Morgunblaðið - 12.02.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Áætlað er að um 1.800 ársverk þurfi viðbyggingu álversins í Helguvík á 6-8 ára
framkvæmdatíma.
»Stefnt er að því að ná 250 þúsunda tonnaframleiðslu árið 2015 og að 300-400 ný
störf verði þar til og 600-700 afleidd störf.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
UNDIRBÚNINGUR að byggingu álvers Norður-
áls í Helguvík er á áætlun. Ákvörðunar um það
hvenær bygging álversins verður hafin er að vænta
innan skamms, að sögn Ágústs Hafberg, fram-
kvæmdastjóra viðskiptaþróunar og samskipta hjá
Norðuráli. „Við höfum alltaf áformað að hefja
framkvæmdir á þessu ári og við höfum unnið eftir
þeim áætlunum og þær standast,“ sagði Ágúst.
Tilboð í byggingu kerskálans voru opnuð í síð-
ustu viku. Ágúst sagði Norðurál alltaf hafa lagt
áherslu á að vinna með íslenskum verktökum og
því var leitað til Íslenskra aðalverktaka, Ístaks og
ÞG-verktaka um að gera tilboð.
„Við byggjum þetta í áföngum og þess vegna
getum við notað íslenska verktaka. Við höfum frá-
bæra reynslu af því,“ sagði Ágúst. Nú er verið að
fara yfir tilboðin en þau eru flókin og tekur sú
vinna nokkrar vikur. Ágúst sagði tilboðin hafa ver-
ið áþekk hvert öðru og að verkið væri af stærð-
argráðunni 5-7 milljarðar króna.
Öflun tilboðanna er liður í lokaundirbúningi þess
að hefja framkvæmdir við álverið.
Enn er eftir að ljúka nokkrum þáttum áður en
framkvæmdir geta hafist. Ágúst sagði sveitar-
félögin vera nú að leggja lokahönd á deiliskipulag
verksmiðjusvæðisins. Mati á umhverfisáhrifum er
lokið og þegar þetta hvort tveggja liggur fyrir
verður hægt að sækja um framkvæmdaleyfi hjá
sveitarfélögunum. Þá hefur umsókn um starfsleyfi
fyrir álverið legið inni í Umhverfisstofnun í tvo
mánuði.
Ágúst sagði að nú væri mikið til búið að velja
búnað í álverið og að verið væri að ganga frá pönt-
unum. Hann sagði að langur afhendingartími væri
á ýmsum tækjabúnaði eins og afriðlum, spennum
og slíku. Miðað er við að í fyrsta áfanga álversins
verði hægt að framleiða nálægt 150 þúsund tonn af
áli á ári. Ágúst sagði menn gæla við að geta fram-
leitt fyrsta álið í Helguvík haustið 2010.
Tilboð í kerskála álvers
Norðuráls í Helguvík opnuð
Árvakur/Árni Sæberg
Ál Framleiðsla í Helguvík á að hefjast 2010.
Ákvörðunar um byrjun framkvæmda má vænta fljótlega
SEINNI partinn í gær varð dragnótabáturinn Svein-
björn Jakobsson SH 10 fyrir því óhappi að fá dragnóta-
belginn í skrúfuna.
„Við vorum að kasta á Skarðsvíkinni en þá kom stór
alda og myndaðist sog og svo fór belgurinn í skrúfuna,“
sagði Egill Þráinsson, skipstjóri á Sveinbirni, í samtali
við Morgunblaðið og bætti við að leiðindaveður hefði
verið er óhappið varð. „Það var suðvestan 14 metrar og
mikill sjór.“ Egill segir að þeir hafi kallað á Rifsara SH
til aðstoðar, „en hann var á veiðum á sama stað og við
og tók okkur í tog til Ólafsvíkur og gekk ferðin vel
þrátt fyrir leiðindaveður“.
Morgunblaðið/Alfons
Belgurinn fór í skrúfuna
KNATTSPYRNUSAMBAND Ís-
lands hefur samþykkt jafnrétt-
isstefnu og með henni er gefinn tónn
fyrir íslenska knattspyrnu í jafnrétt-
ismálum. Markmið stefnunnar er að
tryggja jafna möguleika allra til
knattspyrnuiðkunar á Íslandi og hún
byggist á gildandi lögum og mann-
réttindasáttmálum sem Ísland er að-
ili að. KSÍ og aðildarfélög þess munu
huga sérstaklega að jafnréttismálum
í starfsemi sinni.
Í tilkynningu á vef KSÍ segir m.a.
að markmiðið með jafnréttisstefn-
unni sé að sjónarmið jafnréttis verði
samofið allri knattspyrnuiðkun á Ís-
landi. Knattspyrnusambandið lítur
svo á að jafnréttismál séu liður í
gæðastarfi knattspyrnuhreyfing-
arinnar þannig að allir iðkendur eigi
jafna möguleika til að sinna íþrótt-
inni. Jafnréttisstefnan nær til allra
þeirra sem leika og starfa innan
Knattspyrnusambands Íslands.
Markmiðið er að allt jafnréttisstarf
innan knattspyrnuhreyfingarinnar
verði markvisst og skipulagt ferli sem
fléttast inn í alla þætti knattspyrn-
unnar. Öllum knattspyrnuiðkendum
verði „gert kleift að stunda íþróttina
óháð kynferði, trúarbrögðum, skoð-
unum, þjóðernisuppruna, kynþætti,
litarhætti, kynhneigð, efnahag, bú-
setu, ætterni og stöðu að öðru leyti“.
Til að stuðla að jafnrétti leggur
KSÍ áherslu á eftirfarandi þætti m.a.:
Að jafnréttissjónarmiða sé gætt í
hvívetna í starfi KSÍ og allir hafi
sömu tækifæri.
