Morgunblaðið - 10.12.2007, Síða 36
JÓLAGESTIR Björgvins Halldórs-
sonar eru einhverjir allra veglegustu
tónleikar sem undirritaður hefur séð.
Utan við inngang Laugardalshall-
arinnar lýstu tveir ljóskastarar til
himins eins og við verðlaunaafhend-
ingar í kvikmyndaheiminum og þegar
tónleikarnir hófust greip jólaleg og
smekkleg sviðsmyndin strax athygl-
ina. Þar mátti sjá stjörnubjartan him-
in, snævi þakin fjöll og fagurlega
skreytt grenitré, allt lýst upp í heit-
um og köldum litum til skiptis. Tón-
listarflutninginn hafa síðan hátt í
hundrað manns annast – einir þrír
kórar (brot úr Gospelkór Reykjavík-
ur, Karlakórnum Fóstbræðrum og
skólakór Kársnesskóla), strengja-
sveit skipuð hljóðfæraleikum úr Sin-
fóníunni, hrynsveit með þremur gít-
arleikurum, þrem
hljómborðsleikurum (orgel, píanó og
hljóðgervlar), bassaleikara, tromm-
ara og harmónikkuleikara sem léði
útsetningunum oft skemmtilegan
hljóm. Þá eru ótaldir allir söngv-
ararnir sem fram komu auk Björg-
vins sjálfs.
Metnaðurinn var því gríðarlegur
og fagmannlega að öllu staðið – um-
gjörðin var sem fyrr sagði glæsileg,
tónlistarflutningurinn óaðfinn-
anlegur, og dagskráin rann svo fum-
laust áfram að tveir tímar liðu hjá
eins og hendi væri veifað. Hljómur
var góður – hvert hljóðfæri skilaði sér
og meira að segja smáatriði eins og
notkun á víðómi léði tónleikunum
skemmtilega prófessjonal blæ. Þetta
var svolítið eins og að vera kominn til
útlanda; það var virkilega eins og tón-
leikahaldarar hefðu ekki bara gefið
sér að allt myndi reddast tíu mínútur
í, eins og maður fær stundum á til-
finninguna.
Söngvararnir og lögin voru hins
vegar í aðalhlutverki og því eðlilegast
að gefa þeim sem mestan gaum. Lög-
in voru fengin af samnefndum jóla-
plötum Björgvins sem hafa komið út
reglulega síðastliðin tuttugu ár, en sú
fjórða – Jólagestir 4 – kom út fyrir ör-
fáum vikum. Þessar plötur Björgvins
eru nokkuð merkilegar fyrir þær sak-
ir að þær hafa getið af sér ógrynnin
öll af lögum sem hafa náð að smjúga
inn í þjóðarsálina og taka sér þar ból-
festu sem jólalög. Framlag Björgvins
til „jólalagaflota Íslendinga“ er því
ómetanlegt eins og Logi Bergmann
nefndi í upphafi tónleikanna. Mörg
þessara laga eru ítölsk og voru hljóð-
rituð á níunda áratugnum og þau
hafa elst misvel. Raunar má gróflega
skipta lögunum og útsetningum Jóla-
gestanna í tvennt, þ.e. annars vegar
lög sem vinna með jólalagahefð
fimmta og sjötta áratugarins – djass-
aðri lög og útsetningar sem sækja í
Bing Crosby, Nat King Cole og allt
það; og hins vegar lög sem sækja í ní-
unda áratuginn og gætu hæglega átt
heima í Evróvisjónkeppninni. Þau
fyrrnefndu eru nær undantekn-
ingalaust mjög skemmtileg, en hin er
erfiðara að fást við. Þau þekktari
komust af á kunnugleikanum – hér á
ég við lög eins og „Þú komst með jólin
til mín,“„Ég hlakka svo til“ og „Svona
eru jólin“ sem var gaman að heyra
vel flutt því þau kveikja einhvern
jólaneista í manni. Minna þekktari
lögin þurftu að líða fyrir úreltar út-
setningarnar og væmni – lög eins og
„Mín bernskunnar jól“ og „Frið-
arjól.“ Raunar var oft dansað á mörk-
um væmni og einlægni á tónleikunum
þó blessunarlega hafi fæti mun oftar
verið drepið niður réttum megin lín-
unnar.
Jólagestirnir komu áhorfendum í
jólaskap, því er ekki að neita, en ég
verð þó að viðurkenna að ég saknaði
að heyra einhver hinna hátíðlegri
laga – „Heims um ból,“ „Ó helga
nótt,“ eða „Hin fyrstu jól.“ Þannig
hefði jólaskapið verið brennimerkt á
enni viðstaddra langt fram yfir þrett-
ándann.
Björgvin Halldórsson er sem allir
vita afbragðsgóður söngvari og rödd-
in sem hefur dýpkað með árunum er
einhver skemmtilegasta söngrödd
sem Ísland á til. Flestir þeirra sem
Björgvin fékk sér til aðstoðar stóðu
sig einnig með prýði. Nafni hans
Franz Gíslason, var áberandi óörugg-
astur söngvaranna og átti bæði í erf-
iðleikum með að slíta sig frá texta-
blaði og bar fingurinn stanslaust að
eyranu í von um að heyra betur í
sjálfum sér. Hins vegar ber sér-
staklega að hrósa Bjarna Ara, Stefáni
Hilmarssyni og bráðskemmtilegum
dúett Friðriks Ómars og Ernu
Hrannar, en þau tóku lagið „Þú og
ég“ (sem flestir þekkja eflaust af
þessu textabroti: „Jólagjöfin mín í ár
/ ekki metin er til fjár / ... / Jólagjöfin
er ég sjálf“). Þá var Ragnar Bjarna-
son ótrúlega skemmtilegur og það er
með ólíkindum hversu hress sá
náungi er á áttræðisaldri.
Eftir stendur að Jólagestir Björg-
vins voru á laugardagskvöldið mjög
vandaðir tónleikar og verði þeir
haldnir árlega héðan af sem ýjað var
að í fréttatilkynningu má reikna með
að tónleikarnir verði fastur liður í
jólaundirbúningi fjölda íslenskra fjöl-
skyldna. Verði lagavalið slípað ögn til
kemur brátt að því að ég verði einnig
í þeim hópi.
Góðir jólagestir
TÓNLIST
Laugardalshöllin 8. desember
Jólagestir Björgvins Halldórssonar
Atli Bollason
Morgunblaðið/Eggert
Friðarjól Sviðsmyndin var jólaleg og smekkleg að mati gagnrýnenda.
Jólagestir „Umgjörðin var sem fyrr sagði glæsileg, tónlistarflutningurinn óaðfinnanlegur, og dagskráin rann svo fumlaust áfram að tveir tímar liðu hjá eins og hendi væri veifað.“
36 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BÝFLUGNAMYNDIN m/ísl. tali kl. 6D LEYFÐ
SYDNEY WHITE kl. 6 - 8 LEYFÐ
BEOWULF kl. 83D - 10:303D B.i.12.ára 3D-DIGITAL
SYDNEY WHITE kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
AMERICAN GANGSTER kl. 8:30 B.i.16.ára
AMERICAN GANGSTER kl. 5:30 - 8:30 LÚXUS VIP
30 DAYS OF NIGHT kl. 10:30 B.i.16.ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA
600 kr.
Miðaverð
SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSI
eeee
KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
JÓLAMYNDIN Í ÁR
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI