Morgunblaðið - 10.12.2007, Síða 40
„FRÁBÆRIR tónleikar, og líklegir
til að varðveitast lengi í minnum
allra nærstaddra,“ segir Ríkarður
Ö. Pálsson tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins um tónleika Kiri Te
Kanawa og Garðars Thórs Cortes
sem fóru fram í Háskólabíói á föstu-
dagskvöldið. Ríkarður gefur tón-
leikunum fjórar og hálfa stjörnu og
segir þá hafa staðist allar vænt-
ingar.
Önnur stórstjarna, Björgvin Hall-
dórsson, hélt þrenna jólatónleika í
Laugardalshöllinni um helgina og fá
þeir fjórar stjörnur af fimm mögu-
legum hjá Atla Bollasyni tónlistar-
gagnrýnanda. „Jólagestir Björgvins
Halldórssonar eru einhverjir allra
veglegustu tónleikar sem undirrit-
aður hefur séð,“ segir Atli og bætir
við að metnaðurinn hafi verið gríð-
arlegur og fagmannlega að öllu
staðið á tónleikunum. Hann er ekki
minna hrifinn af Björgvini sjálfum.
„Björgvin Halldórsson er sem allir
vita afbragðsgóður söngvari og
röddin sem hefur dýpkað með ár-
unum er einhver skemmtilegasta
söngrödd sem Ísland á til.“ | 15, 36
Góð tón-
leikahelgi
Morgunblaðið/Eggert
Góður Jólatónleikar Björgvins
Halldórssonar þóttu heppnast vel.
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 344. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Bílbruni í Vogum
Engan sakaði þegar eldur kom
upp í tíu bifreiðum og plastbát, sem
stóðu við Hafnarveg í Vogum, laust
fyrir klukkan sex í gærmorgun.
Flest bendir til þess að um íkveikju
hafi verið að ræða og jafnvel að elds-
voðinn tengist öðrum sem átti sér
stað á laugardagskvöld. Tjónið er
metið á tugi milljóna króna, og er
einn eigandi að öllum bílunum. »2
Halli á heilsugæslunni
Útlit er fyrir að Heilsugæslan á
höfuðborgarsvæðinu verði rekin
með 140 milljóna króna halla á árinu.
Bætist það við 81 milljónar króna
halla á síðasta ári og eldri uppsafn-
aðan halla stofnananna sem mynd-
uðu stofnunina. Fulltrúar stjórn-
arflokkanna felldu tillögu
stjórnarandstöðunnar um 400 millj-
óna króna aukaframlag á fjár-
aukalögum til að mæta þessum
halla. »6
Ekki í fararbroddi
Ekki er ráðlegt fyrir Íslendinga
að ríða á vaðið og vera í fararbroddi
þeirra þjóða sem kunna að við-
urkenna sjálfstæði Kosovo eftir að
Kosovo-Albanar hafa lýst yfir sjálf-
stæði eins og líklegt er talið að þeir
geri, að mati Bjarna Benedikts-
sonar, formanns utanríkismála-
nefndar Alþingis. »Forsíða
Gagnrýnir hroka
Robert Mugabe, forseti Sim-
babve, vandaði Evrópuríkjum ekki
kveðjurnar í ræðu í Lissabon í gær
og sagði þá sem gagnrýna stöðu
mannréttinda í Afríku þjást af
hroka. »13
SKOÐANIR»
Staksteinar: Enginn uppgjafartónn
Forystugreinar: Hræðslan og nafn-
leynd | Mál Kosovo í öngstræti
Ljósvakinn: Okkar á milli
UMRÆÐAN»
Um dökka hrakfallabálka …
Áskorun til stjórnvalda um
aðgerðir gegn mansali
Veggjaldið í Hvalfjarðargöngum
Sófar sem hægt er að sitja í
Tengi kynnir þýsk gólfhitakerfi
Hin eina sanna jólarós
FASTEIGNIR»
Heitast 3 °C | Kaldast -6 °C
Vaxandi SA-átt,
stormur og slydda eða
rigning á S- og V-landi
síðdegis, enn hvassara
í kvöld. Hægara annars. » 10
Sæbjörn Valdimars-
son fjallar um Blue-
ray og HD-DVD í
mynddiskum vik-
unnar auk þess að
dæma fjóra. »34
KVIKMYNDIR»
Blue-ray eða
HD-DVD?
