Morgunblaðið - 13.02.2008, Síða 13

Morgunblaðið - 13.02.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● LOKS birti yfir mörkuðum í gær, úr- valsvísitalan OMX I15 hækkaði um 3,2% og lauk í 5.005 stigum. Mest munaði þar um 7,3% hækkun Exista og 6,3% hækkun FL Group. Eik banki lækkaði mest, eða um 3,3%. Viðskipti með bréf Kaupþings námu 6,7 milljörðum og 5 milljörðum með bréf Glitnis. Hlutabréfavelta nam um 15 milljörðum króna, heild- arvelta nam 36,7 milljörðum. Trygg- ingamarkaðir báru sig verr en hluta- bréfamarkaðir og hækkaði álag bankanna um 17-27 punkta. Vísitalan í 5.005 stig ● VÍSITALA krón- unnar hefur verið á uppleið síðustu daga. Við opnun markaða í gær veiktist krónan enn meir og fór þá evran í fyrsta sinn yfir 100 krónur og var um og yfir því gengi í tæpa klukkustund, að því er segir í Vegvísi Landsbank- ans. Krónan styrktist þó á ný þegar hlutabréfamarkaður fór að hækka. Lokagildi gengisvísitölunnar var 129,55, og hafði krónan styrkst um 1,2% yfir daginn. Mestri lægð síðustu sex mánuði náði krónuvísitalan í byrjun nóv- ember, þá var einmitt metlægð Bandaríkjadals gagnvart krónunni. Síðan þá hefur gengisvísitalan hækkað um 15,4%. Krónan fór yfir 100 evrur en styrktist svo ● GREININGARDEILD svissneska bankans UBS hefur í nýju fréttabréfi sínu hækkað verðmat sitt á hluta- bréfum Kaupþings. Markgengi bréf- anna er nú, að mati bankans, 650 krónur á hlut en var áður 600 krónur. Gengi Kaupþings er enn sem fyrr hærra en markgengið og því mælir UBS með því að fjárfestar selji bréf sín. Þá hefur UBS lækkað markgengi Glitnis í 17 krónur á hlut úr 20 krón- um. Áfram er mælt með sölu. UBS hækkar Kaupþing en lækkar Glitni HAGNAÐUR Marel nam 6,1 milljón evra, um 608 milljónum króna, árið 2007, en var 159 þúsund evrur árið áður. Þar af nam hagnaður vegna hlutabréfa í hollenska félaginu Stork 4,6 milljónum evra. Handbært fé frá rekstri var 30,4 milljónir evra í árs- lok en var 63,1 árið 2006. Þær breyt- ingar má rekja til kaupa á hlutabréf- um í Stork NV og aukningar á hlutabréfum Marels. Hlutafé í Marel seldist fyrir 34,6 milljónir evra á árinu, og áttu lífeyrissjóðir þó nokk- urn þátt í þeim kaupum. Þá jukust sölutekjur um 39% og þær námu nú 290 milljónum evra en rekstrarhagnaður jókst um þriðjung og var nú 10 milljónir evra. Sölutekjur fjórða ársfjórðungs jukust um 9,7%, í 78,9 milljónir, og hagnaður tímabilsins var 3,4 millj- ónir í stað 0,5 milljóna taps árið áður. Hörður Arnarson, forstjóri Marel, segir árið hafa mótast af samruna Marel við Scanvægt, Delford og Carnitech, og ekki síst samningum um kaup á Stork. Stærð Marel Food Systems hafi nær fimmfaldast síðan ný stefna fyrirtækisins hafi verið kynnt árið 2006. Reiknað er með 8% rekstrarhagnaði á árinu 2008. Stork skilaði 75% af hagnaði Marels           (+! ! 4 ) )+! .   5    ! 5   # /  0 6 "   7   !#     1 8 ! ! ! " &'9& '9% 2*) 9 &&9 !! :$9 9% *( :9 # 3    (!  ;   ; " ! < /*  " GCHFD $9 9 3)"4 9 &9$ '9' "  9$ %9 *( :9 :9  9'  DIGF 9 9 2"4 "   C  !   