Morgunblaðið - 15.12.2007, Page 36
vín
36 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Steingrím Sigurgeirsson
sts@mbl.is
Nú á aðventunni vandamargir valið á vínum ennbetur en áður enda erþetta sá tími ársins sem
við gerum hvað best við okkur í mat
og drykk. Það er úr nógu að velja og
hér eru nokkrir áhugaverðir kostir í
jafnt hvítu sem rauðu, sem henta t.d.
vel með villibráðinni.
Collepiano 2004 er rauðvín frá
Úmbría úr heimaþrúgunni Sagrant-
ino di Montefalco frá besta framleið-
anda héraðsins, Arnaldo-Caprai.
Þurrt birki, vanillusykur og áfeng-
islegin svört kirsuber. Langur, þurr
og tannískur endir. Opnar sig með
mat en mun batna næstu fimm árin
hið minnsta. Mjög athyglisverður
Ítali. 4.300 krónur. 91/100
Annar Ítali, þessi frá Toskana, er
Marchese Antinori Chianti Classico
2003. Þetta vín tekur við af hinum
stórkostlega árgangi 2001 í búðunum
af sama víni en það er vandratað í
þess spor. Það kom hins vegar
ánægjulega á óvart hversu vel 2003-
árgangurinn nær að halda í við 2001
þótt ólíkur sé. Enn fremur lokað í
nefi með þurru kryddi og svörtum
ávexti en opnar sig með myndarbrag
í munni, þétt kryddað með svörtum
kirsuberjum og súkkulaði og reyk.
2.090 krónur. 89/100
Stundum lenda í glasinu hjá manni
rauðvín sem fá mann til að dæsa og
hugsa eitthvað á þá leið: Ég vildi að
öll rauðvín sem ég smakka væru í
þessum dúr. Pesquera Crianza 2004
frá Ribera del Duero á Spáni er eitt
þeirra. Hnökralaust í alla staði. Ungt
og öflugt en samt með nægilegan
þroska til að vera neysluvænt, djúpt
og tannískt, en engu að síður af-
skaplega aðgengilegt og á flottu –
nei, fyrirgefið frábæru – verði. 2.520
krónur. 92/100
Chateau La Fleur Maillet 2001 er
vandað og flott rauðvín frá Pomerol.
Eik og reykur í bland við þroskaðan
svartan berjaávöxt. Kryddað, þykkt
og þétt í sér með góðri lengd. Allt að
því tilbúið en má vel geyma. 2.890
krónur. 89/100
Mentor 2002 er ástralskt rauðvín
frá framleiðandanum Peter Leh-
mann úr þrúgunum Cabernet Sau-
vignon, Merlot, Shiraz og Malbec.
Að venju er Mentor þungur og mik-
ill, í nefi dökkt súkkulaði, mynta,
svartar þroskaðar plómur, kókos og
vindlakassi. Þykkur en með ferskri
sýru og léttari í spori en oft áður sem
væntanlega má rekja til þess að 2002
var fremur „svalt“ ár í Suður-
Ástralíu, að minnsta kosti á ástralsk-
an mælikvarða. Ræður betur en
Frakkar og Ítalir við sæta, íslenska
meðlætið. 3.290 krónur. 90/100
Frá Búrgund kemur Domaine
Pierre Guillemot Savigny-Les-
Beaune Les Grands Picotons. Þægi-
legur og vel gerður rauður Búrgund-
ari með rauðum og svörtum skóg-
arberjum, kryddjurtum og rósum,
nokkuð eikað. Sýrumikið með ágæt-
um þéttleika og lengd. 2.190 krónur.
89/100
Rauðu vínin frá Rón í Frakklandi
eru pottþétt villibráðarvín. Það á
ekki síst við um Chateauneuf-du-
Pape vínin sem eru greinilega að
komast allrækilega í tísku á ný, sem
m.a. mátti sjá á nýsta lista Wine
Spectator yfir 100 bestu vín ársins.
Ein allra bestu kaupin eru í Cha-
teauneuf-du-Pape 2003 frá E. Gui-
gal. Svört og rauð skógarber, krydd-
jurtir og fjós. Nokkuð tannískt.
Mikið vín og gott að umhella fyrir
neyslu. 3.790 krónur. 90/100
Annar Chateauneuf-du-Pape og
ekki síðri kaup er 2004-vínið frá Lo-
uis Bernard. Dökkur, ungur og enn
svolítið tannín-stífur en mýkist fljót
við umhellingu. Svartur berja-
ávöxtur, reykur og krydd í nefi. 2.480
krónur. 89/100
Og þá að hvítvínunum.
Domaine Christian Moreau Cha-
blis 1er Cru Vaillon 2006 er klass-
ískur og fágaður Chablis. Þurr og
sýrumikill, steinefni og hnetur í nefi,
þykkur sítrus í munni með löngum
endi. Vín fyrir t.d. humarsúpuna.
2.890 krónur 90/100
Cloudy Bay 2007 svíkur ekki frek-
ar en fyrri árgangar af þessu ynd-
islega víni. Klassískur nýsjálenskur
Sauvignon Blanc í nefi, suðræn
ávaxtabomba með gulum melónum,
passíuávexti, ferskjum og ananas.
Langt og ferskt með grænum og
grösugum tónum inn á milli þótt
sætt ávaxtasalatið sé ríkjandi. 2.390
krónur. 90/100
Og svo auðvitað eitt frá Austurríki
í lokin. Brundlmayer Gruner Veltl-
iner Kamptaler Terrassen 2006 hef-
ur aðlaðandi, skarpan og sætan
ávöxt í nefi með grænum berjum,
ferskjum, melónu og sætum greip-
ávexti. Langt og ferskt í munni.
Mjög góð kaup. 1.590 krónur. 89/100
Vín fyrir villibráðina
Morgunblaðið/Golli
Hátíðarvín Rauðvínið setur punktinn yfir i-ið með jólamatnum.
Jón Bjartur Heimisson, 5 ára heldur að jólin komibráðum og er farinn að hlakka til þeirra. – Hvers vegna hlakkar þú til jólanna?
„Veit það ekki.“
– Hlakkarðu til jólanna af því að þá færðu jólatré?
„Nei“
– Hlakkarðu til jólanna af því að þá seturðu upp jóla-
seríuna í gluggann hjá þér?
„Nei“
– Hvers vegna skyldirðu þá hlakka til jólanna?
„Af því að þá fæ ég gjafirnar,“ segir hann og brosir.
– Færðu mikið af gjöfum? „Já“
– Og áttu þér einhverjar óskagjafir? „Já, mig langar
í bíl sem getur breytt sér í vélmenni. Hann fæst í Toys
R Us.“
– Ef þú færð svona mikið af dóti í einu og átt svo
kannski mikið af dóti fyrir, hvað ætlarðu að gera við
allt nýja dótið?
„Ég á bara svo stórt herbergi.“
Jón Bjartur ætlar að sjálfsögðu að vera í spariföt-
unum á jólunum en honum finnst allt í lagi að vera í
sparifötum öðru hvoru, en ekki lengi í einu.
– En hvernig líst þér á jólasveinana?
„Þeir eru frábærir. Þeir gefa líka gjafir.“
– Ertu alltaf góður svo þú fáir í skóinn?
„Já.“
– Hefurðu einhvern tímann fengið kartöflu? „Aldr-
ei,“ segir hann og hristir höfuðið til frekar áherslu.
Hefur nóg pláss fyrir nýja dótið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
smáauglýsingar mbl.is
!
"
"
#$%&''(
)
*
+,"" "
-!
*
.$'
,"" /0!
.111
""