Morgunblaðið - 12.02.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 15
MENNING
BÆKUR á vegum útgáfurisans
Harper-Collins verða héðan í frá
aðgengilegar á netinu án endur-
gjalds í gegnum vefsíðu fyrirtæk-
isins. Hægt verður að fletta í
gegnum sumar bækur og jafnvel
lesa þær í heild sinni. Þetta er
gert til þess að auka bóksölu og
gefa viðskiptavinum sem versla á
netinu sömu tækifæri og þeim sem
kaupa bækur í hefðbundnum bóka-
búðum til þess að fletta bókum og
kynna sér innihald þeirra áður en
kaupin ganga í gegn.
Meðal fyrstu verkanna sem
hægt verður að skoða hjá Harper-
Collins eru nýjasta skáldsaga
Paulo Coelho, The witch of Porto-
bello og matreiðslubók eftir sjón-
varpskokkinn Robert Irvine.
„Þetta er eins og að taka plastið
utan af bókinni,“ sagði Jane Fried-
man forstjóri útgáfunnar. „Besta
leiðin til þess að selja bækur er að
leyfa kúnnanum að lesa innihald-
ið.“
Næsta árið verða valdir titlar
settir á vefsíðuna og í hverjum
mánuði verður boðið upp á bók
eftir Paulo Coelho.
Ókeypis
aðgangur
Metsölubók Nornin frá Portobello
er aðgengileg á netinu.
LEIKRITINU Óþelló, Desdemóna
og Jagó sem frumsýnt var 30. janúar
á litla sviði Borgarleikhússins hefur
verið boðin þátttaka á Lókal, al-
þjóðlegu leiklistarhátíðinni sem fer
fram í Reykjavík í byrjun mars. Sýn-
ingin er samvinnuverkefni Drauma-
smiðjunnar, Leikfélags Reykjavíkur
og Íslenska dansflokksins.
Óvenjuleg leikgerð Gunnars I.
Gunnsteinssonar sem byggist á leik-
ritinu Óþelló eftir Shakespeare hef-
ur vakið athygli en uppfærslan er at-
hyglisverð tilraun í íslensku
sviðslistaumhverfi.
Í sýningunni eru aðeins þrjú hlut-
verk. Óþelló dansar Brad Sykes.
Desdemónu leikur heyrnarlausa
leikkonan Elsu G. Björnsdóttur og
Jagó leikur Hilmir Snær Guðnason.
Aðrir aðstandendur sýningarinnar
eru Ástrós Gunnarsdóttir danshöf-
undur, Vignir Jóhannsson myndlist-
armaður gerir leikmyndina og
María Ólafsdóttir hannar bún-
ingana. Lýsingu annast Magnús
Arnar Sigurðsson og tónlistina sem-
ur Rúnars Þórissonar gítarleikari.
Leikstjóri er Gunnar I. Gunn-
steinsson. Uppsetningin hlaut styrkt
frá leiklistarráði.
Óþelló
á Lókal
Óþelló Elsa og Hilmir Snær.
SAGNFRÆÐINGA-
FÉLAGIÐ verður með hádeg-
isfyrirlestur í dag kl. 12.05 í
Þjóðminjasafninu. Unnur
María Bergsveinsdóttir spyr
þeirra spuringa sem varðveisla
munnlegra heimilda vekur auk
þess sem skyggnst verður í
geymslur íslenskra safna.
Munnleg saga hefur í seinni
tíð hlotið fulla viðurkenningu
sem sagnfræðileg aðferð og
nýtur sívaxandi vinsælda meðal þeirra sem fást
við samtímasögu. Enn sem komið er er bein íhlut-
un fræðimannsins í tilurð þeirra heimilda sem
hann fæst við þó sterkt einkenni aðferðarinnar,
sér í lagi hér á Íslandi. Aðgangur ókeypis.
Fræði
Hvað er að heyra af
munnlegri geymd?
Unnur María
Bergsveinsdóttir
Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM á
morgun kl. 12.30 í Norræna
húsinu leikur Símon H. Ív-
arsson gítarverk eftir Gunnar
Reyni Sveinsson og Manuel de
Falla. Í frétt um tónleikana
skrifar Símon: „Í músíkölskum
heimi Gunnars Reynis Sveins-
sonar rann sígaunablóð í þeim
skilningi hversu víða um heim
hann fór og hve víða hann
staldraði við. Sem barn vakti
hann athygli sem dansari og steppari í danssýn-
ingarflokki Rigmor Hansen í Reykjavík og vann
sér inn vasapeninga með því að leika á munn-
hörpu, blístra og jóðla fyrir fólk.“ Gunnar Reynir
lést í lok janúar og er jarðsunginn í dag.
