Morgunblaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 33
Félagsstarf
40+ félagsstarf fyrir fólk með
þroskahömlun | Bíóferð í Smárabíó í
dag. Mæting kl. 18.15 í Smáralind og
borðað, farið í bíó kl. 20. Heimferð frá
Smáralind útgangi C kl. 22.20.
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30,
vinnustofa kl. 9- 16.30, postulíns-
málun kl. 9-12 og 13-16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, almenn handavinna, glerlist,
morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð,
hádegisverður, spiladagur, kaffi.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Leikhúsferðir í Iðnó á Sögu-
veislu með Guðrúnu Ásmundsdóttur
11. mars kl. 14, skráningu lýkur 7.
mars og á Flutningana eftir Bjarna
Ingvarsson með atriðum úr Skugga-
sveini Matthíasar Jochumssonar
sem Snúður & Snælda sýna 13. mars
kl. 14, skráningu lýkur 10. mars. Uppl.
í félagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga kl. 10, söngvaka
kl. 14, söngfélag FEB æfing kl. 17, leik-
hópurinn Snúður og Snælda sýna í
Iðnó Flutningana eftir Bjarna Ingv-
arsson. Næstu sýningar verða 6. og
9. mars kl. 14. Sími 562-9700.
Félag kennara á eftirlaunum |
Árshátíð 7. mars í Kiwanishúsinu.
Skráningu lýkur í dag, síma 595-1111. .
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía og
glerlist kl. 9.30, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi verður við til kl. 17,
félagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl.
15-16, bobb kl. 16.30 og dansæfing
undir stjórn Sigvalda kl. 18-20.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl.
9, 9.45 og 10.30, brids og búta-
saumaklúbbur kl. 13. Skráning í 5
daga Vestfjarðaferð 21.-25. júlí.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30, sund og leik-
fimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50,
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-12. Aðstoð v/böðun kl.
9.15-16, handavinna kl. 10-12, sund kl.
11.45, hádegisverður, verslunarferð í
Bónus kl. 13-16, tréskurður kl. 14.30,
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, morgunstund kl. 10, handa-
vinnustofan opin allan daginn, versl-
unarferð kl. 12.30, upplestur kl. 12.30,
bókband kl. 13, dans kl. 14, við undir-
leik harmóníkuhljómsveitar. Uppl. í
síma 411-9430.
Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9,
salurinn opinn og ganga kl. 13, botsía
kl. 14. Kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í
Holtakoti kl. 10-12, farið í heimsókn á
Leikskólann Holtakot kl. 10.30. Opið
hús eldri borgara í Litlakoti kl. 13-16,
spilað og spjallað. Bæna/kyrrð-
arstund verður á leikskólanum Holta-
koti kl. 20-21.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl.
16. TTT 10-12 ár kl. 17. Æskulýuðs-
félag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf eldri borgara
er kl. 13-16.30. Spilað, föndrað og
handavinna. Hafið samband við
kirkjuvörð í síma 553-8500 ef bíla-
þjónustu er óskað.
Digraneskirkja | Alfanámskeið kl. 19.
digraneskirkja.is
Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10-
12.30. Léttur hádegisverður á kirkju-
loftinu á eftir. Bænarefnum má koma
á framfæri í síma 520-9700 eða með
tölvupósti til domkirkjan@domkirkj-
an.is.
Grafarvogskirkja | Jón Magnússon
alþingismaður les 21. passíusálm kl.
18. Kyrrðarstund kl. 12-13. Fyrirbænir
og altarisganga, léttur hádegisverður
dansæfing kl. 10. Frá hádegi er spila-
salur opinn. Mánud. 10. mars er fram-
talsaðstoð frá Skattstofunni, skrán-
ing á staðnum og s. 575-7720.
Þriðjud. 18. mars er leikhúsferð í
Þjóðleikhúsið á Sólarferð.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við
böðun kl. 9, bókband, létt leikfimi kl.
13.15 og framhaldssagan kl. 14, kaffi-
veitingar.
Hraunbær 105 | Framtalsaðstoð 11.
mars kl. 9-12, skráning á skrifstofu
eða í síma 411-2730. Handavinna kl.
9-16.30, útskurður kl. 9 12, ganga kl.
10.15, hádegismatur, brids kl. 13-
16.30, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, almenn
handmennt og línudans kl. 11, pútt á
Keilisvelli kl. 10, Almenn handmennt
kl. 13, pílukast kl. 13.30, Gaflarakórinn
kl. 16.15.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
kl. 9-16, keramik, glermálun o.fl. Jóga
kl. 9-12, Sóley Erla. Samverustund kl.
10.30 lestur og spjall. Böðun fyrir há-
degi. Hádegisverður. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Framsögn, þegar
amma var ung f.h. og Hjördís Geirs
e.h. fimmtudaga, unnendur Íslend-
ingasagna spá í spilin föstudaga f.h.
en hláturhópur hittist e.h., myndlist-
arsýning Jörfa og Hæðargarðs, ný-
stárleg hönnun fermingakorta í Lista-
smiðju. S. 568-313.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús-
inu í Dalsmára kl. 9.30, ringó í Smár-
anum kl. 12, línudans í Húnabúð,
Skeifunni 11, kl. 17. Uppl. í síma 564-
1490.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er
Listasmiðjan opin kl. 13-16 á Korpúlfs-
stöðum og keila er í Keiluhöllinni við
Öskjuhlíð kl. 10.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni kl.
10.30, leikfimi kl. 11, handverksstofa
og námskeið í myndlist kl. 13, kaffi-
veitingar.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 5. mars, 65. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Látið Krist ríkja í hjörtum yðar, því að til friðar voruð þér kallaðir sem limir í einum líkama. Verið þakklátir. (Kól. 3,
15.)
Endurmenntun HÍ býður, ísamstarfi við Vísindavefinn,Orkuveituna og CCP upp ánámskeiðið Undur tölvu-
leikjana næstkomandi laugardag.
Þar ætlar Halldór Fannar Guð-
jónsson, eðlisfræðingur og fram-
kvæmdastjóri á tæknisviði íslenska
tölvuleikjaframleiðandans CCP, að sýna
gestum þá spennandi tækni og vísindi
sem tölvuleikir byggja á:
„Fyrst ætla ég að fara í gegnum sögu
tölvuleikjanna og þróun, og setja í sam-
hengi við upplifanir mínar sem 8 ára
krakki þegar ég byrjaði að spila tölvu-
leiki,“ segir Halldór Fannar sem starf-
aði m.a. um langt skeið við gerð tölvu-
leikja í Sílíkondal í Kaliforníu, og vann
m.a. við gerð Sims-leikjanna vinsælu.
„Við skoðum svo þann vélbúnað sem við
höfum í dag í heimilistölvum og leikja-
tölvum, og jafnvel að ég rífí í sundur eitt
stykki svo að gestir sjái betur hvernig
tölvan er samsett.“
Halldór Fannar hefst því næst handa
viða að leiða námskeiðsgesti í allan
sannleik um þær áskoranir sem tölvu-
leikjaframleiðendur eru að fást við í
dag: „Vélbúnaðurinn er orðinn afar
háþróaður og forritun því orðin mjög
flókin. Margir gera sér ekki grein fyrir
hversu vandasamt verkefni það er að
gera nútíma tölvuleik, en leysa þarf
mörg flókin vandamál og nýta sér sér-
fræðiþekkingu af ýmsum sviðum vís-
indanna.“
Að sögn Halldórs eru spennandi
tímar framundan í tölvuleikjum: „Net-
væðing tölvuleikja hefur opnað nýja
heima og gerir kleift að mynda heil sam-
félög spilenda sem allir hafa víxlverk-
andi áhrif hver á annan. Þar þarf m.a. að
glíma við tæknivandamál sem lúta að
bandvídd, svörun og hugmyndaríkum
hugbúnaðarlausnum,“ segir hann. „Út-
lit leikjanna er líka að verða sífellt betra
og eru atriði í sumum leikjum farin að
jafnast á við tæknibrellur í kvikmynd-
um. Enn á þó eftir að takast að skapa í
tölvuleik hreyfða mynd sem ekki er
hægt að sjá að er tölvugerð.“
Námskeiðið Undur tölvuleikjanna er
haldið í húsi Orkuveitunnar, Bæjarhálsi
1, og stendur frá 12 til 14. Finna má
nánari upplýsingar um þáttökugjöld og
skráningu á heimasíðu EHÍ á slóðinni
www.endurmenntun.is.
Tækni | Námskeið á verði bíóferðar fyrir börn og unglinga á laugardag
Vísindi tölvuleikjanna
Halldór Fannar
Guðjónsson fædd-
ist í Reykjavík
1972. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Ís-
lands 1992 og BS-
prófi í eðlisfræði
frá Háskóla Ís-
lands 1996. Hall-
dór Fannar hefur starfað við tölvu-
leikjagerð í áratug, m.a. hjá Atari,
Maxis og Electronic Arts. Hann hefur
verið framkvæmdastjóri á tæknisviði
CCP frá 2005. Eiginkona Halldórs
Fannars er Lára G. Sigurðardóttir
læknir og eiga þau þrjú börn.
Myndlist
Gallerí Ágúst | Einkasýning Söru Björns-
dóttur stendur yfir. Sara sýnir ljósmyndir
og myndbandsverk. Opið mið.-laug. kl. 12-
17 og eftir samkomulagi. Sími 578-2100,
galleriagust.is
Leiklist
Halaleikhópurinn | Næstu sýningar á
Gaukshreiðrinu eftir Dale Wasserman
verða í Halanum, Hátúni 12 (Sjálfsbjarg-
arhúsinu), í kvöld og 12. mars. Síðustu sýn-
ingar.
Uppl. og miðapantanir á midi@halaleikhop-
urinn.is og í síma 552-9188.
Dans
Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús hjá
Þjóðdansafélaginu í Álfabakka 14a, kl.
20.30. Gömlu dansarnir.
Fyrirlestrar og fundir
Krabbameinsfélagið | Góðir hálsar, stuðn-
ingshópur um krabbamein í blöðruháls-
kirtli, halda rabbfund í húsi Krabbameins-
félagsins að Skógarhlíð 8, kl. 17. Gestur
verður Margrét Gunnarsdóttir sjúkraþjálfi
og ræðir hún um gildi hreyfingar fyrir vel-
líðan.
Náttúrufræðistofnun Íslands | Hrafnaþing
í Möguleikhúsinu við Hlemm kl. 12.15–13.
Guðrún Gísladóttir, náttúrulandfræðingur
og prófessor við Land- og ferðamála-
fræðiskor HÍ, flytur erindi um áhrif jarð-
vegsrofs á kolefnisbúskap og landgæði.
Nánar á http://www.ni.is
Fréttir og tilkynningar
MÍR | Aðalfundur félagsins MÍR, Menning-
artengsla Íslands og Rússlands, verður í fé-
lagsheimilinu Hverfisgötu 105 laugardag-
inn 15. mars kl. 13.30. Venjuleg
aðalfundarstörf, lagabreytingar og önnur
mál.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12b. Tekið
við hreinum fatnaði og öðrum varningi kl.
10-15. Sími 55-14349, netfangið er maed-
ur@simnet.is
Kvikmyndir
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur | SVF
ásamt Norræna húsinu sýnir heim-
ildamyndina Näkkälä sem fjallar um vin-
áttu tveggja ólíkra manna í stórbrotinni
náttúru finnsku túndrunnar. Samskiptum
mannanna og lífi fólksins í þorpinu er lýst á
ljóðrænan hátt yfir allar tíðir ársins. Mynd-
in er sýnd í Norræna húsinu kl. 18. Aðgang-
ur ókeypis.
að lokinni stundinni. TTT fyrir 10-12
ára kl. 17-18 í Rimaskóla og Korpu-
skóla. Jón Magnússon alþingismaður
les 21. passíusálm kl. 18.
Grensáskirkja | Samverustund aldr-
aðra, matur og spjall kl. 12, helgistund
kl. 14.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga. Morg-
unverður í safnaðarsal eftir messuna.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund kl. 12-13, skrifstofan lok-
uð á meðan, unglingafræðsla kl.
17.30, fjölskyldusamveran kl. 18, létt
máltíð gegn vægu gjaldi, biblíu-
kennsla kl. 19, Royal Rangers skáta-
starf fyrir 5 ára og eldri.
