Morgunblaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 35
Krossgáta
Lárétt | 1 brynna músum,
4 mastur, 7 nýslegna
heyið, 8 bárum, 9 ham-
ingjusöm,
11 kvendýr, 13 at, 14
svali, 15 klína, 17 ágeng,
20 skelfing, 22 drekkur
með tungunni, 23 óskar
eftir, 24 sér eftir, 25 hinn.
Lóðrétt | 1 borguðu, 2
ófullkomið, 3 beitu, 4
köld, 5 fiskur, 6 vesælar,
10 heiðarleg,
12 keyra, 13 gyðja, 15 tal-
aði, 16 málmur, 18 auð-
ugan, 19 söngflokkar,
20 grunar, 21 blása kalt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 páskavika, 8 glæta, 9 kekki, 10 nón, 11 teigs, 13
apann, 15 hlass, 18 elfur, 21 tóm, 22 rugga, 23 jafnt, 24
hrakyrðir.
Lóðrétt: 2 ámæli, 3 krans, 4 vakna, 5 kikna, 6 ógát, 7
kinn, 12 gæs, 14 pól, 15 horf, 16 angur, 17 stakk, 18 emj-
ar, 19 fífli, 20 rita.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Dugnaður laðar að sér meiri vinnu
– sem er bara jákvætt ef þú hefur gaman
af því sem þú gerir, færð nóg borgað og
færð meiri orku! Atvinnulausir fá vinnu-
tilboð í dag.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú getur leitað hátt og lágt, en
kemst að því að það er ekkert til að
stressa sig yfir. Auk þess geturðu bara
gert hlutina aftur ef þeir heppnast ekki í
fyrstu tilraun.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Fagnaður er listform sem þú ert
meistari í. Og þú átt að vera fyrirmynd
annarra í því að hafa smástuð í lífinu.
Leyfðu lífsgleði þinni að vera öðrum
andagift.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert hæfileikaríkur. Gleymdu
því sem ætlast er til af þér, og hlustaðu á
rödd hæfileika þíns. Ef þú leggur vel við
hlustir mun hún leiða þig áfram.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Kvittanirnar í veskinu þínu segja
sögu. Ertu sáttur við þá persónu sem þær
segja þig vera? Stjörnurnar vilja breyt-
ingar í neyslumynstur þitt og persónu.
Vertu hinn sanni þú.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Skilaboð virðast týnast núna,
hvort sem þau eru á töflunni, í símanum
eða krotuð á miða. Ef þau eru mjög mik-
ilvæg skaltu geyma þau í hjarta þínu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er rómantískt að þurfa að yf-
irstíga hindranir – nema, auðvitað, maður
hafi sjálfur komið þeim fyrir. Þá eru þær
skylda. Þannig skyldu sinnir þú í dag.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Fólk þarf ekki að elska jafn-
mikið til að samband virki. Þú losar þig
við tilfinningalegar væntingar og verður
mjög ánægður með stöðu sambandsins.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú gerir mjög nákvæmar
væntingar til sjálfs þín sem þú myndir
ekki dirfast að gera til annarra. Slakaðu á.
Komdu fram við sjálfan þig eins og besta
vin þinn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Allir vilja ráða. Stundum er
gáfulegast að viðurkenna að maður hefur
rangt fyrir sér, í stað þess vita allt best og
vera algerlega óþolandi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú færð tækifæri til að kynn-
ast einhverjum sem þekkir alla. Gríptu
það. Vertu næmur í kvöld og opinn fyrir
spádómi sem upp verður kveðinn og ræt-
ist seinna.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert að verða sú manneskja sem
þig hefur alltaf langað að vera. Þú þarft
enn að uppræta gömul mynstur – og þar
situr ein hugmynd sem fastast.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Staðan kom upp í Skákþingi Reykja-
víkur – Skeljungsmótinu sem fór fram
sl. janúar í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Sigurbjörn Björnsson
(2286) hafði hvítt gegn Sigurlaugu
Friðþjófsdóttur (1829). 36. Hh7! svart-
ur getur nú ekki bæði varist máthót-
unum hvíts og liðstapi. Framhaldið
varð: 36…Hf1+ 37. Kxe4 He1+ 38.
Kf5 Hf1+ svartur hefði orðið mát eftir
38…Hxe8 39. g4+ Kh4 40. Hxh6 mát.
39. Ke6 a5 40. Hg7 He1+ 41. Kf7 a4
42. Rf6+ Kh4 43. Hg4 mát.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Góður inngangur.
Norður
♠D985
♥K53
♦ÁG5
♣964
Vestur Austur
♠7 ♠Á6
♥D74 ♥9862
♦KD10864 ♦972
♣D87 ♣KG102
Suður
♠KG10432
♥ÁG10
♦3
♣Á53
Suður spilar 4♠.
„Hálfur salur af stórmeisturum klúðr-
aði þessu spili,“ skrifar Larry Cohen. Sem
er uppbyggjandi inngangur að úrspils-
þraut, því félagsskapurinn er góður hvort
sem maður leysir þrautina eða ekki. Suð-
ur spilar 4♠ eftir opnun vesturs á veikum
2♦. Tígulkóngur kemur út, sem er drep-
inn, en hvað svo?
