Morgunblaðið - 10.12.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 13
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
UPPLAUSN gömlu Júgóslavíu hófst í Kosovo
fyrir tveimur áratugum síðan, það var hér sem
Slobodan Milosevic sló sjálfan sig til riddara, tók
upp gunnfána serbneskrar þjóðernishyggju og
leysti um leið úr læðingi ógnaröfl mikil sem áttu
eftir að verða þess valdandi að tugþúsundir
manna týndu lífi og til varð nýtt og voðalegt hug-
tak, þjóðernishreinsanir. Nú er Kosovo aftur
vettvangur heimsfréttanna – löngu eftir að Kró-
atía, Slóvenía og Bosnía önnur fyrrverandi sam-
bandslýðveldi Júgóslavíu urðu sjálfstæð ríki –
því að þó að leiðtogar Kosovo-Albana hafi í gær
heitið því að lýsa ekki yfir sjálfstæði nema sam-
þykki ESB og Bandaríkjanna liggi fyrir þá er frá
og með deginum í dag aðeins tímaspursmál hve-
nær þeir taka það afdrifaríka skref.
Það ætti svo sem ekki að þurfa að koma nokkr-
um manni á óvart að þessi stund er runninn upp.
Öllum sem dvalið hafa lengur en dagstund í Kos-
ovo ætti að vera ljóst að Kosovo-Albanar vilja
rjúfa öll tengsl við Serbíu og voru aldrei líklegir
til að vilja sætta sig við nokkra málamiðlun hvað
sjálfstæðiskröfuna varðaði.
Og þó hafa menn setið við samningaborðið svo
mánuðum skiptir, raunar eru heil átta ár síðan
stjórn héraðsins var hrifsuð úr höndum Serba:
Eftir að stríði Atlantshafsbandalagsins (NATO)
og Serba lauk í júní 1999 tóku Sameinuðu þjóð-
irnar að sér stjórn Kosovo með ályktun örygg-
isráðsins nr. 1244, en um leið fékk NATO það
hlutverk að tryggja öryggi héraðsins og íbúa
þess (allra íbúanna, líka Serbanna sem þar
bjuggu en óttuðust ofsóknir af höndum meiri-
hlutans, Albana).
Serbar voru að sama skapi líklegir til að
spyrna við fótum. Kosovo var hérað í Serbíu og
leikur sérstaka rullu fyrir serbneska þjóðarsál
því að það var hér sem Serbar töpuðu bardag-
anum við Tyrki 1389, en sá atburður er einn sá
mikilvægasti í sögu Serbanna. Kosovo hefur því
verið kallað vagga serbneskrar þjóðar hvað sem
líður þeirri staðreynd að aldir eru liðnar síðan
Serbar voru þar í meirihluta íbúa.
Spurning um áhrif í Bosníu
Serbar telja sig hafa sýnt sveigjanleika í samn-
ingaviðræðunum sem farið hafa fram, en síðustu
lotunni lýkur í dag þegar Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri SÞ, fær formlega afhenta skýrslu
sáttasemjaranna þar sem honum er gerð grein
fyrir því að ekkert samkomulag hafi náðst í við-
ræðum deilenda og ekkert samkomulag sé lík-
legt til að nást. Serbar hafa lýst sig reiðubúna til
að veita Kosovo fullveldi í eigin málum, þó ekki í
utanríkismálum, og ekki krafist þess að fá þau
áhrif sem þeir höfðu í héraðinu fyrir stríðið 1999.
Þeir hafa haft ýmsar fyrirmyndir í huga, m.a.
hafa þeir vísað til stöðu Álandseyja, sem tilheyra
Finnlandi en eru að mestu byggðar Svíum.
Albanar telja Serba hins vegar hafa beitt sig
harðræði, segja má að röksemdin sé sú (og hana
aðhyllast margir á Vesturlöndum) að Serbar hafi
fyrirgert rétti sínum til Kosovo með stjórnar-
háttum sínum þar til ársins 1999. Albanar telja
sig í raun nú þegar hafa beðið of lengi og hafa lýst
því yfir að þeir muni lýsa yfir sjálfstæði fyrr en
síðar. Þeir vita sem er að bandarísk stjórnvöld
hafa hug á því að viðurkenna yfirlýsingu þeirra
og mörg ríki ESB eru álitin líkleg til að gera slíkt
hið sama, þó alls ekki öll. Þar á bæ telja menn
ekki lengur að Kosovo geti orðið efnahagslega
fullburða nema sjálfstæði komi til; en við núver-
andi aðstæður er Kosovo sterkt vígi mafíósa sem
nota héraðið sem dyr að Evrópu með sínar
smyglvörur og sitt mansal.
Rætt er um að sjálfstæðisyfirlýsingin komi
snemma á nýju ári en ólíklegt er að staðan
breytist úr þessu, hvað sem líður mótbárum
Serba og bandamanna þeirra, Rússa. Vert er þó
að muna að Rússar hafa neitunarvald í örygg-
isráðinu og gætu því sett strik í reikninginn á
þeim vettvangi, m.a. komið í veg fyrir að Kosovo
fái aðild að SÞ. Rússar segja einhliða yfirlýsingu
Kosovo um sjálfstæði lögleysu í þjóðréttarlegum
skilningi enda sé Kosovo skilgreint í ályktun ör-
yggisráðsins nr. 1244 sem hérað í Serbíu og á
það er bent að Kosovo hafði aldrei stöðu sam-
bandslýðveldis í Júgóslavíu, eins og Króatía,
Slóvenía eða Svartfjallaland (sem rauf sam-
bandið við Serbíu í fyrra); var að vísu lengi sjálf-
stjórnarhérað en ætíð hluti af Serbíu. Hér býr
undir, að hluta til, ótti Rússa við dómínó-áhrif;
aðskilnaðarsinnar í Tétsníu eru t.d. líklegir vísa
til fordæmis sem skapast með sjálfstæði Kosovo.
Aðskilnaðarsinnar víðar gætu svo sem leikið
sama leik; í Katalóníu, í Abkhazíu og Suður-
Ossetíu, að ekki sé talað um serbneska lýðveldið
í Bosníu en þar erum við e.t.v. komin að kjarna
málsins: Bosnía hefur frá 1995 samanstaðið af
tveimur sambandslýðveldum, einu sem Króatar
og múslímar byggja og öðru sem kallast hefur
Republika Srpska. Að mörgu leyti má segja að
menn hafi aðstæður þar í huga þegar þeir tala
um að sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo-Albana
kunni að fylgja átök. Efasemdir eru nefnilega
uppi um að Serbar (í Serbíu – en Serbíu má ekki
rugla við Republika Srpska) hafi þrátt fyrir allt
áhuga á að færa þær fórnir sem þyrfti ef þeir
vildu efna til ófriðar um Kosovo. Serbar vilji ekk-
ert heitar en komast loks í flokk „venjulegra“
ríkja og horfi í því samhengi vonaraugum til að-
ildar að ESB. Þó er ljóst að í borginni Mitrovica í
N-Kosovo, þar sem Serbar eru fleiri en Albanar,
er hætta á væringum og í Republika Srpska
kunna svo enn að lifa glæður í eldinum sem geis-
aði fyrir rúmum áratug á Balkanskaga.
Bíða ekki lengur eftir sjálfstæði
Reuters
Þáttaskil Albanar vilja aldrei aftur fara und-
ir stjórn Belgrad. Þeir vilja sjálfstæði.
Í HNOTSKURN
»Um tvær milljónir manna búa í Kos-ovo, þar af eru um 92% Albanar,
rúmlega 5% eru Serbar og svo búa þar
ýmis mjög lítil þjóðarbrot, s.s. Roma
(sígaunar). Kosovo er aðeins tæplega
11.000 ferkílómetrar að stærð og er inni
í landi, þ.e. á hvergi aðgang að höfn.
LEIÐTOGAR Evrópusambands-
ríkjanna og Afríkuríkja urðu í gær
ásáttir um að efla samskiptin milli
álfanna tveggja til muna en þeir
funduðu í Lissabon í Portúgal um
helgina. Deilur vegna veru Roberts
Mugabe, forseta Zimbabwe, á leið-
togafundinum vörpuðu hins vegar
skugga á samkomulagið en Angela
Merkel, kanslari Þýskalands, sak-
aði Mugabe á laugardag um að
„skaða ímynd hinnar nýju Afríku“
með mannréttindabrotum sínum.
Enn harðari afstöðu tók Gordon
Brown, forsætisráðherra Bret-
lands, en hann mætti einfaldlega
ekki til leiðtogafundarins. Tals-
menn Afríkuríkjanna gagnrýndu
málflutninginn, sögðu að Zim-
babwe hefði ekki átt að vera til um-
ræðu á fundinum í Lissabon. Sjálfur
fordæmdi Mugabe „hrokann“ og
sagði mikilvægt að muna að Afr-
íkumenn sættu mannréttinda-
brotum af höndum Evrópumanna
um aldabil. Lýðræði hefði aldrei
komist á í Zimbabwe nema af því að
Afríkumenn börðust fyrir því.
