Morgunblaðið - 15.01.2008, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dulspeki
Born Gifted Psychic
Solves all Love & Personal
Problems. Restores Love, peace,
happiness. Removes negativity.
Call for FREE Advice.
001 817 798 4555.
Dýrahald
Hæ, ég heiti Doddi og er
hreinræktaður american cocker
svartur og hvítur og alveg óskaplega
blíður og góður, mömmu og pabba
langar alveg óskaplega til að verða
amma og afi, en því miður hafa
mamma og pabbi ekki fengið ennþá
ættbókina mína sem þeim var lofað,
en ég er æðislegur. Kveðja. Doddi,
s: 898 1285, s: 586 1285, s: 896 8257.
Ferðalög
Ert þú sjálfstæður ferðalangur?
Sjálfstæðir ferðalangar finna hótelið
á hotelvefurinn.net, sumarhúsið á
sumarhusavefurinn.net og bílinn og
ferðaupplýsingarnar á
ferdalangur.net. Góða ferð!
Gisting
Vetrargisting í Reykjavík 2008
Til leigu nýjar 3ja herb. íbúðir, 2 dagar
eða fleiri. Öll þægindi, rúm fyrir 4-5.
Frítt net. Fallegt útsýni. Rólegt og
gott heimili í Borginni. "eyjasolibu-
dir.is" S. 698 9874 og 898 6033.
Heilsa
Mikið úrval fæðubótarefna
Prótein - Kreatín - Glútamín - Gainer
Ármúla 32. Sími 544 8000
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18.
Lr-kúrinn breytti lífi mínu.
Léttist um 22 kg á aðeins 6 mán-
uðum. Ertu búin að fá nóg af þreytu
og vanlíðan? www.dietkur.is
Dóra 869-2024
Húsnæði í boði
Húsnæði í Köben til leigu
Til leigu er húsnæði í Kaupmanna-
höfn, 20 fm herbergi í kjallara, sér-
inngangur, bað og eldunaraðstaða.
Húsnæðinu fylgir vinna við þrif á
húsi. Laust nú þegar.
Upplýsingar hjá Hörpu, 822 3890,
eða harpa@surprizetravel.is
Húsnæði óskast
Óska eftir húsnæði þar sem gælu-
dýr eru leyfð. Skilvísar greiðslur.
Nánari upplýsingar í síma 862 6356.
Óskað eftir leiguhúsnæði
Rólegt og reglusamt par óskar eftir
2ja-3ja herb. íbúð.
Uppl. í s: 696 9664.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvík. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús .
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
PENNASAUMSNÁMSKEIÐ
Námskeið í japönskum penna-
saumi eru að hefjast. Dag- og
kvöldnámskeið.
Skráning er hafin, s. 848 5269.
Ný sending af pennasaumsmyndum
- póstsendum.
Annora, sími 848 5269.
Microsoft kerfisstjóranám
Bættu Microsoft í ferilskrána. Micro-
soft MCSA kerfisstjóranámið, fyrri
hluti, hefst 25. febr. Upplýsingar á
www.raf.is og í síma 863 2186.
Rafiðnaðarskólinn
Tómstundir
Plastmódel í miklu úrvali.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Til sölu
Stórir skór.is hætta
30% afsláttur af öllum dömuskóm í
stærðum 42-44 og herraskóm í
stærðum 47-50.
Opið þriðjudaga til föstudaga kl.16-
18,30, laugardaga 11-14.
Ásta skósali,
Súðarvogi 7,
sími 553 60 60.
Viðskipti
Notaðu skynsemina og skoðaðu
möguleikann
Viltu vera með í að byggja upp öflugt
fyrirtæki með peningum sem þú ert
hvort sem er að nota til að byggja
fyrirtæki annarra? Skoðaðu þá
http://www.Netis.is
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir og
endurnýjun raflagna.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025
lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Gæðabón Ármúla 17a,
það besta fyrir bílinn þinn. Alþrif,
mössun, teflon, djúphreinsun. Opið
mán.-fö 8-18. Uppl. í síma 568 4310.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Vönduð og þægileg dömustígvél
úr mjúku leðri.
Litir: brúnt og svart
Stærðir: 36 - 41. Verð: 14.500.-
Litur: brúnt
Stærðir: 36 - 41. Verð: 14.500.-
Hægt er að víkka þau að ofan.
Litur: svart stærðir: 36 - 42
Verð: 16.750.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18,
og laugardaga 10-14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bílar
Til sölu Toyota Corolla
Árgerð ´02, ekinn 99 þús., beinskipt-
ur, fimm dyra með dráttarbeisli og
spoiler, verð 790 þúsund. Upplýsingar
í síma 894 3755.
Bílar óskast
Kassabíll, minnaprófs óskast
Erum að leita að bíl með lyftu og sem
stærstum kassa. MB Sprinter eða
sambæril. 500-700.000 stgr. Aðeins
bíll í góðu standi kemur til greina.
Uppl. 896 7405.