Áætlunin hlýtur að vera sú að neyða
vörnina til að hreyfa hjartað. Eftir af-
trompun og upphreinsun á tígli er mót-
herjunum spilað inn á lauf og þeim boðið
upp á þá afarkosti að spila út í tvöfalda
eyðu eða finna ♥D. Til að tryggja inn-
kastið verður að nota innkomuna á ♦Á til
að trompa tígul, en verri helmingurinn af
salnum spilaði spaða úr borði í öðrum
slag. Sú fljótfærni var dýrkeypt. Austur
dúkkaði og þar með vantar samgang til að
trompa tígul tvisvar. Þeir sagnhafar sem
fóru svo illa af stað urðu að treysta á get-
spekina, en hún brást þeim flestum, því
eðlilegt er að reikna með ♥D í austur.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Skipti eru að undirbúa skráningu á hlutabréfamarkaðfyrir lok mars. Hver er forstjóri Skipta?
2 Breytingar hafa orðið á virkni hverasvæðis við hver áReykjanesi? Hvað heitir hverinn?
3 Flugáhugamenn eru á höttunum eftir Gullfaxa, fyrstuþotunni, sem kom til landsins? Til hvaða flugfélags
kom þotan?
4 Dað Lárusson, markvörður, er rifbeinsbrotinn. Meðhvaða liði leikur hann?
Svör við spurningum
gærdagsins:
1. Illya Nyzhnyk er 11 ára
undrabarn í skáklistinni sem
hér teflir um þessar mundir.
Hvaðan er hann? Svar: Úkra-
ínu. 2. Hvaða verktakafyr-
irtæki er að reisa virkjun á
Grænlandi? Svar: Ístak. 3.
Hver er þjálfari bikarmeistara
Vals í handknattleik? Svar:
Óskar Bjarni Óskarsson. 4.
Búnaðarþing stendur yfir um þessar mundir. Hver er for-
maður Búnaðarsambandsins? Svar: Haraldur Benedikts-
son.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
GRÉTAR
Tryggvason,
prófessor og for-
seti vélaverk-
fræðideildar
Worcester Poly-
technic Institute
í Bandaríkj-
unum, flytur fyr-
irlestur í boði
verkfræðideildar HÍ, fimmtudaginn
6. mars um áskoranir og tækifæri í
menntun verkfræðinga á nýrri öld.
Fyrirlesturinn verður í húsi verk-
fræðideildar VR-II, Hjarðarhaga 6,
stofu 157 og hefst kl. 16.
Tilefni heimsóknar Grétars til Ís-
lands er þátttaka hans í fundaröð
verkfræðideildar HÍ „Verkfræðin í
heimi framtíðarinnar“.
Grétar Tryggvason er fæddur og
uppalinn á Íslandi. Hann stundaði
framhaldsnám í verkfræði í Banda-
ríkjunum og lauk doktorsprófi
1985. Hann hefur starfað þar sem
prófessor í 27 ár. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku og allir eru velkomn-
ir.
Tækifæri í
menntun
verkfræðinga
á nýrri öld
GUÐRÚN Gísladóttir, náttúruland-
fræðingur og prófessor við Land-
og ferðamálafræðiskor Háskóla Ís-
lands, flytur erindi um áhrif jarð-
vegsrofs á kolefnisbúskap í dag,
miðvikudaginn 5. mars, á Hrafna-
þingi – fræðsluerindi Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands, sem
hefst kl. 12.15 í Möguleikhúsinu við
Hlemm
Í erindinu mun Guðrún fjalla um
rannsóknir á Krýsuvíkurheiði þar
sem áætlað hefur verið heild-
armagn áfoks og jarðvegstap á
svæðinu frá landnámi og magn kol-
efnis sem hefur safnast upp við
áfok og tapast við rof, segir í frétta-
tilkynningu.
Áhrif jarð-
vegsrofs á kol-
efnisbúskap
MIÐVIKUDAGSFYRIRLESTUR í
Bratta í Kennaraháskólanum verð-
ur í dag, 5. mars, kl. 16-17. Hann
nefnist Flokkun nemenda í 10. bekk
eftir áhuga á náttúrufræðinámi.
Fyrirlesari er Haukur Arason lekt-
or.
Í fréttatilkynningu segir að fyr-
irlesturinn byggi á gögnum úr
ROSE-rannsókninni þar sem ís-
lenskum nemendum í 10. bekk
grunnskóla er skipt upp í sjö flokka
eftir mismunandi áhuga þeirra á
náttúrufræðinámi. Tæplega helm-
ingur nemenda fellur í þá flokka
sem sýna sérstakan áhuga á ein-
hverjum eða öllum sviðum nátt-
úrufræðináms en rúmlega helm-
ingur hefur ekki námsáhuga á
neinu sviði náttúrufræða og fælist
nám á sumum eða jafnvel öllum
þeirra. Fjallað verður um hvað ein-
kennir þá sjö mismunandi flokka
sem nemendur falla eðlilega í, sé
skoðuð mismunandi afstaða þeirra
til náttúrufræðináms.
Áhugi nem-
enda á nátt-
úrufræðinámi
Á FUNDI miðstjórnar Frjálslynda
flokksins sem haldinn var í Reykja-
vík 15. febrúar sl. var gerð svo-
hljóðandi samþykkt:
„Tillaga vegna álits mannrétt-
indanefndar Sameinuðu þjóðanna
um að íslenska fiskveiðistjórn-
arkerfið brjóti í bága við alþjóða-
samning um borgaraleg og stjórn-
málalegt réttindi. Fundur
miðstjórnar Frjálslynda flokksins,
haldinn 15. febrúar 2008, fagnar
úrskurði mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna, frá 24. októ-
ber 2007, og krefst þess að rík-
isstjórnin taki fullt tillit til álitsins.“
Frjálslyndir
fagna
úrskurði