Morgunblaðið - 10.12.2007, Qupperneq 24
24 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sólveig Jón-asdóttir fæddist
á Skútustöðum í Mý-
vatnssveit 20. apríl
1925. Hún lést á
líknardeild Landa-
kotsspítala 1. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Jónas Hagan
Jónsson, f. 1900, d.
1989 og Hulda Lúð-
víksdóttir, f. 1899, d.
1970. Systkini Sól-
veigar eru Lúðvík, f.
1922, d. 2003, Guð-
björg, f. 1926, d. 1929, Steinunn
Guðbjörg, f. 1929 og Jósep Jón, f.
1937, d. 1948.
Sólveig giftist 5. nóvember 1939
á Húsavík Sigurði Haraldssyni, f. í
Héðinsvík á Tjörnesi 30. janúar
1926. Foreldrar hans voru Har-
aldur Jóhannesson, f. 1898, d. 1990
og Ásdís Baldvinsdóttir, f. 1902, d.
1989. Dætur Sólveigar og Sig-
urðar eru: 1) Bryndís, f. 22. ágúst
1947. Sonur hennar er Jónas Hag-
an, f. 1969, sambýliskona Jóhanna
Sævarsdóttir. Dætur hans eru
Bryndís Thelma, Særún Björk og
Kristín Anna. Dóttir Bryndísar er
Anna Kristín, f. 1977, sonur henn-
ar er Börkur Þór. 2) Þórunn
Hulda, f. 22. ágúst
1951, gift Bjarna
Bogasyni, f. 1948.
Börn þeirra eru: a)
Elín Karítas, f. 1971,
gift Ingimundi
Helgasyni, dætur
þeirra eru Birta,
Þórunn Anný og
Karen Lena. b) Þór,
f. 1974, d. 1974. c)
Sigurður Veigar, f.
1975, kvæntur
Hörpu Hauksdóttur,
börn þeirra eru Þór-
dís Halldóra, Ísak og
Rakel. d) Börkur, f. 1980, unnusta
Katrín Amni Friðriksdóttir. 3) Ás-
dís, f. 5. apríl 1956, gift Bjarna
Ómari Reynissyni, f. 1956. Börn
þeirra eru: a) Sólveig Ósk, f. 1978,
b) Óskar Björn, f. 1982, sambýlis-
kona Sólrún Tinna Eggertsdóttir,
c) Helgi Fannar, f. 1988, d) Íris, f.
1978, börn hennar Brynjar Steinn
og Kristjana Freydís, e) Freydís, f.
1982, sambýlismaður Hermann
Geir Þórsson, synir þeirra eru
Breki Þór og Gabríel Ómar, f)
Guðlaug Eydís, f. 1988 og g) Aldís
Sif, f. 1992.
Útför Sólveigar verður gerð frá
Digraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku mamma mín.
Í leiðslu og draumi líður nóttin
ljúfa hjá,
en óskalöndin sortna og sökkva
í sædjúp blá,
og þegar voldug sólargyðjan
af svefni rís,
þá hverfur þú í morgunroðann,
mánadís.
(Davíð Stefánsson)
Ástarþakkir fyrir bréfið til okkar
systra, sem þú skildir eftir til okkar
og er skrifað fyrir hartnær 20 árum,
ef þú næðir ekki að segja okkur
hversu mikið þú elskaðir okkur allar
þrjár og ef þú færir á undan pabba
baðstu okkur um að hugsa vel um
hann. Þú getur rétt ímyndað þér að
pabbi er efst í huga okkar allra og
verður það um ókomin ár og við mun-
um passa vel upp á hann fyrir þig.
Á sama hátt hafðir þú sjálf valið þá
sálma og þann söng sem þú óskaðir
eftir við þína útför til að gera okkur
auðveldara fyrir.
Vakandi og sofandi barstu hag okk-
ar fyrir brjósti vetur, sumar, vor og
haust.
Nú ertu komin til ástvina sem farn-
ir eru og hafa örugglega tekið þér
fagnandi.
Guð geymi þig mamma mín.
Orð eru margs máttug.
