Morgunblaðið - 03.02.2008, Page 64
SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 34. DAGUR ÁRSINS 2008
Heitast 0 °C | Kaldast -8 °C
Norðlæg átt, víða 8-
13 m/s en heldur
hvassara á annesjum.
Él norðan og austan til,
annars léttskýjað. » 8
ÞETTA HELST»
Skortur á leikreglum á
orkumarkaði skaðlegur
Umræðan um eignarhald á orku-
auðlindum hefur staðið í heila öld en
niðurstaðan er samt rýr, að mati
Aagotar Vigdísar Óskarsdóttur lög-
fræðings. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingar, segir
að skortur á leikreglum á þessum
markaði hafi verið skaðlegur og
löngu sé tímabært að kveðið sé á um
eignarhald á orkuauðlindum til að
verja almannahagsmuni.
»Forsíða, 10
Vill sveigjanleika
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, sagði á
fundi Málfundafélagsins Óðins í gær
að leyfa bæri fyrirtækjum að gera
upp í þeim gjaldmiðlum sem þau
kysu. „Við verðum að vera sveigj-
anleg,“ bætti hún við og sagði að
auðvelt væri fyrir alþjóðleg fyr-
irtæki að flytja sig héðan frá Íslandi.
»2
Ný stjórn í Færeyjum
Þrír flokkar í Færeyjum – jafn-
aðarmenn, Þjóðveldisflokkurinn og
Miðflokkurinn – hafa náð sam-
komulagi um að mynda nýja land-
stjórn. Jóannes Eidesgaard, leiðtogi
jafnaðarmanna, verður áfram lög-
maður Færeyja eða forsætisráð-
herra. »4
SKOÐANIR»
Staksteinar: Nýr forystumaður
Forystugreinar: Súez Bandaríkj-
anna? | Reykjavíkurbréf
Ljósvakinn: Gleraugu réttvísinnar
UMRÆÐAN»
Hjúkrunarfræðingar mikilvægir
SGS fundaði með ríkisstjórninni
Styrkir Þekkingarsetrið
SA vill fleiri konur í stjórn
Sundabraut og ónafngreindir …
Gamalt og nýtt af vinnumarkaði
Kumbaravogsbörnin
Skerðingar á þagnarskyldu lækna
ATVINNA»
HÖNNUN»
Hefur hannað mörg
þekkt lógó. »60
Hugrún Ragn-
arsdóttir, Huggy,
verður dómari í
raunveraleikaþætt-
inum Britain’s Next
Top Model. »57
FÓLK»
Situr á dóm-
arapalli
TÓNLIST»
Melissa Etheridge í Tón-
list á sunnudegi. »58
FÓLK»
Albarn segir Allen hæfi-
leikaríkan krakka. »59
Tónlist Lay Low við
Ökutíma er komin út
á plötu. Þar er að
finna fimm ný lög og
átta Dolly Parton-
ábreiður. »55
Keyrsla á
Lay Low
TÓNLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Gunnar Reynir Sveinsson látinn
2. Íslendingur handtekinn á Spáni
3. Litla dóttirin nefnd Indiana Rose
4. Ósætti vegna tölvunotkunar
FROSTIÐ á landinu mældist mest
um 30 stig aðfaranótt laugardags
og víða á Suðurlandi og inn til
landsins var frostið meira en 20
stig. Mesta frost sem mælst hefur á
landinu er 38 stig. Snjókoma eða él
einkenndi veðrið norðan og austan
til á landinu, en annars var létt-
skýjað. Gert er ráð fyrir að það
dragi smám saman úr frostinu, en
áfram verður kaldast í innsveitum.
Mesti næturkuldinn var á miðhá-
lendinu vestan Vatnajökuls. Í Veiði-
vatnahrauni við Þórisvatn mældist
frostið 30,3 stig milli klukkan þrjú
og sex og í Þúfuveri sunnan Þjórs-
árvera 29,1 stig á sama tíma.
Á láglendi var frostið aðeins
minna. Á Kálfhóli við Þjórsá var
frostið mest 23,7 stig og víða á Suð-
urlandi, eins og til dæmis í Árnesi
og Búrfelli, var frostið um og yfir
22 stig. Í Reykjavík mældist mest
19,4 stiga frost. Annars staðar en á
Suðurlandi og miðhálendinu var
minna frost.
Frostaveturinn mikla 1918 var
kaldast í Reykjavík og víðar á land-
inu frá því mælingar hófust. 21. jan-
úar fyrir 90 árum mældist 24,5
stiga frost í Reykjavík, 36 stiga
frost á Grímsstöðum og 38 stiga
frost í Möðrudal. Á nokkrum öðrum
stöðum mældist frostið um 30 stig,
samkvæmt upplýsingum Veðurstof-
unnar.
