Morgunblaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 29
✝ Sigurður Páls-son fæddist á
Þingeyri við Dýra-
fjörð 14. september
1930. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir 14. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Jóhanna
Daðey Gísladóttir
húsmóðir, f. 17.1.
1908, d. 3.7. 1981 og
Páll Jónsson skip-
stjóri, f. 12.12. 1903,
d. 1944. Systkini
Sigurðar eru Guð-
munda, f. 30.7. 1927, Þórdís, f.
21.6. 1933, d. 22.11. 1991, og Páll,
f. 3.6.1932.
Sigurður kvæntist í september
1953 Sigrúnu Sigfúsdóttur, f. 23.
ágúst 1932. Foreldrar hennar
voru Marta Einarsdóttir hús-
móðir, f. 22.11. 1905 og Sigfús
Þorsteinsson bóndi, f. 20.3. 1901.
Synir þeirra Sigurðar og Sigrún-
ar eru 1) Ingvar, f. 2.1. 1954, börn
hans eru, a) Sigrún, maður henn-
ar Ómar Örn Magnússon, b) Sjöfn,
sonur hennar Gabríel Elí, maki
Hafsteinn Þór Auðunsson, c)
Hlynur. 2) Sævar, f. 22.2. 1955,
kona hans er Fay Robina Castel.
3) Sigmar, f. 8.8. 1956, börn hans
frá fyrri sambúð eru a) Hjalti
Hreinn, maki Hulda Jóhanns-
dóttir, sonur þeirra Magnús Vík-
ingur, b) Ásta
María, maki Haukur
Ólafsson, börn
þeirra Atli Þór, f.
10.4. 2004, d. 4.5.
2006 og Sigrún
Helga, c) Sigrún
Marta. Kona Sig-
mars er Jónína Dag-
mar Ásgeirsdóttir,
hún á fjögur börn.
Sigurður var upp-
alin á Þingeyri,
hann byrjaði 8 ára
gamall að sækja sjó
með föður sínum.
Var á héraðsskólanum á Núpi,
lauk svo hinu meira fiskimanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík árið 1952. Ungur gekk
hann í skátahreyfinguna á Þing-
eyri og var einn af stofnendum
Lions-félagsins í Stykkishólmi. Í
báðum félögunum gegndi hann
hinum ýmsu trúnaðarstörfum.
Hann var skipstjóri á fiskibátum í
Keflavík. Vann við lögreglustörf
á Keflavíkurflugvelli og við Lór-
anstöðina á Stokknesi. Var sveit-
arstjóri á Höfn í Hornafirði,
Stykkishólmi og Hveragerði,
hreppstjóri Hveragerðishrepps
og umboðsmaður skattstjóra til
margra ára.
Útför Sigurðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum í trú
á að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Kæri Diddi, þá ert þú farinn í þá
ferð sem allra bíður.
Mig langar að þakka þér fyrir þá
stuttu samfylgd sem við áttum hér í
þessu lífi.
Ég kom inn í fjölskylduna fyrir tíu
árum síðan og fékk höfðinglegar
móttökur eins og ykkur hjónum var
einlægt. Á þessum árum rákuð þíð
gistiheimilið Ljósbrá í Hveragerði
og hafði ég mikla ánægju að vinna
þar með ykkur meðan það varði. Ég
man sérstaklega Diddi að eitt sinn
var alveg fullbókað þegar ég fór
heim, um morguninn þegar ég kom
fann ég þig liggjandi á gólfinu í
strauherberginu en þar hafðir þú
sofið um nóttina, þú hafðir boðið
fólki að sofa í húsvarðarherberginu.
Þannig var þjónustulundin, alltaf
tilbúinn að gera öllum greiða.
Á þessum tíma var farið að bera á
minnisleysi hjá þér, sem við vitum nú
að var byrjun á Alzheimer. Við gerð-
um oft grín að minnisleysinu og þú
hafðir á orði að það gætu nú allir
gleymt. Það var alltaf stutt í kímnina
hjá þér, þó að alvaran lægi undir.