Ökukennsla
bifhjolaskoli.is
Bókleg námskeið. Reyndir bifhjóla-
kennarar. Ný og nýleg hjól.
Vélsleðar
Nýr Arctic Cat Crossfire. Góð kjör
Til sölu glænýr Arctic Cat Crossfire
700, árg. 2006, aðeins 80 þús. kr. út-
borgun - 13.500 á mán. Uppl í síma
892-1419.
Þjónustuauglýsingar 5691100
INDVERSKI heimsmeistarinn
Viswanathan Anand (2.799) hóf Co-
rus-ofurmótið í Wijjk aan Zee í Hol-
landi með því að tapa með svörtu
gegn azerska stórmeistaranum
Teimour Radjabov (2.735) og gera
svo jafntefli með hvítu gegn landa
hans, Shakhriyar Mamedyarov
(2.760). Gengi hinna tveggja kepp-
enda mótsins, sem hafa borið heims-
meistaratign í skák, hefur einnig
verið skrykkjótt í fyrstu tveim um-
ferðum mótsins. Rússinn Vladimir
Kramnik (2.799) hefur tvívegis haft
hvítt og gert jafntefli í bæði skiptin
á meðan Búlgarinn Veselin Topalov
(2.780) tapaði í fyrstu umferð gegn
Armenanum Levon Aronjan (2.739)
og gerði svo jafntefli í annarri um-
ferð gegn Vassily Ivansjúk (2.751).
Þrír stigahæstu skákmenn heims,
Anand, Kramnik og Topalov, hefja
því þetta öfluga mót stirðlega.
Armeninn Aronjan, sem varð efst-
ur á mótinu í fyrra ásamt Topalov
og Radjabov, hefur hins vegar unnið
fyrstu tvær skákir mótsins ásamt
norska undrabarninu Magnus Carl-
sen (2.733). Sem fyrr sýnir Norð-
maðurinn ungi lipra takta og í fyrstu
umferð tefldi hann hugvitssamlega
með svörtu gegn Mamedyarov. Rétt
áður en fyrstu tímamörkunum var
náð fórnaði Carlsen tveim peðum til
koma mönnum sínum í skeinuhætt-
ar vígstöðvar og þegar tímamörk-
unum var náð eftir fertugasta leik
svarts kom eftirfarandi staða upp:
(Sjá stöðumynd)
Hér kaus Mamedyarov að gefast
upp þar sem hann hefur sjálfsagt
talið að mannstap væri óumflýjan-
legt. Við nánari rannsókn kemur þó
í ljós að svo var ekki: 41. b3 Hd8 42.
Kg1! Hd2 43. Bh1! Kf7 44. Ha5! og
hvítur nær að halda jafnvæginu. Í
stað 43. …Kf7 í framangreindri
leikjaröð gæti svartur haldið áfram
að tefla til sigurs eftir 43. …Bxc3 en
þá ætti hvítur góða jafnteflismögu-
leika eftir 44. Ha7! Segja má að
lukkudísirnar hafi verið Carlsen
hliðhollar í þessari skák en í þeirri
næstu sýndi hann takta í anda Kar-
povs þegar hann knúði fram sigur
gegn Pavel Eljanov (2.692) frá
Úkraínu í löngu endatafli.
Það verður spennandi að fylgjast
með eina fulltrúa Norðurlanda á
þessu öfluga fjórtán manna móti
sem tekur enda 27. janúar næst-
komandi. Skákáhugamenn geta
fylgst með skákum mótsins í beinni
útsendingu á netinu enda er þar
fjallað veglega um keppnina.
Heimasíða mótsins, http://www.co-
ruschess.com, er að venju til fyr-
irmyndar sem og heimasíða Chess-
base, www.chessbase.com.
Guðmundur og Sigurður Daði
efstir á Skeljungsmótinu
FIDE-meistarinn Guðmundur
Kjartansson (2.307) gerði sér lítið
fyrir í fjórðu umferð Skeljungsmóts-
ins – Skákþings Reykjavíkur og
lagði stórmeistarann Henrik Dani-
elsen (2.506) að velli. Guðmundur er
efstur með fullt hús ásamt Sigurði
Daða Sigfússyni (2.313) sem bar sig-
urorð af Hjörvari Steini Grétarssyni
(2.247). Alþjóðlegi meistarinn Sævar
Bjarnason (2.226) er þriðji með 3½
vinning eftir sigur á Þorvarði F.
Ólafssyni (2.144). Alls verða tefldar
níu umferðir á mótinu, en það fer
fram í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur í Faxafeni 12. Nánari
upplýsingar um mótið er m.a. að
finna á www.skak.blog.is.
Heimsmeistarar stirðir
í byrjun en Carlsen lipur
Helgi Áss Grétarsson
Á sigurbraut Carlsen, t.h., byrjar af krafti á Corus-ofurmótinu.
SKÁK
Wiij aan Zee í Hollandi
CORUS-OFURMÓTIÐ 2008
11.-27. janúar 2008
daggi@internet.is