Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Björn Jóhann Björnsson og Halldóru Þórsdóttur
BANKASTJÓRN Seðlabanka Íslands hefur
ákveðið að rýmka reglur um verðbréf sem teljast
veðhæf í reglulegum viðskiptum fjármálafyrir-
tækja við bankann. Meðal nýrra veðhæfra bréfa
verða nú verðbréf í erlendum gjaldmiðli auk þess
sem rýmkaðar verða reglur um sértryggð skulda-
bréf. Með þessum rýmkuðu reglum er ljóst að ís-
lensk fjármálafyrirtæki geta aukið reiðufé sitt og
fengið betri aðgang að lánsfé en áður.
Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að
breytingarnar miði að því að færa reglur bankans
nær því sem gerist í nálægum löndum, þannig að
rekstrarumhverfi og samkeppnisstaða íslenskra
banka verði áþekk því sem erlendir samkeppn-
isbankar búa við að því er varðar veðlánaviðskipti
við seðlabanka.
Greiði úr lausafjármálum fjármálakerfisins
Bent er á að ýmsir seðlabankar hafi rýmkað
mögulega lausafjárfyrirgreiðslu sína undanfarnar
vikur og mánuði. Á íslenskum millibankamarkaði
hafi viðskipti gengið vel fyrir sig, ávöxtun verið í
eðlilegu samhengi við stýrivexti Seðlabankans og
miðlun lauss fjár undantekningarlaust verið
hnökralaus, eins og það er orð-
að.
Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbankans,
segir ákvörðun Seðlabankans
hafa þá þýðingu fyrst og
fremst að fleiri eignir bank-
anna nýtist þeim til að taka
endurhverf lán. Þetta sé mjög
jákvætt hjá Seðlabankanum
og í samræmi við það, sem
seðlabankar í Bandaríkjunum
og Evrópu hafi verið að gera til að bregðast við að-
stæðum á fjármálamörkuðum. Ákvörðunin sé til
þess fallin að bæta aðgang að lánsfé fyrir allt ís-
lenska fjármálakerfið, en það sé einnig hagsmuna-
mál fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem njóta þjón-
ustu fjármálafyrirtækjanna.
Aðspurður segir Halldór að Seðlabanki Íslands
sé ekki að bregðast við neinum bráðavanda, held-
ur aðallega að samræma aðgerðir sínar við aðra
seðlabanka víða um heim. Hann ítrekar að staða
Landsbankans sé mjög sterk um þessar mundir,
bæði hvað varðar eiginfjár- og lausafjárstöðu. Það
hafi t.d. komið skýrt fram í gær þegar Landsbank-
inn tilkynnti um viðræður um yfirtöku á Close
Brothers bankanum ásamt
Cenkos Securities, og viðbrögð
markaðarins hafi verið jákvæð.
Gæti slegið á
skuldatryggingarálagið
„Þetta er jákvæð aðgerð,“
segir Ingólfur Helgason, for-
stjóri Kaupþings á Íslandi, sem
tekur í sama streng og Halldór.
Ingólfur segir breytinguna til
þess fallna að auðvelda lána-
stofnunum aðgang að fjármagni í endurhverfum
viðskiptum og hún sé í samræmi við aðgerðir ann-
arra seðlabanka. Óbeint megi túlka þetta sem
ákveðinn slaka á peningastefnu Seðlabankans og
undanfara vaxtalækkunar.
Ingólfur segir bankana almennt vel fjármagn-
aða en þetta muni líklega lækka vaxtakjörin, bæði
hér heima og annars staðar, og sé einnig líklegt til
að slá á skuldatryggingarálag bankanna, sem eins
og kunnugt er hefur hækkað talsvert undanfarið.
„Okkur líst vel á þessa aðgerð og teljum að hún
muni auðvelda samkeppnisstöðu fyrirtækja sem
starfa á alþjóðlegum markaði.“
Ekki náðist samband við talsmenn Glitnis.
Bankarnir fagna rýmri
lánareglum Seðlabankans
Halldór J.
Kristjánsson
Ingólfur
Helgason
Samræmist aðgerðum erlendra seðlabanka en séu ekki viðbrögð við bráðavanda
GÓÐUR stuðningur áhorfenda skiptir miklu máli fyrir
íslenska landsliðið í handknattleik, en liðið er að leggja
af stað á Evrópumótið í Noregi. Þessir drengir létu sig
ekki vanta í Laugardalshöll í gær þegar Ísland spilaði
við Tékkland. Íslenska landsliðið vann öruggan sigur,
33:28. | Íþróttir
Góðir stuðningsmenn Íslands
Árvakur/Frikki
NEW York-borg
hefur ákveðið að
fá Ólaf Elíasson
myndlistarmann
til að vinna verk-
efni á stóra sýn-
ingu fyrir borgina
undir heitinu
„Fossarnir í New
York“.
Verkin eiga að
vera á fjórum stöðum í ánni East Ri-
ver, milli Manhattan og Brooklyn.
Verkefnið felur í sér að reistir
verða vinnupallar á hæðarbilinu 27-
37 metrar í ánni og verður notaður
sérstakur dælubúnaður til að soga
vatnið upp á efstu hæðir pallanna.