Tónlist
Símon minnist
Gunnars Reynis
Símon H.
Ívarsson
UM helgina var opnuð sýning
á málverkum Helgu Magn-
úsdóttur í Listhúsi Ófeigs á
Skólavörðustíg 5.
Helga stundaði nám í
Myndlistaskóla Reykjavíkur
árin 1984-85 og Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1985-89.
Hún brautskráðist úr mál-
aradeild. Helga hefur haldið
margar einkasýningar og tek-
ið þátt í samsýningum bæði
hér á landi og í Grikklandi, en þar hefur hún dval-
ið nokkra mánuði í senn síðustu 13 ár. Verk
Helgu bera merki uppruna hennar og langvista í
Eyjahafi. Sýningin verður opin á almennum
verslunartíma og lýkur 5. mars.
Myndlist
Helga Magnús-
dóttir hjá Ófeigi
Helga
Magnúsdóttir
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavik 2008
verður haldin dagana 15. maí til 5.
júní. Myndlist verður í aðalhlutverki
á þessari hátíð, svipað og var árið
2005, en með nokkuð öðrum hætti
þó, að sögn Þórunnar Sigurð-
ardóttur, listræns stjórnanda hátíð-
arinnar. Þetta þýðir ekki að aðrar
listgreinar fái ekki sitt svigrúm.
Meðal stórviðburða á Listahátíð í ár
verða tónleikar Waynes Shorters og
kvartetts hans. Fréttir af myndlist-
arþætti hátíðarinnar hafa spurst er-
lendis, og segir Þórunn að það muni
allt fyllast af erlendu myndlistarfólki
í Reykjavík í vor. „Viðbrögðin við
myndlistarþættinum eru ótrúleg.
Það sem vekur mest viðbrögð er
stóra sýningin í Hafnarhúsinu sem
við vinnum í samvinnu við Serpent-
ine í London, en það eru Ólafur Elí-
asson og Hans Ulrich Obrist sem
eru höfundar verkefnisins. Það teng-
ist mjög vísindum, með þátttöku
bæði listamanna og vísindamanna.“
Þórunn segir að myndlistin sé um-
fangsmeiri en árið 2005. Nú eru sýn-
ingarstjórarnir margir, en var að-
eins einn þá.
Margir vilja koma og sjá
Þórunn segir að vegna þess hve
vel gekk 2005, og vegna þess hve
umfjöllun um myndlistina þá rataði í
fína miðla erlendis þá, séu margir
sem vilji koma aftur, og fleiri sem
hafi frétt af hátíðinni og vilji koma
nú að upplifa stemninguna. „Það
verður fullskipað,“ segir Þórunn en
sýningarhald spannar landið allt, frá
austasta austri til vestasta vesturs.
Meðal annarra sýninga má nefna
íslenska samtímasýningu á Kjar-
valsstöðum, en þar verða verk lands-
lagsarkitektsins Mörthu Schwarz
einnig sýnd. List andspænis arki-
tektúr er yfirskrift sýningar sem
verður í Listasafni Íslands en þar
koma við sögu Steina Vasulka, Finn-
bogi Pétursson, Elín Hansdóttir,
Monica Bonvicini og Franz West.
Start Art verður með stóra sýningu
á verkum Rúríar, króatísk sam-
tímalist verður í Galleríi 100°. Paul
Armand Gette og Halldór Ásgeirs-
son sýna í Listasafni ASÍ, Ný-
listasafnið sýnir verk Karls Holmq-
vists, kínversk samtímalist verður í
Listasafninu á Akureyri, Björn Roth
stýrir sýningum á Austurlandi og
lengi mætti áfram telja.
