Morgunblaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 71. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Í gæsluvarðhald vegna
gruns um nauðgun
Fimm menn eru grunaðir um að
hafa byrlað konu lyf og nauðgað
henni í íbúð í vesturbæ Reykjavíkur
og voru úrskurðaðir í þriggja daga
gæsluvarðhald í gær. Konan, sem er
erlend, fékk umönnun á neyð-
armóttöku Landspítalans fyrir þol-
endur kynferðisafbrota. » Forsíða
Fengu mikinn stuðning
Kjarasamningarnir á almenna
vinnumarkaðnum hafa verið sam-
þykktir með miklum meirihluta at-
kvæða í öllum stéttarfélögum sem
hafa lokið atkvæðagreiðslu og birt
niðurstöðurnar. » 4
Aðgerðir undirbúnar
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra segir að nú sé unnið
að undirbúningi aðgerða í húsnæðis-
málum sem boðaðar voru í tengslum
við gerð kjarasamninga. M.a. er
stefnt að byggingu 750 félagslegra
leiguíbúða á ári næstu þrjú ár. » 2
Sakaður um vændiskaup
Eliot Spitzer, ríkisstjóri New
York, sem hefur verið sakaður um
vændiskaup, bað í gær fjölskyldu
sína og almenning afsökunar á fram-
ferði sínu. Repúblikanar á þingi
New York-ríkis kröfðust þess að
Spitzer segði tafarlaust af sér vegna
málsins. » 14
SKOÐANIR»
Staksteinar: Fjármálakreppa eða …
Forystugreinar: Tengslin við Fær-
eyjar | Sóknarfæri í lífrænni ræktun
Ljósvaki: Með sælgæti í farteskinu
UMRÆÐAN»
Blúsinn eflir vinarþel
Um olíuhreinsun
Leiðin að skapandi samvinnu
Sendibréf til sjálfstæðismanna
(4 4(
4 4 4
4 4
4(
4(
4(
5 '6%)/"%,
"'
7"!
""!%%&%
% (4 (4 4 4 4 4
4(
4(
4
.8 2 )
(4 (4 4 4 4
4 4 9:;;<=>
)?@=;>A7)BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA)8%8=EA<
A:=)8%8=EA<
)FA)8%8=EA<
)3>))A&%G=<A8>
H<B<A)8?%H@A
)9=
@3=<
7@A7>)3,)>?<;<
Heitast 2°C | Kaldast -5°C
NA-átt, víða 5-8 m/s.
Skýjað með köflum og
él á stöku stað, en
gengur í NA 5-10 síð-
degis fyrir austan. » 10
Halldór Bragason
lét taka Fenderinn
sinn í gegn og nú
mun taka ár að spila
hann til; spila hann
inn í sálarlífið. » 43
TÓNLIST»
Gítar með
boðskap
KVIKMYNDIR»
Will Ferrell er
vinsælastur í bíó. » 39
Abstraktmálarar
voru álitnir hættu-
legir. Listfræðinem-
ar rannsaka nú verk
Hjörleifs Sigurðs-
sonar. » 41
MYNDLIST»
Hættulegir
listamenn
TÓNLIST»
Bubbi Morthens og
Biggi í Maus deila. » 36
TÓNLIST»
Stefanía Svavarsdóttir
sigraði í Samfés. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Dóttir Ledgers arflaus
2. Fimm grunaðir … nauðgað stúlku
3. Drengurinn látinn
4. Karlmaður handtekinn …
Íslenska krónan veiktist um 1,5%
MIKIL hækkun
er yfirvofandi á
reiðhjólum og
getur hún numið
allt að 15 til 25%,
að sögn Jóns Pét-
urs Jónssonar,
framkvæmda-
stjóra Arnarins.
Jón Pétur segir
að búast megi við
hækkunum á
ýmsum vörum og þar á meðal reið-
hjólum. Verð á reiðhjólum hjá Ern-
inum hafi reyndar staðið í stað frá
því fyrir síðustu aldamót en allt
hækki og þar með hjólin.
Aukinn flutningskostnaður
Jón Pétur segir að efniskostnaður
hafi hækkað, aðflutningsgjöld og
staða krónunnar bæti ekki stöðuna.
Auk þess sé hluti verðsins tengdur
olíugjaldi. Hann segir að sérstaklega
sé áberandi hvað flutningsgjöldin
hafi hækkað og nefnir í því sambandi
að kostnaður við að flytja 40 feta
gám hafi hækkað um 100% á þriggja
ára tímabili.
Mikil
hækkun
Hækkun Reiðhjól
hækka sem annað.
