Morgunblaðið - 15.01.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 9
FRÉTTIR
HITAVEITA Vestmannaeyja þarf að
nota meiri olíu um þessar mundir en í
venjulegu árferði vegna bilunar í
Sultartangavirkjun, að sögn Júlíusar
Jónssonar, forstjóra Hitaveitu Suður-
nesja. Hann segir að þessu fylgi auk-
inn kostnaður og óþægindi. „Hver
dagur er þó nokkuð dýr,“ segir hann
og bætir við að þegar horft sé til síð-
asta árs gæti ótryggð orkunotkun á
veitusvæði HS á bilunartímabilinu
numið rúmum 30 GWst. Framleiðslu-
kostnaður með olíu gæti þá, gróft
áætlað, numið um 120-150 milljónum
króna í stað um 35-40 m.kr. með
ótryggðu rafmagni.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær framleiðir Sultartangavirkjun
ekkert rafmagn vegna bilana í báðum
spennum stöðvarinnar. Þegar hefur
verið gripið til skerðingar á rafmagni
til nokkurrar rafmagnskaupenda eins
og til dæmis Hitaveitu Vestmanneyja
og kyndistöðva og mjólkurbúa á Vest-
fjörðum. Norðurál og Alcan geta
þurft að sæta skerðingu í næsta mán-
uði en Rannveig Rist, forstjóri Alcan
á Íslandi, segir skerðinguna engin
áhrif hafa haft og ekkert liggi fyrir
um hver þau verði.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, segir að
skerðingin í seinni hluta febrúar geti
numið um 80 MWh (megavattstund-
um) á viku. Til samanburðar hafi
orkuframleiðsla Landsvirkjunar fyrir
tilkomu Kárahnjúkavirkjunar verið
tæpar 8 milljónir MWh á ári (um
900.000 MWs í Sultartangavirkjun),
en orkugeta Kárahnjúkavirkjunar sé
4,6 milljónir MWh á ári. Gangi við-
gerðir eftir samkvæmt áætlunum
verði annar spennirinn kominn í
gagnið í lok febrúar og hinn í lok apríl
en áætla megi að viðgerðarkostnaður
nemi 60 til 100 milljónum króna.
Skerðingin aðeins hjá
takmörkuðum fjölda
Að sögn Þorsteins veldur bilunin
skerðingu hjá mjög takmörkuðum
fjölda viðskiptavina, sem kaupi þessa
raforku á lægsta verði sem bjóðist á
markaðnum. Auk þess sé skerðingin
tímabundin á álagspunktum.
„Ótryggt rafmagn er rafmagn sem er
selt á sérlega lágu verði gegn því að
hægt sé að skerða það,“ segir hann og
vísar til þess að þetta rafmagn sé selt
til þeirra sem geti sjálfir framleitt eig-
in orku. Í því sambandi nefnir hann
mjólkurbú á Vestfjörðum sem noti
ódýrt rafmagn en hafi möguleika á að
nota olíu, bræðslustöðvar og svo
framvegis. Í stóriðjunni sé samið sér-
staklega um svonefnda afgangsorku
og geti Landsvirkjun dregið úr af-
hendingu á henni samkvæmt samn-
ingum. Vegna fjárfestinga sé stund-
um til aukarafmagn og frekar en að
láta það ónotað, sé það selt á þennan
hátt. Landsvirkjun fái því við venju-
legar aðstæður aukahagnað út úr
mannvirkjunum, sem þurfi vegna
framleiðslu á forgangsrafmagni, en
vegna núverandi bilana sé þessi hagn-
aður ekki fyrir hendi.
Þorsteinn bendir á að í janúar og
fram eftir febrúar sé minna álag á raf-
orkukerfið frá stóriðjunni vegna við-
haldsverkefnis í Járnblendiverk-
smiðjunni á Grundartanga. Því sé
ekki gert ráð fyrir skerðingu á
ótryggðu rafmagni fyrr en eftir
nokkrar vikur. Vægi skerðingarinnar
ráðist líka til dæmis af veðri og loðnu-
veiðum. Hafa beri í huga að nóg raf-
magn sé á Norður- og Austurlandi og
þar hafi ekki og verði ekki nein skerð-
ing en getan til að koma því til Suður-
lands sé takmörkuð.
Spennarnir eru framleiddir í
Frakklandi. Þorsteinn segir að verið
sé að skoða með framleiðendum hvort
möguleiki sé að taka búnað úr öðrum
spenninum og setja hann í hinn en
með því móti megi hefja framleiðslu
með hálfum afköstum í lok febrúar.
Að öðru leyti sé staðan mjög góð.
Vatnsmagn í lónum sé vel yfir með-
allagi og veruleg framleiðsla sé í
Fljótsdalsstöðinni. Hins vegar renni
ekki vatn í gegnum Sultartangavirkj-
un meðan bilunin vari.
Aukinn kostnaður og óþæg-
indi vegna rafmagnsleysis
Bilun Innviðir úr öðrum spenninum í Sultartangavirkjun dregnir upp úr honum til skoðunar inni í stöðvarhúsinu,
en meðal annars hefur orðið skammhlaup í einni koparspólunni inni í spenninum.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Útsalan
er hafin
40-70%
afsláttur
af völdum vörum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
Stakir jakkar á 2.900 kr.
á útsölunni
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Útsala
Útsala
40-70%
afsláttur
25-50%
afsláttur
Opnunartími mánud. - föstud. kl. 10.00-18.00
laugardaga kl. 11.00-16.00
www.friendtex.is Faxafen 10 sími 568 2870
Allar peysur á
1000, 1500, 2000
Allar buxur á
1000, 1900, 2900
Allir kjólar á
1000 og 1900
Komið og gerið skemmtilega
frábær kaup.
Útsala!
Verðhrun!
Laugavegi 63 • S: 551 4422
STÓRÚTSALA
NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR