Morgunblaðið - 26.03.2008, Síða 40

Morgunblaðið - 26.03.2008, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Skiptar skoðanir á Mannaveiðum Íslenskar glæpasögur hafa notið mikilla vin- sælda síðustu ár og ekki síst þegar þær eru færðar á skjáinn eða hvíta tjaldið. Mikil eft- irvænting var því fyrir sýningu fyrsta þáttar í glæpaþáttaröðinni Mannaveiðar á öðrum í pásk- um sem Björn Brynjúlfur Björnsson leikstýrði. Þáttaröðin er byggð á skáldsögu Viktors Arnar Ingólfssonar, Aftureldingu, fylgst með lög- reglumönnunum Gunnari og Birki rekja slóð morðingja sem drepur hvern skotveiðimanninn á fætur öðrum. Gunnhildur Finnsdóttir leitaði álits nokkurra valinkunnra Íslendinga á því hvernig til hefði tekist. „ÉG beið spennt, búin að koma barninu inn í rúm og allt til þess að geta fylgst með hverju orði,“ segir Katrín Jak- obsdóttir, ís- lenskufræðingur og þingmaður. Hún varð ekki fyrir vonbrigðum. „Mér fannst þetta flott og vel skipað í hlutverk og allt mjög smart. Þessi saga hent- ar vel til sjónvarpsgerðar og þau hafa leyft sér að vera svolítið frjáls- leg og aðlaga söguna.“ Henni fannst útlit myndarinnar sérstaklega vel heppnað. „Mér fannst það dálítið flott, svona grá- móskulegt og drungalegt og það fannst mér koma vel út.“ Þó hún sé almennt ánægð með þáttinn segir hún nokkuð hafa bor- ið á stífum samtölum. „Ég var ný- búin að horfa á kvikmyndina For- eldrar sem var þarna kvöldið áður og þar eru samtölin svo góð, mér fannst svolítið vanta upp á það í þessum þætti.“ Hún er ánægð með frammistöðu leikaranna í þættinum og þá sér- staklega aðalleikaranna tveggja. „Mér finnst Ólafur Darri standa sig mjög vel í þessu hlutverki sem hann er í, þessi fúli frá Keflavík, og mér fannst hann ná að gera sig mjög gildandi í þessu hlutverki. Eins með Gísla Örn, mér fannst þeir báðir njóta sín vel.“ Smart og vel skipað í hlutverk Katrín Jakobsdóttir DAVÍÐ Þór Jónssyni, þýð- anda og guð- fræðinema, fannst fyrsti þáttur Manna- veiða ljómandi góður. „Ég hef lesið bókina þannig að ég veit hver gerði þetta, nema þeir hafi breytt sögunni mjög mikið. Mér leist vel á þetta og finnst fyrsti þátturinn lofa góðu.“ Davíð Þór var þó ekki nógu hrif- inn af útliti þáttanna, segir litina hafa verið skrýtna. Aðalleikararnir stóðu sig vel að „Erfiðara að loka pakkanum“ Davíð Þór hans mati. „Ólafur Darri er nátt- úrulega löngu búinn að sanna að hann er flottur leikari og treyst- andi fyrir flestu. Mér fannst Gísli teikna upp mjög trúverðuga mynd af mjög leiðinlegum manni. Það er spurning hvernig þessir fortíð- ardraugar hans sem byrjað var að sýna koma inn í söguna og hvort þeir eigi eftir að flækja hana eða séu kannski óþarfir. Svo var hinn fullkomlega gagnslausi tengdason- ur ráðuneytisins, sem Björn Thors lék, skemmtileg týpa.“ Davíð Þór ætlar að fylgjast með næstu þáttum og vonar að þeir standi undir væntingum. „Það er oft með svona þætti að það er auð- velt að fara vel af stað, það er erf- iðara að loka pakkanum heldur en að opna hann.“ „ÞAÐ er nátt- úrulega búið að snúa öllu á haus þarna, en það er bara eins og það er,“ segir Ævar Örn Jósepsson rithöfundur um sjónvarpsútgáf- una af bók koll- ega síns. Hann er mjög ánægður með útkomuna og segir samspil aðalpersónanna hafa heppnast mjög vel. „Mér fannst kannski Gunnar vera orðinn aðeins of líkur lögreglu- manni sem ég kannast við,“ segir hann en vill ekkert gefa upp um það hver sá maður er. „Almennt eru leikararnir alveg ágætir. Það er ennþá einn og einn í gamla íslenska gírnum, en það var alveg í lágmarki,“ segir Ævar og þar á hann við mikil dramatísk til- þrif sem eiga vel við á sviði en síður