Orð eru máttlaus.
Orð eru tjáskipti.
Það getur verið erfitt að tjá sig með
orðum.
Orð eru ríkidæmi.
Orð eru fátæk.
Ég er orðlaus, en ekki mállaus.
Ég vildi ótal margt við þig segja, en
kannski er betra að þegja því orðum
verður hér ofaukið. Þín
Bryndís.
Ég hef ávallt notið ástar þinnar, þú
varst ætíð hérna fyrir mig, nú skiljast
leiðir okkar um stund og þú byrjar
langferð til feðra þinna.
Æskuárum mínum gleymi ég aldr-
ei. Kærleikur var ávallt efst í huga, ég
geymi gleðina í huga mér. Þú kenndir
mér þor og kjark og dug.
Á langri lífsferð getur dimmt um
tíma. Þú varst alltaf nálægt, lagðir lið,
ef ég bara hafði hjá mér síma þá
varstu óðar komin mér við hlið. Ég
kveð þig sátt og þakka líf mitt,
mamma, hugur þinn stefnir hátt í
himin inn.
Svo margir sem þig langar til að
faðma, kæra kveðju og koss ég sendi
um sinn. Svo margir sem við elskum
eru farnir, svo margir sem þú hefur
saknað sárt, svo margir munu komu
þinni fagna og svo margir munu líka
bresta í grát.
Þú varst börnum mínum meira en
amma, þú varst miðjan í okkar stóra
hóp.
Ég tek nú við, mín elsku kæra
mamma, þú kenndir mér að vera væn
og góð, er orðin fullorðin, á sextugs
aldri. Mamma er flogin og enginn
sími með en ég geymi mynd af þér í
hjarta mínu og leita svara þegar ég
þarf með.
Takk, elsku mamma, fyrir allt er
gafstu af þér, takk, elsku mamma,
fyrir margt svo gott, takk, elsku
mamma, þér ég aldrei gleymi, takk
elsku mamma, og sofðu vært og rótt.
Að vera dóttir þín er það besta í lífi
mínu. Takk fyrir allt.
Þín
Ásdís.
Undir háu hamra belti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir,
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan,
hjartasláttinn, rósin mín,
er kristallstærir daggardropar
drúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður, kyssa blómið,
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað,
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson.)
Elskulega tengdamamma.
Í huga mínum er þetta fallega ljóð
samofið minningunni um þig. Þó svo
að árin séu ekki nema rúmlega 14 sem
við höfum þekkst, finnst mér ég hafa
átt þig að allt mitt líf. Þú varst sterk
móðir sem tengdir alla þræði fjöl-
skyldu þinnar saman hjá ykkur
Sigga. Við gátum fylgst vel með hvert
öðru með því að hringja eitt símtal.
Takk fyrir góðan tíma.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Briem)
Þinn
Bjarni Ómar.
Hún amma mín er látin. Það er erf-
itt að rita þessi orð, því sorgin er mikil
á þessari stundu. En þó að kveðju-
stundin væri erfið þá kvaddi hún
amma okkur á sjálfum fullveldisdeg-
inum, með mikilli reisn og kveður okk-
ur öll með hamingjusamar minningar.
Minningar sem oftast minna helst á
ævintýraheim frekar en raunveru-
leika. Ég var fyrsta barnabarnið og
kynntist ég þessum ævintýraheim
fljótlega eftir fæðingu, en einungis
nokkra mánaða gamall var ég sendur í
mína fyrstu af fjölmörgum ferðum
norður á Húsavík til hennar ömmu.