C DCJH D Uppgjör Marel Food Systems halldorath@mbl.is Tilboðið hefur þó takmarkað gildi í heildarsamhengi markaðsóróans, því skuldabréfin sem Buffett falast eftir eru nú þegar talin með þeim öruggustu sem í boði eru. Greinendur á evrópskum mörkuð- um nefndu tilboð Buffett sem helsta áhrifavald hækkana þar. Bankar á borð við HSBC og Barclays leiddu 3,2% hækkun FTSE vísitölunnar, og jafnvel Credit Suisse sem tilkynnti helmings samdrátt í tekjum fjórða ársfjórðungs hækkaði um 2,5%. Vísi- tölur á Norðurlöndunum og megin- landi Evrópu hækkuðu einnig. „Hafa ekki áhyggjur hafi Buffett engar“ 800 milljarða dala tilboð Warrens Buffett jók trú fjárfesta Reuters Milljarðamæringur Þó fjölmiðlar hafi talað um að Buffett „hafi komið til bjargar“ tók hann sjálfur fram að aðgerðir sínar væru í hagnaðarskyni. Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is FJÁRFESTAR í Bandaríkjunum voru jákvæðir gagnvart hækkandi mörkuðum í gær, ekki síst eftir boð Warren Buffett um að endurtryggja skuldabréf útgefin af sveitarfélögum að virði 800 milljarða dala, tæplega 55 þúsund milljarða króna. Tilboðið, auk áætlana stjórnvalda um aðstoð til lánþega sem eiga í vanda með hús- næðisskuldir ýtti hlutabréfaverði upp. Þannig hækkaði Dow Jones vísitalan um 1,1% Standard & Poor’s um 0,7% en Nasdaq stóð í stað. Milljarðamæringurinn Buffett bauð þremur skuldatryggingar- félögum, MBIA, Ambac og FGIC, 50% álag á að yfirtaka skuldabréfin. Eitt þeirra hafnaði þegar í gær, en ekki er gefið upp hvert það er. Boðið þykir dýrt og því nokkrar líkur á því að öll félögin hafni því, en gengi þeirra allra hefur lækkað nokkuð síðustu daga. Þá nær það aðeins til sveitarfélagabréfa, ekki húsnæðis- lánavafninga. „Tilboðið setur traust gólf undir fætur skuldatryggjenda,“ segir einn viðmælenda Wall Street Journal. „Það segir fjárfestum að ef Warren Buffett hefur ekki áhyggjur, þurfi þeir ekki að hafa áhyggjur heldur.“ Hið aukna traust til félaganna myndi hindra að mat þeirra félli úr Aaa, en matslækkun myndi torvelda félögunum að standa við skuldir. Í HNOTSKURN »Einstök dæmi um Buffett-áhrifin vestanhafs í gær voru hækkanir á bréfum General Mot- ors, þrátt fyrir 722 milljóna dala tap á fjórða ársfjórðungi 2007, og 3,4% hækkun American Int- ernational Group (AIG). »AIG, eignamesta trygginga-félag heims, leiðrétti á mánu- dag að tap vegna húsnæðislána væri fimm ma. dala, en ekki einn, eins og áður hafði komið fram. Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is ÓTTINN um stóráfall í íslenskum fjármálamarkaði eykst og ekki er ósennilegt að eitt af stærstu fjár- festingarfélögum Íslands verði óróanum á fjármálamörkuðum að bráð, samkvæmt frétt danska blaðsins Børsen í gær. Að sögn blaðsins er Exista talið líklegast en samkvæmt útreikningum grein- ingardeildar Nordea, sem Børsen vitnar til, er eigið fé Existu nánast uppurið og dregur blaðið þá álykt- un að félagið sé nánast tæknilega greiðsluþrota. Morgunblaðið hefur undir hönd- um útreikninga Nordea og er þeirri aðferð beitt að draga alla viðskiptavild og mismuninn á bók- færðu virði og markaðsvirði Sampo og Kaupþings frá eigin fé Existu. Að lokum er rýrnun á markaðsvirði skráðra eigna það sem af er ári dregin frá „hreins- uðu“ eigin fé og þá fæst niðurstað- an 62 milljónir evra, jafngildi um 6,1 milljarðs króna á gengi gær- dagsins. Børsen hefur eftir Mich- ael West Hybholt, yfirmanni hluta- bréfagreiningar hjá Nordea, að þegar eingöngu er litið til mark- aðsvirðis skráðra eigna og litið fram hjá viðskiptavild standi eftir að skuldir félagsins séu um það bil jafnmiklar og eign þess í hluta- bréfum. Spurður um ástandið á ís- lenskum fjármálamarkaði segir Hybholt fjárfesta lengi hafa varað við íslenskum bönkum. Krosseign- arhaldið auki áhættuna á að verði eitt félag gjaldþrota muni