Morgunblaðið - 10.12.2007, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta eru nú meiri tækniframfarirnar, það þótti nú aldeilis kraftaverk hér í denn, þegar
gæjanum tókst að breyta vatni í vín. Nú leikum við okkur að því að breyta hlandi í skíragull,
vinur.
VEÐUR
Það er enginn uppgjafartónní Garry Kasparov, helzta
andstæðingi Pútíns í Rúss-
landi, þrátt fyrir fimm daga
fangelsisvist og stórsigur Pút-
íns í þingkosningunum í Rúss-
landi (sem Valgerður Sverr-
isdóttir alþingismaður sá
ekkert athugavert við en aðrir
eftirlitsmenn
þeim mun
meira).
Í grein í Int-ernational
Herald Tribune
fyrir nokkrum
dögum vekur
Kasparov at-
hygli á að kosn-
ingaþátttaka í Tétsníu og í
Dagestan var 99,5% og af
þeim greiddu atkvæðum fékk
flokkur Pútíns 99%!
Þetta er bara eins og í þágömlu góðu daga!
Kasparov vekur einnig at-hygli á því að flokkur Pút-
íns náði með naumindum yfir
50% fylgi í Pétursborg og
Moskvu og segir að ástæðan
sé sú, að í þessum tveimur
borgum hafi kjósendur betri
aðgang að öðrum upplýs-
ingum en þeim, sem koma frá
Pútín og hans mönnum, ann-
ars vegar í gegnum netið og
hins vegar sé ein útvarpsstöð
enn starfrækt, sem hlusta
megi á í þessum borgum og
þar sem öll sjónarmið komi
fram.
Kasparov lýkur grein sinnimeð vangaveltum um það,
hvort Pútín muni taka sér nýj-
an titil og í framtíðinni krefj-
ast þess að verða ávarpaður
með þessum orðum:
Vor mikli leiðtogi Pútín!
STAKSTEINAR
Garry Kasparov
Enginn
uppgjafartónn
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!""!
#$#%# %
!""!
!""!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"
"
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
% %
%&
%
%&
&%
%
% %&
% %
%
% &% &%
%&%
*$BC ###
!
"
! *!
$$B *!
'$( )# #(# *+
<2
<! <2
<! <2
') "!#, " -#.!"/
-
<
#
"$
$
%& & ' !
(
) *
% & ! !
) + 62
'
!
& &
# #
"$
$
% ') +
01!! #$#22
"!#*$#3 *#, "
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Herbert Guðmundsson | 8. desember
Meðaltöl
Kæri Hannes Hólm-
steinn! Mikið vorkenni ég
þér að standa í þessu
endalausa ströggli um fá-
tæktina hér á landi, sem
þú þekkir ekkert til nema
sem talna og meðaltala.
Romsur þínar um kjör fátæks fólks hér
á klakanum eru til vitnis um afneitun
veruleikans, hvort sem er í smáu eða
stóru. Í þessu litla og viðkvæma þjóð-
félagi okkar gilda ekki kúrfur og klisjur,
þú getur ekki sett þig í sæti dómara um
raunveruleika sem þú viðurkennir ekki.
Meira: herb.blog.is
Guðmundur Páll Líndal | 9. des.
Fordómar
Mikið skelfing getur fólk
bara gjörsamlega tryllst
þegar það heyrir minnst
á Hannes Hólmstein.
Núna bendir hann á
mælingar Evrópusam-
bandsins og þá sýður í
vinstrimönnum, þeir fleygja gagnrýnni
hugsun út um gluggann og bölva mann-
inum í sand og ösku. „ÞAÐ ERU ALLIR
AÐ DREPAST Í FÁTÆKT Á ÍSLANDI,“
væla þeir. Bara til að vera ósammála
Hannesi […] Það er ekki eins og Hann-
es hafi gert þessa könnun.
Meira: gummilindal.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 9. des.
Bleikt silfur
Það vantaði bara að Eg-
ill væri með friðarpíp-
una uppi í sér. Það hef-
ur reyndar verið ansi
harkalega ráðist að for-
ystukonum femínist-
anna. Man ekki eftir
harkalegri átökum lengi og sennilega
er Sóley Tómasdóttir ein umdeildasta
konan í samfélaginu; beinlínis hötuð
víða. Samt er hún ein af valdakon-
unum í Reykjavíkurborg, með talsverð
völd og er t.d. ritari vinstri grænna,
forystukona þar innan borðs.