Þetta var sannkallaður ævintýraheim-
ur fyrir lítinn snáða af mölinni. Hérna
kynntist ég öllu því sem náttúra Ís-
lands hefur upp á að bjóða. Ferðir með
afa og ömmu um sveitir Þingeyjar-
sýslu, að Kröflu, í Grjótagjá, sjó-
stangaveiði á bátnum hans afa, heim-
sókn í fjárhúsin, skíði og berjaferðir
með ömmu eru aðeins brot af þessum
bersnku minningum. Ævintýrin voru
óteljandi, en það sem sameinar þau öll
er að ávallt enduðu þau í eldhúsinu hjá
ömmu. Nýbakaðir snúðar, steikta-
brauð, kleinur... – já húsið hennar
ömmu ilmaði alltaf af nýbökuðum
kræsingum. Að loknum enn einum æv-
intýradeginum settist hún amma síðan
ávallt hjá mér og söng mig inn í svefn-
inn. Ég man hvert einasta kvæði og
ljóð sem hún söng og syng í dag sjálfur
þessi kvæði fyrir mínar dætur. Mér
þótti því vel við hæfi að syngja fyrir
hana ömmu, er ég kvaddi hana daginn
fyrir andlát hennar.
Ég er þreyttur, ég er þreyttur,
og ég þrái svefnsins fró.–
Kom draumanótt, með fangið fullt af friði
og ró.
(Jón frá Ljárskógum.)
Elsku amma, góði guð varðveiti þig
– blessuð sé minning þín.
Jónas Hagan Guðmundsson.
Mikið á ég erfitt með að ná utan um
hugsanir mínar til að skrifa þér litla
kveðju elsku amma mín. Í kvöld fer
ég heim til Íslands og á mánudaginn
kveðjumst við í hinsta sinn. Ég á enn
svolítið erfitt með að trúa því að ég
muni aldrei heyra rödd þína aftur eða
fá að taka utan um þig. Ætli það verði
ekki fyrst raunverulegt þegar ég hitti
fólkið okkar.
Fyrir ári sendir þú mér þetta bréf:
Elsku Sólveig Ósk!
Hér færðu kveðjur úr norðrinu. Nú
er mikil litadýrð og kalt. Ég fæ alltaf
fréttir af þér frá mömmu þinni. Þú
sérð hvað ég er orðin léleg að skrifa.
Við afi hugsum til þín hvert kvöld og
les ég bænirnar okkar elskan.
Gangi þér allt í haginn.
Þín elskandi amma.
Sólveig
Þótt ég hafi sent þér einhver bréf
síðan þá kemur hér svar við þessu
bréfi:
Elsku amma mín.
Ég sit hér á skrifsofunni minni í
London. Útsýnið er frábært, himinn-
inn blár og sólin skín. Fólk er þó vel
klætt enda skítkalt úti. Ég er búin að
hugsa til þín hvern dag síðan ég
kvaddi þig á Landakoti þegar ég og
Anna frænka sátum hjá þér nú í lok
október. Í kvöld fer ég heim og fæ að
hitta afa og alla hina. Ég veit að þú
verður þarna einhvers staðar með
okkur. Ég trúi því að þú getir núna
ferðast hvert sem þig langar og ég
vona að þér hafi tekist að finna mig
hér í London, a.m.k. er ég búin að tala
við þig nokkrum sinnum síðan þú
kvaddir okkur (ein voða viss um að
þér finnist fátt skemmtilegra núna en
að skottast hér með mér í stórborg-
inni). Takk fyrir allt elsku amma. Þú
gafst mér svo margt sem ég á alltaf
eftir að geyma í hjarta mér; góðar
stundir, góð ráð og augljóslega ótal
minningar um góðan ömmumat.
Hringurinn þinn er alltaf á vísifingri
mínum svo ef þú þarft einhvern tím-
ann að finna mig þá leitarðu hann
uppi. Ég er glöð að vita að þú fékkst
að kveðja okkur á þeim tíma sem þú
varst tilbúin til sjálf.
Ég mun þó alltaf sakna þín elsku
amma mín og þess að geta deilt öllu
með þér, ég veit þó að þú munt fylgj-
ast vel með okkur.
Þín elskandi dótturdóttir og nafna,
Sólveig Ósk.
Elsku amma og langamma.
Fyrstu minningar mínar um þig
eru þegar þú og afi komuð og heim-
sóttu okkur í Danmörku. Seinna feng-
um ég og Solla frænka að njóta þeirra
forréttinda að fá að koma norður til
ömmu og afa á Húsavík á sumrin. Ég
var vön dönskum siðum og áttu
krakkarnir í skólanum í Danmörku
erfitt með að trúa mér þegar ég sagði
þeim frá því að hjá ömmu á Íslandi
borðaði maður sjö sinnum á dag.
Ég man aldrei eftir öðru en að það
hafi verið bökunarlykt um allt hús og
þar sem við barnabörnin áttum öll
okkar uppáhald var alltaf til nóg af
kleinum, snúðum, lagkökum og svo
mitt uppáhald, gerbollurnar þínar.
Þessi tími á sumrin þegar við Solla
vorum hjá ykkur afa var ómetanlegur.
Það er alveg ótrúlegt hvað þið nennt-
uð að taka þátt í endalausum uppá-
tækjum okkar. Hvað ætli við höfum
sett upp margar sýningar þar sem þið
afi áttu ekki einungis að nenna að
horfa á okkur heldur einnig borga
ykkur inn. Endalausar ferðir í berja-
mó og með afa á bátnum hans eða upp
á Botnsvatn. Í minningunni voru
Húsavíkurferðirnar ævintýri sem ég
mun aldrei gleyma. Ég komst að því
núna fyrir stuttu að við Solla höfum
meira að segja fengið að upplifa nokk-
uð með þér sem ekki einu sinni dætur
þínar fengu að upplifa, nefnilega að
vera með þér í bíl þar sem þú keyrðir
sjálf. Ég skal þó viðurkenna að ég
held að ég hafi aldrei verið eins hrædd
á ævinni minni og kannski ágætt að þú
hafir bara látið afa um allan akstur.
Eftir að þið afi fluttuð suður var
auðveldara að koma við hjá ykkur og
hitta ykkur og er ég þakklát fyrir að
sonur minn Börkur hafi verið svo
heppinn að fá að kynnast langömmu
sinni sem átti alltaf einn rauðan, eins
og þú kallaðir alltaf fimmhundruð
króna seðil og helst nýstraujaðan,
handa eina prinsinum af öllum lang-
ömmubörnunum. Hann, eins og við
barnabörnin, var ekki lengi að komast
að því að uppáhaldið hans voru snúð-
arnir hennar ömmu og oftar en ekki
varstu búin að baka sérskammt handa
honum til þess að taka með heim. Við
eyddum miklum tíma í spjall og einnig
tveggja manna kapal sem þú vannst
nú yfirleitt, kannski vegna að þú áttir
það til að breyta reglunum þér í vil en
mér var nú alveg sama því þú varst
svo montin og sæt þegar þú vannst.
Þú varst alltaf svo glæsileg og góð og
kenndir mér svo ótal margt eins og
t.d. að það er sko munur á kakó og
heitu súkkulaði og að maður segir
bless en ekki bæ og mun ég alltaf
minnast þín þannig.
Ekki hafa áhyggjur af afa, ég lofa
þér að við munum sjá um hann og
vera dugleg að heimsækja hann.
Minningarnar og sögurnar eru enda-
lausar og allt of margar til að telja upp
hér. Ég geymi þær á góðum stað í
hjarta mínu. Eitt af því fyrsta sem þú
kenndir mér fyrir utan faðirvorið var
þetta yndislega ljóð eftir Jóhann Sig-
urjónsson.
Sofðu unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
Það er margt, sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun best að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
Meðan hallar degi skjótt,
Að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.
Ég á erfitt með kveðjustundir og
því ætla ég að segja: elsku amma og
langamma: við elskum þig, guð geymi
þig, góða nótt.
Anna Christina Bryndís-
ardóttir Rosenberg, Börkur
Thór Barkarson Rosenberg.
Elsku Solla amma.
Við þökkum þér innilega fyrir árin
sem við höfum átt með þér. Takk fyrir
alla þá hlýju sem þú sýndir okkur og
börnum okkar. Guð geymi þig um alla
eilífð.
Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem
brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
(Einar Ben.)
Elsku Siggi afi, innilegustu samúð-
arkveðjur til þín.
Með hjartans kveðju,
Íris, Freydís, Guðlaug Eydís,
Aldís Sif og fjölskyldur.
