Morgunblaðið - 26.03.2008, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
„ÞAÐ er nóg af þorski að fá, það er
bara spurningin hvort menn vilja taka
hann eða mega það. Það eru reyndar
bara tveir bátar eftir hér á netum, en
þeir eru að fá um tonn í trossuna. Hinir
eru farnir norður fyrir Nesið. Þar er
mokfiskirí,“ sagði Þórarinn Hilmars-
son, hafnarvörður á Arnarstapa, í gær.
„Fæðingarorlof“
Veiðar voru að komast í gang eftir
páskafrí, en bræla setti strik í reikn-
inginn. Sérstaklega með tilliti til þess
að „fæðingarorlof“ þorskins hefst
fyrsta apríl. Þá verða bátarnir að fara
út af hrygningarslóðinni. Margir segja
að páskarnir hafi verið of snemma nú.
Það hefði verið betra að geta veitt síð-
ustu dagana, sérstaklega vegna bræl-
unnar nú. En tímasetningu páskanna
verður víst ekki hnikað nema eftir
reglum, sem ekki miðast við íslenzka
sjósókn.
Austan fýla
„Hér er austan fýla og leiðindi,“
sagði Sverrir Vilbergsson, hafnarvörð-
ur í Grindavík. Hann sagði að þetta
færi því rólega af stað, en á annan
páskadag voru nokkrir á sjó og með
ágætan afla. Litlu línubátarnir lönd-
uðu þá reyndar í Sandgerði þar sem
veðrið er skaplegra en í austanáttinni í
Grindavík.
„Það hefur verið mjög gott fiskirí í
öll veiðarfæri í marz og það er ljóst að
nóg er af fiski til staðar. Það er tölu-
vert af þorski á hinni hefðbundnu ver-
tíðarslóð. Að minnsta kosti ekki
minna en í fyrra og þá þótti mönnum
mikið á ferðinni. Það er helzt að tog-
ararnir, sem halda sig utar, sjái
minna af þorski. Nú verðum við bara
að vona að brælan gangi niður sem
fyrst, því stutt er í stoppið,“ sagði
Sverrir.
Mok í öll veiðarfæri
„Það er búið að vera mikið fjör hjá
okkur í Ólafsvík að undanförnu,“
sagði Gunnar Bergmann, starfsmað-
ur Fiskmarkaðar Íslands. Í gær voru
dragnóta- og netabátar á sjó, en einn
þeirra, Bárður SH, lagði netin aðfara-
nótt annars páskadags og fékk 11
tonn í nokkrar trossur.
„Það hefur eiginlega verið mok hjá
okkur í öll veiðarfæri að undanförnu.
Það er svipað og í fyrra en breytingin
sem maður sér er stærðin á fiskinum.
Það er ekki bara að hann sé stærri og
betur á sig kominn, heldur er stærð-
ardreifingin afar jöfn. Þegar litið er á
þorsk úr dragnót í marz, er stærð-
ardreifingin nánast 20% í hvern af
hinum fimm stærðarflokkum. Það
sama á við um línufiskinn og í netin
kemur svo stærsti fiskurinn,“ segir
Gunnar.
Verð á fiskmarkaðnum var farið að
lækka fyrir páskana, enda mikið af
fiski og og lítil vinnsla á fiski í landi yf-
ir páskana. Gunnar segist búast við
mjög háu verði í þessari viku, en ótt-
ast að það verði rólegt á fiskmörk-
uðunum í vor.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Arnarstapi Pétur Pétursson landar netaþorski af Bárði SH en þar er hann um borð ásamt föður sínum.
Mikið af þorski á slóðinni
!" %
"
&" !
!" %
"
&" !
'
' (
' (
' )*
+
!
