Morgunblaðið - 09.12.2007, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2007 71
SÖNGKONAN Birgitta Haukdal fagnaði útgáfu sinnar fyrstu sóló-plötu
með rómantískum tónleikum á skemmtistaðnum Rúbín í Öskjuhlíðinni á
miðvikudagskvöldið. Eins og við var að búast frá Birgittu sveif einlægur og
glaðlegur andi yfir vötnum á tónleikunum en Birgitta flutti ekki einungis
lög af plötunni sinni, sem nefnist Ein, heldur fengu nokkur jólalög að fljóta
með. Þá stigu nokkrir leynigestir á svið og fluttu jólalög með söngkonunni.
Birgitta tekur virkan þátt í laga- og textagerð á nýju plötunni en auk henn-
ar koma margir af okkar færustu hljóðfæraleikurum við sögu. Má þar
nefna Vigni Snæ Vigfússon sem einnig stjórnaði upptökum á plötunni,
Bryndísi Jakobsdóttur, Jakob F. Magnússon, Trausta Bjarnason og Samúel
J. Samúelsson.
Morgunblaðið/Eggert
Poppstjörnur Magni söng með Birgittu líkt og í Laugardagslögunum um síðustu helgi.
Ljómandi Birgitta Haukdal ljómaði á skemmtistaðnum Rúbín þegar hún
flutti lög af nýútkominni sólóplötu sinni sem nefnist Ein.
Innilegt Kertaljósin sköpuðu þægilega og innilega stemmningu.
Vinkonur Ragnhildur Steinunn, Yasmine Olsen og Elín Reynisdóttir mættu
á útgáfutónleikana.
Einlægir útgáfu-
tónleikar Birgittu
OPIÐ HÚS
FROSTAFOLD 37- REYKJAVÍK
VERÐ : TILBOÐ ÓSKAST
Endaíbúð á jarðhæð, með sér inngangi og bílskýli.
Laus við til afhendingar við kaupsamning.
Jón Víkingur sölufulltrúi : 892 1316
sunnudaginn 9.des. kl. 14 - 16