Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 39 NÚ ÞEGAR kosningatíð er vestanhafs og tekist er á um að fá að bjóða sig fram fyrir annan af stóru flokkunum tveim sem ráða þar lögum og lofum koma út ýmsar bækur sem tengjast kosningunum. Þessi skáld- saga Richard North Pattersons fjallar ein- mitt um slag innan Repúblikanaflokksins, en söguhetja bókarinnar er göfuglynd og réttsýn hetja sem glímir við veiklundaðan tækifær- issinna og kristinn ofsa- trúarmann um að verða forsetaefni repúblikana. Patterson hefur þótt prýðilegur spennu- sagnahöfundur í gegnum árin og þó bækur hans séu allajafnan keimlíkar er hann lipur penni og kann að keyra söguþráðinn áfram í þrúgandi spennu. Í The Race bíður hann aftur á móti þvílíkt skipbrot að eft- irminnilegt er – andinn sigrar efnið svo rækilega að það er beinlínis pínlegt að lesa bókina. Corey Grace er hinn frjálshuga hægri- maður sem hvergi er til, hann er óháður öll- um með ríka réttlætiskennd, ófeiminn við að segja skoðun sína, hugrakkur og fljótur að hugsa, öfgalaus trúmaður, glæsilegur á velli og göfuglyndur, ástríkur og svo má áfram telja. Hann hefur alla þá kosti til að bera að vera frábær forseti Bandaríkjanna nema einn – hann er ekki til, og það sem meira er, slíkur maður hefur aldrei verið til. Með þessa teiknimyndapersónu dragnast maður síðan í gegnum bókina og þarf að þola sífelldan pólitískan vaðal og hallær- islega rómantík. Patterson notar bókina nefnilega til að fimbulfamba um alls kyns pólitísk deiluefni vestanhafs sem eru stór- einkennileg í augum Evrópubúa. Hvernig getur til að mynda staðið á því að svo miklu púðri er eytt í trúmál? Hafa illa innrættir kaupahéðnar keypt helstu stjórmálamenn? Eru kjósendur repúblikana almennt ein- feldningar? Þvílíkt og annað eins bull. Andinn sigrar efnið The Race, skáldsaga eftir Richard North Patter- son. Macmillan gefur út. 352 síður innb. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Appeal - John Grisham 2. Duma Key - Stephen King 3. Plum Lucky - Janet Evanovich 4. Sizzle and Burn - Jayne Ann Krentz 5. A Thousand Splendid Suns - Khaled Hosseini 6. World Without End - Ken Follett 7. People of the Book - Geraldine Brooks 8. The Senator’s Wife - Sue Miller. 9. Beverly Hills Dead - Stuart Woods 10. Sword Song - Bernard Cornwell New York Times 1. Notes from an Exhibition – Patrick Gale 2. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 3. PS, I Love You – Cecelia Ahern 4. On Chesil Beach – Ian McEwan 5.Burning Bright – Tracy Chevalier 6. The Book Thief – Markus Zusak 7. Random Acts of Heroic Love – Danny Scheinmann 8. No Country for Old Men – Cor- mac McCarthy 9. Mister Pip – Lloyd Jones 10. The Kite Runner – Khaled Hosseini Waterstone’s 1. Alibi Man - Tami Hoag 2. Overlook - Michael Connelly 3. Blood Brothers - Nora Roberts 4. On Checil Beach - Ian McEwan 5. Not Dead Enough - Peter James 6.Crusade - Robyn Young 7. Sisters Danielle - Steel 8. Brother Odd - Dean Koontz 9. Wives of the East - Wind Liu Hong 10. Appeal - John Grisham Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ÞAÐ ER kunnara en frá þurfi að segja að vínsnobb er í raun dulinn alkóhólismi. Það á í það minnsta við Wilberforce, söguhetju bókarinnar The Irresistible Inheritance of Wilberforce; hann felur sinn alkóhólisma á bak við vínsnobbið – ef ég væri alkóhól- isti, segir hann í bókinni, myndi ég ekki velja vín af kostgæfni og láta flöskuna standa opna í hálf- tíma til að anda og ná stofuhita, alkóhólisti myndi ekki hella því af nærgætni í smökkunarglas og gæta að því að glasið sé tand- urhreint og laust við alla óæski- lega angan, alkóhólisti myndi ekki velta víninu í munninum til að leyfa bragðefnum að njóta sín og punkta síðan hjá sér helstu einkenni þess. Geðveiki og dauði Málið er bara það að