Morgunblaðið - 04.02.2008, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 04.02.2008, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2008 F 7 Kuldinn næðir, skafrenn-ingur æðir yfir alla vegi,það er eins og að akagegnum ullarbreiður. Ekki tekur betra við þegar of- anhríðin bætist við 15 metra á sek- úndu storm og svo er slydda og rigning á næsta leiti. Það var ekki mulið undir bygging- ariðnaðarmenn fyrir 40-50 árum. Tæplega að það þætti ástæða til að gera hús fokheld fyrr en hita var hleypt á húsið. Þá að sjálfsögðu vildi eigandinn halda í hitann eins og mögulegt var og tryggja að ekki frysi í leiðslum. Kaldsamasta lagna- vinnan var þó að liggja í öllum veðr- um uppi á plötum áður en steypt var og logsjóða saman geislahit- unarkerfi, þetta urðu menn að láta sig hafa svo lengi sem þá fennti ekki í kaf. Geislahitun var mjög vinsæl hér- lendis á árunum 1955-65. Þá dró mjög úr lögn slíkra kerfa en þau eru þó í fjölmörgum húsum í þéttbýli, einkum á höfuðborgarsvæðinu, og geta enn um ókomin ár gegnt hlut- verki sínu með prýði ef stjórntæki þeirra eru endurnýjuð, kerfin geta enst lengur en húsin. Samt kom það gömlum lagna- manni mjög á óvart að geislahit- unarkerfi, hitakerfi sem er ekki á veggjum eða gólfi heldur í lofti, sé að ganga í endurnýjun lífdaga á meginlandi Evrópu. Þar er í far- arbroddi fyrirtækið Giacomini á Norður-Ítalíu. Það var því ekki ann- að að gera en kanna hvort svo væri virkilega og heimsækja þetta lagna- fyrirtæki og sú heimsókn, þótt stutt væri, var vissulega fyrirhafnarinnar virði. Giacomini er við vatnið Orta, mitt á milli og fyrir norðan stórborgirnar Tórínó og Mílanó. Það fyrsta sem grípur augað þangað kominn er ótrúleg náttúrufegurð og um leið undrun að í þessum litlu þorpum umhverfis vatnið leynist einn fram- sæknasti lagnaframleiðandi í Evr- ópu. Þetta byrjaði smátt. Alfredo Gia- comini byrjaði með einum hjálp- armanni að framleiða ventla fyir gasleiðslur árið 1951. Þá var Evrópa enn í sárum eftir hildarleik heims- styrjaldarinnar síðari og hver varð að bjarga sér. Alfredo er enn starf- andi hress og ern í sínu fyirtæki en hjálparmennirnir eru nokkru fleiri en einn, þeir skipta hundruðum í verksmiðju, tæknideild og á skrif- stofum. Það fyrsta sem vekur at- hygli í stuttri heimsókn er snyrti- mennska hvert sem litið er þótt framleitt sé úr málmum og plasti. Þegar sest er niður og innviðir fyr- irtækisins kynntir kemur í ljós að það lætur sér ekki aðeins nægja að framleiða rör, ventla og annað sem þarf til lagna heldur rekur það mjög öfluga tækni- og þróunardeild. Þar eru lagnakerfi krufin til mergjar og kappkostað að grundvöllur kerf- anna sé rækilega skoðaður, allt rannsakað og tilraunir gerðar. Síðan er allt sem að einu kerfi lýtur fram- leitt á staðnum eða keypt frá öðrum framleiðendum eftir fyrirsögn. Hérlendis hefur fyrirtækið Gia- comini verið þekktast fyrir gólf- hitakerfi en nú bætast upprisin geislahitunarkerfi við. Þótt sá sem skalf á uppslættinum á 4. hæð fyrir áratugum hafi farið með nokkurri tortryggni í þessa ferð sannfærðist hann um að þetta hitakerfi, geisla- hitun, á svo sannarlega upprisuna skilið. Tæplega mun það verða not- að í íbúðarhúsnæði, þó skal ekkert fullyrt þar um, en í skrifstofu- og at- vinnuhúsnæði á það svo sannarlega erindi. Þetta kerfi er ekki einungis hitakerfi heldur er hægt að snúa virkni þess við og láta það kæla. Ef- laust reka margir upp stór augu og spyrja hvort það þurfi að kæla hús á Íslandi og það er bláköld staðreynd að á því er mikil þörf þegar sólar nýtur sem mest á sumrin. Þetta þekkja eflaust margir sem vinna á skrifstofum, í bönkum, verslunum og fjölmörgum framleiðslufyr- irtækjum. Geislahitunarkerfið frá Giacomini er í mörgum útfærslum. Kjarninn er leiðniplata úr málmi en að mestu eru kerfin lögð úr plaströrum. Undir geislahitunarkerfin koma plötur sem ýmist eru úr málmi, stundum gataðar til að dempa hljóðburð, eða úr heilu stáli eða gifsi. En sjón er sögu ríkari og það verður fróðlegt fyrir hönnuði, pípu- lagningamenn og húsbyggjendur að kynna sér þetta merkilega hita- og/ eða kælikerfi nánar. Heimsókn til Ítalíu Höfundur er pípulagningameistari. LAGNAFRÉTTIR eftir Sigurð Grétar Guðmundsson siggigretar@internet.is Náttúrufegurð Það er fagurt við vatnið Orta. Fremst á myndinni eru höf- uðstöðvar Giacomini en umhverfis vatnið eru mörg smáþorp með þröngum götum og gömlum húsum. Hitaflötur Svarta platan er úr málmi og gegnum málmplötuna er rör sem vatnið rennur eftir. Málm- platan dreifir hitanum svo loftið hitnar/kólnar jafnt. Gipsplatan Þetta er útfærsla á geislakerfinu sem mjög líklega verður bráðalega sett upp í bygg- ingu í Kópavogi. Málmplatan er fest á gipsplötu og steypt yfir með úret- anplasti. Platan snýr öfugt á mynd- inni miðað við uppsetningu. a sb yr g i@ a sb yr g i. is • w w w .a sb yr g i. is • w w w .h u s. is SAMTENGD SÖLUSKRÁ SEX FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR Suðurlandsbraut 54 - við Faxafen - 108 Reykjavík Sími 568 2444 - Fax 568 2446 INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali RAGNAR GÍSLASON, löggiltur fasteignasali MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR, SÖLUMAÐUR Við erum í Félagi fasteignasala LAUGAVEGUR – VERSLUNARHÚSNÆÐI Til sölu um 500 fm verlsunar- og þjón- ustuhúsnæði á frábærum stað við Lauga- veginn. Húsnæðið er á tveimur hæðum skiptist í 3 sjálfstæðar einingar og eru tvær í leigu, en ein gæti losnað fljótlega. Uppl. á skrifstofu Ásbyrgis fasteignasölu. 40882 ÁSBRAUT – BÍLSKÚR Mjög falleg og mikið endurnýjuð 4 her- bergja 85,9 fm íbúð á efstu hæð (4.hæð) með miklu útsýni ásamt 25,2 fm bílskúr, samtals 111,1 fm. Í íbúðinni eru tvö svefn- herb. en búið er að stækka stofu/borð- stofu á kostnað þriðja herbergisins. Í kjall- ara er sér geymsla sem er ekki talin með í fermetratölu FMR. HEIÐARBÆR 3 Mjög vel staðsett og mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggð- um bílskúr í Árbænum. Húsið er 167,4 fm að stærð, þar af er bílskúr 31,5 fm Búið er að endurnýja eldhúsinnréttingu, bað- herbergi, skápa og gólfefni. Verð 57,3 millj. BÍLDSHÖFÐI VERSLUNAR/ATVHÚSNÆÐI VORUM AÐ FÁ Í EINKASÖLU GOTT 280 FM. VERSLUNARHÚSNÆÐI Á EFRI JARÐHÆÐ Á MJÖG GÓÐUM STAÐ VIÐ BÍLDSHÖFÐA. Húsnæðið er á efri jarð- hæð í enda með stórum verslunarglugg- um á þrjá vegu. Skipulag er þannig í dag að það skiptist í