnað verslun í Smáralind í Kópavogi. Verslunin er í göngugötunni á neðri hæð verslunarmiðstöðvarinnar, þar sem áður var upplýsingaborð Smáralindar. Fyrir er Nova með verslun, þjónustuver og skrifstofur að Lág- múla 9 í Reykjavík. Í báðum verslunum Nova er fjöldi opnunartilboða. Hægt er að kaupa 3G farsíma frá 9.900 kr. og fá netið í símann frítt til 1. mars 2008 ef gerður er þjónustusamn- ingur við Nova. Nánari upplýs- ingar um verð á farsíma- og net- þjónustu Nova má nálgast á www.nova.is, segir í fréttatilkynn- ingu. Jólaball fyrir fatlaða í 21. sinn ANDRÉ Bach- mann stendur fyrir jólaballi fyrir fatlaða í 21. skipti í ár. Ballið verður haldið í Gullhömrum 11. desember nk. og húsið opnað kl. 19.15. Skemmt- unin stendur frá kl. 20 til kl. 23 og er aðgangur ókeypis. André segir þetta vera sitt fram- lag til þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu, en leggur áherslu á að svona samkoma gæti aldrei orð- ið að veruleika án framlags allra þeirra sem leggja honum lið. Fjöldi listamanna kemur fram sem allir gefa vinnu sína, auk þess sem húsnæðið er frítt til afnota og fyrirtæki gefa veitingar og óvænt- an glaðning. Á ballið fyrir síðustu jól komu 870 manns og lukkaðist það mjög vel. Þeir sem koma fram í ár eru Magni Ásgeirsson, Harasysturnar, Rúnar Júlíusson, Bríet Sunna, Nylon, Laddi, Hljómasveitin Klauf- arnir, Luxor-strákarnir, Land og synir, Regína Ósk og André Bach- mann. Hljómsveitin Hvar er Mjall- hvít? leikur fyrir dansi. Kynnar verða Sigmundur Ernir Rúnarsson og Inga Lind Karlsdóttir. André Bachmann JÓLAFUNDUR Handarinnar verður haldinn þriðjudag- inn 11. desember klukkan 20.30. Frummælendur eru Anna Sigríður Pálsdóttir, Dómkirkjuprestur, og Eva María Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður. Tuttugu konur úr Kvennakór Reykjavíkur syngja jólalög við undirleik Vignis Þórs Stefánssonar, stjórnandi er Sigrún Þor- geirsdóttir. Þráinn Bertelsson rithöfundur les úr nýút- kominni bók sinni, Englar dauðans, og fundinum lýkur með jólahugvekju Margrétar Svavarsdóttur, djákna í Áskirkju. Fundarstjóri verður Helga Hallbjörnsdóttir. Fundurinn er í neðri sal Áskirkju. Kaffi og piparkökur og allir velkomn- ir í jólastemmninguna. Jólafundur Handarinnar SÍÐUSTU tvo áratugi hefur jóla- sýning verið fastur liður í starfsemi Byggðasafns Árnesinga. Hafa margvíslegir gamlir safnmunir tengdir jólahaldi fyrrum verið í öndvegi. Á sýningunni, sem opnuð verður á sunnudaginn og verður opin áfram í desember, eru gömul jólatré, gamalt jólaskraut af ýmsu tagi, jólakort frá fyrri hluta 20. ald- ar og jólasveinabrúður sem sýna ís- lenska jólasveina í sauðalitunum. Á sýningunni í Húsinu á Eyr- arbakka er elsta varðveitta jólatré landsins sem er spýtujólatré frá 1873, smíðað fyrir hjónin í Hruna, þau frú Kamillu og sr. Steindór Briem af Jóni Jónssyni, bónda í Þverspyrnu. Árið 1955 gaf dóttir þeirra, Elín Steindórsdóttir í Odd- geirshólum, jólatréð til Byggða- safns Árnesinga og má segja að jólatréð sé einn helsti sýning- argripur safnsins á þessum árs- tíma. Á sunnudaginn kl. 15 hefst Hús- lestur á aðventu í Húsinu á Eyr- arbakka, þar sem Einar Már Guð- mundsson, Jón Kalman Stefánsson, Edda Andrésdóttir og Ágúst Borg- þór Sverrisson munu lesa úr nýút- komnum bókum sínum. Sýning Í síðustu viku var unnið að því að skreyta gamla jólatréð frá Hruna. Elsta jólatré landsins í Húsinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.