Þaðan fellur vatnið síðan niður og
myndar fossa. Gætt verður að því
með sérstökum ráðstöfunum að fisk-
ar og önnur dýr lendi ekki í dælun-
um.
Fossarnir verða sýnilegir jafnt frá
landi sem vatni og var ráðgert að
Michael Bloomberg, borgarstjóri
New York-borgar, myndi kynna
verkefnið formlega í dag, þriðjudag.
Reisir
fossana
New York fær Ólaf
Elíasson í verkefni
Ólafur Elíasson
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu hefur nú til rannsóknar atvik
sem varð á skólalóð Laugarnesskóla
hinn 3. janúar, að því er talið er, þeg-
ar reynt var að nema á brott 8 ára
stúlku sem er nemandi í skólanum.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
munu þrír menn á grænum bíl hafa
reynt að ná barninu upp í bílinn en
atvik eru um margt óljós og hefur
lögreglan mjög fáar vísbendingar að
vinna eftir. Atvikið mun hafa orðið á
skólatíma og mun hafa verið reynt að
toga barnið upp í umræddan bíl. Það
tókst þó ekki og gaf stúlkan lýsingu á
bílnum.
Samhliða því að atvikið var til-
kynnt lögreglunni, sendi skólastjóri
Laugarnesskóla bréf til allra um-
sjónarkennara við skólann þess efnis
að brýndar yrðu fyrir nemendum
ákveðnar reglur í samskiptum við
aðra og að þeir stæðu fast á sínu.
Jafnframt voru kennarar hvattir til
að leggja sitt af mörkum til að skapa
ekki ótta meðal barna. Foreldrum
var ekki gert viðvart um atvikið af
hálfu skólans og er skýringin á því sú
að það er Barnavernd Reykjavíkur
sem ákveður framhald málsins
sjálfs, samkvæmt upplýsingum Sig-
ríðar Heiðu Bragadóttur, skóla-
stjóra Laugarnesskóla.
Reynt að nema barn
á brott af skólalóðinni
Lögreglan rannsakar nýlegt atvik við Laugarnesskóla
NÝR flokkur óverðtryggðra ríkis-
bréfa, á gjalddaga árið 2018 eða
2019 verður gefinn út fljótlega,
samtals 35 milljarðar króna á árinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu
Seðlabankans. Þá verður gefinn út
nýr tveggja ára flokkur ríkisbréfa
fyrir um 12 milljarða króna á seinni
hluta ársins.
Á móti verða 30 milljarðar inn-
leystir í tveimur flokkum ríkisbréfa
á þessu ári. Einnig verður reynt að
kaupa upp spariskírteinaflokk
RIKS 151001 eftir því sem aðstæð-
ur leyfa.
Ríkisvíxlaútgáfu hætt
Útgáfu ríkisvíxla verður hætt, en
helsta markmið með henni var að
útvega ríkissjóði lánsfé til að mæta
sveiflum í tekjum og útgjöldum inn-
an ársins. Nú eigi ríkissjóður hins
vegar 93 milljarða á viðskiptareikn-
ingi sínum í Seðlabankanum og er
því skammtímalánsfjárþörf engin.
Loks segir í tilkynningunni að
fyrirhugað sé að greiða upp 150
milljóna evra langtímalán í maí nk.
Ríkisbréf
að virði 47
ma. króna
Skammtímalánsfjár-
þörf að engu orðin
NIÐURSTAÐA hefur fengist í
rannsókn lögreglunnar á Suðurnesj-
um á stórbruna við Hafnarveg í Vog-
um hinn 9. desember síðastliðinn þar
sem tíu bílar eyðilögðust.
Samkvæmt rannsókninni munu
eldsupptök vera rakin til íkveikju og
segir lögreglan að kunnáttumenn
hafi sýnilega verið að verki.
Við rannsóknina fékk lögreglan til
aðstoðar bandaríska lögreglumenn
sem eru sérfræðingar í brunarann-
sóknum og störfuðu þeir hér í fáeina
daga með íslenskum starfsbræðrum
sínum.
Rannsókn á málinu heldur áfram
hjá lögreglunni og hefur enginn ver-
ið handtekinn grunaður um verkn-
aðinn að sögn lögreglunnar.
Tjónið í brunanum er metið á tugi
milljóna króna, og er einn eigandi að
öllum bílunum.
Þegar eldurinn braust út voru
Brunavarnir Suðurnesja kallaðar til
og gekk vel að slökkva eldinn. Veður
var ákjósanlegt fyrir slökkvistarf,
stillt og kalt.
Slökkviliðinu tókst að koma í veg
fyrir að eldurinn bærist í nærliggj-
andi húsnæði en auk bíla og báts
brunnu plastkör og lausir munir sem
á svæðinu voru.
Íkveikja
staðfest
♦♦♦
ESKFIRÐ-
INGAR!
Margt býr í Austfjarðaþokunni. Á Eskifirði búa til dæmis
123 vinningshafar í Happdrætti Háskólans í fyrra.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU