Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „NEI, ekki er það nú alveg svo gott,“ segir Rögnvaldur Gunnars- son, forstöðumaður hjá Vegagerð- inni, spurður hvort lokið verði við að malbika hringinn í kringum landið næsta sumar. En það styttist í það. Nú er eftir að setja bundið slitlag á um 65 km af hringveginum og að loknum fram- kvæmdum sem fyrirhugaðar eru næsta sumar verða aðeins um 50 km ómalbikaðir. Á þessu ári verður m.a. ráðist í að binda Þvottár- og Hvalnesskriður, milli Hafnar og Djúpavogs, slitlagi. Leiðin er rúmlega fjórir km að lengd. Einnig verður vegkafli um Arnórsstaðamúla malbikaður í sum- ar sem er um 6 km leið. Lengsti malarkaflinn á hringveg- inum, um 45 km, er um Skriðdal og Breiðdal. Hann bíður malbikunar enn um sinn en fjárveitingar eru fyr- ir uppbyggingu vegarins um Skrið- dal á næsta ári og því þarnæsta. Öxi byggð upp á næsta ári Upp úr botni Skriðdalsins liggur fjallvegurinn Öxi yfir til Egilsstaða. Á næsta ári stendur einnig til að byggja þann veg upp. Hann verður þó áfram malarvegur. Þvottár- og Hvalnesskriður eru óstöðugar og grjóthrun þar verður oft til þess að vegurinn er ófær. Hef- ur grjóthrun ágerst undanfarin ár sökum tíðra skipta milli frosts og þíðu. Skapar þetta stöðuga hættu og er kostnaðarsamt að hreinsa veginn sem nauðsynlegt er nær daglega. Til ýmissa ráða verður gripið á næst- unni til að hefta skriðuföll og til að tryggja öryggi vegfarenda uns jarð- göng verða gerð undir Lónsheiði. Framtíðin liggur í göngum M.a. verður sett vegrið sjávar- megin í skriðunum, samtals um 2.860 m. Einnig verða settir grjót- kassar fjallsmegin meðfram til að varna grjóthruni inn á veg. Var þetta verkefni boðið út á síð- asta ári og á að verða lokið fyrir 1. september næstkomandi. Veglína helst að mestu óbreytt, samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum. Umferð um skriðurnar eru um 220 bílar á dag að meðaltali en 400 bílar á dag yfir sumarið. „Þetta er aðeins bráðabirgða- lausn, framtíðarlausnin er göng undir Lónsheiði,“ segir Rögnvaldur og bendir á að inni í samgönguáætl- un til tólf ára, sem ekki náðist að samþykkja á þingi sl. vor, hafi m.a. verið fjallað um göng undir Lóns- heiði. Styttist í að hringvegurinn verði að fullu malbikaður Ljósmynd/Vegagerðin Skriður Grjóthrun í Hvalnesskriðum er nær daglegt brauð. Setja á þar upp grjótkassa til að hindra hrun og setja bundið slitlag á veginn í sumar. Þvottár- og Hval- nesskriður verða bundnar slitlagi SAGA Capital Fjárfestingarbanki ætlar að höfða einkamál gegn fjárfestingarfélaginu Insol- idum ehf., en Hæstiréttur kvað í gær upp úr um að ekki væri hægt að knýja fram breytingu á hlutaskrá einkahlutafélags með innsetningar- gerð. Til þess þyrfti fyrst dóm í venjulegu einka- máli sem fullnægt yrði með aðfarargerð. Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavík um að hafna þeirri kröfu fjárfesting- arbankans Sögu Capital, að verða skráður eig- andi allra hluta í Insolidum, fjárfestingarfélags Daggar Pálsdóttur og Páls Ágústs Ólafssonar, og fá umráð yfir hlutaskrá félagsins. Hæstiréttur var sömu skoðunar og héraðs- dómur um að skyldu til breytinga á hlutaskrá yrði ekki fullnægt með beinni aðfarargerð. Þá taldi Hæstiréttur að Saga hefði ekki gert viðhlít- andi grein fyrir því hvaða heimild gæti staðið til þess að bankinn fengi umráð hlutaskrárinnar. Málsatvik eru þau, að Insolidum keypti stofn- fjárbréf í SPRON að nafnverði 47,5 milljónir á genginu 11,797232. Kaupverðið nam því 560.368.521 krónu. Hafði Saga Capital milli- göngu um viðskiptin og lánaði Insolidum 582 milljónir króna vegna kaupanna. Til tryggingar skuld samkvæmt samningnum voru auk verðbréfa í eigu Insolidum settir að veði með tveimur handveðssamningum allir hlutir Daggar og Páls Ágústs í Insolidum. Gengi hlutabréfa SPRON lækkaði mjög eftir að bréfin voru skráð í Kauphöll Íslands í haust. 