En nú, Diddi minn, ertu laus við
fjötra sjúkdóms, sem við eigum erfitt
með að skilja og þér líður vel hjá ást-
vinum þínum sem biðu þín glaðir,
hinum megin við hliðið.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Þín tengdadóttir
Jónína Dagmar
Fyrsta minning mín um Sigurð
Pálsson mág minn, eða Didda eins og
ég kallaði hann alltaf, var fyrir rúmri
hálfri öld er hann kom heim í Skála-
teig, þá heitbundinn Sigrúnu systur
minni. Daginn eftir að hann kom var
hann kominn í smíðaherbergið og
farinn að dytta að hlutum sem þurftu
viðgerðar við. Það var uggur og kali í
brjósti mínu til þessa manns sem
mér fannst vera kominn til að taka
stóru systur frá mér. Ekki þurfti þó
meira en bros frá honum og vin-
gjarnleg orð til að áhyggjur mínar
hyrfu og ævarandi vinátta okkar
hófst. Rúmu ári seinna var hann orð-
inn fóstri minn er örlög réðu því að
ég fluttist með þeim til Þingeyrar við
Dýrafjörð þar sem þau hófu búskap.
Búsetan á Þingeyri var stutt, tæpu
ári síðar var Diddi búinn að kaupa
hálfkaraða íbúð og fluttur með fjöl-
skylduna til Keflavíkur þar sem
hann gerðist skipstjóri á vertíðar-
báti. Með sjósókninni innréttaði
hann íbúðina og smíðaði flest sjálfur.
Fljótt fjölgaði í fjölskyldunni, á rúm-
um þremur árum eignuðust þau Sig-
rún þrjá syni, Ingvar, Sævar og Sig-
mar, og atvinna hans breyttist
þegar hann hóf störf hjá lögreglunni
á Keflavíkurflugvelli. Eftir nokk-
urra ára starf þar var hann sendur
til að sinna löggæslu við Lóranstöð-
ina á Stokknesi. Fjölskyldan flutti
þá til Hafnar og Hornfirðingar átt-
uðu sig fljótt á því að þar fór traust-
ur maður og réðu hann sem sveit-
arstjóra stuttu síðar. Því embætti
gegndi hann í nokkur ár uns hann
var ráðinn sveitarstjóri í Stykkis-
hólmi. Eftir mörg góð ár í Stykk-
ishólmi tók hann við starfi sveitar-
stjóra í Hveragerði sem hann
gegndi í 12 ár uns breytingar urðu í
pólitíkinni þar og Sigurður hætti af-
skiptum af sveitarstjórnarmálum.
Þá sneri hann sér að hótelrekstri í
gamla hótelinu í Hveragerði ásamt
Sigrúnu og sonum og til varð Hótel
Ljósbrá. Fjölskyldan gerði miklar
endurbætur á hótelinu og vann það
að mestu leyti sjálf. Útsjónarsemi
og verklagni Didda kom sér þá vel,
hann var listamaður, það gilti einu
hvað hann fékkst við; allt lék í hönd-
unum á honum. Þau ráku einnig far-
fuglaheimili sem mikill erill var í
kringum. Í framhaldi gerðist hann
rútubílstjóri, fararstjóri og leið-
sögumaður ferðahópa sem sóttu
hótelið heim. Bæði íslenskir og er-
lendir ferðamenn í þessum ferðum
lofuðu hann fyrir hve vel hann miðl-
aði til þeirra þekkingu sinni á um-
hverfi, náttúru og íslenskri sögu.
