Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 19
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 19 inni ökumenn á harða kani rétt eins og þar væri annað veðurfar, til- valið til hraðaksturs. x x x Víkverji er ginn-keyptur fyrir hvers kyns súkkulaði, jafnt innlendu sem erlendu. Honum brá því í brún þegar hann las að í Þýskalandi hefði fyrir helgi samkeppniseft- irlitið gert innrás í skrif- stofur nokkurra súkku- laðiframleiðenda, þar á meðal Nestlé, Kraft, Mars og Ritter Sport, vegna gruns um samráð. Þótti eftirlit- inu grunsamlegt hvað verðlagsþróun framleiðslu þessara fyrirtækja var svipuð. Súkkulaði hefur hækkað mikið undanfarið og hafa framleiðendur sagt að ástæðan væri hækkun á verði hráefnis. Í frétt um málið sagði að tímasetning rannsóknarinnar hlyti að vera áfall fyrir framleiðendurna vegna þess hve skammt væri í Valentínus- ardag. Hann er einmitt á morgun og gæti þessi rannsókn leitt til þess að elskhugar gefi sínum heittelskuðu fremur ávexti að þessu sinni en súkkulaði. Og auðvitað hugsa þeir súkkulaðiframleiðendur, sem ekki sæta rannsókn, sér gott til glóð- arinnar. Öryggi á vegum ermikilvægt, en það getur verið erfitt að sjá fyrir allar þær að- stæður sem komið geta upp. Víkverji þurfti að aka löturhægt eftir um- ferðaræð í Árbænum í skafrenningi fyrir helgina af þeirri ein- földu ástæðu að hann sá ekki veginn nema sekúndubrot í senn og þurfti þá að leggja næstu metra á minnið. Hann hafði þó minni áhyggjur af því sem framundan var en að einhver alsjáandi bíl- stjóri kæmi á fullri ferð aftan á hann. Sem betur fer reyndust þær áhyggj- ur ástæðulausar. x x x Vinur Víkverja var á ferð áReykjanesbrautinni á laugardag og lenti þá í svipuðum aðstæðum. Hann sá vart veginn og hafði engar stikur til að miða við. Ljósastaurarnir voru eina viðmiðið, en þeir voru nokk- uð langt í burtu, eða hinum megin við akreinina í áttina á móti. Viðkomandi ökumaður gætti þess að halda sig á hægri akrein vegarins og fór sér að engu óðslega. Hann var hins vegar forviða yfir því að hvað eftir annað fóru fram úr honum á vinstri akrein-     víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Kristján Bersi Ólafsson fylgdistmeð atburðarásinni í Valhöll: Til Valhallar gengur að vondum styr Vilhjálmur þungum skrefum. Samt eru þar margar útgöngudyr eins og tíðkast hjá refum. Í gær birtist limra eftir Kristján Bersa sem var rangfeðruð og er beðist forláts á því: Í íslenskri umræðu er stefið (eftir röflið og þrefið) að einn skuli hengja og annan flengja – en öðrum er fyrirgefið. Hreiðar Karlsson hjó eftir því hversu mikið umburðarlyndi þjóðin sýnir þingmönnum og reykherberginu í þinghúsinu: Þegnarnir láta sér fátt um það finnast enn, sem fjölmiðlar kunna um tóbakslögin að þrefa. Sýnist það meinlaust, þótt einhverjir alþingismenn ævina stytti í þar til hönnuðum klefa. Á mbl.is var frétt frá Borgarfirði eystri þess efnis að sumarbústaður hefði fokið. Það eina sem væri eftir væri klósettið. Friðrik Steingrímsson yrkir: Sumarhúsi burt var bægt ber þar fátt að líta, á þeim stað er aðeins hægt eftir þetta að skíta. Að lokum yrkir Ingólfur Ómar Ármannsson um tíðarfarið: Nú á stríður vetur völd að vonum myndar trega; okkur hretin hörð og köld hrella ógurlega. VÍSNAHORNIÐ Af Valhöll og tíðarfari pebl@mbl.is TÆPUR helmingur spænskra kvenna á erfitt með að finna föt í stærðum sem passa samkvæmt nýrri rannsókn sem Berlingske Tidende greindi frá á dögunum. Ætlar