Morgunblaðið - 15.01.2008, Side 36
Myndir Hrafns Gunn-
laugssonar og starf-
semi Goldfinger … 40
»
reykjavíkreykjavík
Garðar Thór Cort-
es hefur farið víða
á Bretlandseyjum
og söng m.a. ný-
lega á Írlandi, en
þar þekkja flestir
hann einfaldlega
sem Cortes. Í írska dagblaðinu The
Independent er giska volgur dómur
um söngvarann þar sem helst er
fundið að því að ástríðu og kraft
vanti. Hins vegar er Evan Fanning,
annar menningarskríbent sama
blaðs, öllu jákvæðari. Þá er hann
mjög glaður að sjá að óperusöngv-
arinn Cortes taki popptónlistarmenn
sér til fyrirmyndar og sé með virka
MySpace-síðu – og Katherine Jenk-
ins og Mylenee Klass sem „Top Fri-
ends.“ Þá minnist hann á Einar
Bárðarson, umboðsmann Garðars,
og kallar hann Simon Cowell Ís-
lands. Þeim verður tíðrætt um stöðu
Garðars á mörkum popptónlistar og
klassíkur, mærum sem sumir í óp-
eruheiminum hafa ímugust á en
Garðar Thór og fleiri telja ónumin
lönd.
Garðar Thór kom einnig fram í
sjónvarpsþætti Alan Titchmarsh á
ITV í gær, en Alan þessi er mikill
aðdáandi Garðars. Hann stýrði lengi
vel þáttum um garðyrkju á BBC en
hefur nú fært sig yfir í spjallþættina.
Ævintýri Cortes
í Bretlandi
Hvað eiga Dan
Quayle, Meat-
loaf, John Tra-
volta og
Beyonce sameig-
inlegt? Jú, eins
og fram kemur
annars staðar í
blaðinu þá gisti
Beyonce – og
kannski Jay-Z – á Hótel Keflavík
síðustu nótt og af því tilefni rifjuðu
Víkurfréttir upp nokkra fyrrver-
andi gesti hótelsins og ljóst er að
keflvíska hótelið hentar jafnt skrif-
blindum varaforsetum, íturvöxnum
leikurum og brjóstgóðum söngvur-
um og -konum.
Hótel fræga fólksins
Kvikmynda-
gerð Friðþæg-
ingar, skáldsögu
Ian McEwan,
vann Golden
Globe-verðlaun-
in á sunnudags-
kvöld og útgef-
andi höfundarins
hérlendis, Bjart-
ur, var forspár um velgengni
myndarinnar – en endurútgáfa
bókarinnar í kilju var fyrsta bók
forlagsins á þessu ári, með þeim
Keiru Knightley og James McAvoy
á forsíðu. Flýtirinn virðist þó hafa
verið óþarflega mikill því þriðja að-
alpersóna bókarinnar, Briony Tall-
is, er sögð þrettán ára strákur í
upphafi káputextans – en þar fyrir
ofan má sjá leikkonuna Saoirse
Ronan spóka sig í sumarkjól í hlut-
verki ungmeyjarinnar Briony. En
sjálfsagt hefur skáldið komið þarna
upp í káputextahöfundi enda má
vel færa rök fyrir því að sagan yrði
jafnvel forvitnilegri með þessum
kynskiptum.
Kynskipti í káputexta
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
JOHNNY Depp bræddi mörg meyjarhjörtun í ís-
lenskum kvikmyndahúsum árið 1990 þegar hann
fór smjörgreiddur og leðurjakkaklæddur með
hlutverk vandræðagepilsins Wade „Cry-Baby“
Walker í kvikmyndinni Cry-Baby. Þar er allsráð-
andi rokk-og-ról stemning 6. áratugarins í
Bandaríkjunum, sagan í grunninn nútíma Róm-
eó og Júlía, forboðin ást, en ævintýrið endar þó
vel en ekki á sjálfsvígum. Nú hefur leikkonan
Björk Jakobsdóttir skrifað leikgerð upp úr
myndinni og leikstýrir nemendum Verzl-
unarskólans í uppfærslu á verkinu í Austurbæ,
sem ber heitið Kræ-beibí.