Að í starfi KSÍ verði gætt jafn-
réttis við skipun í stjórnir, ráð og
nefndir á vegum þess og við ráðningu
starfsfólks.
Að veita þeim einstaklingum sem
valdir eru til verkefna á vegum KSÍ
jöfn tækifæri og gera engan grein-
armun á drengja- og stúlknaliðum við
útdeilingu æfingatíma.
Að hafa vel menntaða og hæfa
þjálfara í öllum liðum. Gerðar eru
sömu ráðningarkröfur til þjálfara
drengja- og stúlknaliða. Að iðkendur,
starfsmenn, stjórnarmenn og aðrir
þeir sem hafa hlutverki að gegna inn-
an KSÍ hafi ekki uppi orð eða athafnir
sem líta má á sem kynja- eða kyn-
þáttamisrétti gagnvart öðrum, hvort
sem um ræðir einstaklinga eða hópa
innan eða utan Íslands. Athugasemd-
ir við litarhátt, talsmáta eða annað í
fari iðkenda, ættingja þeirra eða
keppinauta sem skilja má sem meið-
andi og særandi athugasemd um upp-
runa þeirra eiga ekki heima innan
hreyfingarinnar.
Markmiðið að allt jafnréttisstarf innan knattspyrnuhreyfingarinnar verði markvisst og skipulagt
ferli sem fléttast inn í alla þætti knattspyrnunnar Snýr m.a. að kynferði, kynþætti og kynhneigð
KSÍ samþykkir jafnréttisáætlun
Árvakur/Golli
Jafnrétti Áætlun KSÍ gengur út á
að allir hafi jöfn tækifæri.
HALLI á rekstri Landspítalans nam
488 milljónum króna á síðasta ári eða
1,4%, samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri að teknu tilliti til fjáraukalaga.
Framlag til LSH á fjáraukalögum
nam 1.737 m.kr. og þar af var 777
m.kr. framlag vegna uppsafnaðs
halla fyrri ára. Launagjöld hafa auk-
ist um rúm 10% frá fyrra ári, rekstr-
argjöld um rúm 7% og kostnaður
vegna S-merktra lyfja um rúm 13%.
Sértekjur hafa aukist um rúm 15%
og er aukin starfsemi á göngudeild-
um og rannsóknardeildum helsta
ástæða þess. Þetta kemur fram í nýj-
asta hefti Starfsemisupplýsinga
LSH.
Rekstur flestra sviða spítalans var
innan við 2% frávik frá fjárheimild-
um. Þrjú svið skera sig úr, endur-
hæfingarsvið með 6,8% rekstrar-
halla, slysa- og bráðasvið með 4,6%
halla á rekstri og lyflækningasvið I
með 4,2%. Þessi svið hafa öll farið í
gegnum sérstaka greiningu á sínum
rekstri og er unnið að ýmsum breyt-
ingum og umbótum á þeim.
Á árinu 2007 leituðu tæplega
103.000 einstaklingar eftir þjónustu
á Landspítala og margir oftar en
einu sinni. Er þetta tæplega 3%
fjölgun frá árinu áður.
1,4% rekstr-
arhalli á
Landspítala
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær tvítuga stúlku í sex
mánaða fangelsi fyrir smygl á rúm-
lega 100 grömmum af sterku kóka-
íni frá Spáni í apríl 2006. Fram
kemur í málinu að hún var í óreglu
þegar hún framdi brotið en hefur
nú snúið við blaðinu, hætt neyslu
fíkniefna og verið til sjós í heilt ár.
Þessi nýja stefna sem líf hennar
hefur tekið varð til þess að refsingin
var að stærstum hluta skilorðs-
bundin.
Í dómnum segir að hún hafi ótil-
neydd farið til Spánar í því skyni að
flytja hingað um eitt kíló af kókaíni
og hagnast á því um eina milljón
króna. Aðstæður sem ekki snertu
stúlkuna urðu hins vegar til þess að
hún flutti aðeins lítinn hluta af fíkni-
efnunum með sér, eða 113 grömm
sem hún faldi innvortis.
Samkvæmt sakaskrá stúlkunnar
frá árinu 2004 hefur henni þrívegis
verið gert að greiða sektir fyrir brot
gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að stúlkan var ung þegar brot-
ið var framið, eða 19 ára, langt er
liðið frá brotinu og hún var sam-
vinnufús við rannsókn. Refsing þótti
hæfileg sex mánaða fangelsi en sök-
um þess að stúlkan hafði snúið við
blaðinu ákvað dómari að skilorðs-
binda fjóra mánuði af refsingunni.
Guðmundur L. Jóhannesson kvað
upp dóminn, Alda Hrönn Jóhanns-
dóttir fulltrúi lögreglustjórans á
Suðurnesjum, sótti en Guðmundur
B. Ólafsson hrl. var til varnar.
Sneri af
hættulegri
braut
Mestur hluti refs-
ingar skilorðsbundinn
TVEIR menn á bíl óku inn í nýfallið
snjóflóð sem féll á veginn um Óshlíð í
gærkvöldi. Þá sakaði ekki. Í kjölfar
atviksins var veginum lokað vegna
snjóflóðahættu kl. 21.20 að sögn lög-
reglunnar á Ísafirði.
Björgunarsveitarmenn frá Bol-
ungarvík voru kallaðir út til að sækja
bílinn en nokkru fyrr hafði lögreglan
komið mönnunum tveimur til aðstoð-
ar en skilið bílinn eftir.
Undanfarna daga hefur verið
snjóflóðahætta á Vestfjörðum og er
þetta í annað skipti á stuttum tíma
sem bíll lendir í miklu návígi við
snjóflóð.
Óku inn í
snjóflóð
♦♦♦