Morgunblaðið - 03.04.2008, Síða 29

Morgunblaðið - 03.04.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 29 ✝ Erla Ágústs-dóttir fæddist í Reykjavík 21. júlí 1932. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykja- vík að kvöldi skír- dags 20. mars síðast- liðins. Erla var yngst fjögurra systkina. Foreldrar hennar voru hjónin Ágúst Markússon vegg- fóðrarameistari, f. 1891, d. 1965, og Guðrún Guðmunds- dóttir, f. 1893, d. 1947. Systkini Erlu eru: Hörður, f. 1922, d. 2005; Kristín, húsfrú í Washington, f. 1923, d. 2001; og Jóhann, fv. að- stoðarbankastjóri, f. 1930. Erla lauk námi frá Kvennaskól- anum í Reykjavík 1950, vann á bæjarskrifstofunni í Reykjavík frá 1952, hóf störf sem flugfreyja hjá Loftleiðum vorið 1956 og sinnti því starfi til ársins 1982. Auk þess var hún kennari á flug- freyjunámskeiðum frá 1962 allt fram til 1998, og var eftirlits- freyja frá 1970-1982. Hún var formaður Flugfreyjufélagsins 1959-60 og sat í samninganefnd fé- lagsins frá 1960 til 1966, þegar flug- freyjur fóru í sitt fyrsta verkfall. Starfaði hjá Flug- leiðum eftir samein- ingu Loftleiða og Flugfélags Íslands árið 1973. Hafði yfirumsjón með pílagrímaflugi í Nígeríu 1976 og Indónesíu 1978. Eftir að hún hætti að fljúga fór hún yfir í áhafnaskrána og starfaði þar óslitið, auk þess að sinna kennslu- og öryggismálum, þar til hún lét af störfum 21. júlí 2001. Útför Erlu fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Mágkona mín og vinkona Erla Ágústsdóttir lést fimmtudaginn 20 mars. Margs er að minnast eftir nær 60 ára vinskap. Ég var aðeins 16 ára þeg- ar ég kynntist fjölskyldunni á Frakkastíg 9, Jóhanni, Erlu, Ágústi föður þeirra og Ásu systur hans en Guðrún móðir Erlu og Jóhanns var þá látin. Kristín systir Erlu og Hörður bróðir hennar voru þá flutt að heiman. Erla sá um heimili föður síns þar til hann lést árið l965. Alla tíð var mjög gott samband á milli feðginanna. Kristín, systir Erlu, bjó í Bandaríkj- unum ásamt fjölskyldu sinni. Heimili Kristínar var sem annað heimili Erlu, sérstaklega eftir að faðir hennar lést. Erla útskrifaðist úr Kvennaskóla Reykjavíkur árið l950. Hún mat skól- ann og skólasystur sínar mikils og vinskapur við þær hélst alla tíð. Árið 1956 hóf Erla störf hjá Loft- leiðum. Flugfreyjustarfið átti mjög vel við hana og gegndi hún mörgum ábyrgðarstörfum innan félagsins, var eftirlitsflugfreyja, kenndi tilvonandi flugfreyjum, var um tíma formaður flugfreyjufélagsins, sat í samninga- nefnd fyrir þeirra hönd o.fl. Haft var eftir henni í bókinni Dagur við ský eftir Jónínu Mikaelsdóttur: „þó að flugið og ferðalögin hafi heillað á yngri árum og geri enn er mannlegi þátturinn, vináttan og virðingin sem gerir mér þetta fyrirtæki jafn kært og raun ber vitni. Þar er taugin sem tengir mig við upphafið og eftir henni berast enn í dag leifar frá liðnu vori“. Þetta voru orð að sönnu því þó hún síðastliðið ár væri orðin mjög veik kom sælusvipur á hana þegar minnst var á flugið og þessa tíma. Þegar Erla hætti sem flugfreyja bauðst henni starf á skrifstofu Flugleiða. Erla var afskaplega barngóð og nutu börnin okkar Jóhanns þess. Mjög oft gætti hún þeirra, bæði lengri og skemmri tíma, hún var mjög greið- vikin og ef til vill notaði maður það sér of oft, þó veit ég að hún naut þess að gera öðrum greiða. Síðast og ekki síst ber að þakka glæsileg jóla- og ár- mótaboð sem Erla hélt fyrir alla fjöl- skylduna, þau eru okkur öllum ógleymanleg. Með þakklæti í huga kveð ég vin- konu mína. Svala Magnúsdóttir. Komið er að leiðarlokum hjá föð- ursystur minni, Erlu Ágústsdóttur. Seinni hluta ævinnar hefur Erla marga fjöruna sopið hvað heilsufar snertir. Af æðruleysi tókst hún ávallt á við veikindi sín og hafði jafnan sigur. Fyrir nokkrum misserum varð þó ljóst að tekið hafði sér bólfestu sjúk- dómur sem ekki verður sigrast á. Þykist ég viss um að undir lokin hafi hún verið orðin sátt við að kveðja þennan heim. Engu að síður er sárt að horfa á eftir ættingja sem hefur verið manni nákominn alla tíð og minning- arnar hrannast upp. Erla var yngst systkinanna fjög- urra. Þau misstu móður sína ung og það kom í hennar hlut þegar fram liðu stundir að halda heimili fyrir afa Ágúst, fyrst á Frakkastíg 9 og síðan í Grænuhlíð 12. Frá því ég fyrst man eftir mér starfaði hún sem flugfreyja hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum. Á þeim árum var mikill ævintýraljómi yfir fluginu. Mér þótti mikil upphefð í að eiga fyrir frænku flugfreyju sem flaug reglulega heimsálfa á milli. Á æskuárum mínum gat flugfólkið nefnilega borið heim ýmsan varning frá útlöndum sem ekki var fáanlegur hér heima eftir hefðbundnum leiðum. Því fylgdi ávallt mikil eftirvænting að fara í heimsókn til Erlu frænku. Hún var alltaf svo hress og hafði gaman af að gantast við okkur krakkana og svo gaukaði hún auðvitað að okkur dálitlu af útlensku nammi. Erla var á einhvern sérstakan hátt fastur punktur í tilverunni. Það var eins og tíminn stæði í stað í kringum Erlu. Heimilið hennar tók nánast engum breytingum frá því ég man fyrst eftir því. Herbergið hans afa er nákvæmlega eins og það var þegar hann kvaddi þennan heim fyrir rúm- um 40 árum. Meira að segja leikföng- in sem ég lék mér með eru þarna enn á sínum stað. Þótt árin færðust yfir Erlu eins og aðra þá var hún samt alltaf eins, talaði og hegðaði sér eins. Lék sér og sló á létta strengi við börn- in mín eins og hún hafði gert við mig. Hún eignaðist ekki sjálf börn en var að eðlisfari góður uppalandi og lét sér mjög annt um börn sinna nánustu. Erlu var umhugað um að halda ættingjunum og vinum saman. Minn- isstæð eru jóla- og gamlaársboðin sem hún hélt í Grænuhlíðinni. Veislu- borðin svignuðu undan framandleg- um matarréttum en hráefnið var ekki allt fengið úr hefðbundinni íslenskri búð í þá daga. Þegar fram liðu stundir varð, eins og gengur, heldur minni samgangur milli ættingjanna en Erla hélt ávallt góðu sambandi. Hún fylgd- ist vel með öllum og í gegnum hana var maður vel upplýstur um gang mála hjá öðrum í ættinni. Erla var mjög heilsteypt mann- eskja, heiðarleg, sanngjörn og hrein- skiptin. Ég og fjölskylda mín kveðj- um Erlu frænku með söknuði. Magnús Valur Jóhannsson. Fyrsta minning mín um Erlu frænku, eins og hún var alltaf kölluð, er frá upphafi sjöunda áratugarins. Þá er hún að taka leirtau upp úr kassa í eldhúsinu í Grænuhlíð 12, þangað sem þau fluttu, hún og Ágúst Mark- ússon, faðir hennar og afi minn, um 1960, og hlær sínum dillandi hlátri dulítið stríðin í bland. Síðan er það Erla í blágrænu sixties kápunni að koma í heimsókn á Laugaveginn til okkar og taka mig í tíma í „manicure“ með nýja naglasnyrtingasettinu. Skellirnir á borðstofuborðinu þegar þau spiluðu vist hún, afi, pabbi minn og Ása frænka. Lautarferðirnar inn í Bolabás í ágústmánuði á afmæli afa, sem Erla skipulagði og lagði til Mac- intosh-sælgæti og fleira sem hún hafði með frá Ameríku. Erla Kristín og ég í gistingu hjá Erlu 9 ára gamlar með uppblásnar hárþurrkur í amer- ískum nælonsloppum. Fyrir okkur krakkana hennar, sem við vorum öll, bræðra- og systrabörn- in og einnig börn vinkvenna hennar, var hún alger perla. Alltaf mátti fá kók hjá Erlu og jafnvel sleikjó með útlensku bragði. Myndir af þeim öll- um prýða skrifborðið inni í afaher- bergi eins og það var alltaf kallað. Síðar meir jóla- og áramótapartíin hennar Erlu þar sem var kalkúnn á borðum og útlensk skinka og maís- mauk. Fastur liður að ráða mynda- gátuna í Morgunblaðinu. Og þegar maður hafði aldur til var manni boðið upp á vermút í tilheyrandi iitala-glös- um. Hún mundi alla afmælisdagana okkar, mætti alltaf með pakka, og seinna í fermingar og brúðkaup og aldrei var gert upp á milli, allir fengu jafnt. Erlugjafir voru alltaf teknar upp fyrstar á jólunum, fyrir matinn, til að slá aðeins á jólaspennuna. Og börnunum okkar sinnti hún jafnvel, með sömu ræktarseminni, og tók þeim öllum eins og hún ætti þau öll sjálf. Erla var bara þannig mann- eskja, hún tók öllum, börnum sem fullorðnum, vel, var blátt áfram, sagði sínar skoðanir, en sló svo öllu upp í grín og þá var oft grátið úr hlátri. Við eyddum saman sjötugsafmæl- isdeginum hennar, 21. júlí 2002, sem bar upp á sunnudag, saman í Reykja- vík. Fórum í menningarreisu í rign- ingunni og enduðum á eina kaffihús- inu þar sem mátti reykja. Hún heimsótti mig til Vínarborgar fyrir nokkrum árum og þá voru rifjuð upp Evrópuferð hennar og Erlu Ein- ars, góðrar vinkonu á sjötta áratugn- um, þær báðar rétt tvítugar og þótti nokkuð djarft á þeim árum. En þær redduðu sér, þessar konur, sjálfstæð- ar og óháðar. Þannig var það með Erlu alla tíð. Æðrulaus tókst hún á við brjóstakrabbamein og fleiri veik- indi sem á henni dundu þar til minnið fór að bresta og hún var ekki lengur hún sjálf, stjórnaði ekki sínu eigin lífi. Þá gat hún ekki meir, vildi ekki meir. Takk fyrir allt, Erla, við gleymum þér ekki. Steinunn Harðardóttir. Í dag kveðjum við elskulega frænku mína, Erlu Ágústsdóttur, í hinsta sinn. Við stund sem þessa fara ótal minningar um hugann. Eitt það fyrsta sem kemur upp í hugann eru flugfreyjuleikirnir mínir heima hjá Erlu. Sem lítil stelpa fékk ég að klæða mig í flottu flugfreyjubún- ingana hennar, setja á mig hárkolluna hennar og flottan flugfreyjuhatt. Þessir búningar voru í öllum litum og gerðum. Þannig ferðaðist ég um allan heim. Ég ætlaði sko að verða flug- freyja þegar ég yrði stór! Alveg eins og mín uppáhaldsfrænka. Í mörg ár fórum við á vorin saman í fjöruferð. Þá keyrðum við á Lödunni hennar suður með sjó, tókum með okkur nesti, gengum fjörur og söfn- uðum skeljum og fallegum glerbrot- um sem sjórinn hafði unnið á í langan tíma. Þetta var fastur punktur í til- verunni í mörg ár, eða þar til að gelgj- an tók við hjá manni geri ég ráð fyrir. Þegar ég var 12 eða 13 ára bauð Erla mér í ógleymanlega ferð til Banda- ríkjanna að heimsækja Diddý systur hennar. Erla var vön að fara þangað nokkrum sinnum á ári og í þetta sinn var ég svo heppin að fá að fara með. Þetta var frábær ferð og ómetanlegt tækifæri til að kynnast betur frænd- fólkinu sem bjó hinum megin Atlants- hafsins. Erla var einstaklega mikil barna- gæla og því sorglegt að hún skyldi ekki hafa eignast börn sjálf. Hún hugsaði um börn systkina sinna og þeirra barna af einskærri vinsemd og alúð á sinn óeigingjarna hátt. Hún var kona sem átti auðvelt með að gefa öðrum mikla væntumþykju og síðast en ekki síst alltaf stórt knús. Ég er þakklát fyrir að hafa átt öll þessi ár með Erlu og þakka einnig fyrir að börnin mín skuli hafa fengið tækifæri til að kynnast henni. Hvíl í friði. Sólveig Jóhannsdóttir. Þegar horft er yfir litróf minning- anna um Erlu frænku er margt að staldra við. Það leikur sólskin um minninga- brotin úr Grænuhlíðinni. Heimili Erlu var spennandi staður fyrir börn. Dótið í skápnum í norðurherberginu og framandi nammi í skálum í stof- unni. Albúmin frá flugfreyjuárunum hrifu dreymandi stúlku með á fjar- lægari slóðir en nokkur von var til að hún kæmist sjálf á, þótt hún yrði stór. Í albúmunum var gleðin greinilega við völd hjá Erlu og samferðafólki hennar, hún var virkur hluti af Loft- leiðaandanum góða sem orð er haft á hjá þeim sem til þekkja. Henni var glaðlyndið eðlislægt, engin tilgerð þar. Hún gat líka verið hvöss þegar á þurfti að halda og stóð á sínu. Gamlárskvöld og nýársnætur hjá Erlu eru ógleymanleg. Fjölskylda, vinir, allar kynslóðir saman, jafn ánægðar í gleðskapnum, áramót eftir áramót. Nóg að bíta og brenna, fast og fljótandi. Sprengjugleði í garðin- um og stöðugt rennerí af fólki var krydd í stemninguna. Gjafmildi Erlu var ríkur þáttur í fari hennar. Mér fannst hún alltaf vera að gefa mér eitthvað, hvort sem var eitthvert smáræði sem mér þótti til um eða stóru, fallega innpökkuðu jóla- og afmælisgjafirnar. Gjafmildin fólst líka í að gefa fólki að borða, hvort sem var í veislum eða hversdags. Og að vera það sem hún var og taka alltaf svo vel á móti. Myndin sem kemur upp í hugann er brosandi Erla sem er um það bil að fara að knúsa mann. Ófáar hremmingar, sjúkdómar af ýmsum toga, sumir illkynja, dundu yfir Erlu á seinni hluta ævi hennar en af óskiljanlegu æðruleysi stóð hún ávallt upp og horfði bjartsýnum aug- um fram á veginn. Hún lifði að fylgj- ast með börnum systkinabarna sinna vaxa úr grasi og barnabörnum vin- kvenna. Það er stór hópur sem hún átti hlut í, var nokkurs konar spari- amma þessara barna. Heilabilun með hröðum framgangi tók Erluna sem við þekktum frá okk- ur fyrir nokkru. Nú hefur hún kvatt fyrir fullt og allt og er lögð af stað í sína hinstu för um ókunnar víddir. Ef til vill er þar umhorfs líkt og við sól- arupprás ofar skýjum í 33 þúsund feta hæð. Ég vil þakka Erlu fyrir mig og mína. Guð blessi minningu hennar. Guðrún Harðardóttir. Mínar fyrstu minningar um Erlu eru frá sjö ára aldri þegar hún eyddi sumarfríinu sínu með okkur í Aþenu. Við tókum á móti henni á flugvellin- um og ég man enn hvað hún var glæsileg. Í augum lítillar stelpu var hún stórglæsileg. Hún faðmaði okkur öll á flugvellinum eins og við værum gamlir vinir hennar. Þetta sumar var upphafið að löngum vinskap við frænku mína. Við eyddum sumrinu í að skoða ferðamannastaði, liggja á ströndinni, læra gríska dansa og út- reiðartúra á ösnum. Ég man enn hlát- urinn hennar þegar hún sat asnana ásamt Jim. Þetta var ógleymanlegt sumar. Þegar við fluttum til Bandaríkj- anna var heimili okkar oft sá staður sem hún kom til að hvíla sig og ná kröftum. Hún kenndi mér 13 ára gamalli að krulla hár mitt, hún kenndi mér að dansa og deildi áhuga mínum á bókum. Fyrir ungling sem fannst lífið ekki alltaf vera réttlátt var ómet- anlegt að hafa Erlu því hún átti svo gott með að hlusta á unglingavanda- málin og gefa góð ráð. Ég mun ávallt minnast Erlu með mikilli væntum- þykju. Karin Cannaday. Nú er hún Erla Ágústsdóttir, félagi okkar í Svölunum, félagi núverandi og fyrrverandi flugfreyja, farin yfir móðuna miklu. Hún mun þó aldrei fara alveg frá okkur því að minningin um hana mun lifa með okkur um ókomin ár, hennar sterka mynd mun seint gleymast. Erla sá í mörg ár um þjálfun á okk- ur flugfreyjunum, einnig eftir að hún hætti sjálf að fljúga. Þar naut hún sín vel enda var það henni eðlilegt að vita hvað átti að gera hverju sinni. Hún var mjög ábyggileg í starfi sínu og var okkur hinum ávallt góð fyrirmynd og ekki síst styrkur þegar á þurfti að halda. Hún átti auðvelt með að um- gangast fólk og einnig að leysa hvers kyns vanda sem upp kom. Því var það við hæfi að hún tæki að sér að kenna okkur hinum hvernig hægt væri að leysa málin við þær ótrúlegu aðstæð- ur sem flugfreyjur lenda oft í við starf sitt. Ég kynntist Erlu þegar sameining Flugfélags Íslands og Loftleiða átti sér stað. Hún var þá eftirlitsflug- freyja Loftleiða en ég hafði verið flug- freyja hjá Flugfélagi Íslands. Heppni mín fólst í því að hún hafði unnið með manninum mínum hjá Loftleiðum og þegar hann bað hana um að passa mig í stórborgum Bandaríkjanna þá tók hún það svo bókstaflega að hún var með mér í öllum mínum fyrstu ferð- um. Hún kynnti mig fyrir Ameríku og öllu því sem hún hefur upp á að bjóða. Það sem Erla tók að sér gerði hún eins vel og mögulegt var. Í félaginu Svölunum, félagi fyrr- verandi og núverandi flugfreyja, var Erla virk eins og alls staðar þar sem hún kom að. Hún hafði mjög mikinn áhuga á að vernda sögu flugfreyja, t.d. safnaði hún hinum ýmsa einkenn- isfatnaði flugfreyja í mörg ár. Hún varðveitti hann og þökk sé henni þá er þessi saga flugfélaganna til í ein- kennisfatnaði í dag. Erla afhenti okk- ur í Svölunum þennan fjársjóð til varðveislu og erum við ævinlega þakklátar fyrir það. Ég vil persónulega þakka fyrir að hafa kynnst Erlu, hún gerði mig að betri konu. Við Svölurnar minnumst Erlu með virðingu og þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur og með okkur í gegnum tíðina. Við kveðjum þig með söknuði. F.h. Svalanna Bryndís Guðmundsdóttir. Erla Ágústssdóttir  Fleiri minningargreinar um Erlu Ágústssdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Sendum myndalista ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, EINARS HALLDÓRS BJÖRNSSONAR bifreiðastjóra, Hjallaseli 55, áður Hjarðarhaga 40. Sérstakar þakkir til starfsfólks Seljahlíðar og sr. Hans Markúsar Hafsteinssonar. Björn Á. Einarsson, Emilía Jónsdóttir, Tómas Á. Einarsson, Elísabet Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.