Wilberforce drekkur fimm flöskur á dag með þessu móti og stundum fleiri. Hann keypti nefnilega vínsafn vinar síns, eitt besta vínsafn í einkaeigu sem um getur, og ætlar að eyða ævinni í að drekka vínið og kærir sig kollóttan um það þó alkóhólismi sé sjúkdómur sem leiði til geð- veiki og dauða; hann er nefnilega ekki alkóhólisti. Paul Torday vakti mikla athygli á síðasta ári fyrir skáldsögu sína Salmon Fishing in the Yemen, einkar skemmtilega og vel skrifaða tragikómedíu sem fjallaði um trú og ást. The Irresistible Inheritance of Wilberforce fjallar líka um ást, en hún er myrkari, miklu myrkari en Salmon Fishing in the Yemen, en ekki síður vel skrifuð og eftirminnileg. Vill skemmta fólki Segja má að Torday skrifi bókina afturábak, „Skáldsaga í fjórum árgöngum“, er undirtitill bók- arinnar, en hún hefst þar sem Wiberforce er að feta síðustu metrana í sinni drykkjusýki árið 2006, og síð- an stígum við aftur í tíma, 2004 kemur næst, þá 2003 og loks 2002. Þetta gerir bókina skemmtilegri fyrir vikið, og sjálfsblekkingin sem er ær og kýr alkóhól- istans verður aumkunarverðari fyrir vikið; í upphafi hvers árgangs á eftir 2006 vitum við hvað atburða- rásin á eftir að hafa í för með sér. Smám saman raknar líka lygavefurinn sem mætir okkur í upphafi bókarinnar, hinn sannleikurinn um vínsafnið mikla, skammstöfunin sem er að þvælast fyrir Wilberforce (TNMWWTTW), hver Catherine var og hvaðan Wilberforce hafði auð sinn. Eftir því sem við fetum okkur nær upprunanum nálgumst við sannleikann og í síðustu málsgreinum bókarinnar, brjóstumkennanlegur í ljósi sögunnar sem við höfum lesið, er lykill bókarinnar. Í viðtölum hefur Paul Torday látið þau orð falla að fyrir sér vaki ekki annað en að skemmta fólki og víst er ólánssaga Wilberforce skemmtileg, bráðfyndin á köflum og víða súrrealísk, en fyndnin er tempruð af harmleiknum sem sagt er frá – hörmulegum örlögum alkóhólistans og hans nánustu. Forvitnilegar bækur: Sagan af Wilberforce Dulinn alkóhólismi Gamansamur Enski rithöfundurinn Paul Torday. „Brúðguminn er heilsteypt og skemmtileg mynd sem kemur eins og ferskur andvari inn í skammdegið.” -S.P., Kvika Rás 1 SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBBÍÓI “Myndin er frábær skemmtun” - Þ.H., MBL Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.is STÆRSTA JANÚAROPNUN SÖGUNNAR Í BANDARÍKJUNUM! EITTHVAÐ SKELFILEGT ER Á SVEIMI! eee - S.V, MBL eee DÓRI DNA, DV eee - V.I.J., 24 STUNDIR eeeee Frábær mynd. Hún er falleg, sár og fyndin. Allt gekk upp, leikur, leikmynd, saga, hljóð, mynd og allt sem þarf til að gera fína bíómynd. -S.M.E., Mannlíf eeee Besta íslenska fíl-gúdd myndin fyrr og síðar “ - S.S. , X-ið FM 9.77 eeee “Brúðguminn er skemmtileg mynd sem lætur áhorfendur hljæja og líða vel“ - G. H., FBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Sýnd kl. 6, 8 og 10 POWERSÝNING -bara lúxus Sími 553 2075 10 SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Rambo kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Ástríkur á Ólympíuleikunum kl. 5:30 - 8 Atonement kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Charlie Wilson’s war kl. 10:30 B.i. 12 ára Brúðguminn kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 5:30 m/ ísl tali Kauptu bíómiða á netinu á FRIÐÞÆING LANG VINSÆLASTA KVIKMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG 35.000 GESTIR - 4 VIKUR Á TOPPNUM! MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI! Stærsta kvikmyndahús landsins „Myndin er verulega vel leikin og að öllu leyti frábær” - E.E., DV - H.J. , MBL eeeee - H.J. , MBL eeeee „Myndin er verulega vel leikin og að öllu leyti frábær” - E.E., DV eeee - V.J.V., TOPP5.IS - T.S.K. 24 STUNDIR eee Ó.H.T., RÚV/Rás 2 FRIÐÞÆING - V.I.J. 24 STUNDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.