Hann kunni nöfn á öllum jurtum og
steinum sem fyrir augu bar og þrátt
fyrir að vera hlédrægur og sjaldan
margmáll kom hann þessu vel til
skila svo að allir nutu vel. Diddi var
áhugaljósmyndari og hafði sérstak-
lega næmt auga fyrir réttu augna-
bliki og sjónarhorni þegar hann
festi eitthvað á filmu, einnig málaði
hann fallegar myndir. Eitt af áhuga-
málum Didda var steinasöfnun, þau
Sigrún fóru oft um fjöll og firnindi
til að safna fágætum steinum og
áttu orðið veglegt steinasafn. Sögð
er gamansaga af því þegar hann
ásamt öðrum manni fór upp í
Drápuhlíðarfjall og sótti þangað
stóran trjásteingerving sem þeir
renndu niður fjallið á járnplötu og
veltu upp í skottið á litla gamla Sa-
ab-bílnum hans. Steingervingurinn
var svo þungur að í sögunni var sagt
að bíllinn hefði nánast risið upp á
endann þegar steinninn var kominn
í skottið.
Síðustu ár stríddi Diddi við mikla
vanheilsu en hann var einn af þess-
um æðrulausu mönnum sem alltaf
bera sig vel og kvarta ekki. Ég kveð
mág minn með söknuði og miklu
þakklæti fyrir allan þann kærleika
sem hann auðsýndi mér frá okkar
fyrstu kynnum til hinstu stundar.
Ingibjörg Sigfúsdóttir.
Sigurður Pálsson
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Sendum
myndalista
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN KVARAN,
Sóleyjargötu 9,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 15. mars, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 28. mars
kl. 15.00.
Guðrún Kvaran, Jakob Yngvason,
Vilhjálmur B. Kvaran, Helga Pála Elíasdóttir,
Einar B. Kvaran,
Böðvar B. Kvaran, Ásta Árnadóttir,
Hjörleifur B. Kvaran, Anna Kristín Ólafsdóttir,
Gísli B. Kvaran, Anna Alfreðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og
langamma,
MARGÉT AUÐUNSDÓTTIR,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 17. mars, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 27. mars kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur eða önnur líknarfélög.
Haukur Bergsteinsson, Ragna Guðvarðardóttir,
Margét Hauksdóttir,
Agnes Hauksdóttir, Þórir Borg Gunnarsson,
Sara Indriðadóttir,
Haukur Borg Þórisson.
✝
Elskuleg systir okkar, frænka og mágkona,
AUÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Ytra-Skógarnesi,
síðast til heimilis á
Bræðraborgarstíg 55,
Reykjavík,
sem lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
fimmtudaginn 13. mars, verður jarðsungin frá
Neskirkju föstudaginn 28. mars kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
minningarsjóð Grundar s. 530-6100.
Jens Kristjánsson, Ingibjörg Þorvaldsdóttir,
Einar Haukur Kristjánsson, Anna Jóna Sigurðardóttir,
Kristjana Ágústa Kristjánsdóttir,
Sigríður Dinah Dunn, Magnús Hansson,
Birgir Sigmundsson, Ásdís Guðmundsdóttir
og aðrir ættingjar og vinir.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HJÖRTFRÍÐUR HJARTARDÓTTIR,
Brúarholti 4,
Ólafsvík,
verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
29. mars kl. 14.00.
Jón Steinn Halldórsson,
Hjördís Jónsdóttir, Guðlaugur Wium Hansson,
Matthildur Jónsdóttir, Þorvaldur Héðinn Einarsson,
Kristrún Jónsdóttir, Vilhelm Þ. Árnason,
Dröfn Jónsdóttir, Elías Hákonarson,
Halldór Friðgeir Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og
langafi,
HELGI HALLVARÐSSON
fyrrverandi skipherra,
Lautasmára 1,
Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum laugardaginn 15. mars.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 27. mars kl. 13.00.
Þuríður Erla Erlingsdóttir,
Guðfinna Helgadóttir, Guðni Einarsson,
Sigríður Helgadóttir, Birgir H. Sigurðsson,
Helgi Helgason, Brynja Tómasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐNÝ INGIBJÖRG BJARNADÓTTIR,
Vallargötu 7,
Sandgerði,
sem lést mánudaginn 17. mars verður jarðsungin
frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði, föstudaginn
28. mars kl. 14.00.
Jón Ásmundsson, Helga Karlsdóttir,
Kristín Ásmundsdóttir, Jón Árni Ólafsson,
Ragnheiður Ásmundsdóttir, Magnús Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.