það taka fleiri með sér í fallinu. Þess ber að geta að markaðs- virði allra skráðra eigna Existu hækkaði í gær. Sampo skilaði upp- gjöri sem var töluvert yfir spám og í kjölfarið mun Exista fá um 14 milljarða króna í arð frá félaginu. Vænta má að sú upphæð verði not- uð til lækkunar á bókfærðu virði Sampo í bókum Existu. Gengi Sampo hækkaði um 6,24% í gær og Kaupþings um 2,4% og þegar útreikningar Nordea eru uppfærð- ir með tilliti til þessara breytinga hefur eigið fé Existu meira en fimmfaldast miðað við þá niður- stöðu sem frétt Børsen er byggð á. Von á 14 milljarða arði frá Sampo Børsen óttast áfall á íslenskum markaði og vísar til útreikninga á eignum Exista !  !  !  ! ! ! ! ! ! ! ! !  (  )*+  ,(  ( + % #"$+ " , # , GUÐNI Að- alsteinsson, framkvæmda- stjóri fjárstýr- ingar hjá Kaup- þingi, segir að umfjöllun The Sunday Times í Bretlandi um netreikning Kaupþings sé ekki sú jákvæð- asta. Miðað við það sem bankinn hafi þurft að upplifa annars staðar hafi hins vegar mátt eiga von á um- föllun sem þessari. „Þetta skelfir okkur ekkert. Um ein blaðaskrif er að ræða, á sama tíma fáum við mjög góða umfjöllun í öðrum blöðum, þar sem verið er að horfa á afurð okkar sem slíka og hvað við höfum fram að færa,“ segir Guðni og vísar þar til netbankareikningsins Kaupthing Edge sem bankinn fór af stað með í Bretlandi nýlega. Þetta er fimmta landið sem reikningurinn stendur til boða en fyrir eru Finnland, þar sem þetta hófst í október síðast- liðnum, Svíþjóð, Noregur og Belgía. Guðni segir umfjöllunina ekki hafa haft áhrif eftir helgina, hvorki á innlánaþróunina hjá Kaupþingi Singer Friedlander í Bretlandi né umræddan netbankareikning. Um- sóknir hafi verið jafnmargar og að undanförnu. Kaupþing hafi mætt álíka mótbyr í fyrstu í hinum lönd- unum en sparisjóðseigendur séð fljótt að verið væri að bjóða góð kjör og fasta vexti til ársins 2012. Að sögn Guðna mun það koma fram í uppgjöri fyrsta ársfjórðungs hvað reikningarnir vega þungt í heildar- innlánakörfu bankans. „Skelfir okk- ur ekkert“ Guðni Aðalsteinsson , )*  -   )*&.!/# $ 01)1 -  '  ' %  - .  /0! 1 -- 23 .  /0! 45  0! #6.  /0! .  - 0! !4 - / 7   89  .  /0! : /; 1 -0! 6  -  0! $ 0! '<=() '  >1  ?#@? !!0! AB 0! C 0! .+- ,/  0! %9 0! %  9% D B %  9<  <E# 4 -1 - #  .  /0! #F B 1 - 89  9.  /0! )G0 @ 0! A B    3 0! H   3 0!  0 ,    I B%  I! 1.  0!  / @ 0! 1 )2 3 '                                                                   H - /    A J-  : /'  ! !  ! !  ! !  ! !  !! !  ! ! !  !  ! !! ! ! ! !! ! !  ! !  ! ! ! ! !  !  !   !! > !! > > > >  !! > > K  K  K  K K   K  K  K K K   K  K  K  K K > > >  > > K K   K   K K   K    K K  K K  K   K  > >   K #@3 2 - /      > >  >  > > > > > > *   2 -!2                       ! ! ! ! !    ($L4 ($L5     + + ($L6 71L   + + *D"  )  M       + + #A'4 *%L   + + ($L8 ($L0     + + ● VIÐSKIPTAÞING Viðskiptaráðs Ís- lands fer fram í dag á Nordica Hilton hótelinu, þar sem meginviðfangs- efnið er íslenska krónan og hvort hún sé byrði eða blóraböggull. Kynna á könnun meðal aðildarfélaga ráðs- ins um krónuna en helstu nið- urstöður eru þær að 63% sögðust vilja fá annan gjaldmiðil en krónuna. Á þinginu verður fjallað um kosti Ís- lands hvað varði fyrirkomulag pen- ingamála, hvort íslenska krónan eigi sér framtíð og hvaða aðrir kostir séu í stöðunni. 63% vilja annan gjald- miðil en krónuna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.