Morgunblaðið - 22.02.2008, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Vegna andláts Heiðars vil ég
lýsa yfir hryggð minni og sorg og
er hugur okkar fjölskyldunnar hjá
ykkur. Ég vil og vona að Guð gefi
ykkur þann styrk sem þið þurfið á
að halda til að komast yfir það
áfall sem það er að missa sitt ást-
kæra barn.
Heiðar Örn var góð sál og mátti
ekkert illt sjá. Þetta vissi ég frá
allra fyrstu barnsárum hans.
Þegar Heiðar Örn fór að eldast
og komast á táningsárin, tók ég
betur eftir hans góðu eiginleikum.
Alltaf tilbúinn að taka málstað
hins litla í samfélaginu og í einu
spekingslegu samtali okkar síðast-
liðið sumar sýndi hann á sér hlið
sem kom mér ánægjulega á óvart.
Hann gerði mér grein fyrir að
hann hefði áhyggjur af þeim skað-
legu breytingum sem við mann-
fólkið værum að gera á móður
Jörð. Einnig ræddum við stjórn-
mál og fórum yfir hin ýmsu vanda-
mál mannfólksins. Hvar sem niður
var drepið kom fram hreinskilni
hans, heiðarleiki og málefnaleg rök
fyrir orðum sínum.
Ég er þekktur fyrir að æsa mig
upp í mörgum viðræðum við fólk
Heiðar Örn Einarsson
✝ Heiðar Örn Ein-arsson fæddist í
Reykjavík 4. janúar
1989. Hann lést 14.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Einar Þór Hann-
esson f. 17. júní
1967, og Hafdís Ósk
Víðisdóttir f. 20. júlí
1967. Bróðir Heið-
ars Arnar er Arnar
Máni Einarsson f.
29. ágúst 2002.
Heiðar Örn verð-
ur jarðsunginn frá
Langholtskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
en Heiðar hafði alltaf
róandi áhrif á mig
þannig að mér leið
alltaf vel í návist
hans. Hann talaði ró-
lega, var með blíðlegt
málfar og valdi orð
sín af kostgæfni. Ég
veit að ég á eftir að
sakna hans mikið. Ég
elska þennan strák,
ég segi ekki elskaði
því ég mun aldrei líta
á hann sem alfarinn
frá okkur. Ég mun
lifa mínu lífi og þegar
sú stund kemur sem ég kveð þetta
jarðríki þá hlakka ég til að hitta
Heiðar Örn sem þá mun taka á
móti mér með sínu brosi og vana-
legu hæversku.
Megið þið njóta friðar í nafni
Guðs.
Guðbjörn og fjölskylda
frá Svíþjóð.
Ég fékk mikinn sársauka og
sorg í hjarta þegar hringt var í
mig og mér sagt að Heiðar frændi
væri látinn.
Heiðar hafði mikinn sjarma yfir
sér og var mjög blíðlundaður og
góður strákur sem öllum þótti
vænt um. Heiðar sá alltaf eitthvað
gott í öllum.
Nú ertu farinn og við sjáum þig
aldrei
aftur í þessu lífi, en við sjáumst
aftur, Heiðar minn, allar minning-
arnar um þig sem ég á, segja mér
að það verði hjá Jesú.
Ég hef alltaf elskað þig, Heiðar
minn.
Við munum aldrei gleyma þér,
milli okkar var einstök vinátta.
Kveðja,
þinn föðurbróðir
Páll R. Elíson og
Yvonne Stenberg.
Ungur drengur í blóma lífsins er
fallinn frá, Heiðar Örn var aðeins
19 ára gamall. Ég skil þetta ekki
enn, hvernig gat þetta skeð? Heið-
ar Örn var sonur yngsta bróður
míns. Heiðar var afskaflega ljúfur
og góður drengur. Nærvera hans
hafði róandi áhrif á mann, það
fann ég sérstaklega þegar hann
kom til mín með frænda sínum og
þeir stoppuðu drjúga stund hjá
mér á meðan þeir biðu eftir syni
mínum, sem tók nokkurn tíma.
