Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 47 BANDARÍKJAMENN hafa verið duglegir við að endurgera asískar hryllingsmyndir undanfarin ár. Shutter er ein af þeim. Myndin var upprunalega drauga- saga frá Tælandi. Nú er búið að heimfæra söguna upp á bandarískt par, Ben (Joshua Jackson) og Jane (Rachael Taylor), á ferð í Japan, og japanskur hryllingsmyndaleikstjóri fenginn til verksins. Parið eru nýgift og lukkulegt, en Adam er auðvitað aldrei lengi í Paradís. Ben og Jane eru varla lent í Japan þegar þau lenda í dularfullu bílslysi sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Vandi Shutter er töluverður af því að sem draugasaga vekur hún af- skaplega takmarkaðan hroll. Dram- að vantar einnig af því að lopinn er teygður óhóflega, og nánast ekkert kemur á óvart. Vofan (Megumi Ok- ina) er í stíl Ringu (The Ring), Ju-on (The Grudge) og Honogurai mizu no soko kara (Dark Waters) nema hún er strax mun aumkunarverðari. Maður er guðslifandi feginn þegar Jane loksins kveikir á perunni og áttar sig á því um hvað draugagang- urinn snýst þannig að hægt er að ljúka málinu. Framliðnar fyrirsætur KVIKMYND Smárabíó, Sambíóin Akureyri Leikstjóri: Masayki Ochiai. Leikarar: Jos- hua Jackson, Rachael Taylor, Megumi Okina, David Denman, John Hensley, Ma- ya Hazen. Bandaríkin. 85 mín. 2008. Shutter bbnnn Anna Sveinbjarnardóttir Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „JA… þá sáum við að minnsta kosti að við gátum eitthvað,“ segir Magn- ús Bjarni Gröndal, söngvari og gít- arleikari We Made God, aðspurður hvort að 3. sæti Músíktilrauna árið 2006 hafi haft eitthvað að segja um áframhaldandi tilvist sveitarinnar. „Nafnið varð líka aðeins þekktara eftir á en við höfðum reyndar verið að spila dálítið áður en við lögðum í keppnina,“ bætir hann við. Sjálfbær þróun Eftir Músíktilraunir hófust þeir félagar handa við að taka upp plötu sem hefur nú loksins litið dagsins ljós, tveimur árum síðar. Margt gekk á í upptökuferlinu, lög voru tekin upp aftur og aftur og var upp- tökum þá stolið á einu bretti á Spáni í fyrrasumar. „Mér finnst þetta allt saman hafa bætt plötuna,“ segir Magnús rólynd- islega og er hinn spakasti. „Það að vinna í þessu svona lengi var mjög lærdómsríkt og í dag erum við með ýmsar brellur uppi í skyrtuermun- um. Að verka þetta svona lengi hent- aði okkur mjög vel, samanborið við að taka þetta upp í einni törn í hljóð- veri. Við unnum þetta út um hvipp- inn og hvappinn og upptökustýrðum þessu sjálfir.“ Umslagshönnun er í höndum sveitarinnar sem er og útgefandi. Það er svo Kimi records á Akureyri sem sér um að dreifa. Kynniseintökum hefur verið dreift á ýmsa málsmetandi menn og þannig fékk platan glimrandi dóma í hinu víðlesna tónlistartímariti Q fyr- ir stuttu, alls fjórar stjörnur af fimm. Sá sem dóminn reit er Paul nokkur Brannigan, ritstjóri Kerr- ang! og einnig lausapenni. „Hann hefur verið dyggur stuðn- ingsmaður sveitarinnar og við tölum reglulega saman í síma,“ segir Magnús. „Hann hefur í raun fylgt okkur í gegnum þetta ferli og gefið góð ráð. Árni Matthíasson dró hann á tónleika með okkur á Airwaves 2006 og hann kolféll fyrir okkur.“ Næsta plata í fæðingu Magnús segir að We Made God sé mikið vinaband, hinir meðlimirnir þrír séu æskuvinir en hann hafi gengið í sveitina eftir að hafa séð auglýsingu frá þeim á rokk.is. „Það er gengisfílíngur í gangi,“ segir Magnús. „Alveg klárlega. Þetta er meira svona fjölskylda en hljómsveit.“ Oft losar fyrsta platan um stíflu og efnið kemur í hrönnum í fram- haldinu. Er það svo með We Made God? „Jú jú, næsta plata er svona að fæðast hjá okkur,“ viðurkennir Magnús. „En við erum þannig hljómveit að ég býst við að plöturnar komi út á Tool-hraða (og vísar þar í bandarísku progg-þungarokkssveit- ina Tool sem læðir út plötum á ca. fimm ára fresti). En akkúrat núna nýt ég þess bara að velta þessari plötu um í hendinni. Hugurinn er þar og ég ætla að leyfa mér að hugsa ekki mikið fram í tímann alveg strax.“ Magnús segir að þeir félagar séu aðeins að pústa núna en engu að síður verður eitthvað um tónleika- hald erlendis í sumar og þá er ekki verra að hafa stjörnum prýdda plötu með í farteskinu. Er „eitthvað stórt gæti gerst“ tilfinning búin að taka sér bólfestu í maganum? „Ja … maður passar sig að vera ekki með of miklar væntingar,“ segir Magnús. „En jú jú, við erum óneit- anlega spenntir. Það er a.m.k. gam- an að láta sig dreyma um það,“ segir hann að lokum. Landslag skýjanna We Made God gef- ur út sína fyrstu plötu, As We Sleep, eftir langt og strangt upp- tökuferli www.myspace.com/wemadegod Morgunblaðið/G.Rúnar We Made God Loksins búnir að senda frá sér plötu, tveimur árum eftir Músíktilraunaævintýrið. eeeee -S.M.E., Mannlíf eeee - S.S. , X-ið FM 9.77 Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó www.laugarasbio.is Kauptu bíómiða á netinu á eeee - L.I.B., Topp5.is/FBL „Mynd sem hreyfir við manni“ eee - S.V., MBL eeee - M.M.J., kvikmyndir.com BYGGÐ Á EINNI VINSÆLUSTU BÓK ALLRA TÍMA. LANG VINSÆLASTA MYND ÁRSINS! 50.000 MANNS! FRÁ LEIKSTJÓRA INDEPENDENCE DAY OG THE DAY AFTER TOMORROW SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Stærsta kvikmyndahús landsins FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA - Ó.H.T. Rás 2 eee - A.S MBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI l ATH: Á UNDAN MYNDINNI VERÐUR FRUMSÝNT FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ (TRAILER) ÚR ICE AGE 3! -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 6 og 8 Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10 Frábær grínmynd - V.J.V. Topp5.is/FBL eee Sýnd kl. 8 og 10 The Spiderwick Chronicles kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára Horton m/ísl. tali kl. 6 Heiðin kl. 6 - 8 B.i. 7 ára The Kite Runner kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára Brúðguminn kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Into the wild kl. 10 B.i. 7ára „Fín Fjölskyldumynd” - 24 Stundir eeeeeee„Allt smellur saman og allt gengur upp” - A. S., 24 Stundir SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Sýnd kl. 6 m/ísl. tali - H.J., MBL eeee - H.J., MBL eeee

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.