í sjónvarpi. Hann ætlar að fylgjast vel með framhaldinu. „Það er skylda. Mað- ur verður að fylgjast með sam- keppninni,“ segir Ævar, en þátta- röð eftir skáldsögu hans Svörtum englum er í undirbúningi. Fylgist með sam- keppninni Ævar Örn Jósepsson „ÞETTA var bara nokkuð skemmtilegt, þetta byrjar ágæt- lega,“ segir Geir Jón Þórisson yf- irlögregluþjónn. „Mér fannst gam- an að sjá þarna þessa glímu í persónulegu lífi lögreglumanna og trúlega á það við rök að styðjast. Menn hafa ýmsan bakgrunn og ýmislegt sem þeir eru að glíma við í einkalífinu.“ Hann segir flest það sem kemur fram í þáttunum um starfsaðferðir lögreglunnar vera í samræmi við raunveru- leikann, en ekki allt. „Þegar rannsóknarlög- reglumaðurinn var að yfirheyra fólk, eins og þennan bankastjóra, þá var hann með glott á andlitinu þegar hann var að spyrja hann. Þetta myndi ekki viðgangast í lögreglunni því þetta er graf- alvarlegt mál og viðmótið hlýtur að helgast af því.“ Geir Jón segir heldur alls ekki viðgangast að fólk keðjureyki við rannsókn á vettvangi glæps, eins og ein persónan gerði í þættinum. „Það er mjög óeðlilegt, það er al- gjört grundvallaratriði að menn geri það ekki. Það hefði enginn fengið undanþágu fyrir slíkt hér.“ Glíman í einkalífinu Geir Jón Þórisson „MÉR fannst þetta ekki nógu gott,“ segir Úlf- hildur Dags- dóttir bók- menntafræð- ingur. „Mér fannst þetta þjást af ein- kennum sem eru óþarflega algeng í ís- lensku sjónvarpi og leikhúsi, þetta var svolítið stirðlegt. Ég hef lesið þessa bók og þekki vel til verka þessa höfundar, og það síðasta sem er hjá honum er svona striðleiki og tyrfni. Sér- staklega er þessi bók létt og lif- andi.“ Léttleikinn er ekki það eina sem Úlfhildur saknar úr bókinni. „Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti því að bók sé tekin og henni breytt því þetta er nýr miðill og nýjar aðstæður. En það sem gaf þessari bók svona auka „spúnk“ var að hafa aðallögreglumanninn af víetnömskum ættum. Í þætt- inum var verið að búa til sam- bærilega persónu, einstæðing sem er að einhverju leyti utan- veltu í samfélaginu og það bara virkaði ekki.“ Úlfhildur ætlar þrátt fyrir allt að fylgjast með framhaldinu, enda segir hún ekki hægt annað en að fylgjast með íslenskum glæpaþáttum. „Þetta var bara fyrsti þátturinn, ég er að vona að það lifni yfir þessu.“ „Ekki nógu gott“ Úlfhildur Dagsdóttir SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRISÝND Í KRINGLUNNI Frábær gamansöm þroskasaga með Ryan Gosling í aðalhlutverki / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI HORTON kl. 6 LEYFÐ NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10:30 B.i.16 ára P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ THERE WILL BE BLOOD kl. 10:30 B.i.16 ára UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 5:50 LEYFÐ STEP UP 2 kl. 8 B.i.7 ára FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA eeee OK! eeee NEWSDAY eeee EMPIRE eeee - G.H.J POPPLAND styrkir Geðhjálp HANNA MONTANA kl 6 3D - 8 3D LEYFÐ 3D DIGITAL 10,000 BC kl. 10D B.i.12 ára DIGITAL SPIDERWICK CHRONICLES kl 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára JUNO kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára HANNA MONTANA kl. 6 3D LEYFÐ 3D DIGITAL LARS AND THE REAL GIRL kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 LEYFÐ 10,000 BC kl. 6 - 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL 10,000 BC kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára LÚXUS VIP THE BUCKET LIST kl. 8:20 - 10:30 B.i. 7 ára THE BUCKET LIST kl. 5:50 B.i. 7 ára LÚXUS VIP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.