Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 23
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 23
x x x
Vinkona Víkverjakvartar sáran
þessa dagana yfir vönt-
un á vori. Henni finnst
hún hafa verið svikin
með því að hafa
páskana svona snemma
á árinu því það veldur
ruglingi á væntingum
hennar til þess hvenær
vorið á að koma.
Vinkonan á nefnilega
því að venjast að vorið
komi eftir páska en sú
var ekki raunin í gær-
morgun þar sem hún
fann frostið skella
hörkulega á sólþyrstum kinnum sín-
um um leið og hún skrönglaðist út í
bíl í morgunsárið. Snjókorn flugu í
hár hennar, óvarið vegna vorvænt-
inganna, og allan daginn sat þessi
vinkona – sem alla jafna er býsna
heitfeng – og skalf á sumarbolnum
sínum í vinnunni.
Vinkonan segist þó hafa fundið
ráð. Hún hefur ákveðið að blanda sér
litríka kokteila með suðrænu ávaxta-
bragði um helgina og þannig senda
kuldabola langt nef um leið og heitur
kraftur drykkjanna færir henni
hlýju í hjarta og sál.
Ef andinn kemur yfir hana úti-
lokar hún ekki að skella sér að auki í
strápils og dansa nokkra velvalda
húladansa á stofugólfinu með blóm á
bak við eyrað.
Víkverji verður seinttalinn til stórnot-
enda bóka, a.m.k. ef
miðað er við hans betri
helming sem hreint og
beint spænir upp
hverja skrudduna á
fætur annarri. Þannig
tók það makann aðeins
um einn og hálfan
klukkutíma að drekka í
sig 140 blaðsíðna bók,
sem Víkverji hefur tek-
ið nokkur kvöld í að
stauta sig í gegn um.
Svo rammt kveður
að bókaþörf makans að
hann gengur um eirð-
arlaus og titrandi þeg-
ar ekkert nýtt lesefni er við hendina,
líkt og alkóhólisti sem þráir áfengi
eða reykingamaður sem vantar
smók. Fíknir geta svo sannarlega
verið af misjöfnu tagi!
Þetta hefur valdið Víkverja heila-
brotum um verðgildi hluta. Hann var
alinn upp í þeirri trú að bækur væru
sérlega góðar og eigulegar gjafir en í
meðförum makans virðast þær að-
eins vera stundarskemmtun, sem í
sumum tilfellum varir skemur en
meðalbíómynd. Þó kostaði umrædd
bók margfalt meira en bíómiði.
Sem betur fer hefur maki Vík-
verja tamið sér að nýta sér þjónustu
bókasafna til að fullnægja bóka-
þorsta sínum, auk þess sem bók-
hneigðir ættingjar hans lána honum
fúslega bækur til að lesa.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Eftir Steingrím Sigurgeirsson
sts@mbl.is
Það hefur verið hálfgertþjóðarsport vínáhuga-manna undanfarin ár aðlofa og gagnrýna vínhúsin
í Bordeaux á víxl. Margir af ár-
göngum síðustu ára hafa verið lof-
aðir upp í hæstu hæðir og þá ekki
síst 2005-árgangurinn sem strax í
upphafi aldarinnar var sagður vera
árgangur aldarinnar. Gagnrýnin
hefur hins vegar ekki síst beinst að
verðlagningu vínanna sem hefur
sprengt alla skala síðustu árin.
Verð fór að síga hressilega upp á
við með „aldamótaárganginum“
2000 sem var ekki bara flott tala
heldur frábær árgangur og svo
héldu verðin áfram upp á við og
náðu sögulegu hámarki 2005.
Hluti skýringarinnar er staða
efnahagsmála en mikið fjármagn
hefur verið í umferð og nýríkir
markaðir í Asíu hafa gleypt til sín
Bordeaux-vín í ómældu magni. Þar
vilja menn að sjálfsögðu aðeins
flottustu nöfnin og skiptir þá engu
hvað vínin kosta. Eftir sitja hinir
hefðbundnu markaðir í Evrópu og
jafnvel Bandaríkjunum með sárt
ennið þar sem Bordeaux-unnendur
hafa ekki lengur efni á að kaupa
vínin sem þeir hafa keypt árum og
áratugum saman. Jafnvel þegar
miðlungs árgangur fylgdi í kjölfar-
ið – þ.e. árgangurinn 2006 – lækk-
uðu vínin einungis brot af því sem
þau höfðu hækkað árið áður. Það
eru því margir sem bíða spenntir
eftir þróuninni í ár. Annars vegar
er efnahagsástandið í heiminum
vægast sagt annað en fyrir ári og
sömuleiðis virðist ljóst að árgang-
urinn 2007 sé ekkert stórkostlegur
þó ekki verði hann flokkaður sem
beinlínis slæmur.
Haustsólin bjargaði miklu
Undanfarna daga hafa vínhúsin í
Bordeaux verið að halda fyrstu
svokölluðu en primeur-smakk-
anirnar á árganginum en þar er
um að ræða smakkanir á tunnu-
sýnum enda fara vínin ekki á
flösku fyrr en að ári eða svo. Síðar
í vor byrja vínhúsin að gefa út
verð og þá hefst salan á vínunum
þótt þau séu enn á tunnu. Þetta
fyrirkomulag, sem nær til bestu
vína Bordeaux, er einstakt og felst
í því að vínmiðlarar festa sér vínin
snemma og koma þeim síðan áfram
til viðskiptavina.
En hvað segja menn svo um
2007. Veðrið var slæmt í Bordeaux
síðasta sumar, grámyglulegt og
mikið rigndi. Að því leytinu til ótt-
uðust margir að 2007 gæti orðið
slappur árgangur á borð við 1984,
1992 og 1994. Góðu fréttirnar eru
að sú virðist ekki ætla að verða
raunin. Sólin lét loks sjá sig í sept-
ember og október, sem er einn
mikilvægasti tíminn, þ.e. rétt fyrir
uppskeru. Rigning á uppskerutím-
anum er eitt það versta sem hendir
vínbændur. 64 sólardagar í röð líkt
og síðasta haust geta hins vegar
bjargað miklu. 2007 virðist því ekki
ætla að verða hræðilegur árgangur
líkt og margir voru farnir að óttast
heldur þægilegur og aðgengilegur
árgangur, sem hefur kannski ekki
dýpt hinna stóru árganga, en ætti
á móti að veita ánægju mun fyrr,
jafnvel fljótlega eftir að vínin koma
á markað. Sumir hafa borið hann
saman við 2001, aðrir nefna 2002
og jafnvel 2004.
Mesta óvissan er hins vegar
varðandi verðlagninguna. Enginn
býst við því að frægustu húsin í
Premier Grand Cru Classé flokkn-
um á borð við Lafite og Latour
lækki verðið frá 2006. Eftir því
sem neðar dregur á skalanum gæti
hins vegar myndast veruleg pressa
á verðlækkun. Margir vínmiðlarar
frá Bandaríkjunum kusu að snið-
ganga smakkanirnar í Bordeaux
nú á dögunum og segja áhuga á ár-
ganginum lítinn sem engan í ljósi
verðþróunar síðustu ára. Ekki
hjálpar mikil styrking evrunnar
gagnvart dollar og pundi en jafnvel
þótt verð yrði lækkað nokkuð
myndu neytendur í Bretlandi og
Bandaríkjunum ekki endilega
njóta góðs af því. Hvað þá með
okkur!
Bordeaux 2007 – ekki alslæmur?
Reuters
Safarík Margir óttuðust að 2007 gæti orðið slappur árgangur vegna veðursins í Bordeaux síðastliðið sumar.
Undanfarna daga hafa vín-
húsin í Bordeaux verið að
halda fyrstu svokölluðu en
primeur-smakkanirnar á
árganginum ...
20% afsláttur af
bílaleigubílum erlendis!
Bókaðu bílaleigubíl fyrir sumarfríið
hjá Avis í mars og þú færð 20% afslátt
í formi safnkortspunkta hjá N1.
Bókaðu strax bíl á avis.is og safnaðu punktum!
Sæktu um Safnkort N1 á avis.is. Einn punktur jafngildir einni krónu.
Knarrarvogi 2 • Sími 591 4000 • avis.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
24
46