Morgunblaðið - 21.02.2008, Side 1

Morgunblaðið - 21.02.2008, Side 1
STOFNAÐ 1913 51. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is MYNDINA HEIM 94 ÞÚSUND KVIKMYNDIR PANTAÐAR Í MÁNUÐI HJÁ SKJÁBÍÓI >> VIÐSKIPTI FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is VINNA við umhverfismat og skipu- lagsvinna sem tengist raflínum á Reykjanesskaga mun taka allt þetta ár og jafnvel lengri tíma ef miklar deilur skapast um framkvæmdina. Þetta segir Guðmundur Ingi Ás- mundsson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Landsnets. Fyrirhugað er að leggja há- spennulínurnar vegna áforma um byggingu álvers í Helguvík. Línurn- ar liggja í gegnum níu sveitarfélög og þurfa þau öll að breyta aðalskipu- lagi og láta vinna deiliskipulag. Þá er eftir að vinna umhverfismat. Landsnet lagði upphaflega fram þrjá valkosti fyrir línulögn, en hefur nú fækkað þeim niður í einn. Guðmundur telur hugmyndir um að setja meginflutningsleiðir í jarð- streng algerlega óraunhæfar vegna mikils kostnaðar. Nauðsynlegt sé að tvöfalda sambandið út á Reykja- nes því að íbúar þar og fyrirtæki búi við óviðunandi rekstraröryggi í dag. Búið er að vinna umhverfismat vegna álvers í Helguvík og Skipu- lagsstofnun hefur samþykkt það með fyrirvara um að ekki verði farið í framkvæmdir fyrr en fyrir liggi hvernig orkuöflun verður háttað og Norðurál hafi fengið úthlutaðan los- unarkvóta. Landvernd hefur kært ákvörðun Skipulagsstofnunar að láta ekki fara fram heildarmat á áhrifum álvers, virkjunar og línu- lagna. Ráðherra mun úrskurða í málinu í næsta mánuði. Níu sveitarfélög þurfa að samþykkja raflínur Árvakur/Einar Falur Lína Fyrirhugað er að leggja raf- línu á Reykjanesskaga. Í HNOTSKURN »Ef ráðherra tekur kröfuLandverndar til greina mun það setja strik í reikninginn hjá Norðuráli sem áformar að hefja framkvæmdir í Helguvík á þessu ári. Upp kann að koma lög- fræðileg óvissa því að samkvæmt lögum er ekki hægt að kæra um- hverfismatið sjálft til ráðherra og Skipulagsstofnun er búin að fall- ast á matið. »Norðurál reiknar með að fjár-festingar vegna álvers í Helguvík nemi 15 milljörðum á þessu ári. Stærstur hluti er tækja- kaup sem panta þarf með góðum fyrirvara. Búið er að bjóða út jarðvinnu og framkvæmdir við fyrstu byggingar. Getur | 12-13 SKULDATRYGGINGARÁLAG íslensku bankanna heldur áfram að hækka og hið sama á við um íslenska ríkið en álag á skuldabréf þess hefur nær þre- faldast frá ára- mótum. Í upphafi árs var álagið 64,7 punktar (100 punktar jafngilda einu prósentu- stigi) en í fyrra- dag var það 185 punktar. Þessi þróun er athyglisverð í ljósi þess að rík- issjóður er nánast skuldlaus auk þess sem komið hefur fram að ekki verði ráðist í neina skuldabréfaútgáfu á alþjóðlegum markaði á árinu. Verður því að gera ráð fyr- ir að hér sé um smitáhrif að ræða, t.d. að fjárfestar óttist að lendi íslensku bankarnir í vandræðum gæti ríkið þurft að grípa til skuldabréfaútgáfu til þess að koma þeim til hjálpar. | Viðskipti Bankarnir smita ríkið              Tryggingarálag ríkisins þrefaldast frá áramótum FULLT var út úr dyrum á tónleikum gegn kynþátta- hatri sem Bubbi Morthens stóð fyrir í Austurbæ í gærkvöldi. Fjöldi landsþekktra tónlistarmanna lagði málefninu lið, auk Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem tók lagið „Lóa litla á Brú“ með Bubba „kóngi“ við mikinn fögnuð viðstaddra. | 40 Árvakur/Frikki Kóngurinn og forsætisráðherrann Sungið gegn fordómum í Austurbæ LOÐNUVEIÐAR verða stöðvaðar á hádegi í dag. „Þetta er bara skip- brot fyrir fyrirtæki eins og okkur,“ segir fram- kvæmdastjóri Síldarvinnsl- unnar. „Þetta kostar bæjar- félagið líklega um 3 milljarða króna í beinum tekjum […],“ segir bæjarstjóri Vestmannaeyja. „Þetta er […] verulegt tekjutap fyrir okkur, tap upp á um það bil tvo milljarða króna,“ segir fram- kvæmdastjóri Ísfélags Vestmanna- eyja. „Þetta eru bara alveg skelfi- leg tíðindi og hreint reiðarslag fyrir sjómannastéttina,“ segir for- maður Sjómannasambands Ís- lands. | 4 „Alveg skelfileg tíðindi“ Milljarða króna tap fyrir þjóðarbúið Skilaboðaskjóðan >> 41 Allir í leikhús Leikhúsin í landinu Þú leggur línurnar Létt & laggott! – Línurnar í lag! L&L E N N E M M / S Í A / N M 3 2 1 6 5 NÝGERÐIR kjarasamningar munu hafa áhrif á bætur almannatrygginga til hækk- unar. Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur, fé- lags- og tryggingamálaráðherra, munu bætur almannatrygginga hækka um 3-4% fljótlega, til viðbótar við þá hækkun sem varð á bótum almannatrygginga um síðustu áramót. „Það er þannig að ákvörðun um hina ár- legu hækkun tekur alltaf mið af launaþró- un, en þó þannig að þær hækka aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Það sem mun gerast núna í framhaldi af kjarasamningum er að þetta verður uppreiknað vegna kjarasamninga, þannig að nýjar greiðslur taki mið af launaþróun í þessum nýju kjarasamn- ingum,“ segir Jóhanna og tekur fram að miðað verði við launaþróun frá 1. febrúar. „Þessar hækkanir munu koma fram eins fljótt og hægt er af tæknilegum ástæðum,“ segir Jóhanna og bendir á að starfsmenn fjármálaráðuneytisins séu um þessar mundir að reikna breytinguna. Aðspurð segir hún hækkunina í heild nema um 2 milljörðum á ári fyrir ríkissjóð. Bætur hækka um 3 til 4% ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.