Björk segist vera nokkuð trú kvikmyndinni í
leikgerðinni. „Auðvitað verður þetta aldrei eins
og myndin en við erum dálítið að vinna með
kvikmyndaformið í leikhúsinu,“ segir Björk.
Vídeótækni sé mikið notuð og þar hafi vídeó-
kunnátta nemenda komið sér vel. „Við erum bú-
in að brjóta dálítið upp þetta form sviðsins í leik-
húsinu, það er ekki lengur bara þetta svið og
áhorfendur heldur bjóðum við upp á nýjungar í
því hvar er leikið í leikhúsinu og hvernig.“
Gaman að leikstýra Verzló
Björk segir ýmis lög úr myndinni sem mönn-
um þóttu leiðinleg hafa verið tekin út og gamlir
„fiftís“ rokkslagarar settir í staðinn, t.d. „Hound
dog“. Hún vildi hafa sýninguna sjónræna og
flotta og mörg stuðlög, og vildi tryggja að talað
mál kæmi ekki niður á dans- og tónlistar-
atriðum.
Þetta er ekki frumraun Bjarkar í leikstjórn
söngleikja því hún leikstýrði nemendum Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar í uppsetningu hans á
Moulin Rouge fyrir þremur árum. Björk segir af-
skaplega gott að leikstýra Verzlingum, góð
stemning í hópnum og hún hlakki til að mæta í
vinnuna. „Stundum getur verið alveg ótrúlega
skemmtilegt að leikstýra áhugafólki sem gefur
allt í þetta og það getur líka verið hundleiðinlegt
að leikstýra atvinnuleikurum sem nenna varla
að mæta í vinnuna,“ segir Björk um muninn á því
að leikstýra fag- og áhugamönnum. Það sé vissu-
lega erfitt að stýra menntaskólasýningu því hóp-
urinn sé risastór og orka leikstjórans þurfi að
vera í botni allan tímann. Á sama tíma sé það
mjög gefandi því hæfileikarnir séu miklir og get-
an eftir því. Tónlistin er í höndum Jóns Ólafs-
sonar og hafði hann orð á því við Björk hversu
margir góðir söngvarar hefðu verið hópi nem-
enda í ár.
Smjörgreidda hetjan
En aftur að söguþræði Kræ-beibí. Í henni tak-
ast á tveir hópar, Hnakkar og Hyski. „Hnakk-
arnir eru allir á „playback“, allt raddað til and-
skotans, vel útfært en steindautt, svolítið eins og
diskóið. Svo er „live band“ með Hyskinu,“ segir
Björk um söguna, hún sé algjör formúla. Dökka
hetjan hittir sæta stelpu af öðru sauðahúsi sem á
að giftast „millistjórnanda-í-banka-týpunni“,
„Hnakka-snobbara“ eins og Björk kallar hann.
Hana dreymir hins vegar um hetjuna, Kræ-beibí.
Önnur stúlka elskar Kræ-beibí en hann vill ekk-
ert með hana hafa. Kræ-beibí kemst í kast við
lögin, er stungið í fangelsi og sæta stelpan
ákveður að giftast snobbhananum og allt virðist
ætla að enda með ósköpum. En eins og allir vita
sem þekkja formúluna þá endar allt vel. Sæta
stelpan fer í rauðan kjól og lætur vindinn leika
um sítt, óaðfinnanlegt hárið í fangi smjör-
greiddrar hetjunnar sem ber húðflúrað tár á
hvarmi.
Vælukjói að hætti Verzlinga
Verzlingar setja upp söngleikinn Kræ-beibí í leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur
Morgunblaðið/G.Rúnar
Leikstjórinn og leikararnir „Stundum getur verið alveg ótrúlega skemmtilegt að leikstýra áhugafólki,“ segir Björk.
Kræ-beibí Með aðalhlutverkin fara þau Sigurður
Þór Óskarsson og Ólöf Jara Skagfjörð Valgeirs-
dóttir. Tónlistarstjórn er í höndum Jóns Ólafs-
sonar og Björn Jr. Friðbjörnsson á söngtexta.