8. nóvember 2007 tilkynnti Saga Capital gjald- fellingu skuldarinnar samkvæmt lánssamningn- um og skoraði á Insolidum að greiða kröfuna eða leggja fram fullnægjandi tryggingar innan tveggja sólarhringa. Ella myndi bankinn, án frekari viðvörunar, neyta réttar síns samkvæmt handveðssamningunum. Þau Dögg og Páll Ágúst urðu ekki við áskorun Saga Capital sem krafðist þá beinnar aðfarar hjá þeim. Gerði Saga Capital þá kröfu að hluta- skrá Insolidum yerði breytt þannig að Saga Capital yrði skráður eigandi allra hluta í Insol- idum. Saga Capital Fjárfestingarbanki segir í yf- irlýsingu að af dómnum leiði, að til þess að inn- heimta kröfur sínar á hendur Insolidum þurfi Saga Capital að fara í venjulegt innheimtumál en slíkur málarekstur getur tekið langan tíma. Þessi niðurstaða skapi fjármálafyrirtækjum erfiðleika við að ná fram fullnustu umsaminna krafna gagnvart viðsemjendum sínum, en þetta sé í fyrsta skiptið sem slík krafa sé tekin fyrir af íslenskum dómstólum. Í niðurstöðu Hæstaréttar felist hins vegar enginn dómur um gildi krafna Saga Capital á hendur Insolidum, þar sem kaup- samningur, lánssamningur og tryggingaréttindi séu í fullu gildi á milli aðila. Ætlar í einkamál gegn Insolidum Í HNOTSKURN »Eigendur Insolidum unnu málið í héraðs-dómi og í Hæstarétti, en þau töldu að ekki hefði verið rétt staðið að sölu á hlutum í Spron til félagsins. »Bankinn segist nú munu leita hefðbund-inna innheimtuúrræða í því skyni að tryggja hagsmuni sína til hins ýtrasta og jafn- framt láta reyna á ábyrgð stjórnenda félagsins komi í ljós að það hafi ekki lengur burði til þess að standa við skuldbindingar sínar. STJÓRN starfsmannafélags Orku- veitu Reykjavíkur hvetur stjórn fyrirtækisins og borgarstjórn Reykjavíkur til að standa vörð um hið góða orðspor Orkuveitunnar og veita starfsfólki og stjórnendum fyrirtækisins stuðning á um- brotatímum. „Orkuveitan er traust og ábyrgt fyrirtæki í almannaþjónustu sem veitir viðskiptavinum sínum að- gang að nægri orku og vatni með fullnægjandi gæðum og afhending- aröryggi. Orkuveitan er mikilvægt þjónustufyrirtæki sem rekið er í þágu almennings og á ekki að vera bitbein stjórnmálamanna. Deilur á opinberum vettvangi um hlutverk Orkuveitunnar og vangaveltur um framtíð stjórnenda eru óheppilegar og til þess fallnar að skapa óvissu og skaða starfsanda og ímynd fyr- irtækisins. Orkuveitan veitir meira en helmingi landsmanna grunn- þjónustu og eigendur eru fleiri en Reykvíkingar. Starfsumhverfi og starfsfriður í Orkuveitunni er því ekki einkamál þeirra,“ segir í álykt- un starfsmannafélagsins. Hvetur félagið stjórnmálamenn til að stuðla að því að friður skapist um starfsemi fyrirtækisins og að starfsfólki verði búið friðvænlegt andrúmsloft. OR verði ekki bitbein stjórn- málamanna ERLENDUR karlmaður sem sætt hefur gæsluvarðhaldi og farbanni frá lokum nóvember vegna bana- slyssins í Reykjanesbæ, þegar ekið var á fjögurra ára dreng, er laus úr farbanni og frjáls ferða sinna. Far- bannið rann út í gær og taldi lög- regla ekki efni til að óska eftir áframhaldandi farbanni hjá dóm- stólum. Málið er ekki fullrannsakað að sögn lögreglu og ekki liggur fyrir hvort rannsóknin leiðir til ákæru. Maðurinn getur nú yfirgefið landið án afskipta lögreglu, en ef til þess kemur að ákæra verði gefin út, mun lögreglan beita sér fyrir því að hún verði birt manninum erlendis. Rannsóknin hingað til hefur leitt í ljós hvaða bíl var um að ræða í banaslysinu en hinn grunaði, sem handtekinn var skömmu eftir