Morgunblaðið - 13.02.2008, Page 15

Morgunblaðið - 13.02.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 15 MENNING FYRSTA hefti Tímarits Máls og menningar árið 2008 er komið út. Í heftinu er meðal annars kafað í „vonlensku“ hljómsveitarinnar Sigur Rós- ar, tilbúið tungumál sem sveit- in bjó til og nefndi eftir laginu „Von“. Í heftinu má einnig finna efni frá Steinari Braga, Thor Vilhjálmssyni, Árna Ib- sen, Bergþóru Jónsdóttur og aðra þjóðkunna höfunda. Þá er frásögn Kristínar Guðmundsdóttur af ástum Þór- bergs Þórðarsonar og Sólu birt í heilu lagi. Rit- stjóri TMM gerir upp „Jónasarárið“ 2007 og sjö ritdómar eru í heftinu, svo eitthvað sé nefnt. Tímarit „Vonlenska“ Sigur Rósar krufin Sigur Rós á kápu TMM. NÚ FER hver að verða síð- astur til að eiga stund með myndlistarkennara í Listasafni Árnesinga, á „Stefnumóti við safneign“ því seinasti kenn- arinn verður gestum til að- stoðar á sunnudaginn, 17. febr- úar. Þá gefst mönnum tækifæri til að reyna sig með litum og nokkra sunnudaga hafa myndlistarkennarar verið þeim til aðstoðar. Litir og pappír eru á staðnum. Á sýningunni eru valin verk úr eigu safnsins, megnið af þeim úr gjöf Bjarn- veigar Bjarnadóttur og sona. Elsta verkið er sjálfsmynd Ásgríms Jónssonar frá árinu 1900. Myndlist Gestir spreyta sig á myndlistinni Leikið að litum í listasafni. KRISTJANA Stefánsdóttir söngkona og Agnar Már Magnússon píanóleikari halda tónleika á Gamla Bauk á Húsa- vík föstudagskvöldið nk., 15. febrúar, kl. 21. Gestasöngvari verður Hús- víkingurinn Ína Valgerður Pét- ursdóttir og er aðgangseyrir 1.500 kr. Kristjana og Agnar hafa starfað saman í 11 ár og gefið út þrjár plötur saman. Á föstudag og laugardag halda þau námskeið fyrir söng- og hljómborðsnema Tónlistarskóla Húsa- víkur. Í lok námskeiðs á laugardag halda nem- endur tónleika, í sal Borgarhólsskóla kl. 15. Tónlist Tvennir tónleikar og námskeið Kristjana og Agnar á góðri stund. SÆNSK-CHILESKI óperusöngv- arinn Tito Beltran var í gær dæmd- ur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga átján ára stúlku árið 1999. Héraðsdómur í Ystad í suður Sví- þjóð komst að þeirri niðurstöðu að sannað væri að Beltran væri sekur um verknaðinn. Auk þess að hljóta tveggja ára fangelsisdóm var honum gert að greiða konunni 1,1 milljón kr. í skaðabætur. Stúlkan var barnfóstra leikkon- unnar Moniku Dahlström-Lannes, en málið komst ekki upp á yfirborðið fyrr en í fyrra er leikkonan fór til lögreglunnar og lagði fram kæru, þar eð hún kvaðst ekki lengur geta búið yfir svo skelfilegu leyndarmáli. Atburðurinn átti sér stað eftir tón- leika, þar sem fjöldi frægra lista- manna var samankominn á hóteli. Barnfóstran fyrrverandi sagði í yf- irheyrslum að hún hefði farið til her- bergis Beltrans eftir tónleikana til að fá hann til að nudda bak sitt sem hana verkjaði í. Eftir það hefði hann þvingað hana til samræðis við sig. Fjöldi þekktra einstaklinga vitn- aði með stúlkunni, þar á meðal Eurovision-stjarnan Carola, sem varð vitni að uppnámi stúlkunnar eftir brotið. Tito Beltran er 42 ára, fæddur í Chile, en hefur búið í Svíþjóð frá 1986. Eftir að málsóknin á hendur honum hófst hefur hann margsinnis sakað Svía um rasisma í sinn garð, en jafnframt sagt að málaferlin væru runnin undan rifjum keppi- nauta sinna. Hann hótaði meðal ann- ars að brenna sænskt vegabréf sitt að málaferlum loknum. Tito Beltran söng hlutverk Edg- ardos í Luciu di Lammermoor í Ís- lensku óperunni árið 1992. Jón Ás- geirsson skrifaði um sýninguna og sagði: „Söngur Beltran í síðasta at- riði óperunnar var, ásamt geðveik- isatriðinu hjá Luciu, einn af há- punktum óperunnar og þar sýndi þessi ungi söngvari, að hann er lík- legur til stórra verka.“ Óperan Tito Beltrán og Sigrún Hjálmtýsdóttir í Luciu di Lamm- ermoor í Íslensku óperunni 1992. Tito Beltran fékk tveggja ára dóm Carola meðal vitna TOLKIEN Trust, góðgerðar- stofnun sem hefur umsjón með dán- arbúi rithöfundarins JRR Tolkien, hefur höfðað mál á hendur fram- leiðanda kvikmyndanna sem gerð- ar voru upp úr Hringadróttinssögu og hótar því að koma í veg fyrir gerð kvikmyndar upp úr bókinni Hobbitanum. Ástæðan er sögð sú að framleið- andi Hringadróttinssögu, New Line Cinema, hafi ekki greitt dán- arbúinu þann hluta hagnaðar af myndinni sem um hefði verið sam- ið. Tolkien Trust og bókaútgáfan Harper Collins, sem gaf bókina fyrst út, segir New Line Cinema ekki hafa greitt krónu af hagn- aðinum af myndunum. Tolkien Trust krefst 150 milljóna dollara greiðslu frá New Line Cinema. Hobbitinn í hættu Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÚT VIL ek – er íslensk list í útrás? er yfirskrift málþings sem Útflutn- ingsráð Íslands efnir til á morgun í samvinnu við Bandalag íslenskra listamanna, BÍL. Verður þar rætt um hvernig auka megi samstarf lista- og viðskiptalífs og gagnkvæma þekkingu til að mynda hagstæð út- rásartækifæri. Forseti BÍL, Ágúst Guðmunds- son, segir Íslendinga gera sér grein fyrir því almennt að íslensk list sé í útrás en málþinginu sé ætlað að varpa ljósi á frekari útrásarmögu- leika. „Það er ansi margt að gerast víða. Við vitum að það hafa aldrei verið þýddar eins margar íslenskar skáldsögur og nú á tíðum. Nú vitum við um þessa tónlistarmenn sem hafa náð fótfestu úti í heimi, o.s.frv,“ segir Ágúst. „Við lifum bara í heimi sem hefur talsvert breyst á und- anförnum áratug eða svo og sam- skipti Íslendinga við umheiminn eru orðin miklu, miklu meiri og þetta endurspeglast hjá okkur og kannski löngu kominn tími til þess að við tök- um upp umræðuna.“ Augun opnuð Hvað varðar möguleika á frekari samvinnu eða samstarfi viðskipta- og listalífs segir Ágúst engar ákveðnar hugmyndir uppi á borðinu en þingið sé einmitt til að varpa slík- um hugmyndum fram og ræða þær. Ágúst segir listir t.d. oft spunnar inn í vörukynningar fyrirtækja á er- lendri grundu. „Við spyrjum okkur kannski að því hvort ekki sé hægt að gera þetta með markvissari hætti og þarna er nú leitað til Dana sem hafa raunverulega gert það. Þeir hafa gert ákveðið, markvisst átak í því að koma danskri list á framfæri við um- heiminn.“ Ágúst vonast til þess að allir opni augun fyrir þessum möguleika, bæði listamenn og fulltrúar atvinnulífsins. Hann trúi því að slíkt samstarf sé öllum hollt, allir græði á því, við- skipta- og listamenn eigi samleið. „Auðvitað kemur þetta líka inn á það að einkaaðilar eru farnir að skipta sér miklu meira af listinni, farnir að koma miklu meira inn sem stuðn- ingsaðilar og áhugafólk um listalíf.“ Ágúst segir enga einangr- unarstefnu í gangi hjá íslenskum listamönnum, þeir leiti í síauknum mæli til fyrirtækja, t.d. banka. Hann tekur undir þær vangaveltur að það sé af sem áður var þegar ekki mátti nefna viðskipti og listir í sömu setn- ingu. Hinn augljósi tilgangur þings- ins sé að efla slíkt samstarf. Framsögumaður á fundinum á morgun verður Darriann Riber, ráð- gjafi á alþjóðasviði listaskrifstofu danska ríkisins, sem vinnur að því markvisst að koma danskri list á framfæri í öðrum löndum auk þess að efla danska menningu þar al- mennt, t.d. með dönskukennslu. Riber segir stuðning ríkisins vissulega mikinn í Danmörku við listir og menningu og þá útflutning um leið, rótgróin hefð sé fyrir hon- um í landinu. Danska ríkið verji ár- lega, í menningu og listir almennt, jafnvirði um fjögurra milljarða doll- ara, um 275 milljörðum íslenskra króna. Þá sé talinn með rekstur bókasafna, listasafna o.fl. Riber seg- ist ætla að fjalla á málþinginu um reynslu Dana af því að styðja við listir á alþjóðavettvangi, taka dæmi um slíkan stuðning og menning- arlega samvinnu við önnur ríki og margt fleira. Riber segir danska listamenn