VÍSINDAMENN hafa undanfarna
tvo daga kannað vinda og veður yfir
Íslandi og Grænlandshafi. Vonast er
til að þessar rannsóknir geri mönn-
um kleift að gera betri veðurspár,
bæði staðbundnar og eins að spá
veðri til langs tíma.
Haraldur Ólafsson, prófessor í
veðurfræði við HÍ, stýrir verkefn-
inu. Hann telur líklegt að hægt verði
að sýna fram á að vindar yfir Íslandi
geti haft áhrif á ofsaveður yfir Bret-
landi. Til rannsóknarinnar er notuð
sérútbúin og hraðfleyg Falcon-þota.
Búið er að fljúga yfir Grænlands-
haf og nokkra jökla hér á landi og í
síðasta könnunarflugi þessa áfanga,
sem farið verður í dag, er ætlunin að
fljúga yfir Snæfellsnes, Breiðafjörð
og Norðurlandið. | 2
Máttugir
vindar
Veðurflug Þotan er sérútbúin.
„SÍÐASTI bærinn í dalnum kominn í samband,“ sagði
Ólafur Jes Kristófersson, bóndi í Kalmanstungu, þegar
Morgunblaðið hringdi í GSM-síma hans í gær.
Kalmanstunga er innsti bær í Hvítársíðu í Borgarfirði.
Þar hefur aðeins verið símasamband um landlínu til
þessa en hvorki GSM- né NMT-símasamband.
Nýlega setti Vodafone upp langdrægan GSM-sendi á
fjallið Strút og þar með opnaðist sambandið við Kal-
manstungu. Ólafur sagði að í fyrra hefði verið leitt raf-
magn upp á Strútinn sem gerði þetta kleift.
Ólafur taldi það auka heilmikið öryggi heimilisfólks-
ins að fá GSM-samband. Hann er með um 300 kindur en
var ekki búinn að prófa símann í fjárhúsunum. „Ég
held þetta dragi svo langt sem augað eygir. Þetta er
langdrægur sendir og tekur Arnarvatnsheiðina alla og
Langjökulinn mestan part,“ sagði Ólafur. „Nú vantar
bara akfæran veg til að koma mér inn í nútímann.“
Um tvær vikur eru síðan GSM-samband komst á á
Kili og unnið er að því að setja upp samband á Sprengi-
sandi fyrir páska, samkvæmt upplýsingum Vodafone.
Síðasti bærinn í samband
Kalmanstunga í Hvítársíðu komin í GSM-samband
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
EINN af fylgifiskum góupáska er
að uppstigningardagur lendir á
verkalýðsdeginum 1. maí. Það þýð-
ir að í stað þriggja rauðra frídaga
sem á vormánuðum lenda á
fimmtudegi verða þeir aðeins tveir,
þ.e. annars vegar sumardagurinn
fyrsti sem þetta árið er 24. apríl,
og hins vegar uppstigningardagur
sem ber upp á 1. maí.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu sl. laugardag eru góu-
páskar fremur sjaldgæfir, en með-
altími milli góupáska er 35 ár –
bilið getur farið niður í ellefu ár og
mest upp í 152 ár.
„Það er hins vegar miklu sjald-
gæfara að uppstigningardagur
lendi á 1. maí. Það gerist bara þeg-
ar páskadagur er 23. mars, eins og
er í ár. Það gerist aðeins um það
bil einu sinni á öld,“ segir Þor-
steinn Sæmundsson, stjörnufræð-
ingur hjá Raunvísindastofnun Há-
skóla Íslands, og bendir á að það
hafi aðeins gerst árið 1913 og ger-
ist næst árin 2160 og 2228.
Spurður hvort fleiri rauðum frí-
dögum geti slegið saman með
þessum hætti bendir Þorsteinn á
að þar sem páskarnir séu færan-
legir geti skírdagur lent á sum-
ardeginum fyrsta, en slíkt kallist
sumarpáskar. Að sögn Sæmundar
verða sumarpáskar að meðaltali á
15 ára fresti. Stysta bilið er þrjú
ár en það lengsta 41 ár. Á síðustu
öld urðu sumarpáskar sjö sinnum,
þ.e. árin 1905, 1916, 1943, 1962,
1973, 1984 og 2000. Á þessari öld
gerist þetta sex sinnum, þ.e. árin
2011, 2038, 2057, 2068, 2079 og
2095.
Einum frídeginum færra
Uppstigningardagur í ár er á frídegi verkalýðsins, 1. maí
Gerist bara einu sinni á öld, síðast 1913 Verður næst 2160
Morgunblaðið/ÞÖK
Frí 1. maí verður haldinn hátíðlegur
í ár, en launþegar tapa frídegi.