Meira: stebbifr.blog.is
Hallur Magnússon | 8. desember
Heilagur staður, Viðey
Það er vel við hæfi að
viðhalda aldalangri helgi
Viðeyjar með friðarsúl-
unni „Imagine Peace
Tower“. Friðarboðskap-
urinn sem þetta tákn-
ræna nútímaverk
stendur fyrir er í takt við þann þátt
sögu Viðeyjar sem tengist hinum
kristna friðarboðskap sem birtist til
dæmis í starfsemi Ágústínusarklaust-
ursins sem þar var starfrækt 1225-
1550. Þá er ekki síður vert að minn-
ast eins af forgangsmönnum húm-
anisma og mannúðar á Íslandi,
Magnúsar Stephensen konfer-
ensráðs, en hann bjó einmitt í Viðey
frá því hann keypti eyjuna 1817 til
dauðadags 1833. Mannúð hans birt-
ist ekki síst í baráttu hans fyrir vægari
refsingum en fram að hans tíð höfðu
tíðkast.
Magnús stofnaði prentsmiðju í Við-
ey og prentaði þar margan fræðslu-
bæklinginn fyrir almenning sem ætl-
aðir voru til að styðja við nauðsynlegar
framfarir í anda upplýsingarinnar.
[…] Á 19. öld bjó Stephensensætt-
in í Viðey og þar má nefna Ólaf Steph-
ensen, fyrsta íslenska stiftamtmann-
inn, og fer mörgum sögum af
veglegum veislum sem hann hélt í
eynni. Frægust er líklega veisla hans
með Jörundi hundadagakonungi og
mönnum hans – sem duttu það
hressilega í það og kýldu belginn
þannig fram úr hófi vegna veglegra
veitinga Ólafs í fljótandi og föstu formi
– að þeir höfðu ekki mátt til þess að
ljúka ætlunarverki sínu – að fá Ólaf í
lið með sér með því að sverja Jörundi
eið gegn eiðsvari Ólafs gagnvart kon-
ungi Íslands, Danmerkur, Noregs,
Slésvíkur, Holtsetalands og hvað lönd
Danakonungs voru tiltekin á þeim
tíma!
Við hans búi tók sonur hans, Magn-
ús konferensráð, sem áður getur.
Afkomandi Ólafs Stephensens er
meðal annars Ólafur Þ. Stephensen,
ritstjóri 24 stunda, sem lengst af hef-
ur verið talsmaður frjálsræðis – ekki
síst frjálsar verslunar – og fetað þann-
ig í fótspor frænda síns Magnúsar
sem barðist mjög fyrir frjálsri verslun.
Þá er gaman að geta þess að faðir
Ólafs Stephensens ritstjóra er sr. Þór-
ir Stephensen sem varð staðarhaldari
í Viðey þegar Reykjavíkurborg end-
urreisti þennan merka stað á níunda
og tíunda áratug síðustu aldar.
Meira: hallurmagg.blog.is
BLOG.IS
Eyjafjarðarsveit |
Margir bændur hér um
slóðir láta rýja fé sitt
fljótt eftir að það er
tekið á hús. Segja má
að því fyrr sem það er
gert því betra. Ullin
flokkast best ef hún er
alveg tandurhrein.
Birgir Heiðmann
Arason í Gullbrekku
hefur náð mikilli leikni
í fjárrúningi enda er
hann búinn að stunda
fagið í tæp þrjátíu ár.
„Já, ég byrjaði 16 ára
gamall 1979 og hef
klippt alla vetur síðan,“
segir Birgir um leið og
hann flettir hverri ánni
á fætur annarri úr reyf-
inu á örskotsstundu.
Hann var að rýja ær
Harðar Guðmunds-
sonar á Svertings-
stöðum þegar fréttarit-
ara bar að garði.
Hörður og Hákon
sonur hans voru Birgi
til aðstoðar. Hákon náði
í kindurnar og lagði
þær á afturendann og þannig tekur Birgir við þeim og rúningurinn hefst.
Hörður bóndi tók síðan reyfið og stakk því í poka. Birgir segir að með
þessu verklagi hafi hann einn daginn náð að rýja 217 ær á átta tímum. Það
hljóta að teljast frábær afköst hjá honum.
Fjögur hundruð krónur fást fyrir kílóið af fyrsta flokks ull en hvert reyfi
er um tvö kíló.
Þeim félögum kom saman um að fénu liði ólíkt betur þegar búið væri að
taka af því ullina, það fóðraðist betur og mun loftbetra væri í fjárhúsunum.
Allt mælir því með því að ærnar séu rúnar á þessum tíma árs.
Rúningur á jólaföstu
Úr reyfinu Birgir Heiðmann nær miklum af-
köstum við rúninginn, enda vanur maður á ferð.