Morgunblaðið - 17.02.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2008 B 15
Styrktarfélag vangefinna
Þroskaþjálfi
óskast til starfa í
gróðurhúsi Bjarkaráss.
Um er að ræða 100% starf og er staðan
laus frá 1. mars.
Gróðurhúsið hefur vottun um lífræna
ræktun frá Vottunarstöðinni Túni.
Bjarkarás er staðsettur í Stjörnugróf 9 og
er opinn frá 8.30-16.30 virka daga. Þangað
sækja 48 einstaklingar fjölbreytta þjónustu
og þjálfun.
Starf þroskaþjálfa felst í skipulagningu og
umsjón með störfum fatlaðra starfsmanna
í gróðurhúsi í samvinnu við
garðyrkjufræðing. Hann þarf að aðlaga
verkefni í gróðurhúsi að þörfum fatlaðra
starfsmanna. Þroskaþjálfi tekur einnig þátt
í garðyrkjustörfum sem garðyrkjufræð-
ingur skipuleggur.
Umsóknir þurfa að berast á Bjarkarás eða
skrifstofu félagsins sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita Þórhildur
Garðarsdóttir forstöðuþroskaþjálfi og
Valgerður Unnarsdóttir yfirþroskaþjálfi í
síma 414 0540.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð og
upplýsingar um Styrktarfélagið á heima-
síðu þess, http://www.styrktarfelag.is
Arkitekt/verkefnastjóri
óskast til starfa hjá FSR
Framkvæmdasýslan er stofnun sem heyrir undir fjármálaráðuneytið og hefur umsjón og eftirlit
með hönnun og verklegum framkvæmdum á vegum ríkisins um land allt.
Hlutverk FSR er m.a. að vera leiðandi afl á sviði opinberra framkvæmda með það að markmiði
að bæta verklag og auka skilvirkni, hagkvæmni og gæði við framkvæmdir ríkisins. Markmið
FSR er að vera í fararbroddi hvað varðar samræmingu gagna og þróun á sviði verklegra
framkvæmda, til dæmis með því að sýna frumkvæði í notkun upplýsingatækni á þessu sviði.
FSR vinnur eftir ISO 9001 gæðastjórnunarkerfinu og er auk þess með árangursstjórnunar-
samning við fjármálaráðuneytið.
Nánari upplýsingar um verkefni Framkvæmdasýslunnar er að finna á www.fsr.is.
Leitað er að framsæknum einstaklingum með áhuga á skipulagsmálum, upplýsingatækni, verk-
legum framkvæmdum og öguðum vinnubrögðum. Það fer að nokkru eftir áhugasviði og
reynslu viðkomandi starfsmanns hverjar verða helstu áherslur í starfi hans, enda taka allir
verkefnastjórar FSR þátt í að móta sitt starf. Til dæmis um verksvið er gerð frumathugana,
ráðgjöf til ráðuneyta, samningar við hönnuði, umsjón með hönnunarsamkeppnum, rýni
útboðsgagna og almenn verkefnastjórnun. Starfið hentar jafnt konum sem körlum, ungum
sem öldnum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf á sviði mannvirkjagerðar.
Reynsla af skipulagsmálum og verklegum framkvæmdum.
Enskukunnátta og helst kunnátta í einu Norðurlandamáli.
Reynsla í notkun almennra tölvuforrita og Internetsins.
Miklir samskiptahæfileikar.
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Laun eru samkvæmt stofnanasamningum sem byggja á kjarasamningi fjármálaráðherra og
viðkomandi kjarafélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2008. Umsóknir eða óskir um nánari upplýsingar
sendist á netfangið oskar.v@fsr.is merktar “arkitekt”.
Mannauðsskrifstofa Reykjavíkurborgar
Leitum að öflugum sérfræðingi til starfa í þróunar-
teymi Oracle mannauðskerfis Reykjavíkurborgar.
Mannauðsskrifstofa Reykjavíkurborgar sér meðal annars um
þjónustu, greiningu og þróun á Oracle mannauðs- og launa-
kerfi í samstarfi við Skýrr. Starfið felur í sér fjölþætt verkefni
sem felast í margvíslegri þjónustu við notendur kerfisins hjá
Reykjavíkurborg. Við bjóðum uppá fjölbreytt og krefjandi
starf í metnaðarfullu starfsumhverfi, þátttöku í þróun starfs-
umhverfis, verkefna og tækifæri til símenntunar og starfs-
þróunar.
Helstu verkefni
• Fræðsla og ráðgjöf um mannauðskerfið við notendur.
• Miðlæg umsjón kerfislægra forsendna.
• Gagnavinnsla og greiningar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Æskileg menntun á sviði upplýsingatækni, viðskipta- eða
rekstrarfræði.
• Mikil tölvufærni.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Reynsla af þjónustu við notendur tölvukerfa.
• Þekking á launa- og starfsmannakerfum er kostur.
Við leitum að áhugasömum einstaklingi í tímabundið
starf sem getur hafið störf sem fyrst. Hlutastarf kemur
einnig til greina með sveigjanlegum vinnutíma og getur
því hentað einstaklingi sem er í háskólanámi, t.d. í
tölvunarfræðum eða viðskiptafræði.
Laun eru skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og við-
komandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veita Anna
Borgþórsdóttir, verkefnisstjóri Oracle kerfis
(anna.borgthorsdottir@reykjavik.is) og Árni Ragnar
Stefánsson, starfsmannastjóri Ráðhúss
(arni.ragnar.stefansson@reykjavik.is).
Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 3. mars n.k. til
mannauðsskrifstofu Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi
Reykjavíkur eða á ofangreind netföng, merktar
“Umsókn um starf sérfræðings á
Mannauðsskrifstofu”.
Sérfræðingur í
mannauðskerfi Oracle
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli
það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starf-
semi borgarinnar og samband við þá starfsemenn sem þú þarft að ná í.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Sölumaður fasteigna
Rótgróin fasteignasala óskar eftir að ráða
traustan og öflugan sölumann. Gerð er m.a.
krafa um reynslu af sölustörfum, frumkvæði og
góða þjónustulund.
Boðið er upp á fyrsta flokks starfsaðstöðu og
mun sölumaðurinn vinna í nánu samstarfi við
reynslumikinn löggiltan fasteignasala. Mjög
góðir tekjumöguleikar. Ekki er um verktaka-
starfsemi að ræða. Öllum umsóknum verður
svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknir með mynd og nánari uppl. sendist á
netfangið box@mbl.is merktar S-21245 fyrir
23. feb. nk.