Sólveig Jónasdóttir
Hinn 10. desember
fyrir ári síðan yfirgafst
þú þennan heim elsku
amma, yfir í fallega
heiminn að ég vil trúa. Mig langar að
minnast þín, elsku amma, með fáein-
um orðum á blaði, þó svo að ég hafi oft
talað við þig bæði upphátt og í hug-
anum. Mikið var það erfitt að vera
svona langt í burtu þegar þú kvaddir
elsku amma, en ég veit og vona að þú
hafir sofnað fallega og að þér hafi liðið
vel þegar þú fórst yfir, þar sem svo
innilega vel hefur verið tekið á móti
þér, og ég veit í hjarta mínu að nú hef-
ur þú frið og gleði í hjarta þínu þar
sem þú ert í dag.
Elsku amma Finna, eins og þú
varst yfirleitt kölluð, þú varst að
minni skoðun kona sem hafði þá fal-
legustu réttlætiskennd og skoðun á
lífinu. Hve mikið heimurinn væri
betri ef það væru fleiri eins og þú
varst hér á jörðu, með þínar yndis-
legu skoðanir og hugmyndir um lífið,
þú gast alltaf séð hlutina frá öllum
hliðum, það áttu allir eitthvað gott í
sér. Þú ert svo stór partur af mínum
skoðunum í dag og alla daga. Þú
komst alltaf fram við fólk eins og jafn-
ingja, það var hægt að tala um allt við
þig, því alveg sama á hvaða aldri mað-
ur var, þá settir þú þig bara í þann
gírinn sem hentaði hverjum aldri og
tókst á málunum þannig. Ég gæti fyllt
heilt Morgunblað af minningum sem
eru mér svo kærar um þig, allt frá
barnsaldri. Mig langaði bara að minn-
ast þín elsku amma í fáeinum orðum
Guðfinna Ólafsdóttir
✝ Guðfinna Ólafs-dóttir fæddist á
Álftanesi 25. febr-
úar 1927. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 10. des-
ember 2006 og var
útför hennar gerð
frá Bessastaða-
kirkju 15. desem-
ber.
en það er svo erfitt, en
ég minnist þeirra
stunda, sem ég geymi
eins og mesta fjársjóð í
hjarta mínu, þegar þú
áttir það til að hjóla til
mín frá Hrafnistu, eða
jafnvel Álftanesi, og
kíkja inn með flotta
hattinn þinn og það
sem við gátum malað
yfir vatnsglasi, því þú
baðst yfirleitt um kalt
vatn eftir hjólreiðatúr-
inn til mín, og í pínu-
litla eldhúsinu mínu
gátum við ljóstrað upp okkar litlu
leyndarmálum milli okkar þótt tugir
ára væru á milli okkar, svo einfalt, því
þú varst jafningi allra. Við áttum líka
svo margt sameiginlegt þrátt fyrir
aldursmuninn. Ég fer að hlæja með
sjálfri mér núna um allt það sem ég
gæti skrifað í blaðið til að minnast þín,
en ég vil eiga það í mínu hjarta, því
það er nóg fyrir mig, elsku amma, að
hugsa eða tala til þín til að ég finni fyr-
ir blíðunni og styrknum frá þér. Sem
og fær mig til að hugsa af hverju við
segjum ekki hvert öðru hversu heitt
við elskum og virðum fólk í lifanda lífi,
því það var einn af þínum stærstu
kostum, að geta bæði sagt og látið
fólki finnast það vera einhvers virði.
Ég veit að við höfum verið blessuð
með því að hafa fengið að koma frá og
þekkt konu eins og þig, og það fer
enginn sem þekkti þig frá þessum
heimi nema hafa lærdóm og skilning á
lífinu sem hefur lærst af þér.
Elsku amma, við erum bara að-
skildar í bili því einn daginn hittumst
við aftur. Elsku amma, fyrir mér
varstu:
Móðir, sem lýstir upp barnsins hjarta
geislinn, sem gerðir sólina svo bjarta,
stjarnan, sem lýstir mönnum veginn,
sálin, sem er komin hinum megin.
Þín
Rakel Ólafsdóttir.