„Við erum að undirbúa blaða-
mannafundi í New York og í Serp-
entine-galleríinu í London til að
kynna þessa dagskrá enn frekar. Við
viljum koma íslenskri myndlist al-
mennilega á kortið og það er átak,
en möguleikarnir eru miklir, því
fólki finnst þetta spennandi.“
Myndlistin verður í öndvegi á Listahátíð og fjöldi gesta kemur að utan til að skoða
Djassfólk fær Wayne Shorter
„ÞEIR eru alveg svakalega
skemmtilegir,“ segir Þórunn Sig-
urðardóttir, listrænn stjórnandi
Listahátíðar, um Wayne Shorter og
kvartett hans, sem hún sá og heyrði í
Liverpool fyrir skemmstu. Með hon-
um í kvartettinum eru píanóleik-
arinn Danilo Perez, bassaleikarinn
John Patitucci og trommuleikarinn
Brian Blade. „Djassgagnrýnendur
kusu þessa grúppu í fyrra djass-
grúppu ársins 2006.“
Með Art Blakey og Miles Davis
Wayne Shorter saxófónleikari á
að baki langan og farsælan feril í
djassinum. Hann er 75 ára en hóf
feril sinn á árunum eftir stríð og
spilaði um tíma bæði með Horace
Silver og með Djasssendiboðum Arts
Blakeys. Það var ekki af neinni neyð
sem hann hætti með Blakey, það var
vegna þess að sjálfur Miles Davis
suðaði og nauðaði í honum að koma í
kvintettinn til sín, sem arftaki Johns
Coltraines. Wayne Shorter spilaði
svo með Miles Davis-kvintettinum í
sex ár, eða þar til hann stofnaði sína
eigin sögufrægu sveit, Weather Re-
port, með félaga sínum úr Miles
Davis-kvintettinum, Joe Zawinul.
Með Weather Report urðu þeir
frumherjar í djassbræðingi og höfðu
gríðarleg áhrif á fjölda tónlistar-
manna, eins og fusionrokksveitina
Steeley Dan, Joni Mitchell, Stevie
Wonder og fleiri. Wayne Shorter
hefur hreppt níu Grammy-verðlaun
um dagana fyrir eigin tónsmíðar og
hljóðfæraleik, meðal annars með
Herbie Hancock fyrir lag þeirra um
Aung Sun Suu Kyi á plötunni 1+1.
Veðurfrétta-
maðurinn
Listahátíð í Reykjavík var fyrst haldin árið 1970. Síðustu árin hefur verið
efnt til fjölmargra samstarfsverkefna við listamenn, listastofnanir erlend-
is, og áhersla lögð á að samstarfið opni einnig íslenskri list leið til útlanda.
Listahátíð sækir og sendir
Wayne Shorter Á langan feril að baki; er enn að sópa að sér verðlaunum.
KOMA rússneska fiðluleikarans
Shlomo Mintz til Íslands og tón-
leikar hans í Grafarvogskirkju á
sunnudag voru viðburður. Æðru-
leysi hans, alþýðlegt viðmót og
látleysi vöktu eftirtekt. Vísuorð
Einars Ben: „Láttu smátt, en
hyggðu hátt,“ áttu svo sannarlega
við, því í þessum yfirlætislausa
manni bjó andi risans. Flest látum
við okkur nægja að lifa lífinu á
sem þægilegastan máta; við ögr-
um sjálfum okkur kannski stöku
sinnum, en ekki meir en við þolum
með góðu móti og ekki meir en
nauðsynlegasta fyrirhöfn krefur.
Að kanna mörk þess mögulega í
mannlegri tilvist er fyrir aðra. Þá
tala ég ekki bara um erfiðleika,
íþrótt eða líkamlega færni, heldur
líka mörk þess sem andinn getur.
Shlomo Mintz lék hér 24 Kaprísur
eftir Nicolo Paganini, verk sem er
svo flókið og erfitt, að aðeins örfá-
ir fiðluleikarar ráða við að leika
það allt. Hann gerði meira en að
spila. Hann fyllti þetta fingrarím
unaðslegri músík. Það var gríð-
arlegt afrek og stórkostleg
reynsla að fylgjast með ferðalagi
hans á mörkum þess mögulega.
Tónleikar Shlomo Mintz voru
sýnikennsla í því að mörk einbeit-
ingar og ögunar mannsandans
liggja óravíddum ofar en þá sem
þar voru hefur sennilega nokkru
sinni grunað. Hvernig er þetta
hægt? Jú, Shlomo Mintz gerði
það. Hann stóð þarna og gerði
þetta. Hvað getur maður sagt?
Svona nokkuð upplifir maður
kannski einu sinni á lífsleiðinni ef
maður er heppinn. Maður lýtur í
duftið og þakkar í djúpri lotningu.
Á mörkum þess mannlega
TÓNLIST
Grafarvogskirkja
Shlomo Mintz lék 24 Kaprísur op. 1 eftir
Nicolo Paganini. Laugardag kl. 17.
Einleikstónleikarbbbbb
Bergþóra Jónsdóttir
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þrekvirki Eftir tónleikana spjallaði Shlomo Mintz við þá tónleikagesti sem
höfðu áhuga á að hitta hann og gaf aðdáendum eiginhandaráritun.