heil- brigðismálaráðherra Spánar, Ber- nat Soria, að sögn blaðsins, að nota niðurstöðurnar til að stinga upp á nýjum Evrópustöðlum fyrir fata- stærðir. Spænska heilbrigðismálaráðu- neytið ræddi við og lét vega og mæla 10.415 konur á aldrinum 12-70 ára. Þrátt fyrir að 86% kvennanna mæld- ust innan þeirra marka sem Alþjóða- heilbrigðisstofnunin (WHO) setur hvað varðar þyngd og líkamsbygg- ingu átti 41% þeirra engu að síður erfitt með að finna föt sem pössuðu. Rannsóknin sýndi einnig að grannar, og þá sérstaklega mjög grannar, konur voru almennt sáttari við líkama sinn en þær sem þéttari voru. Þannig fannst 70% þeirra stúlkna sem mældust með BMI- líkamsþyngdarstuðull undir 16 þær vera mjög glæsilegar (en BMI- stuðull upp á 18,5-24,9 telst eðlileg- ur). Rannsóknin var sett í gang eftir tískuvikuna í Madríd 2006 í kjölfar heitra deilna um holdafar fyrirsæt- anna og vonast ráðherrann nú til að fá kollega sína í Evrópu í lið með sér við að koma á kerfi yfir fatastærðir sem henti betur fjölbreytileika kven- líkmans. Spænskum konum gengur illa að finna föt sem passa Morgunblaðið/Árni Sæberg Fatastærðir 41% spænskra kvenna á erfitt með að finna föt sem passa. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík HÁSKÓLAFUNDARÖ‹ Ísland á alfljó›avettvangi - erindi og ávinningur Fundinum ver›ur netvarpa› beint á heimasí›unni: www.utanrikisraduneyti.is/haskolafundarod Málfling í Listaháskóla Íslands, Laugarnesi. S‡ning í Kubbnum Fimmtudaginn 14. febrúar kl. 13-15 Réttur til menningar - íslenskur menningararfur í ljósi hnattvæ›ingar Fyrirlesarar ræ›a út frá mismunandi sjónarhornum fræ›a og lista um íslenskan menningararf me› áherslu á réttinn til afnota. Álitamál ver›a rökrædd s.s. höfundaréttur á menningararfi, réttindi og skyldur flegna til menningararfsins, áhrif hnattvæ›ingar og tengsl átaka og menningar í flví sambandi. Segja má a› átakalínur í heiminum í dag markist a› miklu leyti af menningu og sjálfsmynd, ekki síst fyrir tilstilli hnattvæ›ingar og aukinna náinna samskipta milli fólks af ólíkum uppruna. Listir og menning eru einn sá brunnur sem leita› er í vi› sköpun sjálfsmyndar, en réttur eintaklinga til a› gera tilkall til menningararfs er ekki alltaf augljós. Dagskrá: Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands Setning málflings Ingibjörg Sólrún Gísaldóttir, utanríkisrá›herra Ávarp Eiríkur Tómasson, prófessor vi› lagadeild HÍ og framkvæmdastjóri STEFs Höfundaréttur og menningararfur Ólafur Rastrick, sagnfræ›ingur Mishljómar í menningararfsor›ræ›unni Dr. Sveinn Einarsson, leikstjóri og fyrrv. stjórnarma›ur UNESCOs í París UNESCO og menningarstefna samtakanna Gu›mundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun vi› LHÍ Frummyndin, eftirmyndin og eignaréttur hugmynda Næst á dagskrá: S‡ning í Kubbnum Nemendur í vöruhönnun vi› LHÍ s‡na afrakstur úr námskei›inu "Íslensk menning er sérstakur hljómur", sem haldi› hefur veri› undanfarin ár í samstarfi vi› fijó›minjasafn Íslands. Íslensk stjórnvöld efna til háskólafunda- ra›arinnar í vetur í samvinnu vi› alla háskóla landsins, átta talsins. Markmi› hennar er a› hvetja til aukinnar uppl‡strar umræ›u um alfljó›amál á Íslandi. Á fundunum ver›ur lög› áhersla á stö›u og hlutverk Íslands á alfljó›avettvangi, auk fless a› fjalla um flátttöku Íslands í alfljó›astarfi og einstök verkefni, ekki síst frambo› Íslands til Öryggisrá›s Sameinu›u fljó›anna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.