Mikið frost víða um land og éljagangur fyrir norðan
Vetrarhörkur Það var kuldalegt á Siglufirði í gærmorgun, eins og raunar á öllu landinu.
Frostið fór í rúmlega 30
stig í Veiðivatnahrauni
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Samdi við spilaborðið
NORSKIR heimsmeistarar mæta til
leiks á Bridgehátíð, sem haldin verð-
ur um miðjan febrúar, en í sveitinni
verða þrír úr liðinu sem vann Berm-
úda-skálina síðastliðið haust. Með
þeim verður Rune Hauge sem var í
þeirra röðum í sigrinum í sveita-
keppninni á hátíðinni í fyrra.
Hauge er umtalaður umboðsmaður
fyrir knattspyrnumenn, einkum
enska og norska, og er með 40 til 50
leikmenn á sínum snærum. „Því færri
og hæfileikaríkari, þeim mun betra.“
Hann segist eiga í viðræðum við tvo
íslenska leikmenn en hann geti ekki
upplýst hverja. Hann eigi þó fyrst og
fremst samstarf við íslenska
umboðsmenn.
Hauge er for-
fallinn áhugamað-
ur um bridds og
segist keppa á
mótum að jafnaði
einu sinni í mán-
uði. „Þetta hjálpar
mér að slaka á inn
á milli tarna í fót-
boltanum,“ segir
hann. „Þetta er engin venjuleg vinna.
Maður kveikir á símanum á morgn-
ana og slekkur ekki fyrr en farið er í
háttinn á miðnætti. Íþróttir hafa eng-
an skrifstofutíma; þær eru sífellt í
gangi – líka um helgar.“
Það hefur verið í nógu að snúast hjá
Hauge, því félagaskiptaglugginn lok-
aðist á fimmtudagskvöld. „Ég gekk
frá síðasta samningnum um kvöldið á
meðan ég sat við spilaborðið,“ segir
hann. „Þetta er nú bara í annað skipti
á löngum tíma sem slíkt gerist. Það
var samningur um að Wigan fengi
varnarjaxlinn Erik Hagen að láni frá
Zenit í St. Pétursborg.“
Á Bridgehátíð verða fjölmargir
sterkir spilarar að venju, karlar og
konur. Og Hauge veit af þeim fram-
förum sem félagar hans í norsku
sveitinni hafa tekið. „Ef ég geri mis-
tök núna fæ ég að heyra það – og það
þýðir ekkert að þræta fyrir það!“ | 6
Norsku heimsmeistararnir koma á Bridgehátíð og umtalaður
umboðsmaður fyrir knattspyrnumenn er með í för
Rune Hauge
EINN frægasti
verjandi og
refsiréttarfræð-
ingur Bandaríkj-
anna, Alan
Derschowitz,
kemur hingað til
lands í byrjun
apríl til að halda
fyrirlestur á
vegum Skál-
holtsskóla fyrir
lögmenn og
dómara. Derschowitz er þekkt-
astur fyrir að hafa fengið ruðn-
ingskappann O.J. Simpson sýkn-
aðan af morðákærum og hafa
varið Mike Tyson. Einnig er hann
prófessor í refsirétti við Harvard-
háskóla og virtur rithöfundur inn-
an lögfræðinnar, ekki síst um
tengsl hennar við guðfræði.
Róbert Ragnar Spanó, starfandi
deildarforseti lagadeildar HÍ, seg-
ist spenntur að fá Derschowitz til
landsins enda hafi hann mikið
fram að færa fyrir þá sem hafi
áhuga á lögfræði, þróun rétt-
arkerfisins og tengslum verald-
legra málefna og trúarlegra. | 4
Þekktur
bandarískur
verjandi
væntanlegur
Alan
Derschowitz
HILMIR Snær Guðnason mun fara
með hlutverk Friðriks Þórs Frið-
rikssonar kvikmyndagerðarmanns
í nýrri kvikmynd sem leikstjórinn
hyggst gera, og mun að hluta til
byggjast á ævi hans. Myndin hefur
hlotið vinnuheitið Mamma Gógó.
„Þetta fjallar um móður mína og
samskipti hennar við mig. Þetta er
sem sagt leikin gamanmynd og ég
skrifa handritið,“ segir Friðrik, en
Kristbjörg Kjeld mun fara með
hlutverk móður hans. Um þessar
mundir er Friðrik að ljúka við
heimildarmynd um einhverfu, en að
því loknu ætlar hann að snúa sér að
nýju myndinni. | 54
Hilmir Snær
verður Frið-
rik Þór
Friðrik Þór
Friðriksson
Hilmir Snær
Guðnason