*
,*
-&"
./0
)*
+
! ,*
./0
-"&&
HÁKON EA gerði mjög góðan kol-
munnatúr fyrir páskana. Hann kom
þá til löndunar í Neskaupstað með
700 tonn af heilfrystum kolmunna og
1.300 tonn í bræðslu. Aflaverðmæti
rúmlega 45 milljónir króna.
„Það er mjög gott að fá svona góð-
an kolmunnatúr eftir þessa fárán-
legu loðnuvertíð, sem nú er lokið.
Veiðibannið var alveg út í hött og
óþarfa taugaveiklun í gangi. Það
hefði verið nær að hlusta betur á
skipstjórana. Bannið kom á okkur á
versta tíma,“ segir Ingi Jóhann Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Gjög-
urs, útgerðarfélags Hákonar.
Hákon var við veiðar niður við
Rockall, en þangað er mjög löng
sigling. Hann hefur nú haldið aftur
til veiða. Gjögur gerir út annað upp-
sjávarskip, Áskel, auk tveggja tog-
báta. Ingi segir að gert sé ráð fyrir
að Áskell haldi til kolmunnaveiða
með vorinu, þegar kolmunninn verði
genginn nær landinu. Skipin eigi um
11.000 tonna kvóta og gangi svona
vel áfram gæti hann verið búinn í
vor. Þá verður Hákoni stefnt á veið-
ar á norsk-íslenzku síldinni, en þar
er Gjögur með rúmar veiðiheimildir.
Síldin er nánast öll flökuð og fryst
um borð, ekkert fiskað beint í
bræðslu. Þangað fer bara afskurð-
urinn af frystu síldinni og sú síld
sem ekki hentar í frystingu.
Loðnuveiðum lokið
Loðnuveiðunum virðist nú end-
anlega lokið. Fyrir páska fékkst lítið
sem ekkert vestan við landið. Mest
af því var hængur, sem lítið er að
hafa út úr. Alls veiddust 145.400
tonn, en leyfilegur heildarkvóti var
157.200 tonn.
Því eru óveidd tæplega 12.000
tonn. Vertíðin í ár er því sú lélegasta
síðan 1982 og 1983. Fyrra árið
veiddust 13.000 tonn en 133.000 tonn
árið eftir. Verðmæti afurðanna af
þessari vertíð eru hins vegar hlut-
fallslega mikil vegna þess hve hátt
hlutfall aflans fór í vinnslu til mann-
eldis, heilfrystingar og hrognatöku.
Góður kol-
munnatúr
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Veiðar Hákon EA landaði kolmunna fyrir um 45 milljónir fyrir páska.
PRENTSMIÐJAN Galdur á Höfn í
Hornafirði hefur gengið til sam-
starfs við Prentun.com og munu
viðskiptavinir Galdurs nú geta nýtt
sér þá þjónustu og framleiðslu sem
Prentun.com hefur á boðstólum, að
því er segir í tilkynningu. Hafa
fleiri samningar sem þessir verið
gerðir.
Prentun.com er í eigu Kvosar,
móðurfélags Prentsmiðjunnar
Odda og fleiri prentfyrirtækja hér
á landi, í Austur-Evrópu og Banda-
ríkjunum.
Prentun.com hóf starfsemi hér á
landi á síðasta ári en starfsemin á
Íslandi er byggð upp að fyrirmynd
breska fyrirtækisins Printing.com
sem m.a. var valið fyrirtæki ársins í
Bretlandi árið 2006.
Prentun Samningur gerður af þeim Heiðari Sigurðssyni, framkvæmda-
stjóra Galdurs, og Rafni B. Rafnssyni, framkvæmdastjóra Prentun.com.
Galdur samdi
við Prentun.com
HELSTU hlutabréfavísitölur í kaup-
höllum í Bandaríkjunum lækkuðu við
opnun markaða í gær eftir nokkra
hækkun daginn áður. Þær tóku þó
flestar við sér er líða tók á daginn og
hækkaði til að mynda Nasdaq í gær
um 0,6% en Dow Jones lækkaði hins
vegar lítillega, eða um 0,1%.
Ástæðan fyrir lækkuninni í upphafi
gærdagsins var rakin til nýrrar mæl-
ingar á svonefndri væntingavísitölu
Gallup, sem birt var í gær. Hún sýnir
að enn dregur úr bjartsýni banda-
rískra neytenda.
Hlutabréfavísitölur í helstu kaup-
höllun Evrópu og Asíu hækkuðu tölu-
vert í gær, eins og Úrvalsvísitalan hér
á landi. Þannig hækkaði FTSE-vísi-
talan í London um 3,5% sem og CAC í
París og DAX í Frankfurt um 3,2%.
Þá hækkaði Hang Seng í Hong Kong
um 6,4%.
Ekki svartsýnni í fimm ár
Í frétt á fréttavef Wall Street
Journal segir að væntingavísitalan í
Bandaríkjunum fyrir marsmánuð
hafi náð sínu lægsta gildi í þessum
mánuði frá því Íraksstríðið hófst fyrir
fimm árum. Vísitalan er nú 64,5 stig
en hún var 76,4 stig í febrúar og 107,2
stig í marsmánuði á síðasta ári.
Samkvæmt bandarískum fjölmiðl-
um er helsta ástæðan fyrir minni
bjartsýni bandarískra neytenda rakin
til þess að húsnæðisverð vestanhafs
hefur haldið áfram að lækka eftir
nokkra lækkun á síðasta ári. Meðal-
verð á íbúðarhúsnæði í tíu stórborg-
um var til að mynda um 11% lægra í
janúarmánuði í ár en í sama mánuði í
fyrra. Þetta hefur skapað mikinn
vanda fyrir skulduga íbúðaeigendur.
Minni bjartsýni
vestanhafs
Reuters
Sveiflur Markaðir vestanhafs réttu
nokkuð við sér er leið á gærdaginn.
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
SKYNDILEG og óvænt hækkun
Seðlabankans á stýrivöxtum sínum í
gær hefur aukið áhyggjur manna af
því að Ísland gæti orðið fyrsta landið
til að fara illa út úr þeim erfiðleikum
sem nú eru á fjármálamörkuðum
heimsins. Þetta segir í frétt á frétta-
vef breska viðskiptablaðsins Fin-
ancial Times (FT) í gærkvöldi þar
sem fjallað er um ákvörðun Seðla-
bankans að hækka stýrivexti sína
um 1,25 prósentustig.
Segir í frétt FT að hröð veiking
krónunnar að undanförnu hafi orðið
til þess að talsmenn Seðlabankans
hafi talað óvenju ákveðið um það að
hætta væri á víxlhækkunum verð-
lags, launa og verðs á erlendum
gjaldeyri, ef ekkert verði að gert. Er
haft eftir Ingimundi Friðrikssyni
seðlabankastjóra að tíminn einn
muni leiða í ljós hvort aðgerðir bank-
ans muni skila tilætluðum árangri.
Í frétt FT segir að á sama tíma og
traust alþjóðlegra fjárfesta á Íslandi
hafi minnkað umtalsvert hafi ís-
lenskir stjórnarmálamenn og hag-
fræðingar reynt að fullvissa mark-
aðsaðila um styrkleika íslensks
efnahagslífs. Þá er haft eftir Richard
Portes, prófessor við London School
of Economics, sem á síðasta ári skrif-
aði skýrslu um íslenskt efnahagslíf
að hann hvetji menn til að kynna sér
raunverulega stöðu mála á Íslandi.
Verið sé að taka á ofhitnun hagkerf-
isins og dregið hafi úr hagvexti. Þá
hafi viðskiptahallinn, sem margir
telji að sé helsta rót vandans, minnk-
að mikið. Auk þess sé staða bank-
anna sterk samkvæmt alþjóðlegum
mælikvörðum.
Áhyggjur af
Íslandi aukast