Ekki var æsingurinn, hann var svo
rólegur, við vorum bara að spjalla,
hann hafði áhuga á að spjalla um
fjölskylduna og fá að sjá myndir,
mér hlýnaði um hjartarætur af
áhuga hans á þessu og ekki stóð á
mér.
Ég á margar góðar minningar
um Heiðar frá því hann var lítill
drengur. Hann og sonur minn sem
er fæddur sama ár léku sér mikið
saman, ýmist heima hjá mér eða
hjá þeim, þá var oft glatt á hjalla.
Nú kveð ég þig, elsku Heiðar
minn, nú ertu hjá Guði.
Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum
í líknarmildum föðurörmum þínum
og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu föðurhjarta.
Æ, tak nú, Drottinn, föður og móður
mína
í mildiríka náðarverndan þína,
og ættlið mitt og ættjörð virstu geyma
og engu þínu minnsta barni gleyma.
(Matthías Jochumsson.)
Að lokum votta ég Einari bróður
mínum, Hafdísi, Arnari og fjöl-
skyldu samúð mína.
Elín Elídóttir og fjölskylda.
Nú er bróðursonur minn farinn
yfir móðuna miklu.
Þegar hringt var í mig til að láta
mig vita að Heiðar Örn væri lát-
inn, vildi ég í fyrstu ekki trúa því,
þetta var svo erfitt og óréttlátt.
Ég hugsa um Einar og Hafdísi
hvað þau hafa misst mikið.
Heiðar Örn var bæði prúður og
góður við alla, hann var svo synd-
andi rólegur, og það var svo gott
að vera í návist hans.
Veit honum Drottinn þína eilífu
hvíld og lát þitt eilífa ljós lýsa hon-
um hann hvíli í friði. Amen.
Elsku, Einar, Hafdís og Arnar
Máni, við sendum ykkur innilega
samúðarkveðju.
Sólrún og Einar.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Ég er ákaflega glöð og stolt yfir
því að hafa fengið tækifæri til að
kynnast þér. Þú varst frábær og
áttir svo marga góða eiginleika,
varst auðmjúkur, gjafmildur,
skemmtilegur og ótrúlega góður,
svo nokkrir þeirra séu nefndir.
Við gátum talað um allt milli
himins og jarðar og við höfðum
áhuga á svipaðri tónlist og kvik-
myndum, okkur kom alltaf svo vel
saman og okkur þótti það bæði
spennandi og skemmtilegt að ég
kæmi til Íslands að vinna.
Ég vil ekki kveðja þig endanlega
núna, í hjarta mínu ertu lifandi,
elsku Heiðar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Kveðja
Elín Pálsdóttir.
Heiðar Örn, minn kæri frændi,
sem ég sakna svo mikið.
Við eigum marga frændur, en þú
og ég fæddumst sama ár og við
fengum tvo frændur til sama ár, og
þú hefur alltaf átt sérstakan stað í
mínu hjarta.
Í gegnum árin hafa fjölskyldur
okkar átt heima annað hvort í Sví-
þjóð eða Íslandi en þegar við höf-
um átt heima á sama stað þá höf-
um við, þú og ég, alltaf skemmt
okkur svo vel saman.
Við lékum okkur saman og ég á
svo margar góðar minningar frá
æsku okkar.
Ég gleymi aldrei þegar þú varst
að herma eftir „Ace Ventura“ svo
við frændur þínir hlógum okkur
máttlausa.
Sambandið milli okkar hefur
alltaf verið gott. Alltaf svo góður,
svo rólegur, svo þroskaður.
Þetta er svo óréttlátt. Þú varst
bara 19 ára.
En við sjáumst aftur, það veit
ég.
Ég elska þig.
Anna Pálsdóttir.
Góður drengur er horfinn á
braut.
Myndin af nemendum mínum í
10. GB og 10. KJ hefur fengið nýja
merkingu. Hún var tekin á sól-
skinsdegi í maí 2005, vorið sem
þau útskrifuðust frá Langholts-
skóla. Á myndinni er hópur ung-
menna fyrir framan bárujárns-
klædda nýbyggingu skólans. Þau
eru frjálsleg en samt meðvituð um
uppstillinguna, halda stílnum. Sum
brosa, önnur glotta, flest píra aug-
un. Heiðar er í miðröðinni, með
sítt hár, brosir örlítið.
Heiðar tilheyrði KJ-bekknum og
var því í umsjón hjá mér sem og í
íslenskutímum. Hann var hógvær
nemandi, sinnti skyldum sínum í
náminu en lagði ekki meira í það
en nauðsyn krafði eins og gengur
og gerist. Skáldleg skrif vöktu
áhuga hans og mér er minnisstætt
að hann samdi prýðilega texta og
hafði fallega og læsilega rithönd.
Hann var hjálpsamur og þægileg-
ur í umgengni, hlédrægur, vel lið-
✝ Sigríður Ingi-mundardóttir,
verkakona og hús-
móðir, fæddist á
Efri-Ey í Með-
allandi í V-
Skaftafellssýslu, 5.
október 1923. Hún
lést í Reykjavík 14.
febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Ingimundur Ingi-
mundarson bóndi, f.
16.7. 1886, d. 9.12.
1943 og Halldóra
Bergsdóttir húsmóðir, f. 22.3.
1893, d. 23.11. 1973. Systkini Sig-
ríðar samfeðra eru Margrét, f.
16.8. 1914, d. 22.8. 1988 og Vil-
borg, f. 16.8. 1914, d. 30.9. 1986.
Alsystkini Sigríðar eru Bergur, f.
1.3. 1921, Ingibjörg Jóhanna, f.
25.3. 1922, d. 23.3. 2007, Ingi-
maður Hallur Jónasson, f. 24.5.
1978, börn þeirra eru Embla Líf,
f. 21.2. 2001 og Viktor Adam, f.
20.7. 2004, b) Sigrún, f. 7.8. 1981,
sambýlismaður Kristinn Már
Magnússon, f. 30.4. 1982, dóttir
þeirra er Rebekka Lind, f. 27.11.
2007. 2) Birgir, f. 2.10. 1954,
maki Margrét Ásgeirsdóttir, f.
15.6. 1956, synir þeirra eru Ás-
geir Rafn, f. 25.2. 1981, og Finn-
bogi Haukur, f. 26.5. 1986, dóttir
Margrétar og uppeldisdóttir
Birgis er: Björg Rós Guðjóns-
dóttir, f. 1.5. 1976, maki Abdul
Rastagar, f. 9.1. 1976, sonur
þeirra er Isaac Abdulson, f. 5.5.
2006. 3) Lárus, f. 27.9. 1959, maki
Hulda Rós Rúriksdóttir, f. 2.3.
1964, synir þeirra eru Lárus
Sindri, f. 28.2. 1992 og Arnar
Heimir, f. 26.3. 1994.
Sigríður vann að búi foreldra
sinna og systkina til 1947, en það
ár flutti hún til Reykjavíkur og
vann þar í vistum, við fiskvinnslu
og fleiri almenn verkakvenna-
störf, ásamt húsmóðurstörfum.
Sigríður verður jarðsungin frá
Seljakirkju í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
mundur, f. 2.7. 1925,
Halldór, f. 2.7. 1926,
Vigfús, f. 3.2. 1928,
Ólafur Þórður, f. 5.
12. 1929 og Vigdís
Valgerður, f. 16.2.
1932, d. 9.2. 1998.
Dóttir Sigríðar og
Marteins Jóhanns-
sonar, f. 16.11. 1915,
d. 2.12. 1991, er
Bára, f. 26.2. 1948,
gift Reyni Eggerts-
syni, f. 28.2. 1951,
dóttir þeirra er Sig-
ríður Þóra, f. 2.7.
1975.
Sigríður giftist hinn 6.10. 1951
Finnboga Hauki Sigurjónssyni
málara, f. 6.10. 1922. Synir þeirra
eru: 1) Bragi, f. 18.8. 1952, maki
Guðný Stefanía Guðgeirsdóttir, f.
30.8. 1952, dætur þeirra eru: a)
Halldóra, f. 8.3. 1978, sambýlis-
Við Bára og Sigga Þóra eigum
Sigríði Ingimundardóttur mikið
upp að inna: Bára þáði af henni líf-
ið, ég eiginkonuna og nafna hennar
ósmáan hluta uppeldisins fyrsta
áratug ævinnar; þar í falið nýbak-
aðar kleinur og mjólk, heitt kakó
og vöflur, bæjarins besti grjóna-
grautur og annar ógleymanlegur
veislufagnaður æskunnar.
Þessi hláturmilda kerskna,
stríðna kona, sem lét fjúka í kvið-
lingum og brá oft fyrir sig hárfín-
um kómískum töktum sem vart eru
á færi annarra en flinkustu gam-
anleikara, var löngum innan um
skellihlæjandi manneskjur af því
hún var sjálf svo hress og kát að
það var gaman að vera þar sem
hún var.
Samt átti hún við öfgaandstæður
örlyndis og sárra geðlægða að eiga,
eins og svo margt fólkið umhverfis.
Lengst af fátt um rætt. Síðustu ár
Siggu voru henni erfið. Henni leið
illa, andlega og líkamlega, oft. Það
hryggði okkur hve lítið hægt var að
gera fyrir hana þrátt fyrir nútíma-
legustu og vönduðustu umönnun í
Seljahlíð.
En við vorum svo heppin öll þrjú
að eiga með Siggu stund um síð-
ustu jól þar sem henni leið vel; var
hin gamla ,,amma á Ránargötunni“
og kvaddi okkur með blíðmælum,
brosandi augum og kossi á vanga.
Elskulega mamma mín
mjúk er alltaf höndin þín
tárin þorna sérhvert sinn
sem þú strýkur vanga minn.
Þegar stór ég orðinn er
allt það skal ég launa þér.
(Sig. Júl. Jóhannesson.)
Við erum Siggu óumræðilega
þakklát fyrir gnægtirnar sem hún
gaf okkur af örlátu hjarta og með
gjallandi hlátri. Hvíl þú í friði.
Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk
fyrir allt og allt.
Bára, Sigríður Þóra og Reynir.
Í dag verður borin til grafar
tengdamóðir mín, Sigríður Ingi-
mundardóttir. Við þau tímamót
verður ekki komist hjá því að
staldra við og minnast þessarar
yndislegu alþýðukonu. Ég kynntist
Sigríði fyrst þegar eiginmaður
minn kynnti mig fyrir foreldrum
sínum árið 1989. Ég man að ég var
nokkuð kvíðin þegar við ókum á
Ránargötuna þar sem þau bjuggu á
þeim tíma. En ég áttaði mig strax
á því þegar inn var komið að það
var ástæðulaus kvíði enda var mér
mjög vel tekið allt frá fyrsta degi.
Sigríður var alin upp í Efri-Ey í
Meðallandi og ólst þar upp hjá for-
eldrum sínum og systkinum. Hún
var ein af tíu systkinum sem öll
Sigríður
Ingimundardóttir
✝
Ástkær móðir okkar og amma,
GUÐRÚN ELVAN FRIÐRIKSDÓTTIR,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans, fimmtudaginn
14. febrúar.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arnar Haukur Ómarsson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir,
Fjóla Sigurbjörg Ómarsdóttir,Pétur Sigurðsson,
Þröstur Ránar Þorsteinsson,
Halldór Nordquist Grímsson,
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSA PÁLSDÓTTIR,
sem lést mánudaginn 18. febrúar að hjúkrunar-
heimilinu Skjóli verður jarðsungin frá Lágafellskirkju
mánudaginn 25. febrúar kl. 13.00.
Jónína Guðrún Gústavsdóttir,
Páll Gústavsson, Annette Bauder,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir og afi,
NICOLAI GISSUR BJARNASON
Stekkjargötu 53,
Innri Njarðvík,
lést á Landspítalanum v/Hringbraut, miðvikudaginn
20. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Svanhildur Einarsdóttir,
Ingvar Gissurarson, Margrét Hallgrímsdóttir,
Anton Gylfason,
Ingvar Gylfason, Sigríður Erna Geirmundsdóttir,
og barnabörn.