slys- ið, hefur ávallt neitað sök um að hafa ekið bílnum í umrætt sinn. Laus úr far- banni lögreglu Eftir Andra Karl andri@mbl.is TILTÖLUEGA fámennur hópur, eða á milli fimmtán og tuttugu manns, stundar ferjuflug að stað- aldri. Egill Guðmundsson flugmað- ur hefur farið á þriðja tug ferða, ýmist frá Bandaríkjunum til Evr- ópu eða öfugt. Hann kannaðist við breska flugmanninn sem brotlenti Cessna 310-vélinni um 50 sjómílur vestur af Keflavík á mánudag. Egill segir hann hafa verið mjög færan flugmann og einn af þeim sem eru í fullu starfi við ferjuflug. Leit stóð yfir í allan gærdag og fram á kvöld. Meðal annars var notast við varð- skip Landhelgisgæslunnar og TF- SYN ásamt flugvél danska flug- hersins. Enginn árangur varð af leitinni og er flugmaðurinn talinn af. Ekki er unnt að birta nafn hans að svo stöddu. Flugmenn eru oftast nær afar vel búnir þegar kemur að svo löngum flugleiðum og þannig segist Egill ávallt vera í flotgalla upp að mitti auk þess sem björgunarbátur er um borð í vélunum. Spurður út í hvort það sé lágmarksbúnaður ferjuflugmanna segir Egill svo vera. Hann segir jafnframt að breski flugmaðurinn hafi að sögn þeirra sem þekkja til ávallt verið vel útbúinn. „Félagi minn tjáði mér að hann væri alltaf með sérstakan neyðarsendi – ekki aðeins neyðar- sendi flugvélarinnar – sem sendir í gegnum gervihnött, svokallað E- pirb. Um leið og sá sendir kemst í snertingu við vatn fer hann í gang. Ef hann hefur ekki farið í gang þykir mér það afar undarlegt. Sendirinn er vatnsþéttur og ætti að senda út þó svo að hann sé undir yfirborði sjávar.“ Slysum fækkað mikið Flugleið breska flugmannsins er mjög þekkt leið ferjuflugmanna; frá Goose Bay í Kanada til Narsarsuaq á Grænlandi og þaðan til Reykja- víkur. Þessir tveir leggir taka um fjórar klukkustundir hvor. Frá því að GPS-tæknin fór að ryðja sér til rúms hefur slysum á þessari flug- leið fækkað umtalsvert en nokkuð var um slys á árum áður. Ein vél fórst þó á Grænlandi á síðasta ári, og þekkti Egill flugmanninn sem stýrði henni. Egill fór síðast í ferjuflug í jan- úar sl. og var þá í samfloti við fimm aðra flugmenn á alls kyns flug- vélum. „Það var eiginlega fyrir til- viljun, við hittumst allir í Goose Bay í Kanada og urðum samferða yfir,“ segir Egill og bætir við að sú ferð hafi gengið afar vel. Hætt- urnar eru hins vegar alltaf fyrir hendi, sérstaklega á veturna. „Ef það er umtalsverður mótvindur, 40- 50 hnútar, þá getur munað því hvort flugmaður nær inn á elds- neytinu eða ekki. Einnig ef það hleðst ís á vélina, þá verður hún töluvert þyngri og þá er farið að vinna á þessu aukabensíni sem þarf að hafa við lendingu.“ Verður vanabindandi Þar sem afar fáir virðast taka upp ferjuflug liggur beinast við að spyrja Egil út í sína fyrstu ferð. „Í fyrsta skipti sem ég fór var ég með í maganum og að farast úr stressi – raunar í annað og þriðja skiptið einnig. Eftir það fór maður að læra inn á þetta og þær hættur sem ber að varast. Svo verður þetta eig- inlega vanabindandi.“ Egill starfar sem flugmaður en ferjuflugið er þó fremur áhugamál. Hann segist ekki vilja sleppa því, þar sem þær flugleiðir sem farnar eru séu svo skemmtilegar og marg- ir sérstakir staðir. Hann reiknar allt eins með að fara í næsta ferju- flug í mars nk., þótt það sé ekki staðfest. Alltaf með sérstakan neyðarsendi Ljósmynd/Egill Guðmundsson Ekki hættulaust Fallegt getur verið um að litast á leiðinni frá Grænlandi.  Íslenskur ferjuflugmaður segir breska flugmanninn sem brotlenti á mánudag hafa verið afar færan  Margar hættur fylgja flugi yfir hafið á veturna, mikill mótvindur getur haft áhrif og einnig ísing

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.