Reuters
Umdeildur Robert Mugabe mætir til leiðtogafundarins í Lissabon í gær.
Hann er 83 ára og hefur verið forseti Zimbabwe í tæpa þrjá áratugi.
Mugabe fór hörðum orðum
um hrokann í Evrópumönnum
SVÍNABÓNDI í Kanada, Robert
Pickton, var í gær fundinn sekur
um annarrar gráðu morð fyrir rétti
í Vancouver. Dómurinn víkur að
dauða sex kvenna en lík þeirra
fundust í mörgum hlutum á búi
hans 2002. Alls er Pickton sakaður
um að hafa drepið 26 konur. Hann
neitaði sakargiftum fyrir réttinum
en kviðdómur var viss í sinni sök.
Sekur um morð
FLASKA af 81 árs gömlum skota
var seld á 54.000 dollara, rúmar 3
milljónir ísl. kr., á uppboði í New
York. Um var að ræða viskí frá
Macallan-fyrirtækinu í Skotlandi
sem var blandað 1926 og sett á
flösku 1986 og svo umflaskað 2002.
Dýr viskísopi
ANNE
Darwin var
handtekin er
hún sneri
aftur heim
til Bretlands
í gær en hún
er eiginkona
Johns Darw-
ins sem á
laugardag
var formlega ákærður fyrir fjár-
svik. Darwin setti eigin dauða á
svið 2002 svo kona hans gæti fengið
greiddar tryggingabætur. Þá var
Darwin ákærður fyrir að veita
falskar upplýsingar í tengslum við
umsókn um vegabréf.
Handtekin við
komuna heim
Anne Darwin ásamt
lögreglumönnum.
ÞÚSUNDIR manna hafa um helgina tekið þátt í hreins-
unarstarfi undan suðvesturströnd Suður-Kóreu eftir
versta mengunarslys í sögu landsins á föstudagskvöld.
Olía lak raunar úr olíuskipinu Hebei Spirit allt þar til í
gærmorgun skammt undan friðuðu náttúruverndar-
svæði og varð olíuflekkurinn um 20 kílómetra langur. Í
gær var búið að stoppa lekann en skaðinn var skeður
og víst þykir að mörg ár muni taka að endurreisa
fiskeldi á þessum slóðum. Þá drápust margir fuglar í
olíunni.
Reuters
Versta mengunarslys í sögu S-Kóreu
Washington. AP. | Dómsmálaráðu-
neytið bandaríska og innra eftirlit
bandarísku leyniþjónustunnar, CIA,
hyggjast í sameiningu framkvæma
rannsókn á þeirri ákvörðun yfir-
manna hjá CIA að eyða myndbönd-
um sem sýndu bandaríska leyniþjón-
ustumenn yfirheyra meinta
hryðjuverkamenn al-Qaeda. Ástæð-
an fyrir förgun myndbandanna er
sögð sú, að þær hafi sýnt pyntingar.
Demókratar á þingi hafa sakað
CIA um að hafa ætlað að breiða yfir
þá staðreynd, að pyntingar hefðu
verið viðhafðar við yfirheyrslur á
mönnum eins og Abu Zubaydah,
meintum foringja hjá al-Qaeda. Þeir
hafa krafist þess að hafin yrði glæpa-
rannsókn á framgöngu CIA en rann-
sókn dómsmálaráðuneytisins og
innra eftirlits CIA gengur ekki svo
langt, þar á í reynd einungis að
leggja mat á hvort tilefni er til að
efna til formlegrar rannsóknar.
Fullyrt er að það hafi verið Jose
Rodriguez, sem þar til í ágúst var yf-
irmaður aðgerða hjá CIA, sem ákvað
að eyða myndböndunum en Rodr-
iguez fékk framgang í starfið í tíð
Porters Goss, fyrrverandi yfirmanns
CIA. Goss, sem Bush skipaði for-
stjóra eftir að George Tenet hætti í
september 2004, mun hafa frétt af
förgun myndbandanna nokkrum
dögum eftir að hún átti sér stað en
hann sá hins vegar ekki ástæðu til að
rannsaka málið sérstaklega eða
greina nefndum þingsins frá því.
Myndböndunum mun hafa verið
eytt skömmu eftir að dagblöð vestra
greindu frá því að Bandaríkjastjórn
starfrækti leynileg fangelsi í öðrum
löndum, þar sem yfirheyrslur yfir
þeim föngum sem álitnir voru verð-
mætastir fóru fram.
Rannsókn fyrirskipuð
Demókratar saka CIA um að hafa viljað breiða yfir þá stað-
reynd að leyniþjónustan beitti pyntingum við yfirheyrslur