Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ERU KATTARHÁR
Í SMÁKÖKUKRÚSINNI!
...OG
SMÁKÖKUR Í
KETTINUM
ÞAÐ ER SVO GOTT
FYRIR SÁLINA AÐ
SPARKA Í BOLTA
OHH! STUNDUM ÞOLI ÉG
EKKI AÐ EIGA HÚS.
ÞAÐ ÞARFNAST SVO
MIKILS VIÐHALDS
ÞAÐ ÞARF AÐ MÁLA VEGGINA,
LAGA HURÐINA, KLIPPA
GREINARNAR Á STÓRA
TRÉNU ÚTI Í GARÐI
MÉR FINNST EINS OG ALLT
SÉ AÐ DETTA Í SUNDUR
OG ÞAÐ SEM ER EKKI AÐ
DETTA Í SUNDUR ER
EYÐILAGT
Í DAG FÖRUM VIÐ OG
BERJUMST VIÐ ATLA
HÚNAKONUNG OG MENN HANS!
OG ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT
FYRIR YKKUR AÐ REYNA
AÐ SEGJA MÉR AÐ ÞIÐ
SÉUÐ VEIKIR!
EN EF ÉG SEGI ÞÉR
AÐ ÉG SÉ MEÐ MJÖG
SLÆMA TANNPÍNU
ÉG ER MEÐ SPÍNAT
Í NESTI. Í ÞESSUM
SKÓLA BORÐUM VIÐ
ALDREI SKYNDIBITA
ÉG ER
HELDUR
EKKI MEÐ
SKYNDIBITA
ÉG ER MEÐ
ROTTU SEM
ÉG FANN ÚTI
Á GÖTU
HÆ,
MAMMA OG
PABBI
HÆ, ADDA! KOSNINGARNAR
KOMA BRÁÐUM. ÉG ER AÐ
VINNA FYRIR FRAMBJÓÐANDA
DEMÓKRATA EN PABBI ÞINN
STYÐUR REPÚBLIKANA
ERUÐ
ÞIÐ ÞÁ
EKKI
ALLTAF AÐ
RÍFAST?
EKKI Í
ÞETTA SKIPTIÐ.
PABBI ÞINN ER
SAMT ALLTAF
MEÐ SKÆTING,
EN MÉR ER
SAMA...
SVO LENGI SEM
FYLGI ÞESS SEM
HANN STYÐIR
NÆR EKKI TUG
ÞAÐ ERU
TVÆR
VIKUR
EFTIR
HVAÐ
UM DR.
OCTOPUS?
HANN FÓR,
ÞÖKK SÉ ÞÉR
EN ÉG NÁÐI
ENGUM
MYNDUM
ÞAÐ ER ALLT
Í LAGI...
KEPPINAUTAR
ÞÍNIR NÁÐU
HEILUM HELLING
dagbók|velvakandi
101 Hvað?
Í SJÓNVARPINU þessa dagana má
sjá eftirsóttasta póstnúmer Íslands,
101 Reykjavík, sem hryggðarmynd.
Ég bjó þar í níu ár á sínum tíma, í
Þingholtunum, rétt við Skólavörðu-
stíginn. Það var frábært, 5 mínútna
labb í vinnuna og allar búðir sem eitt
heimili þurfti á að halda voru á
næsta horni eða handan við það.
Heimilistæki, rafmagnssnúrur og
klær, veggfóður, málning, tau og töl-
ur, pottar og diskar, bækur, músik
og ótal matvörubúðir … að ekki sé
minnst á Mokka, sem var nánast
miðdepill tilveru fjölda skemmtilegs
fólks og það brást aldrei að líta þar
inn sér til upplyftingar.
Svo eignaðist ég mann, börn og bíl
eins og gengur. Og kött sem lifði í tíu
mínútur þegar honum var loks
hleypt út í fyrsta sinn. Börnin fengu
aldrei að fara út ein. Hvergi sást
grasstrá eða blóm út um neinn
glugga.
Árin liðu. Á skömmum tíma hurfu
flestar búðirnar, það var gengið yfir
bílinn minn, jafnvel á takkaskóm.
Þegar ég fór að neyðast til að keyra í
önnur hverfi eftir nauðsynjum varð
ég oft að leggja bílnum óravegu frá
þegar ég kom heim og hlaupa svo út
um sjöleytið til að sækja hann heim
að húsinu. Brátt var ekki lengur
hægt að hafa opna glugga götu-
megin, vegfarendur fleygðu rusli inn
eða kýldu fagið úr, brutu rúðuna eða
eitthvað. Svo varð ekki hægt að sofa
fyrir opnum glugga bakatil fyrir há-
vaða, öskrum og bílflauti. Morg-
unloftið angaði af hlandlykt. Eitt
kvöldið þegar maðurinn minn kom
úr einni langsiglingunni játaði ég
uppgjöf fyrir aðstæðunum og vildi
flytja. Hann hafði alla sína ævi átt
heima í 101 og skildi illa málið.
Smáfrí hjá foreldrum mínum fyrir
norðan, þar sem var stór garður með
grasi og trjám og tveir bráðlifandi
kettir, fór langt með að sannfæra
hann. Börnin komust í snertingu við
náttúrna og vildu helst ekki fara aft-
ur. Úrslitum réð þó að stöðumæli
var plantað við útidyrnar hjá okkur
og að bóndinn fékk vatnsblöðru í
andlitið, inn um stofugluggann, eitt
kvöldið þegar hann ætlaði að hafa
það huggulegt. Við seldum, fluttum í
Garðabæ, höfum hund, kött og páfa-
gauk, nóg af grasi , trjám og frísku
lofti. Engir stöðumælar, næg bíla-
stæði og allar búðir sem eitt heimili
þarf eru ýmist á staðnum eða hand-
an við aðra hvora hæðina, í Hafn-
arfirði eða Kópavogi.
Áhyggjulaus húsmóðir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Á Reykjanesi eru margir skoðunarverðir staðir og ekki langt á milli
þeirra. Þessi mynd sýnir einn fallegan stað á Reykjanesi, Hafnir, en þar ná-
lægt er t.d. hægt að skoða fjölbreytt fuglalíf svo aðeins eitt sé nefnt.
Hafnir á Reykjanesi
FRÉTTIR
KATHRYN Kelly heldur námskeið
um áhrif fósturskaða vegna áfeng-
isneyslu (Fetal Alcohol Spectrum
Disorder, FASD) og hvernig hann
tengist auknum líkum á því að ein-
staklingar sem þannig hafa skaðast
komist í kast við lögin mánudaginn
31. mars.
Með FASD er átt við þau var-
anlegu skaðlegu áhrif sem áfengi
getur haft á fóstur og líf einstak-
lingsins, en áfengisneysla getur
skaðað fóstur hvenær sem er á
meðgöngu. Öll líffærakerfi geta
skaðast af þessum sökum en mest
hætta er á heilaskaða. Fólk sem
hefur orðið fyrir varanlegum skaða
vegna áfengisneyslu móður á með-
göngu er mun líklegra en annað
fólk til að komast í kast við lögin
og enda fyrir dómstólum, segir í
fréttatilkynningu.
Kathryn Kelly stýrir samstarfs-
verkefni þriggja deilda innan Uni-
versity of Washington, Seattle, þ.e.
læknadeildar, lagadeildar og fé-
lagsvísindadeildar. Verkefnið veitir
ráðgjöf til ýmissa aðila s.s. rétt-
arkerfis, lögfræðinga og foreldra
vegna einstaklinga með FASD (Fe-
tal Alcholic Spectrum Disorders).
Hún stýrir einnig verkefni á vegum
héraðsdóms Seattle sem miðar að
því að efla lífsleikni einstaklinga
með FASD.
Á námskeiðinu mun Kelly kynna
aðferðir til að greina FASD og
áhrifaríkar aðferðir til að með-
höndla einstaklinga með FASD
jafnframt því að kynna hvaða að-
ferðum dómskerfið getur beitt til
að ná árangri með slíka einstak-
linga.
Námskeiðið er hugsað fyrir fag-
fólk á sviði réttarkerfis, heilbrigð-
is- og félagskerfis en Kelly hefur
haldið sambærilega fyrirlestra
víða, bæði innan og utan Banda-
ríkjanna.
Námskeiðið er haldið mánudag-
inn 31. mars kl. 8:30-11:30 í hús-
næði Endurmenntunar, Dunhaga 7.
Fósturskaði vegna áfeng-
isneyslu á meðgöngu eyk-
ur líkur á afbrotahegðun