vilja láta líta á sig sem alþjóðlega lista- menn, þeir vilji ekki veifa danska fánanum hvert sem þeir fari. Spurð að því hvað Íslendingar geti lært af Dönum í útflutningi og kynningu á danskri menningu og listum segir Riber danska fyrirkomulagið ekki endilega henta Íslendingum. Danskt lista- og menningarlíf sé miklu um- fangsmeira og flóknara, enda þjóðin margfalt stærri, danskar menning- arstofnanir dreifðar víða um heim með margþætt starf, t.d. dönsku- kennslu. Íslendingar geti þó kynnt sér dönsku aðferðina og séð hvort hún hentar þeim. Vilja ekki auglýsa beikon Um aðkomu og stuðning fyr- irtækja sem tengjast ekki listum með neinum hætti segir Riber að öllu skipti með hvaða hætti stuðn- ingurinn eða fjárfestingin sé, með hvaða formerkjum fjármagn sé sett í lista- og menningarstarfsemi. „Ég held að það skipti í sjálfu sér ekki eins miklu hvaðan peningarnir koma heldur frekar með hvaða skil- yrðum þeir eru gefnir,“ segir Riber. Það viti ekki á gott ef fyrirtæki setji listamönnum ströng skilyrði, lista- menn séu „ekki alltaf til í að auglýsa beikon“, eins og Riber orðar það. Þeir verði að njóta sjálfstæðis þó þeir hafi þegið styrk eða gert samn- ing við fyrirtæki. Riber segir stórfyrirtæki vissu- lega veita listum stuðning í Dan- mörku, t.d. banka og bjórframleið- andann Carlsberg. Samstarf einkafyrirtækja og listamanna ætti að vera báðum til hagsbóta en auð- vitað geti fyrirtæki í einhverjum til- fellum farið illa út úr samstarfi við listamenn. „Það er ekki alltaf hægt að stjórna listamönnum, þess vegna kunnum við svo vel við þá,“ segir Riber og hlær innilega. Útflutningsráð og BÍL standa að málþingi um útrás íslenskrar listar Miklir útrásarmöguleikar Árvakur/ ÞÖK Jeff Who? Hljómsveitin er ein fjölmargra íslenskra sveita sem hlotið hafa styrk frá Reykjavík Loftbrú, verkefni Icelandair og Reykjavíkurborgar. Tilgangurinn er að styrkja tónlistarfólk, höfunda/tónskáld og útgefendur. Skoðað hvernig Danir fara að Í HNOTSKURN » Meginhlutverk Útflutnings-ráðs er að auðvelda íslensk- um fyrirtækjum að selja vörur sínar, þjónustu og þekkingu er- lendis. Það var stofnað árið 1986. » Bandalag íslenskra mynd-listarmanna, BÍL, er banda- lag félaga listamanna úr hinum ýmsu listgeinum. Tilgangur BÍL er fyrst og fremst að styðja vöxt og viðgang íslenskra lista, bæði innanlands og utan og gæta hagsmuna íslenskra listamanna, efla með þeim samvinnu og sam- stöðu. ♦♦♦ JÓN Karl Ólafsson verður fund- arstjóri á morgun en hann er fyrr- verandi forstjóri Icelandair og situr m.a. í stjórn útflutningsráðs Ís- lands. Icelandair hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum sem snerta út- rás íslenskra listamanna, m.a. Reykjavík loftbrú. Einar Bárðarson, oft nefndur umboðsmaður Íslands, mun segja stuttlega frá kynningu á Garðari Thór Cortes tenórsöngvara í Bret- landi og fleiri verkefnum sem hann hefur komið að sem umboðsmaður. Kristján Björn Þórðarson, mynd- listarmaður og hönnuður, gegndi eitt sinn stöðu framkvæmdastjóra Kling&Bang-gallerísins og mun m.a. tala um samstarf gallerísins við einkaaðila og útrásarverkefni þess. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóð- leikhússtjóri segir frá áformum Þjóðleikhússins um að setja leik- sýningar upp í öðrum löndum og út- rás íslensks leikhúslífs almennt. Halldór Guðmundsson bókaút- gefandi og rithöfundur hefur mikla reynslu af sölu íslenskra bóka til út- gáfu erlendis og miðlar þeirri reynslu á fundinum. Darriann Riber tekur fyrst til máls og svo fyrrnefndir fulltrúar hver á fætur öðrum. Að því loknu fara fram pallborðsumræður. Málþingið fer fram í Húsi at- vinnulífsins, Borgartúni 35, 6. hæð, og stendur frá kl. 15 til 17. Skrán- ing fer fram í síma 511 4000 eða ut- flutningsrad@utflutningsrad.is. Dagskrá málþingsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.