Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Fallegar
silkidragtir
fyrir brúðkaupin
M
bl
.9
77
38
8
Nýjar
vorvörur
Str. 36-56
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00
og Eddufell 10.00-14.00
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Skeifan 11d • 108 Reykjavík
sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15
Vönduð ítölsk leðurstígvél
fyrir breiða kálfa
(vídd 44 - 48cm)
skóstærðir 38 - 43
Ný sending af
yfirhöfnum
st: 42-58
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík,
sími 562 2862
Málfundafélagið Óðinn í Reykjavík verður 70 ára
í ár og af því tilefni verður afmælishátíð í Valhöll
laugardaginn 29. mars milli kl. 17 og 19.
Óðinn
70 ára
Léttar veitingar á boðstólum.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið!
Geir H. Haarde,
forsætisráðherra,
heldur hátíðarræðu
og Illugi Gunnarsson,
alþingismaður,
verður veislustjóri.
Nýja línan frá
Fuchs-Schmitt
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ÞAÐ fer ekki fram hjá nokkrum
upplýstum manni þegar Reykjavík-
urmaraþonið er haldið, sérstaklega
ekki eftir að Glitnir hóf að auglýsa
það af miklum móð. Færri, raunar
miklu færri, taka eftir því þegar Fé-
lag maraþonhlaupara (FM) blæs til
vor- og haustmaraþons en það hefur
félagið gert allar götur frá árinu
1998.
Vormaraþonið 2008 verður ein-
mitt haldið á morgun, laugardag.
Ræst verður í maraþoni klukkan
9.00 en í hálft maraþon klukkan
10.30. Leiðin er sýnd á kortinu að of-
an. Þeir sem hlaupa hálft maraþon
hlaupa fram og til baka en maraþon-
hlauparar fara leiðina tvisvar.
Ein af ástæðum þess að færri taka
eftir maraþonum FM er sú að mun
færri hlauparar taka þátt. Í gær
þegar skráningu var næstum lokið
höfðu 17 skráð sig til þátttöku í
maraþoni og hátt í 70 í hálfmaraþoni
en til samanburðar luku rúmlega
500 manns Reykjavíkurmaraþoninu
í fyrra og ríflega 1.500 hlupu hálft
maraþon. En eins og hlauparar vita
þá er magn ekki það sama og gæði.
Félag maraþonhlaupara var
stofnað á hlaupaæfingu hjá hlaupa-
hópnum Öli árið 1997. Tilefnið var að
sumir voru á leið til New York til að
hlaupa maraþonið þar í borg en
mönnum þótti nokkuð dýrt að taka
þátt í hlaupi erlendis, að sögn Gísla
Ásgeirssonar sem hefur verið ritari
félagsins í rúman áratug. Þess vegna
var ákveðið að stofna félag til að
halda fleiri maraþonhlaup á heima-
slóð. Fátt er um áhorfendur en Gísla
finnst það ekki mikið mál. „Við erum
vön því á Íslandi að hafa enga áhorf-
endur enda hlaupum við ekki fyrir
þá,“ sagði hann.
Ræst verður í vormaraþoni
FM í Elliðaárdal í fyrramálið
"*&'
* &&"*
6" 41!!
* &&"*
(7 *!"&1!
* &&"*
!"#!# $ % %!&"!"
' %
(
BETUR fór en á horfðist þegar
fimm ára drengur var að príla yfir
grindverk við leikskóla á höf-
uðborgarsvæðinu á dögunum. Hinn
ungi klifurkappi kom nefnilega
ekki standandi niður heldur datt á
gangstéttina en fallið var nokkuð.
Lögreglumaður við almennt eftirlit
sá til drengsins og kom strax til að-
stoðar. Klifurkappinn bar sig vel
og virtist ekki hafa orðið meint af
en honum var sennilega meira
brugðið við að sjá fulltrúa réttvís-
innar á staðnum. Sá síðarnefndi
var auk þess á lögreglubíl og hafði
sett aðvörunarljós í gang en slíkt
vekur jafnan eftirtekt hjá yngstu
kynslóðinni, segir í frétt frá lög-
reglunni.
Tveir leikfélagar piltsins voru
hinum megin grindverksins, þ.e. á
leikskólalóðinni og í nokkru skjóli
af trjágróðri sem þarna er, og
fylgdust með atburðarásinni. Sjálf-
sagt hafa þeir ætlað að fylgja for-
ingja sínum á vit ævintýranna en
líklegt má telja að hér hafi verið
um að ræða misheppnaðan flótta úr
leikskólanum.
Hætt er við að drengirnir verði
að bíða betri tíma til að skoða
heiminn því farið var vel yfir málið
á leikskólanum. Niðurstaðan verð-
ur væntanlega sú að þremenning-
unum verður hér eftir ekki hleypt
út á undan öðrum börnum en svo
var víst raunin í þessu tilviki. Þess
má geta að ungi klifurkappinn hef-
ur nokkurt orð á sér fyrir að príla
en eftir þessa reynslu má búast við
að hann hafi lært sína lexíu.
Misheppn-
aður flótti
úr leikskóla