Kristniboðssambandið | Samkoma
kl. 20. Skúli Svavarsson kristniboði
segir frá starfinu í Kenía. Þorgeir
Arason guðfræðinemi hefur hug-
vekju. Söluborð, línuhappdrætti og
kaffi eftir samkomu.
Laugarneskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10, gönguhópurinn Sólarmegin kl.
10.30, Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur)
kl. 14.15, umsjón hafa prestar og
kirkjuvörður safnaðarins. Ferming-
artímar kl. 19.30, munnleg próf
standa allt kvöldið. Unglingakvöldið
fellur niður.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Opið
hús kl. 15. Katrín Fjeldsted læknir
spjallar um heilsuna og efri árin. Opið
hús kl. 15, byrjar með kaffi á Torginu.
Vídalínskirkja Garðasókn | For-
eldramorgunn kl. 10-12.30. Ebba
Guðný Guðmundsd næringarfræð-
ingur fræðir um holla næringu barna
og verður bók hennar til sölu. Kaffi.
FYRRVERANDI forseti Suður-Afríku
Nelson Mandela veitti í Jóhannesar-
borg í gær hópi ungs og efnilegs skóla-
fólks styrki til áframhaldandi náms.
Styrkirnir eru samstarfsverkefni á
milli Stofnunar Nelsons Mandela og
Rhodes-námssjóðsins.
Mandela verður níræður seinna á
árinu og vinnur nú að því í gegnum
stofnun sína að móta næstu kynslóð
leiðtoga Afríku. Liður í því verkefni er
að styðja við bakið á ungu hæfileika-
fólki og stuðla að tengslum þess á milli
svo að það vinni saman að því á kom-
andi árum að leysa hin mörgu vanda-
mál álfunnar.
Tvær kynslóð-
ir leiðtoga
FRÉTTIR
Útskýringarkort vantaði
Í Morgunblaðinu í gær birtist bréf til þingmanna frá Benedikt V.
Warén. Bréfinu átti að fylgja kortið sem hér fylgir, en það sýnir
200NM radíus út frá Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum. Rauði
fleygurinn er ávinningurinn að hafa þyrlu á Akureyri, umfram Egils-
staði. Blái fleygurinn er ávinningurinn að hafa þyrlu á Egilsstöðum
umfram Akureyri.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi frá bæjar-
fulltrúum Á-listans á Álftanesi
með ósk um birtingu:
„Ríkissjónvarpið fjallaði um
bæjarstjórnarfund og afgreiðslu
breytingartillögu á aðalskipulagi
Álftaness fimmtudaginn 21. febr-
úar sl. Upphafsorð og aðalatriði í
fyrstu frétt kl. 22 á fimmtudag
fyrir viku voru: „Íbúar fjöl-
menntu á fundinn sem var í al-
gjöru uppnámi.“ Þá var texti á
skjánum en þar stóð „Allt í upp-
námi“. Þessi fyrstu orð fréttar-
innar eru einhverra hluta vegna
röng. Ekkert uppnám var á fund-
inum sem fór vel fram samanber
fundargerð og myndbandsupp-
töku sem hægt er að nálgast á
netinu.
[…] Í upphafi fundar voru um
15 manns mættir og þegar fjöl-
mennast var voru um 30 manns í
salnum. Á þeim tímapunkti þeg-
ar fundurinn er sagður hafa farið
í uppnám voru í salnum 5 áhorf-
endur, sem ekki sýndu á nokkurn
hátt að þeir væru í uppnámi. […]
Fréttamaðurinn hefur viður-
kennt ákveðin mistök við gerð
fréttarinnar en neitar að leið-
rétta hana. Hann fékk þessar
röngu lýsingar á fundinum frá
talsmanni Sjálfstæðisfélagsins,
en þeir hafa lagt á það megin-
áherslu að reyna að skapa sér
tækifæri til að rægja bæjarstjórn
og sveitarfélagið Álftanes opin-
berlega.
Bæjarstjórn Álftaness er ósátt
við rangan, villandi og hlutdræg-
an fréttaflutning Ríkissjónvarps-
ins í þessu máli.
Bæjarfulltrúar Á-lista, Sigurð-
ur Magnússon, Margrét Jóns-
dóttir, Kristján Sveinbjörnsson,
Kristín Fjóla Bergþórsdóttir.“
Ekkert uppnám á
bæjarstjórnarfundi