TÓNLIST»
Rokkþunginn skilar sér
ekki hjá SSSól. »39
Sweeney Todd: The
Demon Barber of
Fleet Street var
sýnd í Hollywood að
viðstöddum stór-
stjörnum. »37
KVIKMYNDIR»
Stórstjörnur
á Sweeney
FÓLK»
Angelina Jolie er kyn-
þokkafyllst. »33
FÓLK»
Flugan fór á Bó og
í konupartí. »32
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Vegna illkvittnislegra kjaftasagna
2. „Britney“ í stellingum Marilyn
3. Grunur leikur á íkveikju
4. Bílabruni rannsakaður
SNJÓRINN og kuldinn að undanförnu hefur kætt
marga, meðal annars þessi börn sem voru hin kátustu
er þau hlupu yfir Reykjavíkurtjörn í gær.
Tjörnin er nú ísilögð og lögðu margir leið sína á hana
í gær en aldrei er of varlega farið og vissara að athuga
áður en lagt er út á tjörnina hvort ísinn sé mannheldur.
Í eltingarleik á ísnum
Ísilögð Reykjavíkurtjörn
Morgunblaðið/Frikki
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„FÖLSUÐ verk verða því miður allt-
af í umferð, þau voru ekki gerð upp-
tæk og geta viljandi eða óviljandi
farið aftur í umferð,“ segir Viktor
Smári Sæmundsson, forvörður í
Studio Stafni. Hann hefur á síðustu
árum gert talsvert af því að votta
uppruna listaverka fyrir eigendur og
kaupendur. Komið hefur fyrir að af
sex til átta verkum sem honum hafa
verið færð til vottunar hafi meiri-
hlutinn verið falsaður.
„Það tókst ekki að uppræta þetta
mál og verkunum var skilað aftur til
eigendanna,“ segir Viktor Smári um
málverkafölsunarmálið. „Það voru
mikil mistök. Ég hefði viljað merkja
þau eða sjá þau gerð upptæk, en
lagaheimildir skorti.“
Viktor Smári starfaði sem for-
vörður við Listasafn Íslands þegar
málið var í rannsókn og var kallaður
að því sem sérfræðingur. Hann segir
sér hafa verið ofboðið þegar dómur
féll og ákvað að hætta hjá safninu.
Hann starfar sjálfstætt við for-
vörslu, ráðgjöf og sölu listaverka og
segir uppsveiflu síðustu ára í efna-
hagslífinu hafa örvað listmarkaðinn.
„Verð á verkum ákveðinna lista-
manna hefur hækkað. Ég get nefnt
verk eftir Kristján Davíðsson og
Þorvald Skúlason, þau hafa hækkað
umtalsvert. Verðmyndunin er að
mínu mati nú frekar hugsuð út frá
gæðum en fersentimetrum. Fólk
gerir meiri kröfur um gæði – og er
tilbúið að borga meira fyrir góða
mynd,“ segir Viktor Smári. | 14
Mistök að skila verkunum
Viktor Smári Sæmundsson forvörður segir fölsuð mynd-
verk fara í umferð Kaupendur gera meiri kröfur um gæði
Í HNOTSKURN
» Fölsuð listaverk sem skilaðvar til eigenda sinna geta
komist aftur í umferð, viljandi
eða óviljandi.
» Eigendur verðmætra lista-verka sækjast eftir að fá
verkin vottuð; sum reynast föls-
uð.
» Kaupendur eru í dag reiðu-búnir að greiða meira fyrir
góð myndverk.
» Málverk eftir Kristján Dav-íðsson og Þorvald Skúlason
hafa hækkað umtalsvert.
Morgunblaðið/Einar Falur
Forvörður Viktor Smári hefði vilj-
að merkja fölsuðu málverkin.