verslun og lagerhúsnæði með innkeyrsludyrum. Allir milliveggir eru léttir veggir og hægt er að gera húsnæði allt að einum sal. Húsnæðið býður upp á margs konar nýtingu, sem verslun eða skrifstofur. ÁNANAUST – VESTURBÆR Vorum að fá í sölu fallegar og vel skipu- lagðar 2ja og 3ja herb. íbúðir á 2. til 4. hæð í lyftuhúsi. Íb. seljast fullbúnar með vönduðum innréttingum, flísalögðum baðherb., parketi og fullbúinni sameign. Skemmtileg staðsetning, alveg við sjóinn og frábært útsýni. Afhending við kaup- samning. Verð frá 27,0 til 37,5millj. 40348 RAUÐA LJÓNIÐ EIÐISTORGI Til sölu húsnæði það sem áður var Rauða Ljónið á Eiðistorgi. Húsnæðið er fullinn- réttað sem veitingastaður og er að stærð 442 fm. Húsnæðið er laust strax. Engin leyfi til veitingareksturs fylgja. Verð 60,0 millj. MELAHVARF - EINBÝLI - AUKAÍBÚÐ MJÖG GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ MEÐ ÚTSÝNI YFIR ELLIÐAVATN OG BLÁFJÖLL. HÚSIÐ ER 276,4 FM., ÞAR AF ER 57,7 FM. BÍLSKÚR OG 30 FM. STÚDÍO-ÍBÚÐ. Húsið er byggt úr bjálkum og meðfram húsinu er stór timburverönd með heit- um potti. Bílaplan er munstursteypt með hita í hluta þess. Verð 92 millj. STÆRRI EIGNIR FAXAHVARF EINBÝLI Mjög fallegt og vandað einbýlishús á fallegum og góðum stað við Faxahvarf í Kópavogi. Húsið er samtals 245,0 fm, þar af er bílskúr 46,6 fm Húsið er sænskt einingahús frá NORDICHUS. Húsið er á tveimur hæðum og skiptist m.a. í 4 svefnherbergi, tvær stofur og tvö baðherbergi. Verð 86 millj. 4RA - 5 HERB. JÖRFABAKKI - AUKA HERBERGI Góð 99,8 fm 4ra herbergja íbúð með aukaherbergi í kjallara með aðgengi að wc, yfirbyggðar svalir. Íbúðin sjálf er 76,7 fm, herbergi í kjallara er 11,2 fm og geymsla er 11,9 fm Íbúðinni getur fylgt 14 milljón kr. lán á 4,15% vöxtum. RJÚPUFELL Erum með í einkasölu 4 herbergja, 109,2 fm íbúð í fjölbýli í Fellahverfi. Íbúðin er nýlega tekin í gegn, m.a. er ný eldhúsinnrétting. 7 milljón kr. lán á 4,15% vöxtum frá Glitni getur fylgt með. Laus strax. Verð 20,9 millj. TIL LEIGU LAUGAVEGUR - SKRIFSTOFUR - LEIGA TIL LEIGU HJÁ ÁSBYRGI, um 170 fm skrifstofuhæð með glæsilegu útsýni á efstu hæð í þessu fallega húsi við Laugaveginn. Allar nánari upplýsingar gefur Ingileifur Einarsson hjá Ásbyrgi í síma 568-2444. tilv. 34432 2JA HERBERGJA ÁSHOLT 105 REYKJAVÍK Falleg 2ja herb. íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bílageymslu við Ásholt í Reykja- vík. Íbúðin sjálf er 57,8 fm og stæði í bílageymslu er 26,8 fm, samtals 84,6 fm Íbúðin skiptist í forstofu, baðher- bergi, svefnherbergi, eldhús og stofu. Út frá stofu eru svalir til suðurs. Park- et og flísar á gólfum. Verð: 24 millj. Ásbyrgi fasteignasala S. 568-2444 / 894-1448 /822-3737. ATVINNUHÚSNÆÐI ÁLFHEIMAR - GLÆSIBÆR ÁSBYRGI KYNNIR: GLÆSIBÆR - TIL SÖLU EÐA LEIGU. Glæsilegt verslun- ar- og þjónustuhúsnæði á götuhæð á einum besta staðnum í húsinu. Glugg- ar frá gólfi upp í loft og gólf eru flís- alögð. Góð aðkoma er að húsnæðinu á tvo vegu og ennfremur aðkeyrsla og innkeyrsludyr. 40815 Ingileifur Einarsson, löggiltur fasteignasali Ragnar Gíslason, löggiltur fasteignsali HAGST ÆTT LÁ N HAGST ÆTT LÁ N HAGST ÆTT LÁ N

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.